Þjóðviljinn - 23.10.1975, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 23.10.1975, Blaðsíða 8
8 StÐA — ÞJODVILJINN Fimmtudagur 23. október 1975. Skagamenn sluppu betur en flestir þorðu að vona Þá er eldraun skaga- manna lokið. Leikurinn hræðilegi við Dynamo Kiev er loksins búinn og vissu- lega geta menn verið á- nægðir með úrslitin. Þrjú núll í fyrri leiknum eru betri úrslit en f lestir reikn- uðu með, þeir bjartsýnustu eru e.t.v. ekki himinlifandi en aðrir líklega rúmlega það, að vera aðeins sáttir við hvernig fór. Ekki er að efa að siðara leiksins verður beðið með mikilli eftir- væntingu, þótt hann verði vafa- laust ekki ieikinn við jafn góðar aðstæður og ytra. Hætt er við að veðurguðirnir geti ekki aumkvað sig yfir berlappaöa islenska fót- boltamenn i nóvembermánuði, þeir hafa sjaldnast verið svo ör- látir. En ekki er þó hægt að reikna með öðru en að það verði stór- kostlegt að sjá þetta fræga rúss- neska lið leika hér á landi. Dyna- mo Kiev er i raun nokkurs konar landslið sovétmanna og i frétta- skeyti Reuters i gærkvöldi var sagt, að „reykviska liðið Akra- nes” gæti svo sannarlega vel við úrslitin unað. Þaö voru fimmtiu þúsund manns sem sáu þennan ieik og var hann leikinn i flóðljósum i borginni Kiev, sem liggur á milli Svartahafs og Moskvu. I leikhléi var staðan 2-0 og markaskorarar rússa voru þeir Buryak með tvö mörk og Blokhim með eitt mark i siðari hálfleik. En það voru fleiri austantjalds- þjóðir en rússar sem fóru vel af stað i annarri umferð. Júgó- slavnesku snillingarnir i Hajduk Split, sem einnig leikur i evrópu- keppni meistaraliöa, sigruðu belgiska liðið Molenbeek með 4-0. I leikhléi var staðan 3-0 fyrir júgóslava og margir spá Hajduk Split sigri i evrópukeppninni að þessusinni. Yfirburðir liðsins eru miklir og að sögn eru fá lið, sem hafa eitthvað að gera i klærnar á Split, sem leikur stift til vinnings i keppninni. Ahorfendur á þessum leik voru um þrjátiu þúsund og fór hann fram i Júgósiaviu. PSV Eindhoven, þýsku meist- ararnir sigruðu andstæðinga sina Ruch Chorzov frá Póllandi. Fyrsta markið kom i fyrri hálf- leik og það gerði sænski knatt- spyrnumaðurinn kunni, Ralf Ed- ström, sem þjóðverjar keyptu fyrir nokkru. 1 leikhléi var staðan 1-0 en leiknum lauk með þrjú eitt sigri þjóðverja. Rússneska liðið Ararat lék i evrópukeppni bikarhafa gegn West Ham og fór leikurinn fram i Englandi. Þar var hart barist til siðustu minútu og lokatölur urðu 1-1 jafntefli. Alan Taylor tók for- ystuna fyrir West Ham i siðari hálfleik en rússar jöfnuðu með marki Petrosyan. Var markið af- ar umdeilt og að flestra áliti ólög- legt, þar eð sovétmaðurinn mun hafa sparkað boltanum úr hönd- um markvarðar. Celtic sótti portúgalska liðið Boavista Porto heim i gærkvöldi með Jóhannes Eðvaldsson i broddi fylkingar. Leiknum þar lauk með markalausu jafntefli. Stóð lið Jóhannesar þó tæpt rétt fyrir leikslok. Þá var dæmd vita- spyrna á skotana en Peter Latch- ford bjargaði meistaralega. Það kom nokkuð á óvart að AC Milan skyldi ekki takast að brjóta irska liðið Athlone á bak aftur. Leiknum lauk með 0-0 jafntefli og voru irarnir óheppnir að sigra ekki, þvi John nokkur Minnock misnotaði vitaspyrnu og þrjú núll tap fyrir Dynamo Kiev á heimavelli er ekkert til að skammast sín fyrir Það hefur verið nóg aö gera Hjá þeim Jóni Gunnlaugssyni og Birni Lárussyni i vörninni gegn rússum. Hér berjast þeir félagar við FH-inga i sumar. Verður 2. deild leikin í tveim riðlum næsta ár — tillaga um það kemur að öllum líkindum fram á KSÍ-þinginu Fjárhagsafkoma 2. deildar- liðanna i knattspyrnu hefur alltaf verið mjög slæm, en nú er útlit fyrir að hún verði þannig næsta ár, aðsumjiðin geti ekki, hvað sem þau reyna eða vilja á sig leggja, ráöið við fjárhags- hliðina og ástæðan er sú, að 2. deildarliöin eru dreifð um allt land og ferðakostnaöurinn slikur að hann verður mörgum ofviða. Formaður knattspyrnu- deildar Ármanns, Kristján Bernburg sagði, er við ræddum þetta mál við hann, aö þeir Ármenningar sæu enga leið útúr þessum vanda og að sér byði i grun, að þannig væri það með fleiri lið i 2. deild. Ferðakostn- aðurinn er auðvitað sá sami hjá 2. deildarliðunum og 1. deildar- liðunum á sömu vegalengd, en innkoman á leiki 2. deildar- liðanna aðeins brota brot af þvi sem kemur inná 1. deildar- leikina. Næsta ár leika eftirtalin lið 1 2. deild: Ármann, Reykjavik Selfoss Haukar, Hafnarfirði ÍBV, Vestmannaeyjum ÍBÍ, isafirði Þór, Akureyri KA, Akureyri Völsungur, Húsavik Reynir, Árskógsströnd Á þessari upptalningu sést hversu mikil ferðalög verða fyrir liðin i 2. deild. Tökum sem dæmi eyjamenn og ísfirðinga, sem þurfa að fara þrjár ferðir á stór Reykjavikursvæðið og 4 ferðir norður, auk þess svo að heimsækja hvort annað. Ferða- kostnaður þessara liða kemur til með að skipta miljónum og kostnaður Ármanns, Selfoss og Hauka verður litlu minni. Norðan-liðin fjögur fara einna best útúr þessu, en samt verður ferðakostnaður þeirra mjög mikill. Þess v.egna hefur þeirri hug- mynd skotið upp að skipta 2. deild i tvo riöla og þótt það væri vissulega spor aftur á bak, þá gæti það bjargað fjárhagnum hjá liðunum. Alla vega er ljóst að þetta verður citt af aðal málum KSl-þingsins sem fram fer eftir nokkrar vikur og I svip- inn sér maður cnga aðra lausn en þá að skipta deildinni i riðla, eií kannski finna menn einhver jafn góð en skemmtilegri ráð. —S.dór Derbyburst- aöi Real Madrid 4:1! og önnur úrslit í evrópu keppninni komu víða á óvart Derby kom heldur en ekki i hrifningunni á þessari rassskell- vigahug i leikinn gegn Real ingu sem fæstir áttu von á Fyrir Madrid sem fram fór i Englandi i Derby skoraði George þrjú mörk gærkvöldi. 4—1 urðu lokatölur (tvöúr viti) og Nish kom með eitt leiksins, staðan 3—1 i hálfleik og mark i viðbót. tæplega fjörutiu þúsund áhorf- Onnur úrslit i evrópukeppni endur gátu vart vatni haldið yfir meistaraliða urðu þessi: Dinamo Kiev —Akranes ......................................... 3-0 HajdukSplit —Molenbeek (Belgia) .............................. 3-0 Malmö (Sviþjóð) — Bayern Munchen.............................. 1-0 Borussia Munchengladbach — Juventus Turin (Italia) ........... 2-0 UEFA — bikarinn Slask Wrocklaw (Pólland) — Antwerp. (Belgia) ................. 1-1 Athlone Town (trl.) — A.C. Milsn (ttalia) .................... 0-0 Bratislava (Tékk.) — AEK Athens (Grikkl.) .................... 2-0 Spartak Moskva — FC Cologne (v-þýskt) ........................ 2-0 Red Star Belgrad (Júg) — Hamburg (þýskt;......a............... l-l Istanbul (Tyrkl.) —Torpedo Mos kva............................ 2-4 Budapest (Ungvl) — Dynamo Dresden (a-þýskt)................... 2-2 Ipswich (Engl) —FC Bruges (Belg) ............................. 3-0 Hertha Berlin (v-þýskt) Ajax (Holland) ....................... 1-0 Vaexjo (Sviþjóð) — ASRoma (ttalia)............................ 1-0 Dundee Utd. (Skotl) — FC Porto (Portugal) .................... 1-2 SanSebastian (Spánn) — Liverpool (England) .................... 1-3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.