Þjóðviljinn - 23.10.1975, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 23.10.1975, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 23. október 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 GUNNAR GUNNARSSON SKRIFAR Um fjölmiðla Þeir á Mogganum segja stundum „Morgunblaðið er ekki málgagn Sjálfstæðisflokksins, heldur málsvari”, og þeir halda þessu fram i einiægni og alvöru. Sjálfsagt eru sumir mogga- menn sannfærðir um, að á þess- um tveimur orðum, málgagn og málsvari, sé reginmunur. Og það er rétt — það er munur á. Hann felst helst i því, að blaðið þykist ekki vera fótaþurrka stjórnmálamanna flokksins, heldur stjórnar ritstjórn blaðs- ins sjálf eilifri herferð sinni fyr- ir málstað flokksins og hags- muni. Nú er það svo, að hinn al- menni lesandi, fæst litið um, hvernig ritstjórn einhvers blaðs útskýrir tengsl sin við einhvern stjórnmálaflokk: Morgunblað- ið, Visir og Dagblaðið syngja fyrir ihaldið i landinu. Timinn fer daglega sina krossferð fyrir Framsóknarflokkinn, Þjóðvilj- inn fyrir Alþýðubandalagið. Lesari, sem ekki er tengdur neinum þessara flokka (ef sá lesandi er raunverulega til) ber sig stundum upp undan blöðun- um, menn segja að ekki dugi að kaupa eitt dagblað eða jafnvel tvö, helst verði að lesa öll blöðin til að menn fái ekki pólitiska slagsiðu. Og i kjölfar þessara ummæla kemur gjarnan kvört- un um pólitiskan leiða, leiða á endalausu argaþrasi milli þing- flokka, ritstjóra, leiði á hinni takmarkalausu flokksafstöðu. Hinn pólitiski leiði er ofur- skiljanlegur. Og hann stafar ekki af þvi, að fólk hafi ekki á- huga á stjórnmálum, heldur hinu, að hinu flokksbundna hrossi er daglega riðið á slig fyrir framan fólk, blöðin i heild hugsa litið sem ekkert um að efla opna gagnrýni, opna um- fjöllun um stjórnmálin i land- inu. t nágrannalöndum okkar gefa stjórnmálaflokkar út dagblöð, eða eiga sér málgögn. Þessi málgögn þeirra eru hinsvegar sjálfstæðari aðilar i pólitikinni heldur en hér hefur tiðkast —■ þau eru frjáls að þvi að efla eig- in ritstjórnarstefnu, sem alls ekki þarf að vera nákvæmlega það sama og pólitik til tekins flokks. Opinni umræða um stefnumál og dægurmál i stjórnmálum gæti vitanlega verið borgið hér, ef þeir sömu flokkar sem gefa út allsráðandi málgögn, réðu ekki lika yfir rikisfjölmiðlinum. All- ar ráðningar i háar stöður hjá rikisútvarpinu eru pólitiskar og þingflokkarnir kjósa útvarpsráð eftir valdahlutföllum á þingi til að vera bremsa i stofnuninni. Þetta samvirka ritskoöunar- kerfi, sem þannig rikir, hefur gegnum árin byggt inn i starfs- fólk rikisfjölmiðlanna sjálfvirka ritskoðun. Ef starfsmaður Mogga gerist vinstri sinnaður, er sjálfhætt á blaðinu. Og starfsmaður útvarps reynir að tvistiga, hugsar vandlega um hvað má segja, hvað er ekki hægtað segja og reyndin verður sú, að yfirleitt er ekki hægt að segja neitt. Amk. ekkert sem púður er i. Hvað rikisútvarpið snertir, er þetta ástand óeðlilegt, það er menningarfjandsamlegt. Og það er alls ekki sjálfsagt mál, að dagblað flokks eigi gegnum þykkt og þunnt að enduróma skoðanir valdamanna flokksins. Klafapólitik dagblaða og út- varps veldur beinlinis hinni pólitisku ógleði, sem hrjáir við- kvæmar sálir. Það er ekki eðli- legt, að þegar einhver hags- munahópur, t.d. stúdentar, krefst réttar sins, gengur gegn fyrirætlunum valdamanna, þá séu þeir barðir i hausinn ekki aðeins af valdsmönnum sjálfum i viðtölum, heldur lika i stjórn- málagreinum blaðsins sjálfs. Þegar sjómenn vilja hærra fiskverð og hóta að sigla i land, þá syngur ekki aðeins sjávarút- vegsráðherra þeim lexiu heldur lika öflugt málgagn. Það er far- in herferð gegn þúsundum manna i fjölmiðlum og opin um- ræða með öllum aðilum, blaða- mennskuleg umfjöllun fer næst- um leynt. Er ekki mál til komið að við skerum af okkur álagahaminn? Fjársöfnun fyrir pólitíska fanga tslandsdeild Amnesty International, samtaka, sem berjast fyrir verndun mannrétt- inda hefur ákveðið að gangast fyrir almennri fjársöfnun til styrktar hjá1parstarf i samtakanna á alþjóðlegum vett- vangi. Beiðni um gjafir er hér með komið á framfæri til einstak- linga, fyrirtækja og félagasam- taka i landinu, sem leggja vilja lóð á vogarskál mannréttinda i heiminum. Framlög óskast lögð inn á giróreikning íslandsdeildarinnar nr. 1-12-20, en það má gera i bönk- um, sparisjóðum og pósthúsum um land allt. Skrifstofa lands- deildarinnar að Amtmannsstig 2, Reykjavik, simi 11220, tekur einn- ig á móti framlögum kl. 5—7 virka daga. Gjafir eru frádráttarbærar til skatts skv. leyfi rikisskattstjóra. Kjörorð söfnunarinnar eru: „Minnumst þeirra, sem liða ófrelsi og pyndingar. Sálarkvöl þeirra er samviska vor.”og .enn- fremur: „Eflum mannréttindi — styiðjum Amncsty.’ Mannréttindayfirlýsing Samein- uðu þjóðanna er grundvöllur bar- áttunnar, og eftirfarandi tilvitn- anir i hana eru viðeigandi i þessu sambandi: „Allir menn eiga rétt til lifs, frelsis og mannhelgi.” „Enginn maður skal sæta pyndingum, grimmilegri, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.” „Hver maður skal frjáls skoðana sinna og að þvi að láta þær i ljósi.” Bandarísk listakona sýnir í Menningarstofnun Bandaríkjanna HELEN C. FREDERICK. bandarisk listakona, opnaði sýn- ingu á verkum sinum i sýningar- sal Menningarstofnunar Banda- rfkjanna, Neshaga 16, sunnudag- inn 19. október. teikningar eru um 50 talsins, hafa sum verið á sýningu i Noregi, og segir listakonan sjálf að gróska jarðar, landbúnaður og landslag hafi haft mikil áhrif á sig i gerð myndanna. Verkin, sem eru svartlist og Helen C. Frederick er fædd árið 1945 í Pennsylvaniuriki i Banda- rikjunum og stundaði nám víð Rhode Island School of Design og Rikisháskólann i Ohio. Hún hefur starfað við Rhode Island School of Design listasafnið, Garrigues i Frakklandi og Hartwick College i New York. UTBOÐ Tilboð óskast i framkvæmdir við lagningu 3. áfanga nýrrar aðalæðar Vatnsveitu Reykjavikur frá vatnsbólum i Heiðmörk til Reykjavikur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, gegn 10.000.- kr. skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, mið- vikudaginn 12. nóvember 1975, kl. 11.00 f.h. iNNKAUF'ASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR Fríkirkjuveqi 3 — Simi 25800 Skrifstofustarf Afgreiðslu- og operatorstarf á bæjarskrif- stofunni i Kópavogi er laust til umsóknar Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi góða vélritunarkunnáttu og geti hafið starf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 26. okt. og skal skila umsóknum til undirritaðs sem veitir allar nauðsynlegar upplýsingar á- samt Magnúsi A. Bjarnasyni aðalbókara. Bæjarritarinn i Kópavogi Laust starf Staða deildarfulltrúa við Gjaldheimtuna i Reykjavik er laus til umsóknar. Laun ákvarðast eftir kjarasamningum starfs- manna Reykjavikurborgar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist undirrit- uðum fyrir 5. nóv. n.k. Reykjavik, 22. okt. 1975. Gjaldheimtustjóri Starf fyrir hádegi óskast 2ja barna móður vantar vel launað starf fyrir hádegi. Er alvönvélritun. Upplýsingar i simum 17200 og 75662. (heima) smáauglýsingar lægsta verð 'iOÐvium Skólovörðustig 79 Simi 17500 SERTILB0Ð SERTILB0Ð SERTILB0Ð SERTILB0Ð SÉRTILB0Ð STRÁSYKUR 2 kg. 410 kr. 14 kg. 2720 kr. 25 kg. 4654 kg. HYEITI 50 kg. 6089 kr. 10 Ibs 495 kr. 5 Ibs. 248 kr. KJÖT & FISKUR H/f !fMARB:R742004- 74201

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.