Þjóðviljinn - 23.10.1975, Page 5
Fimmtudagur 23. október 1975. ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 5
Mótmælafundur í Höfn
Þjoðviljinn hafði i gær tal af Sigurði Bjarnasyni
sendiherra islands í Kaupmannahöfn vegna flugu-
frétta sem borist höfðu til landsins um að námsmenn
þar myndu láta i sér heyra vegna lánamálsins.
— Jú, það var haldinn fundur
hér fyrir framan sendiráðið,
sagði Sigurður. — Hann sóttu
um eða yfir 100 námsmenn,
flestir frá Kaupmannahöfn en
einnig frá Óðinsvéum og Lundi i
Sviþjóð. Fundurinn fór friðsam-
lega fram, menn báru spjöld og
ræður voru fluttar. Fjölluðu þær
um kjör islenskra námsmanna
og var deilt á rikisstjórnina.
— t lok fundarins var sam-
þykkt samhljóða að senda ríkis-
stjórninni bréf til að mótmæla
drættiá afgreiðslu haustlána og
fyrirhuguðum niðurskurði á
fjárveitingum til námslána á
næsta ári. Tveir námsmenn,
þeir Guðlaugur Arason og
Kristinn Einarsson, komu inn i
sendiráðið og afhentu mér brét-
ið.
— Ég sendi bréfið strax i
skeyti til utanrikisráðuneytisins
sem kemur þvi á framfæri við
stjórnina. Einnig hafði ég
grennslast fyrir um afgreiðslu
haustlána hjá utanrikis- og
menntamálaráðuneyti og fengið
svarskeyti um að hún væri haf-
in. Þessi skeyti afhenti ég
námsmönnunum, sagði Sigurð-
ur að lokum.
—1>H
Fjögur þúsund námsmenn
mótmæla á Austurvelli
Námsmannafundurinn á Austurvelli I gær var geysifjölmennur. Mynd. Ari.
• Kjaraskerðingu
mótmœlt
• Samstaða með
sjómönnum
% Stuðningur
alþýðusamtaka
• Og Geir brosti
Upp úr kl. 13 í gærdag
byrjuðu námsmenn að
safnast saman á Austur-
velli þar sem fram skyldi
fara útifundur á vegum
Kjarabaráttunefndar
námsmanna til að mót-
mæla skerðingu stjórn-
valda á námslánum. Ekki
eru til neinar áreiðanlegar
tölur um fundarmenn en
þeir voru ekki undir þrem-
ur þúsundum, sumir sögðu
allt að fimm þúsundum.
Auk nemenda skólanna tiu sem
boðuðu til fundarins fjölmenntu
menntaskólanemar til hans.
Flestir komu þeir fylktu liði úr
porti Menntaskólans við Tjörnina
þar sem þeir höfðu haldið fund og
samþykkt stuðningsályktun og
námslánaþega.
Haustslátrun
hafin?
Þeir voru ekki einir til þess að
lýsa stuðningi sinum við kröfur
námsmanna. A fundinum voru
lesin upp skeyti og ályktanir sem
honum höfðu borist. Voru þær frá
Alþýðusambandi tslands, BSRB,
Alþýðusambandi Vestfjarða,
Verkamannafélaginu Dagsbrún,
stjórn Norska stúdentasam-
bandsins, verkamönnum i máln-
ingarverksmiðjunni Hörpu, Fylk-
ingunni, Vöku, Verðandi og is-
lenskum námsmönnum i Asi,
Björgvin og Osló i Noregi, Kaup-
mannahöfn, Arósum og Óðinsvé-
um i Danmörku og kennarafélög-
um MT og MH.
Mikið var á lofti af spjöldum,
rauðum fánum og borðum sem
ýmis kjörorð voru rituð á. Aðal-
kjörorð fundarins var: Efnahags-
legt jafnrétti til náms! Auk þess
mátti sjá þessi kjörorð: Nám —
forréttindi auðstétta? Þarf ég að
hætta námi? Er haustslátrun
námsmanna hafin? Eigðu þina
kreppu sjálfur, Matthias! Niður
með stéttaskiptingu i mennta-
kerfinu! Allir lánþegar sitji við
sama borð! Eru námsmenn
breiðu bökin? 100% mannréttindi,
ekki 50%!
Námsmenn
bornir út
SigurðurG. Tómasson háskóla-
nemi var fundarstjóri en fyrstur
ræðumanna var Gestur Guð-
mundsson formaður Stúdenta-
ráðs Hl. Næstur var Kristinn
Hrólfsson formaður Iðnnema-
sambands tslands sem auk náms-
lánanna gerði fjárveitingar til
iðnfræðslu að umtalsefni sinu.
Finnur Birgisson talaði fyrir hönd
Sambands islenskra námsmanna
erlendis og var þungt i honum
hljóðið. Sagði hann ma. frá þvi að
nokkur brögð væru þegar að þvi
að námsmenn erlendis hefðu ver-
ið bornir út úr leiguhúsnæði sem
þeir höfðu, vegna vanskila á
greiðslu leigu. Er ástandið hjá
þeim vægast sagt hörmulegt og
stafar það fyrst og fremst af töf-
um á afgreiðslu haustlána. Sið-
asti ræðumaður var Asgeir
Magnússon úr Tækniskólanum.
Hann gerði svonefnd K-lán að
umtalsefni en þau voru veitt i
fyrra og voru þá sögð bráða-
birgðalausn. Þessi lán eru mun
óhagstæðri en almenn námslán
og lægri. Beindi Ásgeir þeirri
spurningu til rikisstjórnarinnar
hvort halda ætti áfram að veita
þessi lán eða hvort þeir sem þau
fengu ættu að fá almenn lán i
framtiðinni.
Stuöningur
viö sjómenn
1 fundarlok bar fundarstjóri
upp ályktun til stuðnings aðgerð-
um sjómanna og var hún sam-
þykkt með lófaklappi. Hún er svo-
hljóðandi:
Fjöldafundur framhaldsskóla-
nema á Austurvelli lýsir yfir full-
um stuðningi við baráttu sjó-
manna fyrir bættum kjörum.
Sameiginleg barátta okkar gegn
íjandsamlegu rikisvaldi hlýtur að
ski'pa okkur i sameiginlega fylk-
ingu. Við mótmælum þvi að lág-
launafólki i landinu sé ætlað að
axla kreppu auðvaldsins.
Loks las fundarstjóri upp bréf
frá Kjarabaráttunefnd til Geirs
Hallgrimssonar forsætisráð-
herra. Var þvi einnig tekið með
lófaklappi og að fundinum lokn-
um fóru fulltrúar nefndarinnar að
dyrum alþingishússins og báðu
um að fá að tala við Geir. Eftir
nokkra biðbirtist hann i dyrunum
umkringdur lögregluþjónum,
veifaði til mannfjöldans og brosti.
Fundarmenn brostu þó ekki á
móti heldur púuðu.
Bréfið til Geirs
Bréfið til Geirs var á þessa leið:
„Forsætisráðherra
Geir Hallgrimsson
t dag fjölmennum við náms-
menn á fund, sem haldinn er und-
irkjörorðinu „Efnahagslegt jafn-
rétti til náms”. Tilefnið er ærið
þvi nú hefur þú og rikisstjórn þin
lagtfram á Alþingi fjárlagatillög-
ur sem i felast stórfelldar árásir á
kjör námsmanna. Arásir, sem við
námsmenn hljótum að lita á sem
stefnu rikisstjórnarinnar gagn-
vart efnahagslegu jafnrétti til
náms. Þessi svivirðilega árás
mun svara til um 50% skerðingu á
raungildi námslána, og i raun
algjöra útilokun á réttlátum kröf-
um annarra sambærilegra náms-
hópa um námslán. Það þarf ekki
mikla spámenn til að sjá fyrir af-
leiðingarnar af þessari stefnu. —
1 trausti þess, að námslán yrðu
óskert, hóf fjöldi námsmanna
nám nú i haust, en ljóst er að stór
hópur þeirra verður frá að hverfa
vegna þeirrar skerðingar er þú og
þin rikisstjórn hefur boðað. Nám
yrði þvi aftur algjör forréttindi
hinna efnameiri.
Við krefjumst efnahagslegs
jafnréttis til náms, en ekki for-
réttinda, og undir þessa kröfu
okkar hafa stærstu launþegasam-
tök landsins tekið, og ætti það að
endurspegla vilja fólksins, sem
landið byggir.
Geir Hallgrimsson, við náms-
menn, sem staddir erum hér á
Austurvelli, krefjumstþess, að þú
og rikisstjórn þin endurskoði
fyrri afstöðu ykkar og lágmarks-
krafa okkar er að rikisstjórnin
lýsi þvi yfir strax að raungildi
námslána verði ekki skert frá þvi
sem var áður.
Þolinmæði okkar er á þrotum
og námsmenn munu ekki láta
hrekja sig átakalaust frá námi.”
—ÞH
Gengur með
gestum
1 sambandi við sýninguna i
Listasafni alþýðu, Laugavegi 31 á
listaverkagjöf Margrétar Jóns-
dóttur, ekkju Þórbergs Þórðar-
sonar, þá hefur verið tekin upp sú
nýbreytni, að Hjörleifur Sigurðs-
son, forstöðumaður safnsins mun
ganga meö gestum um sýningar-
sali á ákveðnum timum og kynna
listaverkin.
Það er i kvöld frá klukkan hálf
niu til tiu, sem Hjörleifur veitir
þessa þjónustu i fyrsta sinn. Sýn-
ingin er opin til 2. nóvember.
Hjörleifur Sigurðsson.