Þjóðviljinn - 23.10.1975, Síða 7

Þjóðviljinn - 23.10.1975, Síða 7
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. október 1975. Fimmtudagur 23. október 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 MORGUNSTUND MEÐ SJÓ- MÖNNUM ( BARÁTTUHUG í grárri morgunskím- unni í gær sigldu 15 skip inná Reykjavíkurhöfn, 15 fyrstu skipin sem koma tii að leggja áherslu á kröfur sjómanna um mannsæm- andi kjör. Fleiri fylgdu svo á eftir, þegará daginn leið. Það var alls ekki glaðvær hópur sem steig á land af þessum 15 fyrstu bátum. Nei, menn voru alvöru- gef nir á svipinn, enda ekk- ert gamanmál á ferðinni. En samhugur þeirra í þessu máli var mikill, nú skyldi ráðamönnum sýnt að endalaus kjaraskerðing yrði ekki lengur þoluð af sjómönnum. Þegar menn voru búnir að binda skip sin og farnir að tinast uppá bryggjuna hófust samræður og smátt og smátt hópuðust menn að einum bátnum og gengu þar um borð til að ræða málin. Skipið sem fyrir valinu varð heitir Freyja RE. Stýrishúsið var orðið þröngt setið fyrr en varði og það var hiti i mönnum. Allir voru á einu máli um það að nú væri að duga eða drepast fyrir sjómenn. Samheldnin mætti ekki bresta. — Við erum seinþreyttir til vandræða sjómenn, sögöu þeir, en svo má brýna deigt járn að bfti og það teljum við að hafi tekist aö þessu sinni, þess vegna erum við komnir i land og þess vegna eru 240 skip væntanlega til lands i dag og i nótt. Siðan var varpað fram spurningum eins og þessum: Hversvegna eigum við að vera hálfdrættingar á við norðmenn i fiskverði, þar sem við seljum á sama markaði og þeir? Hvers- sögðu sjómennirnir og lyftu sigurmerkinu. (Ljósm. S.dór) .Skiiaðu þvl tii ráOamanna aO viO munum ekki gefast upp vegna eigum við að greiða stærsta þáttinn i útgerðarkostn- aði skipanna, ekki hiröum við gróðann af bátunum? Við greið- um i alla mögulega sjóði sem út- gerðin fær svo styrk úr til að greiða útgerðarkostnaðinn, er það i okkar verkahring að sjá um útgerðarkostnaðinn en hafa svo aðeins 60 til 70 þúsund kr. á mán-- uði I tryggingu? Hvi i ósköpunum eigum við að horfa upp á það orðalaust að menn i landi hafi i vikukaup það sem við fáum i tryggingu á mán- uði? En þannig er það i dag, menn sem vinna uppi Sigöldu, á Grundartanga, við Kröflu svo dæmi séu nefnd, hafa þetta kaup. Þeir voru á einu máli um að ástæða væri komin til þess að spyrna við fótum. Það sjóðakerfi sem sjávarút- vegurinn býr nú við, verður að hverfa. Allir luku upp einum munni um það. Það er krafa okk- ar númer eitt að sjóðakerfið verði tekið til gagngerrar endurskoð- unar og þvi breytt þannig að við greiðum ekki 50% af launum okk- ar i hina og þessa sjóði sem stofn- aðir hafa verið til að halda út- gerðarmönnum góðum. Við sjá- um ekkert sem réttlætir það. Út sögðust þeir ekki fara aftur fyrr en þessum málum hefur ver- ið kippt i lag. Og við viljum fá aðrar og betri móttökur en full- trúar okkar fengu i sjávarútvegs- ráðuneytinu i fyrradag, þar sem enginn þóttist i fyrstu kannast við neitt skeyti frá okkur, skeyti sem við sendum fyrir rúmri viku sið- an. Siðar, þegar gengið var á þessa menn, játuðu þeir að visu að hafa séð eitthvert skeyti, og undir lokin kom i ljós að þeir höfðu grandskoðað það, en þvi miður, það var ekkert hægt fyrir okkur að gera. Jæja, þeir um það, við sjáum hvað setur, sögðu menn og kimdu. — S. dór. Hákon ísaksson á Steinunni RE Sjóðakerfiö þarfað fella niður Öðruvísi fáum við ekki mannsæmandi kjör Steinunn RE var eitt þeirra skipa sem fyrst sigidi inn á Reykjavikurhöfn i gærmorgun og við hittum að máli einn skipverj- anna, Hákon isaksson og var .hann, sem og aðrir sjómenn sem við hittum, heldur ómyrkur i máii um fiskveröið og þau kjör sem sjómönnum eru boöin. — Þessi tala sem við höfum nefnt aö fiskveröið fari uppi eru hreinir smámunir, aðeins til að láta þaö heita eitthvað, það sem þarf að gera er að fella niður núgildandi sjóðakerfi. Þá um leið myndu kjör okkar verða viðun- andi. Með núverandi fyrirkomu- lagi erum við sjómenn látnir greiða útgerðarkostnaðinn með þvi að taka alltaf af óskiptum afla i þetta kolvitlausa sjóðakerfi sem útvegurinn býr við. Viö unum þvi ekki lengur aö greiöa útgerðar- kostnaöinn aö stærstum hluta fyrir útgerðarmennina. — Það vandamál sem við eigum við aö giima, sjómenn, er svo stórt og hrikaiegt að fáeinar krónur skipta þar engu til eða frá. Það er ekkert nema gagnger breyting, sem getur bætt úr þvi. — Og síðan bætist þaö við, að Hákon isaksson um það bil 50% af flotanum er lamaður vegna þess að mannskapur fæst ekki á skipin fyrir þau kjör sem boðið er uppá. i landi leika menn sér aö þvi að taka mánaðartryggingu háseta á einni viku, hvernig i ósköpunum láta menn sér svo detta í hug að hægt sé að manna bátana. — Þú óttast ekki að samstaðan brcsti hjá sjómönnum i þessu máli? — Ég geri það ekki, ég held að menn gcri sér almennt grein fyrir þvi, að nú er að duga eöa drepast. Bresti samstaöan nú, verður aldrei tekið mark á okkur framar, þá veröur aðcins brosað og vitnað i hvernig við stóðum okkur i þessu máli, en þá bros- laust takist okkur samstaöan nú, sagði Hákon. — S.dór. Magnús Daníelsson skipstjóri: Unum því ekki að vera hálf- drættingar Eitt af þeim 15 skipum sem sigldu inná Reykjavikurhöfn i morgunsáriö i gær var Arnþór GK og rétt eftir að skipiö hafði verið bundið við bryggju náðum við tali af skipstjóranum Magnúsi Danielssyni og spurðum hann hvort einhugur væri hjá sjómönn- um i þessu máli? — Alveg tvimæialaust enda er svo komið málum að sjómenn eru að verða ein af tekjulægstu stétt- um þjóðfélagsins þegar vinnutimi er lagður til grundvallar tekjum manna. — Ef við tökum sem dæmi tog- skipin þá vinna menn þetta 16 til 20 stundir i sólarhring og með sama vinnutíma i landi væru menn meö þrefalt hærri iaun, eöa jafnvel meira. — Svo er eitt enn. Viö seljum okkar fisk á sömu mörkuðum og norðmenn, hversvegna eigum viö þá að vera hálfdrættingar á við þá hvað fiskverði viðkcmur. Fisk- Magnús Daníelsson vcrð i Norcgi cr nú um 80 kr. isl. fyrir kilóið af þorskinum á meðan það er ekki nema 38 kr. hér, hvernig stendur á þessu og eigum við að una þessu. Við segj- um nei, við unum þessu ekki leng- Framhald á bls. 10 Á þessari simsendu mynd frá Norsk Telegrambyra sjást nokkrir námsmannanna i islenska sendiráðinu i Osló i gær og má sjá að þröngt er á þingi. I myndatexta frá NTB segir að islenskir námsmenn um alla Evrópuhafimótmæltkreppustefnuisl. stjórnarinnar og væntanlegri 50% skerðingu námslána i gær. daginn í Sátu allan send i ráöinu Aðgerðir þeirra vekja athygli fjölmiðla „Hér verður ekki þverfótað fyrir námsmönnum. Þeir komu kl. hálf ellefu i morgun og fylla hvern krók og kima. Ætli þeir séu ekki rúmlega 60. Þeir ætla að vera hérna þangað til við lokum kl. 16. Þetta fer allt saman friðsamlega fram — námsmennirnir hafa skýrt kröfur sinar og farið þess á leit að við komum þeim áleiðis.” Þetta sagði Sigurður Hafstað, sendifulltrúi i sendiráöi tslands 1 Noregi, þegar Þjóðviljinn ræddi við hann um hádegið i gær. Einn stúdentanna sem staddir voru i Stortingsgate 30 i gær var Mörður Arnason. Honum sagð- ist svo frá samtali viö Þjóðvilj- ann: • „Hér I Osló eru um hundrað isl. námsmenn og eru allir sem áttu heimangengt i sendiráðinu. Þá eru einnig nokkrir náms- menn hér frá Ási og Bergen. Það eru margir orðnir illa staddir. Haustlánin eru ekki komin, eru orðin mánuði á eftir, og menn hafa gripið til þess ráðs að fá lán i bönkum hér eða hjá kunningjum til þess að bjarga sér. Og nú er ljóst að þau lán, sem byrjað er að úthluta, en við Mörður Árnason. höfum ekki fengið, hrökkva ekki nema rétt til þess að greiða þessar skuldir. Svo eru all- margir sem neyðst hafa til þess að fá sér vinnu með náminu og það tefur náttúrlega fyrír þeim.” — Það hafa verið hér frétta- menn i sendiráðinu frá sjónvarpi, blöðum og fréttastof- um og þar sem tsland hefur ver- ið talsvert i fréttum hér i Noregi að undanförnu gerum við ráð fyrir að sendiráösseta okkar veki talsverða athygli fjölmiöla. Nokkur hluti námsmannanna stendur fyrir utan sendiráðið og dreifir flugriti til almennings og fjölmiðla til þess að vekja at- hygli á kröfum okkar. — t þessu bréfi gerum við grein fyrir þeirri hættu, sem vofir yfir, að námslán verði skert um 50% og að við teljum það mjög alvarlega árás á kjör okkar. Jafnframt er þvi lýst að þessi ákörðun stjórnvalda geti haft þaö i för með sér aö margir námsmenn verði að hverfa frá námi. Jafnframt gerum við grein fyrir þvi að námskjaraskerð- ingin sé hluti af efnahagskrepp- unni á tslandi og barátta okkar gegn kjaraskeröingunni sé sam- eiginleg barátta námsmanna og verkalýðsstéttarinnar á tslandi. Þá leggjum við áherslu á að við krefjumst engra forréttinda heldur íeggjum áherslu á jafna aðstöðu til náms, þannig að menntun verði ekki forréttindi yfirstéttarinnar. — Aðgerðir okkar hér i Osló eru liður i þeim almennu náms- mannamótmælum sem fram fara i dag. Við ætlum að sitja hér i sendiráöinu til fjögur og ræða málin. Fólk hefur það gott i þrengslunum hér, spilar og leikur sér við börnin sin. — Ég vil að lokum leggja áherslu á að þessi aðgerö hjá okkur i dag geti orðið upphafið að baráttu, sem standa mun i allan vetur. Þaö er algjör einhugur rikjandi um það meðal námsmanna hér að þola ekki kjaraskerðingu þegjandi og hljóðalaust. LÝSA FURÐU SINNI Á SKILNINGSLEYSI RÍKISSTJÓRNARINNAR íslensku námsmennirnir i Osló sendu frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu er þeir höfðu sest að i sendiráðinu i gærmorgun: íslenskir námsmenn staddir i sendiráði islands í Osló lýsa yfir reiði sinni og undrun á algeru skilningsleysi stjórnvalda á kjörum námsmanna. Stefna stjórnarinnar i þessu máli er argasta afturhald, og bein árás á menntunarmöguleika alþýðu. Geysileg skerðing námslána mun verða til þess að fjöldi námsmanna verður að hverfa frá námi. Við mótmælum þessari aðför og munum ekki sætta okkur aðgerðalaust við hana. Við lýsum yfir fullum stuðningi við aðgerðir allra námsmanna gegn þessu ofbeldi. islenskir námsmenn i Osló, Ási og Björgvin.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.