Þjóðviljinn - 23.10.1975, Page 10

Þjóðviljinn - 23.10.1975, Page 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. október 1975. 2. umferð svœðismótsins: Hartston tekur forystu 1 annarri umferö svæöismóts- ins tefldu islensku þátttakend- urnir saman og hafði Björn hvitt. Eins og i fyrri umferöinni lenti Björn i miklu timahraki, átti eftir aöeins tólf minútur til aö leika 20 slöustu leikina. Friö- rik tefldi lokin mjög vel, fórnaöi manni i 28. leik og gafst Björn upp tveim leikjum slöar, enda var þá óverjandi mát I þrem leikjum með Dhl. Englendingurinn Hartston, sem áreiðanlega stefnir aö þvi aö ná stórmeistaratitli I mótinu, vann Broeck frá Belgiu I 24 leikjum og lauk þeirri skák fyrst i 2. umferð. Hartston náði óverj- andi sókn meö drottningu og hrókum á opinni h-linu og sá Broeck sitt óvænna og lagði niður vopnin. Hartston er nú efstur með tvo vinninga eftir tvær umferðir, en of snemmt er aö spá um árangur hans I mót- inu, þvi að hann hefur aðeins teflt við tvo af minni spámönn- um mótsins. Norðmaöurinn Arne Zwaig stefnir einnig að stórmeistara- titli I þessu móti, og er árangur hans i fyrstu tveim umferðun- um harla athyglisverður. Hann vann stórmeistarann Jansa I 1. umferð og i þessari umferð geröi hann jafntefli við stór- meistarann Parma i 27 leikjum. Fannst mönnum að visu Parma óþarflega friðsamur þvi aö mik- ið var eftir af skákinni. Stórmeistararnir Jansa og Timman sömdu einnig um jafn- tefli með þvi að þráleika og varð skákin aðeins 24 leikir. Virtist Jansa þá hafa betri stöðu, en hann átti litinn tima eftir. Skák Laine og Hamanns varð fjörug og Hamann virtist vera að ná kæfandi kóngssókn, er hann snéri liði sinu yfir á drottn- ingarvæng. Náði hann þar einu peði, mikil mannaskipti urðu og leystist skákin upp i jafntefli. Þeir léku 40 leiki og voru þá á borðinu mislitir biskupar og peðin gátu sig ekki hreyft, svo að sjálfhætt var að tefla. Ungverski stórmeistarinn Ribli, sem sat yfir i 1. umferð, tefldi með hvitu mönnunum gegn Poutiainen frá Finnlandi. Skákin fór i bið og virðist Ribli hafa miklar vinningslikur. Bið- staðan er þannig og á hvitur leik. Hvítur: Kg2, Dd2, Rd4, b3, d3, e2, f5, g4, h4. Svartur: Ke7, Dc7, Rb7, Bh7, b4, d5, e6, f6, h6, h5. Stórmeistarinn Liberzon frá Israel er nú mættur til leiks og tefldi með svörtu gegn Oste- reyer. Þessi skák fór einnig I bið. Sýnist stórmeistarinn vera með tapað tafl. Þjóðverjinn hef- ur tvö samstæð fripeð á drottn- ingarvæng og hæpið að Liberzon hafi nokkurt mótspil. Hér birtast tvær skákir úr 2. umferð. Hj.G. 'Hvitt: Björn Þorsteinsson Svart/ Friðrik Ólafsson 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd 4. Rxd aO 5. Rc3 b5 6. Bd3 Bb7 7. 0—ó b4 8. Rbl Dc7 9. c3 Rf6 10. Hel Rc6 11. RxR BxR 12. e5 Rd5 13. c4 Re7 14. Bf4 f5 15. Rd2 Rg6 16. Bg3 Be7 17. f4 0—0 18. De2 Kh8 19. De3 Bb7 20. Bf2 d6 21. Rf6 BxR 22. gxB Dc6 23. Hadl hfi 24. Be2 dxe 25. fxe Had8 26. f4 Ith4 27. Dg3 g5 28. Dh3 gxf 29. BxR Hg8+ 30. Bg3 Bc5+ gefið Alþjóðameistarinn William Hartston er efstur eftir tvær umferðir. (Ljósm. S.dór.) Hvitt: Van Broeck Svart: William Hartston 1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 e5 4. Rc3 d6 5. e4 Be7 6. Bd3 0—0 7. h3 Rbd7 8. Rf3 afi 9. g4 Re8 10. a4 g6 11. Bh6 Rg7 12. Dc2 Rf6 13. Re2 Bd7 14. 0—0 Kh8 15. Rg3 Rg8 16. BxR + KxB 17. Kh2 Bg5 18. RxB DxR 19. a5 llffi 20. Hael h5 21. f3 hxg4 22. hxg4 Hh8 + 23. Kgl Hh3 24. Dg2 Dh4 gefið Rit um bókasafns- mál Út er komið ritið Pligtaflever- ing, byttevirksomhed, kata- logisering. Flytur það erindi og umræður frá fundi, sem Deild bókavarða i rannsóknarbóka- söfnum stóð fyrir á vegum Norræna rannsóknarbókavarða- sambandsins (Nordisk videnskabeligt bibliotekarfor- bund). Fundurinn var haldinn i Reykjavik I október 1973. Aðalumræðuefni fundarins voru skylduskil til bókasafna, ritaskipti safna, áætlun um verkaskipti milli rannsóknar- bókasafna á Norðurlöndum um aðdrætti til þeirra (Scandia-áætl- unin svokallaða) og samvinna á sviði skráningar og gagnkvæmr- ar upplýsingaþjónustu. Ritið er 125 blaðsiður og prýtt myndum. Það er fáránlegt i Há- skólabókasafni. 1 kvöld verður útvarpað frá al- þingi almennum umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. Umferðir eru tvær og talar Ragn- ar Arnalds fyrir hönd Alþýðu- bandalagsins næstur á eftir for- sætisráðherra i fyrri umferð, en Geir Gunnarsson er ræðumaður Alþýðubandalagsins i seinni um- ferð. Svar Framhald af 1 minu félagi, þar sem ég vinn að þessu máli sem einstaklingur en ekki sem formaður Sjómannafé- lags Hafnarfjarðar, en með- stjórnendur minir töldu þess ekki gerast þörf. — Og að lokum vil ég taka það fram,aðmistakistsjómönnum að rétta hlut sinn i þetta skipti, þýðir ekki fyrir þá að reyna aftur, það verður aldrei tekið mark á okkur framar ef við ekki sýnum órofa heild I þessu máli, sagði óskar að lokum. — S.dór Sveinbjörn Matthíasson og Gisli Haiidórsson undirbúa veiöitúrinn með firnalegu viskfþambi. Veiðitúr Halldórs Laxness á skjánum A sunnudagskvöld frumsýnir sjónvarpið kvikmynd sem það hcfur látiö gera eftir smasögu Halldórs Laxness, Veiðitúr i óbyggðum. Þetta er klukkutima mynd, leikstjóri er Helgi Skúiason. í hægum og raunsæislegum stil er lýst sögunni af gjaldkeranum i útibúinu, smákallanum sem mis- tókst svo herfilega að stökkva út af beinni braut meðalhegðunar og húsaga. Þetta langstærsta hlut- verk myndarinnar er i höndum Gisla Halldórssonar. Sveinbjörn Matthiasson leikur Krilon, Margrét Helga Jóhannsdóttir er vinnukona. Saga Jónsdóttir dóttir i næsta húsi, Þórhalla Þorsteins- dóttir er skipstjórafrú, önnur hlutverk eru smærri. Veiðitúr i óbyggðum birtist fyrst i þáttasafninu Sjöstafakver, sem út kom 1964. Áður hefur verið sjónvarpað annarri sögu úr því safni, Jón i Brauðhúsum. Verkfallsdagur kvenna á Selfossi Konur á Selfossi halda upp á verkfalisdag kvenna 24. þ.m. með fundi, sem haldinn verður kiukkan 11.30. Veröur þar fiutt stutt ávarp, leikrit flutt og fleira verður til skemmtunar. Að þvi ioknu verða skipulagð- ar sætaferðir til Reykjavikur fyrir þá, sem þess óska, og op- ið hús verður i Tryggvaskála. Fiskverðið Framhald af bls. 2. rikissjóður greiðslugetu Verð- jöfnunarsjóðs að þvi marki að fiskverð hækki til jafns við al- mennar launahækkanir 1. október sl. Ef áframhald yrði á slikri ábyrgð, mundi hún nema a.m.k. um 2 milljörðum króna á árs- grundvelli miðað við núverandi verðlag og gengi. Vegna framkominnar kröfu sjómanna um endurskoðun sjóða- kerfis sjávarútvegsins, vill ráðu- neytið upplýsa, að I þeirri nefnd, er að þeirri endurskoðun starfar, sitja 6 fulltrúar sjómaw viðsveg- ar að af landinu og ber nefndinni samkvæmt erindisbréfi sinu að skila áliti fyrir 1. desember nk., og mun ráðuneytið fylgja þvi fast eftir að svo verði. Magnús Framhald af bls. 7. ur og þess vegna erum við komnir i land til að leggja áherslu á þess- ar kröfur okkar. — En þá er það spurningin, hversvegna er þessi mikli munur á fiskverðinu hér og i Noregi? Svarið er augljóst, það er þetta koivitiausa sjóðakerfi sem er or- sökin. Það er það fyrst og fremst sem veldur þvi að við getum ekki fengið mannsæmandi laun. Með þessu sjóðakerfi erum viö sjó- menn látnir borga útgerðar- kostnaðinn fyrir útgerðarmenn- ina og þvi viljum við ekki lengur una og þess vegna er það krafa okkar og þetta sjóðakerfi verði tekið til algerrar endurskoðunar og þú mátt hafa það eftir mér að við förum ekki út fyrr en við höf- um fengið tryggingu fyrir þvi að þetta verði gert og fiskveröið verði hækkað, sagði Magnús að iokum. — S.dór Adda Framhald af 13. siðu. Af hálfu borgarstjórnarmeiri- hlutans tóku til máls um tillöguna Elin Pálmadóttir og Markús örn Antonsson. Á Markúsi Erni var helst að skilja að hætta væri á að foreldrar misnotuðu þau hlunn- indi, sem i tillögunni felast, til að hafa fé af borginni, og taldi málið of flókið til að afgreiða það án frekari athugunar. Adda Bára Sigfúsdóttir benti hinsvegar á að málið hefði þegar verið til athug- unar i tvö ár. Elin Pálmadóttir lagði fram tillögu um að visa til- lögu öddu Báru til félagsmála- ráðs, og var það samþykkt með öllum atkvæðum borgarstjórnar- meirihlutans gegn atkvæðum minnihlutans. Fjárhagur hafnarinnar fyrir neöan allar hellur Af öðrum málum á dagskrá fundarins má nefna fyrirspurn frá Sigurjóni Péturssyni, borgar- fulltrúa Alþýðubandalagsins, út af samþykkt bæjarstjórnar Kópa- vogs um að reyna yrði að koma á samstarfi sveitarfélaganna á höf- uðborgarsvæðinu um mál, er varða þau sameiginlega. Benti Sigurjón á að þessi sveitarfélög væru á margan hátt ein heild og náið samráð milli þeirra þvi nauðsynlegt, ekki sist á sviði skipulagsmála. Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins lögðu fram tillögu um bætta aðstöðu til við- gerða á skipum og bátum I Reykjavikurhöfn. Kom fram i umræðum um tillöguna að fjár- hagur Reykjavikurhafnar væri fyrir neðan allar hellur og hélt Guðmundur G. Þórarinsson, borgarfulltrúi Framsóknar- flokksins þvi fram að aðstaða til viðgerða á skipum og bátum væri þar öll hin versta. Samþykkt var að visa tillögunni og annarri til- lögu svipaðs eðlis frá Ólafi B. Thors, Sjálfstæðisflokknum, til hafnarstjórnar. dþ. SemiBILASTOm Hf

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.