Þjóðviljinn - 27.11.1975, Qupperneq 13
Fimmtudagur 27. nóvember 1975. ÞJÓDVILJINN — StÐA 13
,Verðlaunapeningarogheiðursskjölskiptalitlu,en
...ég þrái það mest
að geta sýnt
fólki fallega fimleika
og notið hylli þess’
segir Olga Korbutog lofar stórum hlutum á næstu Ol-leikum
— Þaö geta engir fimleikar
veriö án einhverra dirfsku-
bragöa, segir Olga Korbut i viö-
tali viö rdssneskan fréttamann
fyrir skömmu. — Þess vegna
sleppi ég aldrei neinum atriöum
úr dagskrá minni, jafnvel þótt
ég eigi viö meiösli eöa einhver
veikindi að striöa. Fólk vill fá aö
sjá einhvern timann eitthvaö
nýtt f fimleikunum enda er eng-
in ástæöa til þess aö láta þá
standa i staö þótt vissulega sé
gæöaflokkurinn oröinn hár.
Olga segistvera viss um það,
að i framtiðinni eigi þeir einir
möguleika á verðlaunum stórra
móta, sem taki áhættur og reyni
að innleiða eitthvað nýtt og
ferskt i fimleikana. — Ég held
að af stúlkunum muni einkum
þrjár verða i sviðsljósinu i
framtiðinni, rúmenska stúlkan
Nadia Comaneci og tvær rúss-
neskar, Svetlana Grosdowa og
Maria Filatova.
Olga benti einnig á það, að
eftir að hUn vann þrenn gudl-
verðlaun á Ol-leikunum 1972 i
Mlinchen, hafi hinar stöðugu
raddir um stórhættuleg dirfsku-
brögð hennar og móðgun við
fimleika þagnað. — En þótt
þessi atriði min hafi verið viður-
kennd og jafnvel breiðst viðar Ut
er öllum nýjungum þó tekið fá-
lega. Við reynum að brydda upp
á einhverju nýju en undirtektir
eru dræmar. Sumir mögla, aðr-
ir mótmæla og enn aðrir ganga
svo langt að krefjast þess að at-
riðin verði stranglega bönnuð,
eins og gera átti við min atriði
foröum.
— Ég held að ég verði i góðu
formi á Ol-leikunum, segir
Olga. — Ég hef æft með hliðsjón
af þeirri keppni undanfarið og
mun ef allt gengur að óskum ná
minu besta formi næsta sumar.
Meiðslin há mér að visu ennþá
en ég vonast til þess að þau
veröi endanlega Ur sögunni þeg-
ar að Ol-leikunum kemur. Þau
hreinlega verða að vera það,
ekki vegna þess að ég sækist svo
geysilega eftir verðlaunum og
öðru sliku. Mig langar fyrst og
fremst til þess að geta sýnt fólki
fallega fimleika og ég þrái
vissulega hylli áhorfenda. Ég
hef notið ómetanlegs stuðnings
þeirra undanfarið og er ég viss
um að enginn trUir þvi hve það
getur verið mikilvæg og þægileg
tilfinning þegar á keppni stend-
ur. Takist mér að halda aðdáun
áhorfenda að einhverju leyti er
ég ánægð, þá veit ég að ég er að
gera hluti sem ekki eru einskis
verðir. Sá árangur er mér næg-
ur, verðlaunin skipta minna
máli þótt alltaf sé gaman að
hafa þau með i spilinu.
(Stuöst viö APN —gsp)
PORTÚGAL:
Stj órnarhollar hersveitir
virðast hafa undirtökin
LISSABON 26/11 — Hersveitir
liollar Portúgalsstjórn eru nú
sagöar stefna aö Lissabon úr
ýmsum áttum. t aðalstöövuni
hersins i Oporto var sagt aö fót-
göngulið og striösvagnar væru á
leiö til höfuöborgarinnar land-
leiðis og loftleiöis, en myndu ekki
fara inn í borgina, heldur nema
staöar I Mafra, um 30 kilómetra
norður af henni. Hinsvegar hefur
frést af skriödrekasveit, hollri
stjórninni, á leið inn i Lissabon,
og sagt er að stjórnin stefni einnig
skriðdrekaliði aö Montijo-flug-
stööinni utan viö höfuöborgina,
þarsent þcir harösnúnustu af hin-
uin róttæku fallhlifahcrmönnum,
scm stjórnin sakar um valda-
ránstilraun, hafa búist um.
Fallhlifahermennirnir mót-
mæla hinsvegar ásökununum um
valdaránstilraun og segjast að-
eins hafa hleypt aögerðum sinum
af stað 1 mótmælaskyni við fyrir-
ætlanir stjórnarinnar um aö leysa
liðstyrk þeirra upp, en það hafði
stjórnin i huga vegna þess að fall-
hlifahermennirnir eru of róttækir
að hennar dómi. Talsmaður
stjórnarinnar segir aö á milli
fimmtiu og sextiu af þeim, sem
stóðu fyrir aðgerðum fallhlifa-
hermannanna i höfuöborginni,
hafi veriðhandteknir, og hafi þeir
verið fluttir til Oporto. Þar á
meöal er aðstoðarforingi róttækr-
ar stórskotaliðsherdeildar, sem
nefnd er Ralis, Costa Gomes for-
seti hefur gefið fyrirskipun um að
Copcon, öryggislið hersins, verði
leyst upp, en það er undir stjórn
Carvalhos, sem er róttækur en
óháður flokkum.
Til vopnaviðskipta kom i Lissa-
bon i dag milli hægri- og vinstri-
sinnaðra hermanna og voru að
minnsta kosti fjórir menn drepn-
ir. 1 Oporto var starfsmaður
verkalýðsfélags myrtur og annar
særður alvarlega, og er talið að
hægrisinnaðir bófar hafi verið
þar að verki. Costa Gomes forseti
hefur sjálfur tekist á hendur yfir-
stjórn hersins á Lissabon-svæðinu
eftir að hafa lýst þar yfir hálfgild-
ings neyðarástandi. Svo er að sjá
að vinstrimenn séu nú á undan-
haldi i höfuðborginni, þannig hafa
þeir yfirgefið rikisUtvarpiö og
fleiri Utvarpsstöðvar, sem þeir
höfðu á valdi sinu i gær. Stjórnin
hefur bannað Utkomu blaða i dag
og fyrirskipað Utgöngubann. Viða
að berast fregnir af þvi að vinstri-
menn krefjist vopna, þar eð þeir
óttist valdatöku hægrimanna.
Siðari fréttir:
Sagt er að stjórnarhollar her-
sveitir hafi nU náð Montijo-stöð-
inni á sitt vald og einnig er hermt
að Carvalho, yfirmaður Copcon,
hafi verið handtekinn. Stjórnin
hefur bannað óbreyttum borgur-
um að hafa vopn undir höndum og
hefur gert upptækar vopna-
birgðir, af ótta við að vinstri-
OSLÓ 26/11 — Aöalstjórn
Sósiallska vinstriflokksins i
Noregi hefur mælst til þess viö
norsku rikisstjórnina aö hún sendi
bresku stjórninni haröoröa
mótmæalorðsendinguvegna þess
aö Bretland hefur sent herskip á
tslandsmiö. Sósialiski vinstri-
flokkurinn vlsar i þessu sambandi
til afstööu norska fiskimanna-
sambandsins I málinu og segir aö
ekki megi leika nokkur vafi á þvl
aö Noregur standi meö tslandi i
þvl.
t áskorun Sósialíska vinstri-
flokksins segir að það, sem
sinnaðir hermenn deili þeim Ut
meðal fylgismanna sinna. Sam-
kvæmt neyðarástandinu, sem
islendingar þurfi nU, sé ekki
tilboð um málamiðlun, heldur
diplómatiskur og stjórnmála-
legur stuöningur i öllum
myndum.
Jens Evensen, hafrettarmála-
ráðherra Noregs, var öllu loðnari
i ummælum sinum i dag um
fiskveiðideilu islendinga og breta.
Hann sagði að visu að sU
ákvöröunbreskustjórnarinnar að
senda herskip á Islandsmið hefði
gert máliö erfiðara viðfangs, en
hinsvegar gætu norðmenn ekki
annað en harmað þessar
stjórnin hefur lýst yfir, er hægt að
handtaka fólk fyrirvaralaust og
gera hjá þvi hUsrannsókn.
„sorglegu kringumstæður.”
Hann sagði að Noregstjórn vildi
leysa sin fiskveiðilandhelgismál
með samningum en Utilokaði ekki
að einhliða Utfærsla af Noregs
hálfu kæmi til greina ef norðmenn
mættu ekki viðhlitandi skilningi
af hálfu hlutaðeigandi erlendra
rikja.
1 Ntb.frétt segir að Einar
AgUstsson. utanrikisráðherra
lslands, hafi sagt að hugsanlegt
væri að hann tæki ekki þátt i utan-
rikisráðherrafundi Nató i næsta
mánuði i mótmælaskyni við
ofbeldisaögerðir breta.
Sósíalíski vinstriflokkurinn í Noregi:
Krefst fulls stuðnings
við íslendinga