Þjóðviljinn - 19.12.1975, Síða 3
Föstudagur 19. desembcr 1975. þJOÐVILJINN — SÍÐA 3
Kauptryggingin í fiskiðnaðinum óvirk:
F ry stihúsin
segja starfs-
fólkinu upp
til þess að losna við það af launaskrá yfir hátíðarnar
Það virðist æði erfitt fyrir
verkalýðshreyfinguna að gera
þannig samninga við atvinnurek-
endur að ekki sé i þeim einhver
smuga fyrir þá, til þess að fara
sinu fram, þegar þeim hentar.
Þegar samið var umkauptrygg-
ingu til handa fólki i frystihúsum
á landinu, þótti mörgum mikið
hafa áunnist, en þvi miður er
slikt gat i þeim samningi að hann
heldur ekki þegar á reynir.
Nýjasta- dæmið um það hefur
verið að gerast nú siðustu daga.
Framundan eru brandajól og þvi
margir helgidagar. Frystihúsa-
eigendur sjá ofsjónum yfir þvi að
greiða starfsfólki sinu kaup yfir
þessa helgidaga eins og velflestir
atvinnurekendur verða að gera.
Og þeir notfæra sér gatið i samn-
ingunum með þvi að segja kaup-
tryggingunni upp með löglegum
fyrirvara, eða einni viku. Þetta
hafa þeir sumir hverjir gert núna,
m.a. frystihúsið Kirkjusandur,
sameign Sverris Hermannssonar
alþingismanns og SÍS.
Arni Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri frystihússins sagði
i gær að þar yrði unnið fram á
mánudag en siðan yrði frystihús-
inu lokað framyfir áramót og
hann vissi ekki um hvenær von
væri á hráefni til vinnslu á næsta
ári, en það yrði að öllum likindum
fljótlega eftir áramótin. Hann
staðfesti hinsvegar að kauptrygg-
ingunni hefði verið sagt upp og
sagði að þetta gerðu öll frystihús,
eins og hann orðaði það.
—S.dór
Ölla starfsfólki frystihússins
í Ölafsvík sagt upp:
Hráefnisskortur
er ástæðan
öllu starfsfólki Hraðfrystihúss
Olafsvikur hefur verið sagt upp
störfum frá og með áramótum.
Og er við höfðum samband við
skrifstofu frystihússins i gær var
okkur tjáð, að hráefnisskortur
væri ástæðan fyrir þessum upp-
sögnum. Starfsfólkið hefur sin
laun yfir komandi helgidaga en
siðan verður húsinu lokað fram
að vetrarvertið.
Þess má geta að i ölafsvik er
enginn skuttogari en þeir hafa
sem kunnugt er aflað mörgum úti
á landi hráefnis og halda þar
hreinlega uppi atvinnulifinu.
Atvinnuástand i ólafsvik er
mjög bágborið um þessar mundir
og það svo að i dag er fyrirhug-
aður borgarafundur á vegum
verkalýðsfélagsins um málið.
—S.dór
Níu sveitarstjórnir skora á Alþingi:
Fellið stjórnarfrum
Neskaupsstaður
„Bæjarráð Neskaupsstaðar
mótmælir harðlega framkomnu
frumvarpi um eitt prósent álag á
útsvarsstofn, sem sveitarfélögin
eiga að innheimta og greiða til
sjúkrasamlaganna. Bæjarráð tel-
ur að sveitarsjóðir þoli enga
skeröingu sinna tekjustofna, en
telji rikisstjórn nauðsynlegt að
leggja á nýjar álögur vegna
sjúkratrygginga, eigi hún að nota
sina eigin tekjustofna og inn-
heimtumenn.
Framlag þessa frumvarps
gengur i berhögg við margyfir-
lýstan vilja sveitarstjórnar-
manna, sem á undanförnum ár-
um hafa bent á að rikið ætti eitt að
bera allan kostnað af sjúkra-
tryggingum eins og öðrum grein-
um almannatrygginga, enda hafa
sveitarfélögin engin áhrif haft á
rekstur trygginganna eða út-
gjaldaaukningu siðustu ára.
Þær umræður sem nú siðustu
vikurnar hafa farið fram milli
fulltrúa sveitarfélaganna og
rikisstjórnarinnar er þá ekki
hægt að skoða sem nema sýndar-
mennsku eina saman, ef frum-
varp þetta verður að lögum.
Merki kvennaárs er tákn jafnréttis
og friðar. Tákn einber tryggja ekki
konum jafnan rétt körlum,
en værðarvoð frá Gefjun tryggir
þeim yl og gæði íslenzkrar ullar.
íofið kvennaársmerki minnir jafnframt
á, að ávallt og ekki aðeins á kvennaári
ber konum að gæta réttinda sinna.
Verö aðeins 2.950 krónur.
Kvennaársteppið fæst í þremur
litum, í sauðalitum, mórauðu og
gráu, og i rauðu.
ULLARVERKSMIÐJAN
GEFJUN AKUREYRI
varp um sölu-
skattshækkun
Mótmælaalda hefur risið vegna
framkomins stjórnarfrumvarps
um eitt prósent álag á útsvars-
stofn, sem sveitafélögin eiga að
innheimta og greiða til sjúkra-
samlaganna. Fram kemur að
frumvarpið gangi i berhögg við
margyfirlýstan vilja sveitar-
stjórnarmanna, sem á undan-
förnum árum hafa bent á að rikið
ætti eitt að bera allan kostnað af
sjúkratryggingum eins og öðrum
greinum almannatrygginga.
Jafnframt kemur fram i ályktun-
unum að sveitarstjórnir lita svo á
að telji rikisstjómin nauðsynlegt
að leggja á nýjar álögur vegna
sjúkratrygginga, eigi hún að nota
sfna eigin tekjustofna og inn-
heimtumenn:
Hér fara á eftir ályktanir Sam-
starfsnefndar sveitarfélaga á
Suðurnesjum, og ályktanir bæj-
arstjórnar I Neskaupsstað, Hafn-
arfirði og Sauðárkróki. Þær eru
gerðar 16. og 17. des.
Bæjarráð Neskaupsstaðar
skorar þvi á þingmenn að fella
frumvarp þetta og taka upp sam-
vinnu við sveitarfélögin um laga-
setningar er snerta verkaskipt-
ingu þessara handhafa fram-
kvæmdavaldsins.”
(Sign.)
Logi Kristjánsson,
bæjarstjóri.
Samstarfsnefnd
sveitarfélaga á
Suðurnes jum:
„S.S.S. mótmælir harðlega
framkomnu frumvarpi, sem
gengur i þveröfuga átt við stefnu
sveitarstjórnarmanna á Suður-
nesjum, sem telja að rikið eigi að
taka að sér sjúkratryggingar að
fullu. Skorar nefndin á alþingis-
menn að fella frumvarpið og
beita sér i staðinn fyrir þvi að 10%
þátttaka sveitarfélaganna i
sjúkratryggingum verði lögð nið-
ur og rikissjóði falin sú fjármögn-
un og einnig viðbótarfjáröflun til
þessa málaflokks, ef nauðsyn
krefur.”
(Sign.)
Guðmundur Hauksson, sveitar-
stjóri Vatnsleysustr. hreppi
Jóhann Einvarðsson, bæjarstjóri,
Keflavik.
Eirikur Alexandersson, bæjar-
stjóri, Grindavik.
Alfreð Alfreðsson, sveitarstjóri,
Sandgerði.
Albert K. Sanders, sveitarst.
Njarðvikurhrepps.
Jósep Borgarsson, oddviti, Hafn-
arhreppi.
Finnbogi Björnsson, oddviti,
Gerðahreppi.
Sauðárkrókur.
„Bæjarstjórn Sauðárkróks
mótmælir harðlega þeim áform-
um rikisstjórnarinnar að nota á-
lag á tekjustofn sveitarfélaga til
að efna fyrirheit sitt um lækkun
rikisútgjalda til tryggingar-
kerfisins og skorar á rfkisstjórn
og alþingi að leita annarra og
Framhald á 14. siðu
SINE-fundur
um lánamálin
Nú eru islenskir stúdentar er-
lendis sem óðastað koma heim i
jólaleyfi. Nýlega hefur verið út-
hlutað 40 miljónum úr lánasjóði
námsmanna, en i rauninni var
þar ekki um annað að ræða en
hröðun á greiðslu sem ákveðið
var að seinka i haust. Lánamál
námsmanna eru enn i fullkom-
inni óvissu. Þegar fjárlaga-
frumvarpið kom frá nefnd til
annarrar umræðu reyndist ekki
tilgreint hvað Lánasjóðurinn
ætti að fá háa fjárveitingu.
Stjórn Sambands islenskra
námsmanna erlendis hefur
vegna þeirrar óvissu sem enn
rikir i lánamálunum ákveðið að
boða námsmenn til tveggja
funda um hátiðina. Sá fyrri
verður á morgun laugardaginn
20. desember og hinn síðari 27.
Báðir verða fundirnir haldnir i
Félagsstofnun stúdenta kl. 14.
UTBOÐ
fyrir
Tilboð óskast i hitavatnsmæla
Hitaveitu Reykjavikur.
útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Frikirkjuvegi 3.
Tilboðin verða opnuð á sama stað,
fimmtudaginn 22. janúar 1976 kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 <