Þjóðviljinn - 19.12.1975, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 19.12.1975, Blaðsíða 16
Dregið eftir 5 daga Á morgun laugardaginn 20. desember er aðalskiladagur í Happdrætti Þjóðviljans um allt land Skrifstofur Alþýðubandalagsins í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Akranesi, Sigiufirði og Akureyri verða opnar eftir hádegi til þess að taka á móti skilum og gefa upplýsingar um happdrættið. Léttið störfin og gerið skil strax í dag. DJODVIUINN Föstudagur 19. desember 1975. Uppreisn herforingja í Argentínu BUENOS AIRES 18/12 — Foringjar i flugher Argentinu hafa gert uppþot, tekið á sitt vald tvo flugvelli i grennd við höfuðborgina og handtekið yfirshershöfðingja flughers- ins, sem ekki vildi ganga i lið með þeim. Þeir krefjast þess að stjórn Mariu Estelu Peron láti af völdum og að við taki herforingjastjórn. Samkvæmf fyrstu fréttum bendir ekkerl til þess að landherinn og sjó herinnstyðji uppreisnarmenn. • Leppstjórn á Austur- Tímor JAKARTA 18/12 — Fjórir stjórnmálaflokkar á Aust- ur-Timor, sem hallir eru undir Indónesiu, hafa komið þar á fót bráðabirgðarikisstjórn. Malik, utanrikisráðherra Indónesiu, hélt þvi fram i kvöld að stjórn þessi, sem styðst við indónesiskt innrás- arlið, hefði nú alla hernaðar- lega mikilvæga staði á Aust- ur-Timor á sinu valdi. • I hár sam- an át af olíuverði PARIS 18/12 — Frakkar og bretar eru komnir i hár saman á alþjóðlegu ráðstefnunni um orku og hráefni, sem nú stend- ur yfir i Paris. Veldur þvi að Callaghan utanrikisráðherra breta setti i upphafi ráðstefn- unnar fram ákveðnar kröfur um lágmarksverð á oliu, og vill Bretland með þvi tryggja að það tapi ekki á oliuvinnslu sinni i Norðursjó, sem er mjög kostnaðarsöm. Giscard d’Est- aing Frakklandsforseti veitti Callaghan þungar átölur fyrir þetta og taldi hann með þessu hafa rofið samstöðu rilíja Efnahagsbandalags Evrópu á ráðstefnunni, en EBE-rikin leggja áherslu á sem lægst oliuverð. Heldur litlar likur eru á þvi að á ráðstefnunni þoki nokkuð áleiðis i þá átt að tryggja réttlátari skiptingu heimsauðsins og koma festu á verðlag á oliu og hráefnum. Klipping og elting- arleikur á miðunum Bretar skipta um eftirlitsskip og kalla þrjá dráttarbáta heim vegna sjólagsins Fyrir hádegi i gær gerði varð- skipið Öðinn aðför að breska tog- aranum Crystal Palace þar sem hann var að veiðum ásamt öðrum breskum togurum um 26 sjómilur út af La'nganesi. Var þar togað undir verndarvæng breska drátt- arbátsins Euromans. Crystal Palace hifði inn vörpu sina i ofboði er Óðinn nálgaðisten þó tókst, skv. fréttum Reuters fréttastofunnar að klippa á annan togvirinn. Sjálfir gátu varðskips- menn ekki athugað árangur klippinganna vegna ásiglingartil- rauna eftirlitsskipsins og annarra togara, sem allir eltu Óðinn eftir aðförina að Crystal Palace. Það mun vera orðin nokkuð föst venja hjá varðskipum sem reyna aðför að togurum, að hafa sig á brott um leið og klippingu lykur og eru þau þá gjarnan elt af grömum skipverjum eftirlits- skipa eða togara. I þessu tilfelli mun óðinn hafa siglt skipin af sér enda nokkuð hraðskreiðari en þau, sem þarna voru til staðar. LÖGBANN Á RAUÐA SVIFNÖKKVANN I dag verður tekin fyrir i bæjar- þingi Reykjavikur lögbannskrafa á bókina ,,Rauði svifnökkvinn”, lestrar- og myndabók, eftir Ólaf Hauk Simonarson og Valdisi Ósk- arsdóttur. Gerðarbeiðendur eru Svava Markúsdóttir og Beinteinn Asgeirsson. Lögbannskrafan er gerð vegna notkunar á mynd af þeim dansandi innan um eld- spýtustokka, vínflöskur og svefn- poka i bakgrunni myndarinnar. Krefjast þau þess, að dreifing bókarinnar verði stöðvuð. Verði bæjarþingið við lögbannskröfu fara þau fram á miskabætur og fleira. Fœreyskt skip alelda: 18 manna áhöfn ófundin leit í allan gœrdag hefur ekki borið árangur Átján manna áhöfn af færeyska fiskiskipinu Tómas T hafði ekki fundist i gærkvöldi þrátt fyrir leit i allan gærdag, en eldur braust út i skip- inu þar sem það var statt um 300 sjómilur suðvestur af Reykja- nesi. Það var klukkan 10.00 i gær- morgun að færeyska skipiö sendi út neyðarkall. Þetta er rúmlega tvö hundruð tonna bátur sem var á Grænlandsmiðum og veiddi i salt (á linu). Annar færeyskur bátur taldi sig vera um þrjátiu milur frá þeim stað sem gefinn var upp í staðarákvörðun neyðar- kallsins, en þrátt fyrir leit hans og þýska eftirlitsskipsins Friðþjóf auk flugvéla frá varnarliðinu hef- ur enn ekkert sést til skipsins eða áhafnar þess. TF-Sýr átti að fara til leitar i gær en varð að hætta við vegna einhverrar bilunar eða smáó- happs. Reiknað er með að hún komist til leitar á morgun. Igær- kvöldi og nótt leituðu tvær flug- vélar varnarliðsins með full- komnum rödurum en án árangurs er siðast var vitað. Veður á þessum slóðum var vont, skárra þó um morguninn en fór versnandi er á leið. Tveir fimtán manna gúmbjörgunarbát- ar eru um borð i Tómas T auk léttbáta. Engar neyðartalstöðvar eruum borð i björgunarbátunum, en slikt er ekki ólöglegt skv. fær- eysku lögunum, þótt hér á landi sé það ófrávikjanleg skylda að hafa slikt i hverjum báti. Um afdrif skipsins er ekkert vitað. Vera kann að staðar- ákvörðun þess sé alröng, og þess vegna sjáist ekki til þess, en ein- göngu hefur enn verið leitað á svæðinu i kringum uppgefna staðarákvörðun. Siðast þegar til skipverja heyrðist talaði skip- stjórinn i talstöðina og hafði hann þá hrökklast út á brúarvænginn — trúlega vegna eldhafs. Sambandsleysið við skipverja seinni hluta gærdagsins þykir þó ekki endilega benda til þess að skipið sé sokkið. Vera kann að talstöðvarleiðslur hafi sviðnað i sundur og ýmislegt annað kann að hindra fjarskiptasamband. Leit var haldið áfram í alla nótt og á morgun verður öllu tjaldað sem tiler við leitarstarfið. —gsp Munið útifundinn á Lækjartorgi á laugardag kl. 15 Kjörorðin eru: 1. Gegn rányrkju á is- landsmiðum. 2. Tafarlaus stjórn- málaslit við Stóra-Bret- land. 3. Endurskoðun á aðild íslands að NATÓ. Óskað er eftir stuðningsyfir- lýsingum viðkröfur þessar frá félagasamtökum um allt land. Pósthólf: 1026 i Reykjavik. Félag ungra framsóknar- manna, Reykjavík, FUF, Fé- lag ungra jafnaðarmanna, Reykjavík, FUJ, Reykja- vfkurdeild Einingarsamtaka kommúnista, EIK (m.l.) Reykjavikurdeild Kommún- istasamtakanna, marxist- anna, leninistanna, KSML, Æskulýðsnefnd Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, ÆNSFV, Æskulýðsnefnd Al- þýðubandalagsins, Reykjavík, ÆNABR.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.