Þjóðviljinn - 04.01.1976, Síða 3

Þjóðviljinn - 04.01.1976, Síða 3
Sunnudagur 4. janúar 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 NÍELS HAFSTEIN SKRIFAR UM MYNDLIST Gunnlaugur Scheving Sýnishorn af dánargjöf listamannsins Hvernig verða listasöfn til? Spurning sem aldrei heyrist orð- uð. En ef menn halda að opinberir aðilar og kerfisfólk hafi frum- kvæði i þá veru að stofna lista- söfn, þá fara þeir villir vegar og detti einhverjum i hug að félaga- samtök hugsi svo langt, þá er það rangt. En slysist meno til.að nefna framtakssaman einstakling úr röðum fólksins, þá eru þeir strax á réttri leið. Nú er það of langur listi að rekja alla þá góðviljuðu menn sem hafa safnað myndlist fyrirþjóðina, en hér er þó rétt að geta fáeinna: Hallsteinn Sveins- son kom á fót listasafni i Borgar- nesi, Bjarnveig Bjarnadóttir gaf til stofnunar listasafns á Selfossi, Ragnar Jónsson lagði til kjarn- ann i Listasafni ASl, og ef nefndir eru fáeinir sem styrkt hafa Lista- safn Islands: Asgrimur Jónsson, Markús tvarsson (erfingjar hans), Nina Sæmundsson, og nú siðast Gunnlaugur Scheving. Eins og gefur að skilja skiptast myndlistarmenn i hópa i afstöðu til framieiðslu sinnar, sumum er alveg sama hvar verk þeirra lenda eftir smiðshöggið, þeir láta þau fúslega af hendi, selja þau eða gefa, jafnvel eyðileggja sum verkin og nota sem uppistöðu i önnur, — og fer þar forgörðum mörg baráttustundin. Hinir eru þó liklega fleiri sem dreymir um einhvers konar safn eða minnis- varða, þar sem komandi kynslóð- ir hafa lifsstarf þeirra fyrir aug- um, og þess vegna kappkosta þeir að halda öllu saman og eiga þann- ig gott yfirlit á feril og þróun þeg- ar fram liða stundir. Þessi afstaða listamannsins byggist að nokkru á þeirri hyggju að list hans eigi erindi við almenning og sé þáttur i lista- sögu þjóðarinnar (enda er það oftast svo), sérstaklega verður þessi afstaða áberandi ef listamaðurinn hefur ekki hlotið viðurkenningu fyrr en seint og siðar meir, þegar hann er farinn að kröftum og aldurinn færist yfir. Hinu er svo ekki að leyna að viðurkenningin kemur stundum of seint (eða aldrei), listamaður- inn hefur þá kannski fórnað öllu lifsstarfi sinu og lagt árar i bát, beiskur og bugaður af mótlætinu, — er hryllilegt að hugsa til þess hvilik menningarverðmæti fara þar forgörðum fyrir litinn skilning. Samkvæmt sýningarskrá Listasafns Islands um dánargjöf Gunnlaugs Schevings flokkast hún þannig: 12 oliumálverk, 306 vatnslitamyndir, 256 túek- og vatnslitaskissur, 329 túsk-,' blek- og blýantsteikningar, 841 blek- og blýantsskissur, 36 litkritarmynd-, ir, 33 litkritarskissur, 3 grafik- myndir, 2 collage-myndir, 50 teiknibækur og dagbækur lista- mannsins. Af þessari upptalningu er ljóst að Gunnlaugur Scheving hefur verið gæddur litlum hæfileikum tilað henda hlutum, hefur kannski viljað sýna mönnum hvernig verk hans urðu til, — og ber að þakka fyrir það. Sú skoðun er ansi útbreidd að málari þurfi ekkert að hafa fyrir myndinni, hann byrji bara i einu horninu og endi i öðru: veskú! Þeirsem skoða sýninguna i Lista- safninu fá allt aðrar hugmyndir um vinnubrögð vandaðra mynd- listarmanna, hér getur að lita Haustnæturhiminn (oliumálverk). mynd eftir mynd um sama efni, en ætið er einhver munur á, það er búið að bæta smávegis við hérna, nema burt þarna. Gunn- laugur Scheving er lýsandi dæmi um markvissan visindamann i listinni, rannsóknir hans leiða alltaf til jákvæðrar niðurstöðu, ef ekki i myndbyggingu þá i lit, — ef liturinn bregst i endanlegri út- færslu, þá er myndbyggingin ó- hagganleg. Þess hefur áður verið getið á prenti, að ekki megi lita á allar skissur og frumdrætti Gunnlaugs sem undanfara stærri verka, fjöldi örsmárra verka hans eru sjálfstæð listaverk, leikandi létt eins og sprottin áreynslulaust undan fingurgómum skaparans, en samt sem áður eru þau ekki merkt þessum sterka persónu- lega blæ sem einkennir stærri verk hans, þá sérstaklega báta- myndirnar,þarsem annarsheims ró hvilir yfir öllu. Vatnslitamyndir Gunnlaugs Schevings eru undarlega sam- stæðar i litum, tilbrigðin fá, skil milli þeirra ekki nógu skörp, og stafar það sjálfsagt af þvi hvernig hann vann og áður var lýst. Yfir- leitt eru þetta landslagsmyndir af suðurlandi, undan Eyjafjöllum og úr öræfasveit — eru það skástu verkin, ef undanskilin er ein mynd af sjónum, þar sem hásetar innbyrða hákarl. Margir hafa velt þvi fyrir sér hverjir séu töfrar oliumálverka Gunnlaugs Schevings, þeirra verka sem eru sum hver um 12 fermetrar að flatarmáli, og þykir með ólikindum hvernig hann hefur leyst ýmis vandamál stækkunará þá lund að ljósmynd- ir af málverkunum segja ekkert um viðfemi þeirra, sumir velta vöngum yfir undarlegum litum sem virðast koma úr fjarstöddum litakassa, enn aðrir furða sig á kyrrstöðunni, þessum óhaggan- legu andlitum sem eru eins og meitlaðar dánargrimur úr sama mótinu, loks eru það þeir sem finna andblæ verkanna sem ætt- aður er úr sakleysislegum hug arheimi fullþroska listamanns. En ekki má gleyma ævintýra- myndum Gunnlaugs Schevings, þar sem fjósakonurnar svifa i loftinu innan um halastjörnur. sól, tungl og rauðan kopp! 1 þeim myndum er skyldleikatengsli við rússneska málarann Chagall. sem sótti myndefni i sögur og sagnir, þjóðtrú og hindurvitni. og þar svifa um i himinblámanum brúðhjón og grænir hestar. blóm- skrýdd tré og runnar, en útfærsl- an er ólik, endanleg niðurstaða persónulegt framlag til listarinn- ar. Hér verður ekki gerð tilraun til- að kryfja vandamál og mynd- byggingu i verkum Gunnlaugs Schevings, þeir sem áhuga hafa á myndlist geta með sjálfum sér skoðað þróunarferil verka hans á sýningunni i Listasafni Islands, og þroskað myndhugsun sina eftir þvi sem andlegir hæfileikar þeirra segja til um, — verður eng- inn svikinn af þvi. llákarlinn tekinn inn (vatnslitir) vSildarbáturinn (ollumálverk).

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.