Þjóðviljinn - 04.01.1976, Blaðsíða 18
18 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. janúar 1976.
INÓK-hópurinn með nokkrar þeirra gjafa sem hópnum bárust í siðustu utanferð sinni.
ÍNÚK sýndur aftur
Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
Konráðs Árnasonar
Hjallabrekku 24,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 5. janúar kl. 3.
Arni Konráðsson, Helga Helgadóttir
Sigriður Konráðsdóttir, Þorsteinn Eiriksson
Jóhanna Konráðsdóttir, Sigfús Borgþórsson
Eggert Konráðsson, Elsa Haraldsdóttir
Asdis G. Konráðsdóttir, Kristján H. Jónsson
Itafn Konráðsson
Sigurður K. Konráðsson, Marit Hákonsen
Asta B Styff, ólafur Styff
Barnabörn og barnabarnabörn.
Vegna fjölda áskorana
verða teknar upp sýningar
á leikritinu INUK á Litla
sviðinu í Þjóðleikhúskjall-
aranum.
Eins og kunnugt er fór INÚK-
hópurinn mikla frægðarför um
Evrópu á siðasta ári og sýndi i 11
þjóðlöndum. Hópnum hafa borist
fjölmörg tilboð um fleiri leikferð-
ir og er nú i ráði að sýna verkið á
leiklistarhátið i Caracas i
Venezuela i april nk.
Leikritið INÚK fjallar um
menningu og lifshætti eskimóa og
er samið af leikurunum sjálfum
ásamt Haraldi Ólafssyni lektor.
Fyrsta sýningin verður á
þrettándanum nk. þriðjudags-
kvöld kl. 20.30.
HÓLARf
Um leið og við óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegs nýs árs og þökkum viðskiptin á því liðna,
viljum við vekja athygli á nýju símanúmeri okkar
28266 3 linur
Prentsmiðjan HÓLAR HF.
Bygggarði, Seltjarnarnesi
______________________
Friður
Framhald af 5. siðu.
verandi starfsmenn Pentagon
(hermálaráðuneytisins) fyrir
vopnaframleiðendurna. Clark
Clifford, fyrrum varnarmálaráð-
herra Lyndon B. Johnsons, réði
sig til General Motors sem er einn
helsti vopnaframleiðandi lands-
ins. Þetta siðasta dæmi minnir á,
að varnarmálaráðherrarnir
sjálfir eru beinlinis partur af
þessari hringrás og hafa litla
möguleika til að hamla á móti
þrýstingi kerfisins, jafnvel þótt
svo óliklega vildi til að þeir hefðu
hug á þvi. Og hver getur i banda-
riskum stjórnmálum i alvöru
andæft samsteypu, sem svo til
allir helstu auðhringar og stór-
fyrirtæki landsins ganga upp i?
Að stjórna
eftirspurn
Sem fyrr segir gerir það vopna-
framleiðendum leikinn auðveldan
að þeir þurfa tiltölulega litlar
áhyggjur að hafa af framleiðslu-
kostnaði og samkeppni. Enda
standast engar áætlanir. Risa-
herflutningavélin C-5 A Galaxy
frá Lockheed átti skv. tilboðum
að kosta 15,5 miljónir dollara
stykkið, en fór upp i 60 miljónir.
Grumman bauð stjórninni F-14
orustuþotu fyrir 8,3 miljónir doll-
ara stykkið, en endanlegt verð
varð 20 miljónir. Tundurskeytið
Mk-48 hefur sjöfaldast i verði á
skömmum tima. Svo mætti lengi
telja.
Hin volduga samsteypa hers og
iðnaðar kemst upp með þetta eins
og annað vegna þess að hún hefur
vald til að ákvarða eftirspurnina
sjálf — að mjög verulegu leyti.
Með samstilltum aðgerðum (i
þingnefndum, fjölmiðlum
o.s.frv.) finna þeir upp svokallað-
ar „eyður” (gaps) og tekst i
krafti aðstöðu sinnar að koma þvi
inn, að þessar eyður ógnir öryggi
eða forystu Bandarikjanna á hin-
um ýmsum sviðum vigbúnaðar
Fyrst er eyða t.d. þar sem
sprengjuflugvélar eru, þá kemur
eyða i eldflaugakerfið, eða þá að
það er hamrað i gegn, að það
þurfi 80 miljarða dollara fjárveit-
ingu til eldflaugavarnakerfisins
ABM o.s.frv. Þegar miklar pant-
anir til að fylla upp i „eyður” og
„skörð” af þessu tagi eru komnar
i heila höfn, þá birtist ný. Ekki
var t.d. hinn nýi varnarmálaráð-
herra Fords, Donald Rumsfield,
búinn að sitja nema nokkra daga
i embætti (hann tók við af Schles-
inger) þegar hann tók upp þráð-
inn frá fyrirrennara sinum um að
Sovétrikin væru búin að ná
Bandarikjunum i hernaðarmætti.
Og krafðist hann þess — einmitt
um það leyti sem fjárlög voru á
dagskrá, að hernaðarmátturinn
verði að „vaxa á raunhæfan
hátt”. Eða eins og einn af at-
kvæðamönnum öldungadeildar
þingsins kemst að orði: „Þegar
útgjöld tii varnarmála eru á leið
til fjárveitinganefndar, þá
spretta ummæli um hinn ógnvæn-
lega hernaðarmátt Sovétrikjanna
eins og blóm á vordegi”.
Og veruleikinn
Og eins og áður, þá sýnist allt i
himnalagi um leið og eyðuáróður-
inn hefur gert sitt gagn og pening-
ar hafa fengist til meiri pantana.
t lok október gátu menn frétt það i
skýrslum frá leyniþjónustunni
CIA og DIA, leyniþjónustu hers-
ins, að Bandarikin hcfðu sem fyrr
haldið óskertu forskoti á öllum
sviðum nýjustu hernaðartækni.
Yfirmaður CIA, Colby, og yfir-
maður DIA, Daniel Graham, and-
mæltu þar með varnarmálaráð-
herranum, sem meðan á fjárveit-
ingaumræðunni stóð, hafði ekki
þreyst á að endurtaka, að Sovét-
rikin hefðu náð lifshættulegu for-
skoti I vopnabúnaði allt til enda
þessa áratugs.
En ráðherrann og hinir öflugu
skjólstæðingar hans höfðu sitt
fram. Herinn náði til sin upphæð
sem að raungildi er ekki minni en
hann fékk metárið 1968, þegar 540
þúsund bandariskir hermenn
börðust i Indókína.
Og hjól hergagnaiðnaðarins
halda áfram að snúast af fullum
krafti. Hann heldur áfram að
tryggja það að hægt sé að drepa
allt mannkyn með gjöreyðingar-
vopnum stórveldanna nokkrum
sinnum oftar en i hitteðfyrra
(overkill). Hann heldur áfram að
flytja út — ekki sist til hættu-
svæða þar sem mikið er af vopn-
um fyrir. Hann heldur áfram að
hafa þau áhrif á utanrikispólitisk-
ar ákvarðanir sem geta leitt til
nýrra „staðbundinna” styrjalda
— hvað sem liður lexium frá Viet-
nam. Nú er það Angóla sem er á
dagskrá. (AB tók saman.
Aðalheimiid Spiegel).
Helga Kress
Framhald af 2). siðu.
lýsingum ber mest á andlegum
eiginleikum karlmanna og hold-
legum eiginleikum kvenna. 7. í
máli og stil kemur fram
hefðbundin kynskipting.”
„Þetta munstur er ótvirætt
rikjandi i bókmenntum allra
tima,” skrifar Helga.
„Það sýnir bæði hvernig
viðhorf þjðfélagsins koma fram i
bókmenntum, oghvernig þær svo
aftur stuðla að viðhaldi þeirra.
Það reynist einnig sem sniðið á
bók Vésteins Lúðvikssonar
Gunnar og Kjartan.”
Einsog áður getur er grein
Helgu mjög vönduð og visinda-
lega samin, Þó bregður fyrir veil-
um einsog i áður tilvitnaðri full-
yrðingu um að sagan sé samin af
„sósialiskum höfundi”. í siðustu
aths. greinarinnar er hnykkt á
þessu með orðunum um höfunda-
afstöðuna: „nægir að benda á, að
höfundur er sósialisti”.
Það er enginn grundvöllur fyrir
slikri fullyrðingu, þótt maður telji
sigsjálfur vera sósialista og deili
hart á borgaralegt þjóðfélag.
Jafnvel Gylfi Þ. Gislason telur sig
vera sósialista. Hér getur verið
um að ræða sama tviskinnung og
hjá mörgum kemur fram, sem i
orði telja sig hlynnta jafnrétti
kynjanna, en breyta ekki eftir
þvi.
Nýstárleg viðbrögð.
Viðbrögð rithöfunda við gagn-
rýni eru oft æði kátleg, en þau
hafa tekið á sig alveg nýja mynd
gagnvart úttekt Helgu á stöðu og
hlutverki kvenna i bókmenntum.
Sumarið 1974 var haldin ráð-
stefna um norrænar samtima-
bókmenntir i Reykjavik. Þar
flutti Helga fyrirlestur um
„Konur og samfélag i nokkrum
islenskum samtimaskáldsögum”
og veittist þar ma. nokkuð að
Indriða G. Þorsteinssyni. Indriði
svaraði með smásögu i Samvinn-
unni haustið eftir, þar sem hann
reynir að skopast að jafnréttis-
baráttunni og ber ein ógeð-
felldasta persónan nafnið Vera
Hress!
t sumar birtist svo viðtal við
Helgu i Þjóðviljanum, þar sem
Jökull Jakobsson sýnist hafa tek-
ið eitthvað til sin, þvi að i nýút-
kominni skáldsögu hans nefnist
ein persónan Volga Fress og er sú
lektor i Vergenen, en þess ber að
geta, að Helga Kress er sem
stendur lektor i islenskum fræð-
um I Bergen.
Væntanlega gripur Vésteinn
Lúðviksson þó ekki til svo lág-
kúrulegra bragða, enda telja
sumir, að hann hafi þegar og án
aðstoðar Helgu fengið eftirþanka
með Eftirþönkum Jóhönnu. — vh.
Vegna útfarar
Bjarna Bjarnasonar læknis fellur niður öll
starfsemi Krabbameinsfélags íslands og
Krabbameinsfélags Reykjavikur mánu-
daginn 5. janúar e.h. Minningarkort af-
greidd i sima 16947.
Stjórn Krabbameinsfélags íslands
Stjórn Krabbameinsfélags Reykjavikur.