Þjóðviljinn - 04.01.1976, Page 9
Sunnudagur 4. janúar 197«. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Nefnd innan sænska
neytendaeftirlitsins (KO) hefur
undanfarið unnið að þvi að gera
könnun á auglýsingum sem á
einhvern hátt teljast innihalda
kynjafordómaj þóttu margar
auglýsingar falla undir beina
kynjafordóma og hefur nú verið
valin ein auglýsing, sem kærð er
fyrir verslunardómstólnum og
verður um prófmál að ræða.
Verði hún bönnuð, verður unnt
að ryðja verulegum hluta aí
þessum auglýsingum úr vegi,
þar sem hún er mjög hliðstæð
fjöldamörgum öðrum. Er I kær-
unni byggt á mannréttindasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna um
jafnan rétt og gildi allra mann-
vera.
Nefnd þessi telur að þær aug-
lýsingar sem hér um ræðir séu
ekki aðeins niðurlægjandi fyrir
kvenfólk, heldur einnig fyrir
karlmenn, sem hér eru steyptir
i eitt mót og þar að auki gert ráð
fyrir að þeir gangi út frá þeirri
kvenmynd sem auglýsingarnar
sýna.
Bent hefur verið á eftirtalin
atriði sem aðfinnsluverð:
Konan er notuð í þágu karl-
mannsins og sem „augnayndi”
til ágóða fyrir ákveðna vöru.
Hún og líkami hennar er nýtt á
hvern þann veg, sem getur gef-
ið meiri ágóða, án nokkurs tillits
til þess hvort aðstaða konunnar
i auglýsingunni sé raunhæf eða
jafnvel möguleg. (T.d. nakin
kona i kolanámu o.s.frv.)
Auglýsingarnar ýta undir
fordóma varðandi konuna i
þjóðfélaginu almennt, áhuga-
mál hennar og getu. Konan er
ýmist „nægjusamt brosandi
eldhúsgagn” eða „blikkandi og
tælandi skemmtigripur.”
Stundum er jafnvel talað um
hana beinlinis sem hlut, sem
karlmaðurinn getur notað og
stjórnað fullkomlega að vild.
Þá ýta þessar auglýsingar
undir alls kyns fordóma varð-
andi smekk kynjanna og að-
stöðu, sem beinlínis gefur haft
áhrif i þjóðfélaginu á möguleika
kvenna til að ná jafnrétti.
Umsjón: Þórunn Sigurðardóttir
Kvenfyrirlitning
auglýsinganna
a* ■
Þessi fáklædda stúlka Iofar 30 nöglum án endurhleðslu úr byssunni
sinni. Það er látið lita svo út að konur dútli naktar við að skjóta úr
naglabyssum, en hjálminn hefur hún við fæturna, væntanlega svo
að henni verði ekki kalt við þessa iðju. Bein notkun á nöktum likama
i ágóðaskyni.
"Jag löser vid Hermods och det ör ingen orrnon
on jog sjalv (nója...) som bestömmer nor och vor.
Gratis studieródgivning!
Ring Stockholm 08-234670
eller Malmö 040-76900.
Inte ett öre kostar det díg
mer on telefonsamtolet.
3 -i_
mekanikems
básta hjálp
AUa löjliga smá irritations-
monient pá Er btl som Ni kan
reta ihjál Er pá skall Ni spraya
med CRC 5.56. Spraya pá,
tandstiít, tándspoieoch pá
fördelardosa om bilen inte vill
starta. Och det ár inte bara
kíl
Hér er auglýsingin sem fer fyrir verslunardómstólinn og verður þar
unt prófmál að ræða, sem getur haft veruleg áhrif á skoðanamynd-
un almennings í framtíðinni. Þaö er verið að auglýsa efni, sem nota
á i bila og leysir upp ryð, sem eyðir raka og hreinsar, og er nafn
efnisins brennimerkt á bak konunnar. Hér er konan þvi augljóslega
notuð, reyndar á óvenju ósmekklegan hátt, því væntanlega er hér
ekki urn að ræða efni sem er sérlega æksilegt fyrir húðina enda full-
komlega óraunhæft að nota konubak til þessarar auglýsingar.-
(Karlmaðurinn_ er ætið i
ábyrgðarstöðu,'strákar vilja
bila, stelpur dúkkur o.s.frv.)
Þær striða þannig beinlinis
gegn þvi að karl og kona fái
sömu stöðu menningarlega,
fjárhagslega, félagslega og
manneskjulega.
Hér á íslandi höfum við
sannarlega fengið nasaþefinn af
slikum auglýsingum og vonandi
verður þess ekki langt að biða
að unnt verði að kæra þær og fá
bannaðar svo að auglýsendum
megi verða ljós sú ábyrgð sem
þeir bera á skoðanamyndun al-
mennings.
Hér eru nokkrar af þeim
auglýsingum sem bent hefur
verið á sem dæmi um kynjafor-
dóma og fyrst er auglýsingin,
sem verður væntanlega prófmál
innan skamms i Sviþjóð.
SKILJ ER INTE
MINA HERRAR
Lámna in frun till oss för renovering. Det blir
mycket billigare.
Dessutom: "Man vet vad man har, men inte
vad man fár"
Dam-
salonger
Odengatan 43
Morby Centrum
32 42 51 - 31 86 99
Solna Centrum
Þessi er ekkert að skafa utan af þvi, og biður menn að skilja ekki vift
frúna heldur „leggja hana inn i endurnýjun”. Þvf það er miklu
ódýrara. Og það er hárgreiðslustofa sem bendir eiginmönnum á
þessa athyglisverðu staðreynd.
til hnifs
og skeidar
Þessi ungi maður cr eitthvað að læra i kvöldskóla en á greiniiega i
vandræðum með að halda sér við efnift vegna fáklæddu stúlkunnar
við öxl hans. Enda segir i textanum „Aðeins ég sjálfur ákveð
(hm....) hvenær og hvar ég les.” Hér er gefið til kynna að
kvenpersónan hafi mikinn áhuga á að tefja hann í náminu, enda
hversvegna skyldi hún vera nakin en ekki hann?
Sænska neytendaeftirlitiö kærir
auglýsingu fyrir verslunardómstólum