Þjóðviljinn - 04.01.1976, Síða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. janúar 1976.
Bjarni Bjarnason, læknir
Fæddur 29.10. — Dáinn 22.12. 1975
A árshátið Læknafélags Reykjavikur 1966 var sunginn bragur um ný-
reista byggingu. 1 fyrstu visu bragsins stóðu eftirfarandi linur:
„Við götu Egils sterka er nú risin háreist höll.
Yfir hús og torg hún gnæfir, byggð af steini og gleri öll.
Það er húsið okkar Bjarna, sem ber af öllu hér,
þessi bygging, sem nú flestir myndu vilja eigna sér.
Það er Domus Medica”.
Þarna var sungið um hús það,
sem Bjarni Bjarnason læknir
hafði haft forustu um að byggt
yrði yfir starfsemi læknafélag-
anna, marga starfandi lækna og
reyndar fleiri aðila.
Ógleymanlegur söngur fyllti
samkomusal Domus Medica
haustið 1971, þegar fjölmenni var
saman komið til að fagna i tilefni
Fornleifafræðingar halda þvi
fram, aö úlfaldar hafi verið not-
aöir sem burðardýr á undan hest-
inum, og byggja þeir þessa kenn-
ingu á rannsókn fornminja sem
fundust i suðurhluta sovétiýð-
veldisins Turkemeniu i Mið-Asiu.
Við Altjn-Depe hafa fundist likön
af vögnum með úlföldum spennt-
um fyrir, leikfangadýr sem
greinilega eiga aö tákna úlfalda
af sjötiu ára afmæli Bjarna
Bjarnasonar. Við það tækifæri
kynnist ég þvi betur en nokkru
sinni, hve Bjarna lækni og nánum
vinum hans á lifsleiðinni haföi
orðið sönglist að miklum gleöi-
gjafa. 1 vinahópi hans voru
reyndar flestir bestu hérlendis
söngvarar, sem um áratugaskeið
höfðu skemmt og lyft allri þjóð-
svo og úlfaldabein frá þvi um 2000
árum fyrir Krist. Menjar um
hesta finnast ekki fyrr en frá sið-
ari timum.
Það eru sérfræðingar frá forn-
leifafræðistofnuninni i Leningrad
sem hafa unnið að uppgreftrin-
um, og hefur hann gefið full-
komna mynd af lifi og þjóðfélags-
háttum i þessari stóru bronsald-
arbyggð.
inni meö söng. Bjarni hafði þegar
á háskólaárunum komið fram
sem einsöngvari og alla ævi lagt
rækt við söng, farið með söng-
hlutverk i Reykjavik og á Akur-
eyri og komiö fram i Þjóðleikhús-
inu. Hann var um árabil formað-
ur Félags fslenskra einsöngvara.
1 þessu stórafmæli Bjarna voru
haldnar margar ágætar ræður.
Vinum hans úr mörgum og ólík-
um starfsgreinum lá mikið á
hjarta og höfðu frá nógu að segja
um manninn Bjarna Bjarnason,
um framlag hans til margra
góðra málefna, um mikla læknis-
hjálp hans, tryggð og drengskap.
Við fráfall Bjarna Bjarnasonar
læknis lýkur dáðriku ævistarfi að
heilbrigðis- og mannúðarmálum.
Allur starfsferill Bjarna var bor-
inn uppi af mikilli þekkingu, eld-
legum áhuga og óvenjulegu út-
haldi. Mannkostir hans og for-
ystuhæfni urðu til að laða marga
góða samstarfsmenn að þeim við-
fangsefnum, sem hann bar fyrir
brjósti og vildi koma fram. Hann
gat þvi oft fagnað drjúgum áföng-
um og góðum sigrum, og það var
með ánægjulegustu stundum lifs-
ins að samgleðjast með honum.
Bjarni Bjarnason var flestum
landsmönnum kunnur fyrir
baráttu hans gegn krabbameini.
Hann starfaði um aldar-
fjórðungsskeiö á vegum Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur og siðar
Krabbameinsfélags Islands og
var hann um langt skeið
stjórnarmaður og formaður þess-
ara félagssamtaka. Bjarni var
siskrifandi um heilbrigöismál og
var ritstjóri Fréttabréfs um
heilbrigðismál frá 1964.
Bjarni var kvæntur hinni þjóð-
kunnu leikkonu Reginu Þórðar-
dóttur, sem lést árið 1974. Þegar
höfð eru i huga mörg afrek
Reginu á sviði leiklistar, auk
heimilishalds hennar og ævistörf
Bjarna við læknislist og söng-
mennt, má ljóst verða að þessi
hjón hafa verið meðal merkustu
og bestu samtiðarmanna.
Ólafur Jensson.
Úlfaldar elsta húsdýriö?
Tómas
Guðmundsson
75 ára 6. janúar:
Minningar-
útgáfa
Ijóðasafns
A 75 ára afmæli Tómasar
Guðmundssonar skálds 6. janúar
nk. gefa nokkrir vinir hans út
Ljóðasafn hans I mjög takmörk-
uöu upplagi. Frá þessari útgáfu
segir svo i frétt sem blaðinu barst
I gær:
„Nokkrir aldavinir Tómasar
Guðmundssonar hafa fengið leyfi
skáldsins til að gefa út á 75 ára af-
mælisdegi hans, 6. janúar nk. sér-
staka minningarútgáfu af ljóða-
safni hans. Verður hún I mjög
takmörkuðu upplagi og öll eintök-
in tölusett og árituð af skáldinu.
Er gert ráð fyrir að hvert eintak
kosti kr. 5000.00 — og er söluskatt-
ur 20% innifalinn i verðinu.
Skáldið mun sjálft verða statt i
Helgafelli við Veghúsastigkl. 3—6
5. janúar daginn fyrir afmæl sitt.
Ennfremur verður bókin til sölu i
bókabúðum borgarinnar og eins
geta bóksalar utan Reykjavikur
pantað hana með símskeyti.
Allur ágóði af bókinni mun
verða afhentur skáldinu ásamt
skrá yfir eigendur hvers eintaks
af henni.
Þessi afmælisútgáfa, helguð
ástsælasta ljóðskáldi landsins,
mun örugglega verða mönnum
þvi dýrmætari sem lengra liður,
jafnt sem minnisgripur og ættar-
gripur, og sennilega má lengi
leita að fegurri og kærkomnari
vinargjöf.”
Maigret-handrit
í Leningrad
Leningrad (APN). Hinn kunni
franski rithöfundur Georges
Simenon, sem hefur skrifað
hundruð glæpasagna þar sem
Maigret lögregluforingi er aðal-
persónan, hefur ákveðið að láta
varðveita hluta af handritum sin
um i Saltjkov-Sjedrinbókasafn-
inu i Leningrad. Þessi ráöstöfun
er að verulegu leyti að þakka E.
Schreiber, dósent viö háskólann i
Leningrad, sem hefur unnið að
ýmsum rannsóknum á verkum
Simenons.
Karþagó-
menn
trippuöu
Komið hefur á daginn, að um
borð i skipi einu frá hinni forn-
frægu borg Karþagó, sem sökk
fyrir 2200 árum skammt frá
strönd Sikileyjar, hafi veriö tvær
öskjur með hassi. Grunur leikur á
þvi, að þessi vimugjafi hafi átt að
hressa upp á baráttuþrekið hjá á-
höfninni i styrjöld þeirri sem kar-
þagómenn háðu þá við rómverja.
Athuganir á rannsóknarstofu
leiddu i ljós, að hass þetta var
ennþá virkt, þótt lengi hafi það
legið i sjó.