Þjóðviljinn - 24.01.1976, Side 22
22 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. janúar 1976.
V erkafólk
varðveiti
stolt
stéttar
sinnar
Framhald af 5. siðu.
stofnun i þjóðfélaginu. Þeir sem
kveða upp slika dóma gera sér
ekki alltaf ljóst, að verkalýðs-
hreyfingin, verkalýðsfélögin
hljóta nú óhjákvæmilega að bera
nokkurn svip stofnunar, hvað það
snertir, að þau hafa fengið ákaf-
lega mörg ný verkefni við að fást,
sem útheimta margvislega þjón-
ustu við félagsmennina. bá þjón-
ustu verða skrifstofur verkalýðs-
samtakanna að láta i té, og hafa
þarafleiðandi stækkað verulega.
Menn verða aðhafa ihuga, að það
er æskilegt að verkalýðshreyfing-
in sinni flestum þessum störfum,
en þau mega þó aldrei verða, og
geta aldrei orðið aðalstarf hreyf-
ingarinnar.
Meginverkefnið verður áfram
að vera fyrst og fremst starfið á
meðal fjöldans, og það má aldrei
gleymast að verkalýðshreyfingin
er fjöldahreyfing. Hætti hún að
vera það, verður hún ekki lengur
það afl i þjóðfélaginu, sem verið
hefur og vera ber. Vissulega er
hætta á þvi, að hin margvislegu
nýju þjónustuverkefni, verði til
þess, að draga úr lifandi fjölda-
starfi og þar með baráttuhæfni
samtakanna. Þess hafa sést
merki.
En verkalýðshreyfing, sem
ekki er lengur fjöldahreyfing,
geturaldrei verið starfi sfnu vax-
in.
Verkamaðurinn má
aldrei líta á sig
sem annars flokks
Hér vil ég minnast nokkrum
orðum á stöðu Dagsbrúnar, sér-
staklega með þær miklu breyt-
ingar, sem orðið hafa i atvinnulif-
inu i huga.
A fyrri hluta þess timaskeiðs,
sem Alþýðusambandið hefur
starfað, má segja að það hafi að
yfirgnæfandi meirihluta verið
samband almennu verkalýðsfé-
laganna, það er ófaglærðs verka-
fólks. Þá var Dagsbrún að sjálf-
sögðu langstærsta félagið, og for-
ystufélag sambandsins.
Á siðustu 30 árum hafa orðið
geysilegar breytingar, hvað þetta
áhrærir. Samsetning Alþýðusam-
bandsins er nú orðin með allt öðr-
um hætti. Fjöldi nýrra félaga,
stórra og smárra, hefur risið á
legg i hvers kyns þjónustugrein-
um og sérgreinum. Af þessu leiðir
að Dagsbrún er ekki lengur sú
stærð, hvað félagafjölda snertir,
sem hún áður var. Langt fram
eftir árum má segja, að Dags-
brún hafi verið yfirgnæfandi
stærsta félagið hér i Reykjavik,
en hún er það ekki lengur. bessi
breyting er i fullum takt við at-
vinnuþróunina i Reykjavik.
Sivaxandi hluti af ungu fólki
leitar i önnur störf en almenna
verkamannavinnu. Þetta er eðli-
leg afleiðing þeirrar atvinnuþró-
unar, sem orðið hefur. Enginn má
þó taka orð min svo, að Verka-
mannafélagið Dagsbrún sé orðið
einhver minniháttar aðili innan
verkalýðshreyfingarinnar eða i
þjóðfélaginu yfirleitt.
Ég tel að Dagsbrún hafi enn
sem fyrr mjög veigamiklu for-
ystuhlutyerki að gegna, og þá
fyrst og fremst að standa vörð um
hagsmuni þeirra lægst launuðu i
þjóðfélaginu. Barátta Dagsbrún-
ar á næstu árum hlýtur ekki hvað
sist að beinast að þvi, að koma i
veg fyrir, að i okkar auðuga þjóð-
félagi verði til sérstök undirstétt
láglaunafólks.
Þá vil ég hér leggja sérstaka á-
herslu á mikilvægi þess, að hinn
almenni verkamaður liti aldrei á
sig sem neinn annars flokks þegn
i þjóðfélaginu, glati aldrei tilfinn-
ingunni fyrir rétti sinum, heldur
varðveiti stolt stéttar sinnar, það
stolt, sem best hefur dugað i allri
jafnréttikbaráttu verkalýðsstétt-
arinnar, og sem engu minni þörf
er á að varðveita i dag en var á
frumbýlingsárunum.
Dægurbaráttan
getur aldrei orðið
markmið
i sjalfri ser
— Gott væri að fá fleiri leiðbein-
ingar, sem þú hefur af langri
reynslu að gefa því unga fólki,
sem nú og á komandi árum geng-
ur til starfa undir merkjum
verkalýðshreyfingarinnar.
— Þú talar um leiðbeiningar, en
ég vil reyndar ekki segja einum
eða neinum fyrir verkum. Hver
timi verður að finna sina eigin
leið.
Það er hins vegar mitt álit, að
þeir sem taka að sér trúnaðar-
störf i verkalýðshreyfingunni, —
og það á við á hvaða tima sem er
— þeir þurfi að hafa i huga og til-
einka sér nokkur grundvallaratr-
iði.
1 fyrsta lagi þurfa þeir að afla
sér þekkingar á sögu verkalýðs-
hreyfingarinnar, bæði hér á landi
og hinnar alþjóðlegu hreyfingar
og byggja þannig á fenginni
reynslu. Þeir þurfa jafnframt að
þekkja til hlitar það þjóðfélag,
sem við lifum og störfum i, og
einnig að þekkja hvert einstakt
mál, sem við er að fást.
"Til þess að forystumenn i
verkalýðshreyfingunni geti veitt
fjöldanum nægilega markvissa
leiðsögn þurfa þeir sjálfir að
þekkja til hlitar hið stéttarlega
eðli okkar þjóðfélags og kunna að
beita fræðikenningu sósialismans
til úrlausnar á viðfangsefnum i
bráð og lengd.
Verkalýðshreyfing, sem ekki er
sósialisk, getur aldrei verið sú
markvissa fjöldahreyfing, sem
alþýðan þarf á að halda. Dægur-
baráttan getur aldrei orðið mark-
mið i sjálfri sér, heldur aðeins
þáttur i viðtækari baráttu, sem
beinist að þvi að tryggja alþýð-
unni völdin i landinu, setja mann-
inn i öndvegi i stað auðmagnsins.
1 öllu starfi sinu verða trúnað-
armenn verkalýðshreyfingarinn-
ar að hafa vel i huga, að það er
vinna og aftur vinna, sem úrslit-
um ræður um árangur, jafnt i
dægurbaráttunni og hvað varðar
langtimamarkmið.
Verkafólk og allir þeir, sem að
hagsmunum þess vinna, eiga i
höggi við sterkan andstæðing,
sem hefur ráðin yfir atvinnutækj-
unum og fjármagninu. Það sem
við höfum á móti er samstaða
fjöldans og þrotlaust starf hinna
mörgu fyrir verkalýðssamtökin. I
þeim efnum verður hver og einn
fyrst og fremst að gera kröfur til
sjálfs sin.
Þau viðhorf, sem ég hef hér að
lokum minnst á, eru að minu viti
forsendur þess, að menn geti skil-
að góðu starfi i fjöldabaráttu
verkalýðshreyfingarinnar.
k.
Hafnarfjörður — olíustyrkur
Greiðsla oliustyrks fyrir timabilið sept. — nóv. ’75 fer fram á bæjar-
skrifstofunum, Strandgötu6. Styrkurinn greiðist þeim framteljendum
til skatts, sem búið hafa við oliuupphitun ofangreint timabil.
Styrkur þessi greiðist ekki til þeirra sem áttu þess kost að tengja íbúðir
sinar við hitaveitu fyrir lok nóvembermánaðar 1975, sbr. 2. gr. I. nr.
6/1975.
Framvisa þarf persónuskilrikjum til að fá styrkinn greiddan.
Greiðslum verður hagað þannig:
Til framteljenda hverra nafn byrjar á:
A—F mánudaginn 26. jan. kl. 10—12 og 13—16
G—J þriðjudaginn 27. jan. kl. 10—12 og 13—16.
K—R miðvikudaginn 28. jan. kl. 10—12 og 13—16.
S—ö fimmtudaginn 29. jan. kl. 10—12 og 13—16.
Bæjarritarinn i Hafnarfirði.
Bestu hamingjuóskir
til Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar
á sjötugsafmælinu
Stálsmiðjan hf.
Járnsteypan hf.
Óskum Verkamannafélaginu
Dagsbrún til hamingju
með sjötugsafmælið
Skipaútgerð rfkisins
Félag
járniðnaðarmanna
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu við kjör stjórnar og trún-
aðarmannaráðs Félags járniðnaðar-
manna fyrir næsta starfsár.
Frestur til að skila tillögum rennur út kl.
18.00 þriðjudaginn 27. janúar nk.
Tillögur eiga að vera um 7 menn i stjórn
félagsins og auk þess um 14 menn til við-
bótar i trúnaðarmannaráð og 7 varamenn
þeirra.
Tillögum skal skila til kjörstjórnar félags-
ins i skrifstofu þess að Skólavörðustig 16,
3. hæð, ásamt meðmælum a.m.k. 76 full-
gildra félagsmanna.
Stjórn
Félags járniðnaðarmanna
Leikfélag
Þorlákshafnar
sýnir
Skirn eftir Guðmund Steinsson. Frum-
flutningur. Leikstjóri Sigurður Karlssoai
Félagsheimilinu Seltjarnarnesi sunnu-
daginn 25. janúar kl. 21. Miðasala frá kl.
17. Simi 26676.