Þjóðviljinn - 05.02.1976, Side 2

Þjóðviljinn - 05.02.1976, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Fimmtudagur 5. febrúar 1976. vnr Enn um launamál Bæjarpósti hefur borist eftir- farandi bréf vegna kjaramála- baráttunnar, sem heitt brennur um þessar mundir: Mikið samningaþóf um kaup og kjör launastétta landsins stendur nú yfir. Margir fundir eru haldnir, og nefndir fleiri en tölu verði á komið, sitja á rök- stólum milli fundanna. Samt skilstmannihelstá deiluaðilum að bókstaflega ekkert hafi mið- að i samkomulagsátt, enn sem komið er. Og enn einu sinni var samþykktur á alþingi frestur til handa Kjaradómi til að kveða upp dóm i kjaramálum opin- berra starfsmanna, þ.e. lögun- um um þetta atriði frá i vetur er breytt eftir nokkra mánuði. Það viröíst sem sé ætla að ganga erfiðlega að skammta launa- fólki lifibrauðið i þetta sinn, eins og oft áður, en bót er þó i máli, að það er tiltölulega fljótgert að breyta lögum, sem fjalla um kjör eða samninga almenns launafólks. Hjá örfáum stéttum gengur þetta þó vandræðalitið fyrir sig, þar þarf enga samn- ingafundi, engan kjaradóm, enga fresti, heldur gerast hlut- irnir þar sjálfkrafa, samkvæmt lögum frá 1928, að mig minnir. Hér er að sjálfsögðu átt við bankastjóra, en svo sem kunn- ugt er, upplýstist nýlega, eftir' nokkurt þóf þó, að laun þeirra hækkuðu nýverið úr 181.000 kr. i 230.000 kr., eða um skitnar 40—50.000 kr. á mánuði. Fyrir einhverja vangá höfðu banka- stjórarnir dregist aftur úr hæstaréttardómurum, en sam- kvæmt lögum frá 1928 áttu þeir að fylgja þeim eftir i launum (bau virðast svei mér haldgóö þessi lög frá 1928, oft er nú búið aö breyta öðrum lögum, sem fjalla um kaup og kjör, siðan þá, enda ekki langrar stundar verk, ef góður vilji er fyrir hendi). En nú bregður svo undarlega við, að einmitt tveir menn úr hópi bankastjóra koma grafalvar- legir fram i fjölmiðlum og til- kynna, að afkoma þjóðarbúsins gefi ekkert svigrúm til kaup- hækkana, nú verði almenningur að spara, meðan við erum að komast yfir erfiðleikana. Eg spyr: Hvers vegna kröfð- ust þeir Nordal og Haralz þess ekki opinberlega, að margnefnd lög frá 1928 yrðu endurskoðuð, og þeim breytt, þannig að bankastjórar væru ekki til- neyddir, samkvæmt lögum, að taka á sig 50.000 kr. launahækk- un á mánuði á þrengingatim- um? Halda mennirnir virkilega, að nokkur maður trúi þvi, að kvart- miljón króna mánaðarlaun bankastjórans séu léttari baggi á þjóðarbúskapnum en tuttugu og niu þúsund króna mánaðar- skammtur ellilifeyrisþegans? Það er einmitt þetta gifurlega bil milli hálauna og láglauna, þetta bil milli óhófs og bruðls annars vegar og sultar og seyru hins vegar, sem verður að minnka. Meðan ekki heyrist orð um það frá hagspekingunum, verður ekki tekið mark á fram- lagi þeirra i umræðum um launamál. —B Heimur Römpöttis Myndir þær sem hér birtast eru eftir finnska teiknarann Kimmo Römpötti Hann er maöur um þrltugt, Helsinkibúi, og var upphaflega hönnuður iðnvarnings. Til þess að standa straum af námi slnu byrjaði hann að teeikna grlnmyndir I blöð og var orðinn svo þekktur er hann iauk námi I Listaskólanum I Helsinki, að hann ákyað að gera þetta að ævistarfi. Teikni- myndir eftir hann hafa birst I 15 löndum og I 250 ritum og blööum. Nafn hans er þvl orðiö heims- þekkt og ef að likum lætur munu lesendur þjóð- viljans fá að kynnast klmnigáfu og tjáningar- máta Römpöttis nánar á slðum blaðsins á næstunni. Njrtt stig hernámsins Vilja fá herinn staðfestan sem félagseiningu! Fœr herstöðin kaupstaðarréttindi? 11. desember skráðu Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) svohljóðandi i fundar- gerðarbók, undirritað og staðfest af þremur sveitarstjórum, þrem- ur bæjarstjórum og einum odd- vita: I septembermánuði sl. buðu yfirmenn „varnarliðsins” á Keflavikurflugvelli samstarfs- nefndinni á fund á Keflavikur- flugvelli, þar sem þeir kynntu framkvæmdir á vegum „varnar- liðsins” og ýmsar áætlanir þeirra i næstu framtið. Kom fram hjá „varnarliðsmönnum,” að þeir vildu hafa góöa samvinnu við nágrannasveitarfélögin i þeim málum, sem hagkvæmt gæti verið að leysa i sameiningu, svo sem i brunavörnum, sorpeyðingu og fl. slikum málum. Var farin skoðunarf. um flugvallarsvæðið og skoðaðir ýmsir áhugaverðir hlutir fyrir sveitarstjórnirnar td. ný sundlaug, slökkvistöð vallarins og fl. Móttökur varnar- liðsmanna voru mjög höfðing- legar. Samstarfsnefndin telur vel við eigandi og reyndar skylt að endurgjalda þetta heimaboö þeirra „varnarliðsmanna” og er ákveöiö að bjóða svo sem sjö æðstu mönnum „varnarliösins”, þeim hinum sömu, sem buðu nefndinni til sams konar fundar og I skoðunarferð um sveitar- félögin.Stefnteraðþvi.að fundur þessi geti orðið um miöjan febrú- ar næstkomandi.” Það var fyrst slðustu dagana i janúarmánuði, sem undirritaður komst yfir framagreinda fundar- gerö. Þar sem i fundargerðinni kveður við tón, sem ekki hefur verið sleginn hér lengi, höfðum viö tal af bæjarfulltrúa Alþýöu- bandalagsins ■ i Njarðvikum, Oddbergi Eirikssyni, og báðum hann segja sitt álit á fundargerð- inni. Um hana sagði hann: „Þeim, sem muna eftir ára- mótaskaupi útvarpsins, finnst sennilega að hér sé kominn annar þáttur þess, þar sem forystumenn byggbanna fara sjálfir fram á að verða settir á nýjan stað i kerfinu. Sannleikur málsins er sá, að viöskipti sveitarstjórnarmanna við herliöið mega heita á eina bókina lærð. Hafi sveitar- stjórnarmenn viljað koma ein- hverjum málum á framfæri við herinn til leiöréttingar á málum sveitarfélaganna, hefur það æ og ævinlega rekiö i strand. Stundum fyrir varðstöðu deildarstjóra varnarmáladeildar fyrir herinn, stundum fyrir varðstöðu annarra. Ekki eitt einasta mál held ég að hafi komist í mark, og þó að þessir háttvirtu bæjarstjórnendur myndi kunningjasamband við dátana held ég, að þeir séu ekki feti nær þvi marki að vinna sveitarstjórnunum. Þess ber að geta i þessu sambandi, að piltungar þessir standa ekki hér við lengur en tvö ár hver, og þó að búið væri að tæma ótalin glös af góöum veitingum þá liði kunningsskapurinn jafnan undir lok á tveggja ára fresti. Eini marktæki samstarfsaðilinn væri sjálfur forseti Bandarikjanna ; að bæta honum inn i hóp sveitar- stjórnarmanna á Suðurnesjum. Hann hangir þó venjulega i em- bætti lengur en i tvö ár. Ef svo heldur áfram sem horfir með samþykkt þessari er i raun verið að taka herinn inn i islenskt stjórnkérfi sem félagslega ein- ingu likt og bæjar- eða hrepps- félag. Ég vil að lokum benda fyrr- greindum framámönnum sveitarfélaganna á, að vilji þeir virkilega standa i stykkinu þá ættu þeir að taka höndum saman utan herstöðvarinnar og mæta sameinaðir þvi valdi, sem er inn- an girðingarinnar. Framfara- málum byggðanna verður ekki komið fram innan flugvallarins.” —úþ KYNSLOÐA- SKIPTI Á skákþingi Reykja- víkur, sem staðiö hefur yfir í nokkrar vikur, hefur vakið athygli að yngstu þátttakendurnir í A-riðli eru í efstu sætunum. Á undanförnum árum hefur myndast nokkuð ákveðinn forystuhópur skákmanna sem hefur venjulega raðað sér i efstu sætin. Þar má nefna Jón Krist- insson, Björn Þorsteinsson, Magnús Sólmundsson, Ingvar Ásmundsson o.fl, Ég undanskil stórmeistarana tvo i þessum umræðum. Nú virðist þaö hins vegar vera að gerast að nýir ungir menn séu komnir i hóp þeirra sterk- ustu og jafnvel búnir að ýta þeim fyrrnefndu aftur fyrir sig. Reyndar eru menn ávallt nokkuð tregir aö viðurkenna slikt, en ég held að ekki verði lengur um villst. Á skákþinginu hafa einkum 4 ungir menn vakið athygli fyrir góða frammistöðu. Það eru þeir Helgi Ólafsson, Margeir Pétursson, ómar Jónsson og Ásgeir P. Ásbjörnsson. Þeir tefla i hverju mótinu á fætur öðru og standa sig ávallt vel, einkum þó tveir þeir fyrsttöldu. Á skákþingi lslands 1975 varð Margeir Pétursson i 1-4. sæti ásamt Birni Þorsteinssyni o.fl., en Helgi Ólafsson I 5. sæti. A haustmóti TR varð Helgi Ólafsson I 1. sæti á undan Birni Þorsteinssyni, og Margeir Pétursson varð fjórði. Meö þessum sigri vann Helgi sér þátttökurétt í Reykjavikurskák- mótinu 1976. Og nú er staðan sú á skákþingi Reykjavikur, að þeir Helgi og Margeir eru i efstu sætunum, og einungis Birni Þorsteinssyni hefur tekist aö veita þeim nokkra keppni. Það kallast að berja höfðinu við steininn er menn viðurkenna ekki staöreyndir. Ég tel að sú staðreynd eigi að vera orðin öllum ljós, sem fylgjast með skák, að nú er einungis hægt að fullyrða að tveir islenskir skák- menn séu betri en Helgi og Mar- geir. Það eru að sjálfsögðu stór- meistararnir Friðrik og Guð- mundur. 1 B-flokki á skákþinginu er Hilmar Karlsson I efsta sæti, og hér kemur ein skáka hans. Umsjón: Jór Briem Hvitt: Hilmar Karlsson Svart: Torfi Stefánsson Grúnfelds-vörn. l. d4 3Rf6 2. c4 ge 3. Ilc3 d5 4. Bf4 Bg7 5. c3 0-0 6. Rf3 c5 7. dxc I)a5 8. Hcl dxc 9. Bxc4 Rc6 1«. 0-0 Rd7 11. Rd l Rxc5 12. Rb3 RxbS 13. Dxb3 Df5 11. Bd5 Ra5 15. dc2 lldx 16. Be4 Dh5 17. Rd5 Rc6 18. Ilfdl Bf5 19. Bxf5 D x f 5 20. Dxc6 bxc6 21. Rxe7 Kh8 22. Rxf5 gxf5 23. b3 Bb2 24. Bc7 Hd5 25. Hxd5 cxd5 26. Hc2 Bf6 27. Kfl Kg7 28. Ke2 d4 29. exd Bxd 30. g:i h 5 31. Hc4 Ilc8 32. 1113 He4 33. Ilxd l gefið Jón G. Bricm

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.