Þjóðviljinn - 05.02.1976, Page 8

Þjóðviljinn - 05.02.1976, Page 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 5. febrúar 1976. Fimmtudagur 5. febrúar 1976. ÞJÓDVILJINN — SIDA 9 ANNAR HLUTI Hér birtist önnur greinin um sögu Fjalakattarins en þær verða þrjár alls en ekki tvær eins og upphaf- lega var fyrirhugað. I hinni síðustu verður f jallað nánar um aðra hluta húss- ins en leikhússalinn. I þessari grein er einkum sagt frá kvikmyndasýn- ingum og fundarhöldum kommúnista þar. Ariö 1906, þegar fyrsta kvik- myndahús landsins, var sett á laggirnar, stóö gamli leikhússal- urinn i Fjalakettinum þvi til reiöu. íslendingar voru fljótir aö gina viö þessari nýjung þvi að að- eins 11 ár voru þá liöin frá þvi aö fyrst var fariö að sýna kvikmynd- ir i heiminum (Paris og Berlin 1895). Frá árinu 1903 höföu reyk- vikingar af og til haft tækifæri til aö sjá lifandi myndir i Bárubúö og Iönó. Fr. Warburg, stórkaupmaöur I Kaupmannahöfn, keypti árið 1906 áhöld til kvikmyndasýninga á- samt litilli rafstöö, sem knúin var oliuhreyfli. Hann tók sýningar- salinn i Fjalakettinum á leigu og hóf daglegar kvikmyndasýning- ar. um borð i skipiö, skera niður hakakrossfánann og hafa hann á brott með sér. Var nú fáninn fal- inn, svo lögreglunni tókst ekki að finna hann. Svo var um þá er skáru hann niður. Skall þó eitt sinn hurö nærri hælum, er lög- reglankom i Bröttugötusalinn, en félagarnir voru þá i gamla sýn- ingarklefanum. Um kvöldið hélt K.F.t opinn fund i Bröttugötusalnum. Var sá fundur fyrst og fremst haldinn i 'sambandi viö baráttuna gegn at- vinnuleysinu, en þó ákveðiö aö taka baráttuna gegn fasismanum þar fyrir á sérstakan hátt, sem hér greinir: Salurinn var troöfullur, liklega um 500 manns. Atti Einar Olgeirsson aö flytja þar ræöu gegn fasismanum. Aöur en sú ræða hófst var dyrum lokað, ljós slökkt um stund og öllum bannaö að fara út meöan á ræöunni stóð, þvi vitað var um lögreglunjósn- ara og hvitliða á fundinum. Einar lauk ræðunni meö þvi aö sýna hakakrossfánann, er skorinn haföi veriö niöur þennan dag, kasta honum á gólfiö i ræöustóln- um, trampa á honum og segja aö eitt sinn myndi verkalýöurinn troða hakakrossveldið undir fót- um. — Var siöan ljósið slökkt, fáninn látinn hverfa. Siöan voru dyrnar opnaðar og njósnararnir skunduðu út. FJALA- KÖTTURINN Biósalur Fjalakattarins aö vestan. Gengiö var inn frá Bröttugötu I neöridyrunum. Útgangurinn séstnærá myndinni. (Ljósm.: Ari) Inni isalnum. Enn sjást gamlar skreytingar i loftiog yfir dyrum. (Ljósm.: Ari) Hér sjást tveir menn uppi I mastri Diönu I Reykjavlkurhöfn 19. sept. 1933 og eru búnir aö festa upp rifinn hakakrossfánann á ný, eftir aö kommúnistarnir rifu hann niöur. Lögreglan stendur vörö fyrir neöan og a.m.k. tveir menn á skipinu heilsa aö nasistasiö. (Ljósm.: Skafti Guöjónsson) Þegar kröfuganga skyldi hefj- ast á eftir til að flytja borgar- stjóra kröfur atvinnuleysingja, var lögregla og hvxtlið allfjöl- mennt i Bröttugötu. Urðu nokkur átök, en ekki tókst lögreglu að finna hakakrossfánann.” Sólveig Hjörvar minnist þess að sunnudag einn vorið 1933 var samkoma i Bröttugötusalnum og komu þá nasistar og negldu aftur hurðina. Hófu þeir siðan umsátur um húsið, rændu ávöxtum og laukum úr baklóöinni hjá Silla og Valda og grýttu það. Þennan sam'a dag var Gunnar, bróöir hennar, fermdur og Tryggvi skirður. Kom laukur fljúgandi inn um gluggann þegar veislan stóð sem hæst. Til dæmis um samkomur kommúnista i Bröttugötusalnum er kvöldskemmtum 1. mai 1933. Skemmtiskráin var svona: 1. Tvöfaldur kvartett syngur „Internationale". 2. Ræöa: Aki Jakobsson. 3. Leikhópar verkamanna sýna smáleik. 4. Kariakór verkamanna syngur. 5. Dýrleif Arnadóttir: Erindi. 6. Ungherjar ASV leika. 7. Upplestur: Magnús Arnason. 8. Spilaö á sög: Rússnesk þjóö- lög. 9. Tvöfaldur kvartett syngur. Af alvarlegra tagi er samúðar- fundur með þýska verkalýösleið- toganum Thálmann og spánska verkalýðnum sem haldinn var 29. okt. 1934. Frásögn Verkalýðsblaðsins af honum er á þessa leið: „Hundruðum saman streymdu verkamenn, verkakonur, menntamenn og aðrir niöur i Bröttugötusalinn, sem varð fullur á skammri stundu, svo fleiri komust ekki inn. Fundurinn fór ágætlega fram. Karlakór verkamanna hóf fund- inn með „Internationale”. Siðan flutti Brynjólfur Bjarnason ræðu um spönsku uppreisnina, en á eft- ir söng karlakórinn sorgarmars- inn. Þá las Jóhannes úr Kötlum upp kvæði um ,,fanga fasism- ans”, en Kristinn Andrésson flutti ræðu um baráttuna fyrir frelsi Thalmanns og allra andstæðinga fasismans. Samþykkt voru harðorð mót- mæli gegn verkalýðsmorðunum á Spáni og ákveðiö að senda þau i simskeyti til Lerroux-stjórnar- innar. Ennfremur var samþykkt að senda skeyti til Berlin með kröfu um frelsi fyrir Thálmann og alla andstæðinga fasismans. Safnað var inn fyrir skeytakostn- aðinum á fundinum. Fundinum lauk með allsherjar- söng „Internationalsins”.” Eftir að kommúnistarnir fóru úr gamla leikhússalnum i Fjala- kettinum var hætt að nota hann til samkomuhalds. Lengi var tré- smiðja tilhúsa þar og siðan vöru- geymsla. —GFr Bióið nefndist Reykjavikur Bio- graftheater.Þetta var fljótt stytt af almenningi og einfaldlega kall- að Bio. Þaðan er runnið orðtakið ,,að fara i bió”. Ariö 1912 fékk Reykjavikur Biograftheater samkeppni. Þá var stofnaö kvik- myndahús, sem var til húsa I Hót- el íslandi á næstu grösum. Það var nefnt Nýja bió. Fór þá al- menningur að kalla bióið i Bröttu- götu (Fjalakettinum) Gamla bió og hefur það nafn haldist siðan. Frá upphafi starfaöi við bióið og stjórnaði þvi lengst af danskur maður að nafni P. Petersen sem i daglegu tali var kallaður Bió-Pet- ersen. Hann skrifaði grein i tilefni af 40 ára afmæli Gamla biós árið 1946 og segir þar m.a.: . Sýningarklefinn var að stærö 1 fermetri, klæddur gips-plötum að innan vegna eldhættu. Vélin, sem notuð var fyrstu árin, var hand- knúin. I þessum klefa stóð ég og sýndi i mörg ár — hvert kvöld og 4 stundir á sunnudögum. Mikinn hita lagði af vélinni, og loftræst- ing næsta engin, svo að ekki var óalgengt, að hitinn yrði þarna um 40 stig. Margir kunnir reykvikingar voru frá byrjun fastir gestir, og sumir þeirra sátu alltaf i ákveön- um sætum, t.d. Th. Thorsteinsson kaupmaður, sem sat alltaf á aft- asta bekk, næst sýningarklefan- um, Klemens Jónsson landritari, Tryggvi Gunnarsson bankastjóri, Lúðvik Hafliöason kaupmaður o.fl. Attu þessir menn það sam- eiginlegt við fjölda annarra, aö þeirhöfðu strax frá byrjun áhuga fyrir þessari nýju tegund dægra- styttingar, sem siðan hefur þró- ast og nú er orðin sjálfstæð list- grein. En svo voru aftur aðrir, sem litu þetta öðrum augum. Það var venja, að daginn áöur en skipta átti um myndir, voru limd- ir yfir auglýsingaspjöldin miðar, sem á var letrað: ,,1 siðasta sinn”. Og kom það oft fyrir, að ég heyrði fólk, sem stóð við þessi auglýsingaspjöld, segja: „Auðvitað gat þetta ekki gengiö til lengdar”, eða „loksins hættir þetta helvíti”. Aðsókn að kvikmyndasýning- um hefur þó stöðugt aukist, og Einar Olgeirsson sýndi haka- krossfánann, kastaði honum á gólfið og trampaði á honum. voru fyrir, voru allir háir og sterkvaxnir karlmenn. Man ég sérstaklega eftir togaraeiganda nokkrum. Hann stakk nefinu rétt inn um dyrnar og horfði á mynd- ina augnablik. Þegar hann kom út buðum við honum Hoffmanns- dropa, en hann sagðist eigi þurfa þeirra með. I sömu andránni leiö yfir hann og datt hann niður tröppurnar niður i forstofuna, en sakaöi þó ekki. Kvöldið eftir fór alveg eins fyrir ungum manni, er starfaði i stjórnarráðinu”. Kvikmyndasýningar uröu brátt með vinsælli skemmtunum reyk- vikinga og salarkynnin i Bröttu- götu þóttu fuliþröng fyrir starf- semina. Bió-Petersen hóf þá að reisa glæst bióhús i Ingólfsstræti og sumarið 1927 flutti Gamla bió úr Fjalakettinum i núverandi húsakynni sin. Valgarður Breiðfjörö, eigandi hússins, dó árið 1905 og tveimur árum seinna seldi ekkja hans það Þorvaröi Þorvarðssyni prentara sem var einn af fyrstu jafnaðar- mönnum landsins. Arið 1914 var Fjalakötturinn kominn i eigu Jó- hanns Jóhannessonar og gaf hann þaö Minningarsjóði hjónanna Jó- hannesar Jóhannessonar og Sigurbjargar Guðnadóttur. Hlut- verk sjóðsins var mjög göfugt. Jóhannes úr Kötlum las upp kvæði um fanga fasismans. Það var aö reisa eljiheimili en ekkert slikt var þá til á landinu. Ekki var samt aðhafst i málinu fyrr en 1942 en þá var húsiö selt Silla og Valda og munu elliheimil- ispeningarnir hafa eyðst i verö- bólgueldi. Þegar kvikmyndasýningum lauk i Fjalakettinum var salurinn leigður templurum. A þeim tima fóru stundum fram opinberar ak- sjónir (uppboð) þar. Borðbúnað- ur alþingishátiðarinnar var t.d. boðinn þar upp 1931 af Kristjáni borgarfógeta. Þá bjó Helgi Hjörvar i Fjalakettinum. Sólveig dóttir hans minnist þess frá bernskuárum sinum að hún hirti skruddu i salnum sem ekki haföi gengið út á uppboöi. Þetta reynd- ist þá vera kvikmyndahandrit Sommerfelds leikstjóra að Borg- arætt Gunnars Gunnarssonar frá þvi að hún var kvikmynduð 1919. Handritið er enn I eigu Sólveigar en verður boöiö upp á næsta bóka- uppboði Klausturhóla. Þá er að vita hvort ekki verður meiri á- hugi. 1 janúar 1932 tók Kommúnista- flokkur fslands gamla leikhúsið og bióið i Fjalakettinum á leigu og voru þaö höfuömiðstöðvar hans þangað til i mai 1935. Salur- inn var þá yfirleitt kallaður Tryggvi Gunnarsson bankastjóri: Fastur blógestur. Bröttugötusalurinn. A þessum árum var starfsemi kommúnista mikil og stundum margir opin- berir fundir i viku. Afgreiðsla Verkalýðsblaðsins var niðri. Sellu- og stjórnarfundir fóru fram i litlum afherbergjum uppi eða i aðalsalnum. Einn eftirminnilegasti atburð- urinn i Bröttugötusalnum gerðist 9. nóv. 1933. 1 þann tima börðust kommúnistar hatrammlega gegn hakakrossfánanum sem tákni nasismans. Fyrr um haustið hafði komið til Reykjavikur þýska fisk- tökuskipið Diana og að frum- kvæði kommúnista neituðu hafn- arverkamenn að vinna undir blaktandi fána nasismans. Sló i bardaga milli verkamanna og lögreglu og tókst kommúnistum að ná hakakrossfánanum en lög- reglan náði honum aftur rifnum og var hann dreginn að húni á ný. Hinn 9. nóvember tókst kommún- istum hins vegar að ná haka- krossfána af fisktökuskipinu Eid- er frá Hamborg. 1 Rétti 4. hefti 1973 er frásögn af þessum at- burði. Hún er svona: „Nokkrum ungum kommúnist- um undir forustu Hallgrims Hallgrimssonar, er siðar barðist á Spáni i Alþjóðaherdeildinni og reit bók um það, tókst að komast Þegar upp kom tröppurnar úr anddyrinu var gengiö inn I salinn til hægri. (Ljósm.: Ari) FURÐU- HÚS FRÁ LIÐINNI TÍÐ sýningar haldnar stöðugt, að und- anskildum tveim mánuðum 1918, er spánska veikin geisaði, og hálfum mánuði áriö 1921, þegar óttast var að veikin væri að koma upp aftur. Ef sýndar væru nú myndir þær, sem þóttu framúrskarandi góöar 1906, myndu þær liklega eingöngu kalla fram brosið hjá áhorfend- um. En þrátt fyrir þaö, hve öll tækni var léleg um þær mundir, eru margir, sem enn muna eftir t.d. myndunum „Vendetta” og „Nautaat i Barcelona”, sem sýndar voru er kvikmyndahúsið varopnað. „Hvita rottan”, frönsk ein-þátta mynd, var svo áhrifa- mikil, að meira að segja margir karlmenn urðu aö þerra tárin úr augunum að sýningu lokinni. Ekki má gleyma myndinni „Upp- skurðir Dr. Doyens”, sem sýnd var sérstaklega á eftir hinni venjulegu sýningarskrá, og kost- aði aðgangur að henni 35 aura. Á meðan hún var sýnd leið daglega yfir 40 til 50 manns, og voru þeir „vaktir til lifs” aftur meö Hoffmannsdrop- um! Er hún hafði veriö sýnd i viku, bað Jón Magnússon, bæjar- fógeti, mig að hætta að sýna hana, og gerði ég það. Einkenni- legt var, að þeir sem veikastir íslenskir náms- menn í Winnipeg: Slæleg frammi- staöastjórn- arinnar vekur furöu Við undirritaðir námsmenn i Winnipeg ályktum eftirfarandi: Landhelgi islendinga er ekki mál, sem á að útkljá innan hernaðarbandalagsins NATO. Rikisstjórn framsóknar og ihalds hefur ekkert umboð til að gera svikasamninga við breta á borð við þá sem hún gerði við vestur- þjóðverja um veiðiheimildir inn- an 200 milna fiskveiðilögsögu islendinga. Við krefjumst 200 milna landhelgi, sem nýtt verður i þágu islenskrar alþýðu. Enn- fremur kref jumst við úrsagnar úr NATO, og að umsvifalaust verði slitið stjórnmálasambandi við breta, meðan fiskiskip þeirra lara rænandi og ruplandi um islensk fiskimið undir her- skipavernd „hennar hátignar”. Slæleg frammistaða islensku rikisstjórnarinnar i landhelgis- málinu hefur vakið furðu manna hér i Vesturheimi, og ekki bætir úr skák fádæma lélegur frétta- flutningur islenskra yfirvalda af þeim atburðum, sem átt hafa sér stað á miöunum umhverfis ís- land, en það er einlæg von okkar að sem fyrst verði bætt úr þvi ófremdarástandi. Winnipeg, 20. janúar 1976 Vigfús Geirdal Emma Eyþórsdóttir Aslaug Heigadóttir Ingibjörg Bragadóttir Baldur Hafstað Magnús H. Guðjónsson Karitas ólafsdóttir Guörún Arnadóttir Formannafundur ÍNSI: Mótmæla kjara- skeröingu A formannafundi Iðnnemasam- bands tslands sem haldinn var 24. þm. var mótmælt harðlega þeirri kjaraskerðingu sem dunið hefur yfir þjóðina i formi óðaverðbólgu og verðstöðvunar, sem i raun nær aðeins til launa en ekki vöru- verðs. Fundurinn benti á að meðan launam'ismunur i landinu væri einsmikill og raun bæri vitni væri það með öllu óréttlætanlegt að láta hina lægstlaunuðu borga hallarekstur þjóðfélagsins. Fundurinn hvetur verkalýðs- hreyfinguna til þess að vera vel á verði sjái hún framá að viðunandi lausn náist ekki i komandi kjara- samningum og gripa þá til harka- legra aðgerða til þess að ná fram mannsæmandi launum handa verkafólki. Verkalýösfélagið Jökull: Gegn und- anslætti Á almennum fundi i Verkalýðs- félaginu Jökli i Hornafirði. sem haldinn var 29. jan. s.l., var eftir- farandi ályktun samþykkt ein- róma: ..Almennur fundur i Verkalýðs- félaginu Jökli. Hornafirði itrekar fyrri álvtkanir um að engir samn- ingar verði gerðir við breta um veiðar innan 200 milna landhelg- innar. Fundurinn skorar á þing- menn Austurlandskjördæmis að beita sér optnberlega og af alefli gegn öllum undanslætti i land- helgismálinu og láta meingallaða samninga við v-þjóðverja sér að kenningu verða".

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.