Þjóðviljinn - 12.02.1976, Síða 1
Útgerðarmenn og sjómenn
mooviuiNN
RÆÐAST
NU VH)
Vilborg Siguröardóttir, formaður Verkakvennafélags Vestmannaeyja, og Guðmunda Helgadóttir, frá-
farandi formaður Sóknar, niðursokknar i umræðu um samningamálin. Ekki er óliklegt að þær ræði um
kauptrygginguna i fiskiðnaðinum og kjör láglaunakvenna.
„Fariö er að ræðast við,
en þær viðræður eru á al-
gjöru byrjunarstigi", sagði
formaður Sjómannasam-
bands islands, Jón
Sigurðsson, er blaðamaður
hitti hann að máli á sátta-
fundi á sjötta timanum i
gær.
Dagblöð i gær gerðu mikið úr
þvi, að ósætti væri milli nefndar-
manna f samninganefnd sjó-
manna. Jón Sigurðsson sagði hið
sanna hafa verið, að nokkur á-
greiningur hafi risið með undir og
yfirmönnum i nefndinni vegna
hugmynda um það, að sjómenn
tækju þátt i útgerðarkostnaði með
þvi að oliukostnaður væri greidd-
ur af óskiptum aflahlut. Undir-
menn sáu ekki ástæðu til að fall-
ast á slikt, enda stefna sjómanna-
félaga að sjómenn taki ekki neinn
þátt i útgerðarkostnaði. Sá á-
greiningur sem vegna þessa reis
var leystur i gær, er samninga-
fundur hófst.
Greinilega þarf nú hraðar.
hendur tii þess að takast megi að
ljúka samningsgerð við sjómenn
ef forða á verkfalli á bátaflotan-
um, en það hefur verið boðað á
laugardag hafi samningar ekki
tekist fyrir þann tima.
Fimmtudagur 12. febrúar 1976—41. árg. 35. tbl.
Geirfinns
málið:
Sá fjórði
kominn
í 45 daga
varðhald
t fyrrakvöld var fjórði mað-
urinn úrskurðaður i gæslu-
varðhald vegna Geirfinns-
málsins og var hann úrskurð-
aður i 45 daga varöhald. Hinir
þrir hafa nú verið i varðhaldi i
nærri 3 vikur. Hér mun vera
um að ræða þekktan veitinga-
og fjármálamann sem mikið
hefur komið við sögu i blaða-
fregnum að undanförnu.
Eggert Bjarnason rann-
sóknarlögreglumaður, sem
annast rannsókn málsins
sagði i gær að enn væri ekkert
hægt að gefa upp um rann-
sóknina og hann gæti ekki
spáð þvi á þessu stigi hvenær
fjölmiðlum yrði tilkynnt um
niðurstöður i þessu viðamikla
máli. —S.dór
Sjómaður-
inn sóttur
aftur
Þær upplýsingar bárust frá
landhelgisgæslunni i gærkvöldi
aö von væri á breska eftirlits-
skipinu Hausa til Neskaup-
staðar kl. 3 i dag til að sækja
..sjúklinginn”, sem þangað var
fluttur í gær.
Sjúkdómsgrcining sjúkra-
hússlæknisins i Neskaupstað
reyndist að vonum traustari
en hin pólitiska sjúkdóms-
greining á Sullivan sjómanni
frá Wales, sem lagður var inn
á sjúkrahúsið i Neskaupstað í
fyrrakvöld.
SJÁ 3. SÍÐU
Luns til
Islands —
sjá baksíðu
segir Guðmundur J. Guðmundsson
,,Þessi drög eða hug-
mynd að tillögu sem sátta-
nefnd ríkisins lagði fram
eru mjög ófullnægjandi og
geysilegir annmarkar á
þeim. Fyrir utan kauptölur
og kaupupphæðir, sem
menn sætta sig ekki við, þá
er rauða strikið ekki fyrr
en 1. desember. Með
reynsluna af rauða strik-
inu i samningunum í fyrra
í huga, er það Ijóst, að
rauðu strikin þurfa að vera
fleiri, ef þetta fyrirkomu-
lag á að einhverju leyti að
koma í stað visitölutrygg-
ingar og vernda kaupmátt
gegn verðlagshækkunum."
Þetta sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson, formaður Verka-
mannasambandsins i gær, en
samningafundur stóð þá á Hótel
Loftleiðum. í gærkvöldi höfðu at-
vinnurekendur ekki enn svarað
hugmynd sáttanefndar og töldu
þeir sig verða að hafa tal af rikis-
stjórninni, áður en það gæti orðið.
Það hafði þeim ekki tekist að þvi
er heyrðist úr herbúðum þeirra i
gær. Þá heyrðist lika það sjónar-
mið að ekki væri hægt að semja
Framhald á 14. siðu
INN ANHU SHU GM YND
SÁTTANEFNDAR
Innanhússhugmynd sáttanef ndar, sem lögð hef ur
verið fram í samningum ASí og atvinnurekenda,
felur í sér þessi meginatriði:
1. öll laun hækki frá 1. mars um 4%.
1. júlí hækki öll laun um 5%.
1. október hækki öll laun um 4%.
Fari vísitala 1. nóvember fram yfir 585 stig skulu
laun hækka sem því nemur frá 1. des.
Allir kjarasamningar veröi innan þessa ramma.
Samkomulagiö gildi i eitt ár til 28. febrúar 1977.
Hitaveita
Reykjavikur vill
47% hœkkun
Mesti loðnuafli
frá upphafi
Irvin þegir um
atóm vopnin
SJÁ BAK
• Fleiri rauð strik eða • Atvinnurekendur ná ekki fundi stjörnarinnar
visitölutrygging. og geta ekki svarað sáttanefnd.
Hugimnd sáttanefndar
er mjög ófullnægjandi
Akureyri:
í báðum tilfellum
Ekki alls fyrir löngu
veiktist stúlka sem vann á
sjúkrahúsinu á Akureyri af
alvarlegum sjúkdómi og
við það blossaði upp smit-
berklabaktería, sem hafði
„blundað" eins og læknar
kalla það, í henni lengi og
liggur stúlkan nú mjög
veik á Landsspítalanum,
Tvö smitberklatilfelli
um stúlkur að rœða, önnur vann á sjúkrahúsinu hin i MA
en er þó talin sjúklingur á
Vífilsstöðum.
í siðustu viku varð svo vart við
'annað smitberklatilfelli á Akur-
eyri, i stúlku sem stundaði nám i
menntaskólanum. Hún er einnig
komin á Vifilsstaði.
Magnús Stefánsson, læknir á
Akureyri, sagði i samtali við
Þjóðviljann i gær, að það væri
ekki rétt sem oft væri sagt að
berklar væru útdauðir á Islandi.
Það væri ekki lengra siðan en 1971
að gamall maður lést af berklum.
Og siðast i fyrra kom upp berkla-
tilfelli I menntaskólanum á Akur-
eyri.
Varðandi þessi tvö tilfelli sem
nú komu upp, stendur yfir mjög
itarleg rannsókn, bæði á þeim
sem liggja og vinna á sjúkrahús-
inu á Akureyri og eins á öllum
nemendum og kennurum MA,
hvort þeir hafi smitast af stúlkun-
um tveimur. Sagði Magnús að
rannsóknin á sjúkrahúsinu væri
langt komin og enn hefði ekkert
komið i ljós sem benti til þess að
neinn hefði smitast. Rannsókn-
inni i MA lýkur ekki fyrr en undir
næstu helgi, en það sem af er hef-
ur ekkert fundist sem bendir til
smitunar þar, frekar en á sjúkra-
húsinu.
Það vekur hinsvegar nokkra at-
hygli hve oft berklatilfelli hafa
komið upp á Akureyri á siðustu
árum, og sagði Magnús að i flest-
um tilfellum væri um að ræða
utanbæjarfólk, sem annaðhvort
hefði stundað þar nám eða vinnu
og hefði i öllum tilfellum fundist
sá sem smitinu olli. Hann sagði að
mjög góð lyf væru til við berklum.
en þó gæti það komið fyrir að þau
dygðu ekki ef sjúkdómurinn
kemst á alvarlegt stig. —S.dór