Þjóðviljinn - 12.02.1976, Qupperneq 2
2 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 12. febrúar 1976
Háfleygir
Ijóðaskýrendur
bað hefur oft verið sagt aö að-
eins andlegum ofurmennum sé
fært að iklæða háleitar og flókn-
ar hugsanir i svo einfaldan
búning aö auðskildar verði al-
þýðu manna.
Ég naut þess nýlega.
Nokkrir andans jöfrar ræddu
um nýútkomna ljóðabók i út-
varpinu, að visu sagði einn
þeirra að hún væri minni ljóða-
bók en önnur bók, sem ekki væri
ljóðabók.
Stjórnandinn ræddi við höf-
undinn og hafði orð á þvi að
þetta væri vist það sem nú er
mikið i tisku, sem sagt opið ljóð.
Hvað er annars opið ljóð? spyr
hann — Opið ljóð, ja það er ljóð
sem ekki er lokað. — siðan
fylgdu háleitar skýringar um að
lokaö ljóð væri innhverft þar
sem höfundurinn kafaði i visku-
brunnum sins innri manns. Opiö
ljóö er þaö, þar sem lýst er hinu
sýnilega og áþreifanlega. —
Þvilik háspeki. — Og nú datt
mér i hug að mikill snillingur
hafi sá maður verið sem orti
eftirfarandi ljóð, þvi það er bæði
lokað og opið að minum dómi:
Ástin gólar innani mér
(lokað ljóð, lýsir þvi sem gerist
innan i höfundi)
eins og sól i heiði
(opið ljóð — sólin sést)
hún vill róla á Húsavik
(opið ljóð, auðskilið)
og hafa skjól hjá Rikku
(lokað, skjól er inni.i einhverju)
> —hó
Sjónvarpsþula
mat
bað er algeng iðja i lesenda-
dálkum blaða að hamast gegn
þulum og fréttamönnum út-
varps og sjónvarps, og koma
upp margir kostulegir hlutir.
Einhver E.O. er mjög fúll út i
þrjá sjónvarpsmenn á miðviku-
daginn og satt að segja alltof
fú'll að minum dómi. Jón karlinn
Hákon á ekki skilið að fá svona
útreið, enda þótt syndugur sé og
detti oft i klisjur allskonar i
málfari. En einkum og sér i lagi
vildi ég mótmæla þvi að látið sé
liggja að þvi að Sonja Diego sé
ekki starfi sinu vaxin. Hún les
kannskifullhrattfyrireldra fólk
að minnsta kosti, en hún er að
öllu samanlögðu einn af þeim
fréttamönnum sem ágætlega
kann til verka.
En úr þvi ég er farinn að
rausa um þetta á annað borð:
Vitið þið nokkuð hvernig
stendur á Helga Helgasyni
þarna á frettastofunni? Það
væri sannarlega gaman að vita
hvaða garpar sóttu á móti þeim
„kauða”.
h.j.
Ein á nef hvert
Lesandi hringdi i blaðið og
kvaðst vilja láta yrkja niðvisu á
nef hvert um rikisstjórnina að
fornum hætti. Hann lagði fram
þessar visur tvær fyrir sig og þá
væntanlega konu sina
elskulega:
Sinum leiður siðast deyr,
sögn er vorra feðra.
Óli Jó og Augna-Geir
enda samt i neðra.
Hin er svona:
Viða leynist vondur kauði,
vantar brennimark á enni.
En bretinn þekkir sina sauöi
svikara og vesælmenni
Kjaradeilan
Hugmyndir sáttanefndar
Lagðar fram á fundi 10. febrúar
Drög að hugsanlegu sam-
komulagi milli ASI og
vinnuveitenda.
1. Núgildandi laun sam-
kvæmt kjarasamningi
aðila skulu hækka frá 1.
mars 1976 sem hér segir:
a. AAánaðarlaun f yrir f ulla
dagvinnU/ sem eru lægri en
kr. 54.000.00, hækki um kr.
1.500.000. AAánaðarlaun á
bilinu kr. 54.000.00 til kr.
57.000.00 hækki um helm-
ing þess, sem á vantar að
þau nái kr. 57.000.00. Um
greiðslur þessarar kaup-
hækkunar skulu að öðru
leyti gilda sömu reglur og
launajöfnunarbætur sam-
kvæmt samningi aðila frá
26. mars 1975. Þó skal
semja sérstaklega um
hækkun af þessu tagi á
laun unglinga og önnur
laun, sem líkt er farið.
b. öll laun að meðtalinni
hækkun samkvæmt a-lið
hækki um 4%.
2. Hinn 1. júlí 1976 hækki öll
laun samkvæmt 1. lið um
5%.
3. Hinn 1. október 1976
hækki öll laun samkvæmt
2. lið um 4%.
4. Ef vísitala framfærslu-
kostnaðar 1. nóvember
1976 verður hærri en 585
stig, skulu laun samkvæmt
samkomulagi þessu
hækka, frá 1. desember
1976, í hlutfalli við hækkun
vísitölunnar umfram þetta
mark.
Við útreikning umfram-
hækkunar skal miða við
f ramf ærsluvísitölu 1.
nóvember 1976 reiknaða
með 2 aukastöfum, að frá-
dreginni þeirri hækkun
hennar, er leitt hefur af
hækkun á vinnulið verð-
lagsgrundvallar búvöru
eftir 1. febrúar 1976, vegna
launahækkana á almenn-
um vinnumarkaði. Gildir
þetta eins þótt slík verð-
hækkun komi ekki fram í
útsöluverði, sökum þess að
hún hefur verið jöfnuð
með niðurgreiðslu úr
rikissjóði að einhverju eða
öllu leyti. — Frá fram-
færsluvísitölu 1. nóvember
1976 skal einnig draga þá
hækkun hennar, er kann að
hafa orðið eftir 1. febrúar
1976 vegna hækkunar á út-
söluverði áfengis og tó-
baks. Kauplagsnef nd
framkvæmir þessa út-
reikninga og tilkynnir
hækkun launa frá 1.
desember 1976, ef til henn-
ar kemur.
5. Aðilar munu beita sér
fyrir því, að allir kjara-
samningar aðila á sam-
Framhald á 14. siðu
álfunda- <
■
*' jHHH II jHHI........
Námskeiðinu verður hagað sem
hér segir:
IFundur föstudaginn 13. febrúar
kl. 20.30.
Fundarsköp og fundarstjórn.
Leiðbeinandi Hrafn Magnús-
son.
2Fundur þriðjudaginn 17. febrú-
ar kl. 20.30.
Um ræðumennsku. Leiðbein-
andi Þröstur Ólafsson.
3Fundur föstudaginn 20. febrúar
kl. 20.30.
Um kosningar, félagsstörf,
nefndir, tiliögur og meðferð
þeirra.
Leiðbeinandi Tryggvi Þór
Aðalsteinsson.
a Fundur þriðjudaginn 24. febrú-
** ar kl. 20.30.
Almennur málfundur. Tveir
þátttakendur flytja framsögu.
Leiðbeinandi Hrafn Magnús-
son.
5Fundur föstudagur 27. febrúar
kl. 20.30.
Afstaða Alþýðubandalagsins til
annarra flokka. Erindi: Ragn-
ar Arnalds formaður Alþýðu-
bandalagsins.
g fræöslunámskeiö aö
3 13. februar til 9. mars
Hrafn
Tryggvi
Guðm. J.
Þröstur
Ragnar
Svavar
6Fundur þriðjudaginn 2. mars
kl. 20.30.
Baráttuaöferðir verkalýðs-
hreyfingarinnar. Erindi: Guð-
mundur J. Guðmundsson,
varaformaður Dagsbrúnar.
7Fundur föstudaginn 5. mars kl.
20.30.
Hvað er áróður?
Erindi: Svavar Gestsson, rit-
stjóri.
8Fundur þriðjudaginn 9. mars
kl. 20.30.
Hverjar eru varnir Islands?
Erindi Svanur Kristjánsson,
lektor.
Fólk er beðið að tilkynna þátttöku
sina i sima 28655 (örn Ólafsson),
Þátttökugjald er kr. 300,—
Stjórn Alþýöubandalagsins
i Reykjavik.
w
Svanur Æ
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ I REYKJAVÍK
Líflegt starf
Bridgefélags
Stykkishólms
Aðalfundur Bridgefélags
Stykkishólms var haldinn nýlega.
Stjórn félagsins er nú þannig
skipuð: Magnús Þórðarson for-
maður, Ilalldór S. Magnússon
varaformaður, Hörður Finnsson
ritari, Sigurbjörg Jóhannsdóttir
gjaldkeri og Guðni Friðriksson
áhaldavörður.
Fyrir áramót fóru fram tvi-
menningskeppni og sveitarkeppni
sem sex sveitir tóku þátt i.
i tvimenningskeppninni urðu
úrslit þessi:
stig
1. íris Jóhannsdóttir og
Sigurbjörg Jóhannsd. 681
2. Ellert Kristinsson og
Halldór S. Magnússon 674
3. Kjartan Guðmundsson og
Steinþór V. Þorvarðars. 655
4. Guðmundur Eiðsson og
Kristinn Friðriksson 651
5. Halldór Jónasson og
isleifur Jónsson 647
Meðal-skor var 624 stig.
í sveitakeppninni (bikar-
keppni) urðu úrslit þau að sveit
Ellerts Kristinssonar fór með
sigur af hólmi, hlaut 66 stig. Auk
Ellerts skipuðu sveitina: Halldór
S. Magnússon, Magnús Þóröar-
son og Ólafur Már Magnússon. 1
öðru sæti varð sveit Leifs
Jóhannessonar með 56 stig og i 3.
sæti sveit Isleifs Jónssonar með
52 stig.
Nú stendur yfir fimm kvölda
tvimenningskeppni, en að henni
lokinni mun verða háð sveitar-
keppni þriggja kvölda, þar sem
pör verða dregin saman i sveitir.
Að þvi loknu er áformuð ein-
menningskeppni, sem væntan-
lega verður firmakeppni.
Tvær sveitir frá Bridgefélagi
Stykkishólms munu taka þátt i
keppni við sveitir frá Akranesi og
Borgarnesi um rétt til þátttöku i
undanúrslitum Islandsmóts i
sveitakeppni, en þann rétt öðl-
uðust þær eftir keppni sveita af
Snæfellsnesi.
Leiklist
í Sovét
Nk. laugardag, 14. febrúar,
flytur sovéski leikstjórinn Viktor
M. Strishof erindi i MIR-salnum,
Laugavegi 178, um leiklist og
leikhúslif i Sovétrikjunum.
Einnig verður kvikmyndasýning.
Viktor M. Strishof hefur starfað
við Þjóðleikhúsið undanfarnar
vikur, en hann setur sem kunnugt
er á svið leikrit Maxims Gorki,
„Náttbólið”, sem frumsýnt verö-
ur 24. þm. Strishof er kunnur leik-
stjóri i Sovétrikjunum og hefur
starfað við ýmis leikhús þar i
landi, m.a. I borgunum
Sevastopol og Odessa. Siðustu ár-
in hefur Strishof verið fastráðinn
aðalleikstjóri við Gorki-leikhúsiö
i Tasjkent, höfuðborg sovétlýð-
veldisins Úzbekistan.
Fyrirlestur Viktors Stirhofs á
laugardaginn hefst kl. 16.
Aðgangur er öllum heimill.
(Fréttatilkynning frá MIR).
Sýningar
á Bónda
hefjast
klukkan 17
Þau leiðu mistök urðu i blaöinu
i gær að i frétt um kvikmynd Þor-
steins Jónssonar, sem sýnd
verður almenningi i gamla
Tjarnarbiói i kvöld og næsta
fimmtudag, stendur að sýningar
hefjist kl. 15. Þetta er ekki rétt.
Sýningar hefjast klukkan 17 og
verða siðan á klukkutimafresti til
kl. 22, að siðasta sýning hefst.