Þjóðviljinn - 12.02.1976, Page 11
,Fimmtudagur 12. febrúar 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
Eg hef aldrei
á æfinni verið
svona þreyttur
sagði norðmaðurinn Sten Stensen,
sem færði landi sínu fyrstu
gullverðlaunin á OL í Innsbruck,
eftir 5 km. skautahlaupið
— Ég hef aldrei á æfinní verið svona þreyttur, ekki
einu sinni eftiraðég setti heimsmetið í 10 km hlaupinu,
sagði norðmaðurinn Sten Stensen eftir að hafa sigrað í 5
km skautahlaupinu í gær og þar með fært norðmönnum
fyrstu gullverðlaunin á þessum vetrar Ólympíuleikum.
Sannleikurinn er sá að norðmenn voru orðnir nær ör-
vilnaðir vegna getuleysis sinna manna, en eins og menn
vita var Noregur stórveldi í vetraríþróttum á árunum
áður, en haf a hægt og sígandi verið að dragast af turúr í
þessum greinum. Þess vegna er Sten Stensen vinsælasti
maður í Noregi í dag, sannkölluð þjóðhetja sem hefur
bjargað heiðri skauta og skíðalandsins Noregs.
— Ég áleit sl. haust aö ég ætti
mesta möguleika á sigri i 5 km
hlaupinu hér i Innsbruck og hef
einbeitt mér aö þessari grein i
vetur. Og ég var ákveðinn i að
leggja mig allan fram, það gerði
ég og sannast sagna voru kraftar
minir alveg á þrotum, þegar ég
kom i markið, ég var nær meðvit-
undarlaus af þreytu, sagði Sten-
sen. Hann á sem kunnugt er
heimsmetið i 10 km hlaupi en
samt var það rétt hjá honum,
möguleikarnir á sigri i 5 km
hlaupinu voru meiri hjá honum en
i 10 km, þar hafa komið upp mjög
efnilegir skautahlauparar, sem
eflaust munu ylja honum undir
uggum nk. laugardag þegar
keppt verður i þvi.
Úrslitin i 5 km hlaupinu urðu
þessi:
min.
1. Sten Stensen, Nor. 7:24,48
2. Piet Kleine, Holl. 7:26,47
3. Han van Helden 7:26,54
4. Victor Varlamov,
Sovétr. 7:30,97
5. Klaus Wunderlich,
A-Þýskalandi 7:33,82
6. DanCarrolUSA . 7:36,46
Rosi Mittermaier braut blaö í sögu vetrar ÓL:
Fyrsta konan sem
vinnur bæöi brun
og svig á Ólympíul
V-þýska skiðakonan Hosi
Mittermaier braut blað i sögu
vetrar ólympiuleikanna I gær,
þegar hún sigraði I svigkcppn-
inni. Hún er fyrsta konan sem
vinnur gullverðlaun bæði I
bruni og svigi á Ólympiuieik-
um. Og það sem mcira er, hún
á möguleika á að ná I 3ju gull-
verðlaunin með þvi að sigra i
stúrsviginu. Ef lienni tækist
það væri að sjáifsögðu um
einsdæmi að ræða, afrek sem
trúlega yrði seint leikið eftir.
Svo mikill var fögnuður
hinna fjölmörgu v-þýsku á-
horfenda i Innsbruck, þcgar
sigur Rosi Mittermaicr var
tilkynntur, að austurriskir
hermenn þurftu að koma til og
verja Miltermaier fyrir á-
gengni áhorfenda.
Löngu eftir að keppninni var
lokið og keppcndur farnir til
búða sinna, stöðu þýsku áhorf-
endurnir, sem margir voru frá
heimabæ Mittermaier og veif-
uðu þýska fánanum og hröp-
uðu — Itosi verpir aðeins gull-
cggjum —
Að lokum má geta þess, að
Marie-Theresa Nadig, sem
keppti þrátt fyrir flensu og
meiðsli, en hún var fyrir ieik-
ana talin sigurstranglegust i
alpagreinum. missti annan
skiðastafinn sinn I startinu,
hann sat fastur eftir og hún
átti enga möguleika. Onnur
fræg skiðakona sem lika var
talin koma til greina á verð-
launapall, Lise-Marie More-
rod, slcppti úr hliði i fyrri um-
ferð og var þar með úr leik.
Þaö skiptast þvi á skin og
skúrir hjá hinu fræga iþrötta-
fölki á þessum ÓL eins og öll-
um öðrum.
Hosi Mittermaier
Isknattleikur í
Innsbruck
tsknattleikskeppnin stendur nú
sem hæst i Innsbruck og ekki enn
séð hvaða lið leika til úrslita. Hér
fara á eftir úrslit úr nokkrum
leikjum sem fram hafa farið.
Kúmenia — Austurriki ...... 4:3
Júgóslavia — Búlgaria ..... 8:5
Japan — Sviss ............. 6:4
V-Þýskal. — Pólland ....... 7:4
Austurriki — Japan ........ 3:2
Júgóslavia—Rúmenia......... 4:3
Sviss — Búlgaria........... 8:3
Sovétr. — V-Þýskal........ 7:3
USA — Finnland ........... 5:4
Tékkóslvak. — Pólland..... 7:1
Staðan i A-riðli er nú þessi:
Sovjct
Tékkóslvak.
Finnland
V-Þýskal.
USÁ
Pólland
3 3 0 0 29-6 6
3 3 0 0 14-2 6
3102 10-10 2
3102 13-16 2
3 1 0 2 7-15 2
3 0 0 3 6-30 0
ísl.mót innanhúss
um næstu helgi
Keppt í 8 karlariðlum og
tveimur kvennariðlum
islandsmótið i knattspyrnu
innanhúss árið 1976 fer fram i
Laugardalshöllinni, laugar-
daginn 14. febr. og sunnudaginn
15. febr. n.k.
G riðill: Fram — Þróttur R — Týr
H riðill: FH — Fylkir -
Afturelding
Konur:
A riðill: ÍA — FH — ÍBK
B riðill: Fram — UBK
Keppni hefst á laugardeginum
kl. 13 og lýkur með úrslitaleik i
kvennaflokki kl. 19.55.
Á sunnudeginum hefst keppni
kl. 10 og lýkur með úrslitaleikjum
hjá körlum.
Að þessu sinni taka 24 lið þátt i
mótinu i flokki karla og leika þau
i 8 riðlum, en kvénnaliðin eru 5 og
leika þau i tveim riðlum.
Meðf. er skrá yfir riðla-
skiptingu, svo og timasetningu
leikja.
Karlar:
A riðill: Valur — Skallagrimur —
Reynir Sandgerði
B-riðill: KR — KA — Þór
Þorlákshöfn
C riðill: Vikingur — Grótta — KS
D riðill:: tBK — Ármann — Viðir
E riöill: t A — Þróttur N — Leiknir
F riðill: UBK — Selfoss — Haukar
KR-ingar unnu Hauka stórt
KR fór létt með Hauka I fyrsta
leiknum I bikarkeppninni i körfu-
bolta. KR-ingarnir voru óstööv-
andi og skoruöu 120 stig gegn 71,
en staðan I hálfleik var 56-34.
Ekki fóru þeir þó vel af stað, þvi
eftir 7 min. var staðan jöfn, 13-13,
en siðan var um einstefnu að
ræöa.
Trukkurinn var i sérflokki og
gerði margt til að gleöja þá fáu
áhorfendur sem mættir voru.
Hann var einnig stigahæstur,
skoraöi 44 stig, en Gisli Gislason
skoraöi 19. Ingvar Jónsson var
langbestur Haukanna, skoraöi 28
stig og átti stórleik.
G.Jóh.
Aðalfundur
Aðalfundur Badmintondeildar
Vals verður haldinn i félags-
heimilinu, þriðjudaginn 17.2.1976
kl. 20.30. Venjuleg aðalfundár-
störf.
Úrslit leikja í I.
deild í kvöld
Tveir leikir fóru fram í
fyrstu deild i handbolta i
gærkvöldi.
Úrslit fyrri leiksins sem
var milli Gróttu og Vals
urðu þau að Grótta vann
Val 26-18.
Segi menn svo að hið
ómögulega geti aldrei
gerst.
í seinni leiknum kepptu
FH og Haukar og fóru
leikar þannig að FH vann
Hauka 20-15.