Þjóðviljinn - 04.03.1976, Page 6

Þjóðviljinn - 04.03.1976, Page 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 4. mars 1976. Fleiri lífeyrisþegar undan- þegnir afnotagjöldum útvarps Viö Stefán Jónsson höfum leyft okkur aö flytja frumvarp til um- breytingar á útvarpslögum svo- hljóöandi: 1 stað fyrri málsliöar siöustu málsgr. 15. gr. laganna komi „I reglugerö má ákveða, aö þeir sem njóta tekjutryggingar samkv. lögum nr. 67 1971 veröi undanþegnir afnotagjöldum. Rn. skal auglýsa eftir umsóknum samkv. þessari heimild, þannig að allir eigi jafnan kost á undan- þágum þessum hvar sem þeir búa á landinu.” Kjör aldraðra og öryrkja eru mjög til umræðu og er það vel; að þvi fólki eigum við á hverjum tima að búa sem allra best og vissulega hafaþarverið stigin stór skref fram á við, þó ekki fari á milli mála, að þeir sem minnst hafa, tekjutryggingarfólkið, sem ég svo kalia, sé langtum neðar i kjörum en þeir láglaunahópar á hinum almenna launamarkaði, sem þó búa við alls óviðunandi kjör i dag. Tekjutryggingin var þó ein veigamesta réttarbót sem aldraðir og öryrkjar hafa fengið frá upphafi almannatrygg- inganna og bætti kjör þeirra verst settu að miklum mun. Hér er um að ræða rýmkun núgildandi heimildar, sem ein- göngu nær nú til þess fólks, sem fær uppbót ofan á tekjutrygg- inguna vegna sérstaklega erfiðra aðstæðna. I þess stað leggjum við til, að tekjutryggingin verði sett sem skilyrði fyrir þessari heimild. Við teljum að það sé næst þvi, sem upphafleg heimild tók til, en þá var miðað við uppbót þingsjá á venjulegan lifeyri tilkomin ail- löngu áður en tekjutryggingin kom til sögunnar. Reglugerðar- túlkun er hins vegar ótviræð þannig, að aðeins þeir sem fá þessa sérstöku uppbót ofan á tekjutrygginguna skuli njóta þessarar undanþágu. Sannleik- urinn um þessa sérstöku uppbót er sá, að viða úti á landi a.m.k. er hún nær óþekkt. Fólk veit ekki af rétti sinum, telur fullum rétti náð, þegar það hefur fengið tekju- trygginguna, einkum af þvi, að hún er þó veruleg hækkun ofan á elli- og örorkulifeyri. Upplýsingar og leiðbeiningar til þessa fólks eru stórum lakari en t.d. hér á Reykjavikursvæðinu, þar sem ýmsir aðilar m.a. á vegum borgarinnar sjálfrar hér sjá um aö hjálpa fólki til að ná þó ótvi- ræðum rétti. Mér er þó ljóst, að stórbætt upplýsingaþjónusta Tryggingastofnunar rikisins hefur hér um bætt verulega, en þó fékk ég nýlega upp i hendurnar dæmi, sem ég ætla ekki að fara að rekja hérf það vakti furðu mina og hlaut að visu að skrifast á viðkomandi tryggingarumboð, sem alvarlegt andvaraleysi ef ekki vitaverð vanræksla, en þvi miöur munu fleiri dæmi sliks. Ég hygg, að viðgetum verið um það fyllilega sammála, að fjöl- miðlar eins og hljóðvarp og sjón- varp eru þessu fólki flestu ærið mikilvægari en öðrum, sem betur geta fylgst með öllu sem er að gerast og á meiri og fjölbreyttari afþreyingarmöguleika en aldrað fólk og öryrkjar, sem oftlega búa i furðulegri einangrun, stundum sem gleymt af samfélaginu og sinum. Ég held að þetta fólk eigi að njóta þessara fjölmiðla án þess að greiða þar af býsna tilfinnan- legan hluta af árslaunum sinum. Ekki veit ég nákvæmlega hve mikill fjöldi er hér, sem njóta myndi til viðbótar ef heimild fengist til með þeim ákvæðum vitanlega, sem reglugerð segði til um. En um það voru þó nýlega gefnar upplýsingar um hve margir nytu tekjutryggingar, þó sú tala sé vitanlega alltof há miðað við fjölda þeirra, sem myndu hugsanlega njóta þeirrar undanþágu, sem hér um ræðir, m.a. vegna þess, að mjög mörg hjón njóta bæði tekjutryggingar, mig minnir eitthvað um 1250 og eins hitt, að margt af þessu fólki býr hjá sinum og nýtur þar þessara fjölmiðla. Samkvæmt þeim tölum, sem hér var um að ræða minnir mig, að fjöldi einstaklinga hafi verið um 8.800 en hjónin aftur um 1250 eins og ég sagði áðan, en frá þessari tölu dragast vitanlega þeir, sem uppbótar njóta þegar i dag, en þar er um að ræða eftir þvi sem ég hef komist næst um 15- 20% af þessu fólki eða þeirri tölu, sem ég nefndi. En þegar ég minnist á fólkið sem getur notið þessara fjölmiðla hjá sinum, þá er einmitt komið að þeirri margumtöluðu misnotkunar- hættu, sem oft er notuð sem mót- bára gegn undanþágum sem þessum. Sú misnotkunarhætta felst vitanlega einnig i núgildandi undanþáguheimild, en auðvitað eykst hun nokkuð, þegar fleiri koma inn i myndina. Það er skoðun okkar flutningsmanna, að umboðsmenn Rikisútvarpsins geti tiltölulega auðveldlega Aukinn stuðningur við tillögu Helga Seljans um STOFNLÁNASJÓÐ ATVINNUBIFREIÐA A þriðjudaginn mælti Helgi Seljan fyrir þingsáiyktunar- tillögu sinni um stofniánasjóð atvinnubifreiða og vinnuvéla, en meðflutningsmenn hans eru þeir Karvel Pálmason og Páll Pétursson. Tillagan hefur verið flutt áður en ekki náð fram að ganga. Nú lýsti Friðjón Þórðar- son yfir fylgi viö máiið. I framsöguræðu sinni lýsti Helgi Seljan þvi hve stofn- kostnaöur langferðabifreiða, vörubifreiða og stórvirkra vinnuvéla, svo sem á krönum, gröfum og ýtum, er orðinn gifurlegur, þannig að það er orðið nær óyfirstiganlegt hjá einstaklingum sem eiga og reka þessi tæki með eigin vinnu aö endurnýja þau. Það heföi sýnt sig að bankakerfiö kæmi hér ekki til hjálpar nema þá gagn- vart stórum aðilum sem hefðu stórrekstur með höndum og þá meö aðkeyptu vinnuafli. Með þessu áframhaldi væri hætta á þvi að stórir verktakar og bila- útgerðarmenn einir blómguðust en hinir smáu féilu fyrir ofur- borð. Rétt væri að geta þess sem gerthefði verið i þessum efnum. Byggðasjóöur hefði veitt nokkra fyrirgreiðslu i ákveðnum til- vikum, en það leysti engan veginn vanda atvinnugreinar- innar i heild. Framkvæmda- sjóður hefði á sl. ári lagt fram 40 miljónir kr. til slikra stofnlána og Iðnaðarbanki afgreitt þau. Hins vegar hefði heyrst að litils eða einskis væri að vænta á þessu ári. Varðandi fjármögnun sliks stofnlánasjóðs kvaðst Helgi halda öllum leiðuiii opnum sem samkomulag gæti orðiö um, en sér sýndist einna helst geta orðið um tvennt að ræða: Annað hvort framlög frá fram- kvæmdasjóði ellegar lögð væru stofnlánagjöld á þá sem reka atvinnubifreiðar og stórvirkar vélar af þvi tagi sem hér er um að ræða. Helgi kvaðst fastlega vonast eftir þvi að málið yrði nú loks afgreitt frá alþingi, aldrei hefði komið fram andmælarödd og hér væri um sannigirnismál að ræða. Friöjón Þórðarson tók undir málflutning Helga Seljans og kvaðst styðja málið i einu og öllu. Þingsályktunartillögunni var visað til nefndar. Svava Jakobsdóttir: Forréttindi handa einka' skóluni kaupsýslunnar? A mánudaginn mælti mennta- málaráðherra fyrir stjórnar- frumvarpi um viöskiptamenntun á framhaldsskólastigi og er það endurflutt óbreytt frá fyrra ári. Það felur m.a. I sér að rikið greiði að fullu rekstrarkostnað einka- skólanna Verslunarskóla tslands og Samvinnuskólans, svo og 80% af stofnkostn aði húsnæðis og af rekstrarkostnaði heimavista. Svava Jakobsdóttir gagnrýndi þann forgang sem þessir skólar eiga aö njóta og sagði að eöli- legast hefði verið að frumvarpið hefði beðið eftir heildarskipulagi framhaldsskólastigsins sem nú væri unnið að. Svava Jakobsdóttir gagnrýndi það að ekki skyldi liggja fyrir mat á kostnaðarauka rikissjóðs vegna Svava Jakobsdóttir þeirra fjárskuldbindinga sem i frumvarpinu felast, en hann hlyti að vera verulegur. Gerði Svava siðan nokkurn samanburð á mismunandi aðstöðu ýmissa skóla ef frumvarpið yröi aö lögum. Verslunarskólinn einn mundi fá hærra rikisframlag en allir iðnskólar i landinu til sinna framkvæmda á þessu ári. Til iðn- skóla greiðir rikið aðeins 50% stofnkostnaðar, . hér 80%, af heildarrekstrarkostnaði iðnskóla greiðir rikið 85-90%, hér 100%. Hér ætlar rikið ekki að spara, en fjárveitingar til grunnskóla eru skornar niður, og þar hefur veriö fækkað kennslustundum vegna fjárskorts. Svava kvað dæmalaust að sam- kvæmt frumvarpinu væri gert ráö fyrir þvi að rikisframlagiö til viðskiptaskólanna verði eign þeirra, eign einkaskólanna. Þannig virðist svo sem þessir einkaaöilar ættu að njóta forrétt- inda umfram sveitarfélög að þvi er varðar eign og umráð yfir rikisfé. Ekki sé heldur gert ráð fyrir þvi að hið opinbera eigi nokkra hlutdeild i stjórnun skól- anna. Svava Jakobsdóttir kvaðst hlynnt þvi að samræmd væri uppbygging og námsskrá viðskiptamenntunar i landinu og að sams konar menntun væri veitt i einkaskólum sem almenn- um framhaldsskólum. Hins vegar gæti hún ekki verið samþykk frumvarpinu i fyrirliggjandi mynd, og teldi það þar að auki ótimabært vegna aðstæðna i skólamálum að öðru leyti. Helgi Seljan Úr fram- sögurœðu Helga Seljans fyrir breytingu á útvarps- lögum gengið úr skugga um réttmæti undanþágubeiðni, Tryggingar- stofnunin svo, og sveitarfélögin geti þar veitt upplýsingar einnig, sem tryggðu réttmæti þeirra undanþága sem veittar yrðu. En misnotkunarhættan er viða, og ef hana ætti ætið að setja i öndvegi, sem mótbáru, þá væru fá rétt- lætismál sem i gegn kæmust eða hefðu komist. Ég minnst þess t.d. varðandi tekjutrygginguna á sinum tima, að hálfu ári eftir að hún komst i gildi, þá sendi ég austur til ýmissa aðila þar eyðublöð, sem til þurfti. Ég held að út úr þessu hafi komið milli 40 og 50 fullgildar umsóknir fólks, sem áður hafði ekki athugað þennan ótviræða rétt sinn. Ég held þvi, að þetta ákvæði sem hér er sett inn um auglýsingaskyldu rn. sé fyllilega réttmætt, þó um form megi athuga betur og við séum vissu- lega til viðtals um breyt. á þvi ef ástæða þykir til. Frumvarp um rann- sóknarlög- reglu ríkisins Lagt hefur verið fram á al- þingi stjórnarfrumvarp um rannsóknarlögreglu rikisins. 1 frumvarpinu er lagt til að komið verði á fót sérstakri stofnun er heiti Rannsóknar- lögregla rikisins og heyri beint undir dómsmálaráðherra. Yfirmaður stofnunarinnar á að heita rannsóknarlögreglu- stjóri. Aðalatriöi frumvarpsins er það að yfirsakadómari i Reykjavik verður ekki lengur yfirmaður rannsóknar- lögreglunnar i Reykjavik og er þar með stigiö spor i áttina að aðskilja dómsvald i opin- berum málum og lögreglu- stjórn. Rannsóknarlögreglu rikis- ins er ætlað að rannsaka meiri háttar afbrot svo sem brot á hegningarlögunum en ætlast er til að lögreglustjórinn i Reykjavik ljúki rannsóknum i minni háttar málum t.d. um- ferðarlagabrotum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.