Þjóðviljinn - 04.03.1976, Síða 10

Þjóðviljinn - 04.03.1976, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 4. mars 1976. „Hann hengir flipann eins og gamall útigangshestur” Einu sinni var þaö aöaismerki yfir- manna breska flotans aö vera heiöurs- menn i strföi. Þaö er nú liöin tfö eins og islendingar hafa fengiö aö kynnast. „Kokteildrcngirnir” á sumum freigát- anna, sem veriö hafa á islandsmiöum að undanförnu, eru stórhættulegir sjálfum sér og öörum, þegar þeir geta ekki iengur staöiö á móti brýningum togaramanna um aö beita varðskipin höröu. Þeir gera sig einnig hlægilega I augum allra nema þeirra, sem enn bera rómantiska viröingu fyrir breska fiotanum, þegar þeir reyna aö telja al- heimi trú um aö það séu fslensku varö- skipin sem stöðugt sigli á bresku bryn- drekana. Stærðarmunurinn einn vitn- ar nægilega gegn þeim, og ekki bætir það úr skák, aö herskipin hljóta nú helst stefnisskaöa i ásiglingunum. Hvernig sem bretar reyna að reyta æruna af islensku varöskipsmönnun- um trúir þvi enginn, aö þeir séu slíkir angurgapar á sjó, aö þeir slengi siðum varöskipanna i stefni herskipanna, sterkasta og hættulegasta hluta þeirra, ef þeir ætluöu aö sigla þau niö- ur. Myndirnar tók Steinar Clausen af viöureign Varnlouths og Baldurs laugardaginn 28. fyrra mánaðar. Úr- slit hennar uröu heldur snautleg fyrir bretann. Eftir ásiglinguna „hengdi hann flipann eins og gamall útigangs- hestur,” að þvi er Höskuldur Skarp- héöinsson, skipherra segir. Baldur nálgaöist togarahóp á Vopnafjarðargrunni um hálf-eitt-leyt- iö á laugardag og þegar hann átti eftir um sex milur i togarana hófst einvfgi milli Yarmouths og hans, þar sem varðskipið reyndi aö nálgast enn frek- ar, en herskipiö aö varna þvi. Yar- mouth geröi fjölda ásiglingartilrauna bæöi frá bakboröa og stjórnborða. Ein þeirra heppnaðist aö lokum, en ekki var hætt viö svo búiö, heldur haldið áfram ásiglingartilraunum, þar til skemmdirnar á stefninu uppgötvuö- ust. Yarmouth er nú komin til Bret- lands og veröur fróölegt að fylgjast með þvf hvernig foringjanum gengur að sannfæra breskan almenning um aö Baldur hafi siglt á freigátuna. Þess skal getið aö Landhelgisgæslan á kvikmynd tekna úr lofti af þessari ásiglingu og sannar hún enn betur en meöfylgjandi myndir hrottaskap bret- ans og beina tilraun freigátunnar til þess að sigla varðskipið niöur. Yarmouth undirbýr næstu ásiglingartilraun. fc ,v’ / ■ |>; ’ ^ Yarmouth geysist fram meðskut Baldurs. Bacchante i baksýn. Freigátan dregst aftur meö hliö Baldurs, F Frcigátan rennir fram meö bakboröshliö Baldurs. Og svo leggur freigátan hart I stjór. Hér sést afstaða skipanna. Augljóst er aö Baldur hef- ur reynt aö beygja frá og foröa árekstri,en áreksturs- stefna freigátunnar leynir sér ckki. Varöskipiö beygir frá I stjór. Yarmouth nálgast óöfluga undir 30 gráöu horni aftan við þvert skip. Areksturinn er óumflýjanlegur og varðskipið kastast til. Og hér „hengir freigátann flipann”. Skemmdir uröu ekki miklar umfram þaö sem fyrir var á Baldri, þvl aö Yarmouth hitti skipið aftan viö þilfarshúsiö, nær þvi á sama staö og freigátan Diomcde sigldi á þaö fyrir rúmum hálfum mánuöi. Myndasyrpa af ásiglingu Yarmouths á Baldur sl. laugardag

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.