Þjóðviljinn - 04.04.1976, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 04.04.1976, Qupperneq 10
10 SIOA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. aprfl 1976. Um vikublöð í Svíþjóö Engin þjóð les vikublöð af meiri dugnaði en sviar. Þau blöð sem mest eru lesin keppa öll um hylli hús- mæðra, nema tvö sem eru „fyrir karlmenn”. Danir munu koma fast á hæla svia i vikublaðaneyslu, og þeir eiga að minnsta kosti tvö blaðanna sem mest eru lesin: Allers og Femina. Framhjáhald drottningarmannsins hhríH TvanADm SAPOIÉH Ett skakande vittnesmál i SE av ett offer för den svenska sakerhetstj ánsten! cHoaœö>®íl ÍNSPRUTAl -DENVIIA Lárus Ýmir Óskarsson skrifar frá Stokkhólmi Feminumáliö I vetur gerðist undrið, að hin sænska ritstjórn Feminu vildi breyta blaðinu. Fólkið var leitt á að skrifa bara um tiskuföt og bökunaruppskriftir, og vildi fjalla um barnaheimilaskort, jafnrétti kynjanna, vandamál á vinnu- stöðum og hafði áhuga á að fá öðruvisi bókmenntir en eldhús- reyfara á siður blaðsins. Danska Femina hélt sinu striki og eigend- urnir brugðust illir við uppvöðslu- semi sænsku ritstjórnarinnar. Það er sem sagt Aller fjölskyldan danska, sem á blaðið og fulltrúar hennar tjáðu sviunum að hún hefði engan áhuga á að gefa út blöð sem fjölluðu um alvarlegri vandamál en að hjúkrunarkonan næði ekki ástum læknisins. Úr þessu varð mikil deila, svo að nærri lá um tima að blaðið hætti að koma út. Danirnir sendu á vettvang eftirlaunaþegann Gunnar Finck, sem hafði þjónað fjölskyldunni i áratugi og vissi hvað hún vildi. Eftirlauna- þegi þessi átti að koma inn á rit- sjórnina sem ráðunautur með ákvörðunarrétt. Eftir nokkurt málaþref og hótanir um upp- sagnir fékkst sú málamiðlun að Gunnar Finck yrði i starfi á rit- stjórninni einungis með rétt til að gefa góð ráð. Ritstjórnin kom máli sinu i höfn mest fyrir að blaðið hafði ekki selst minna en áður, eftir breytinguna. „Við konur” Þegar Ijóst varð að Femina gat flotið fjárhagslega með lægra hlutfalli kökuuppskrifta, fór. út- gáfufyrirtækið Bonniers, það stærsta i Sviþjóð, að athuga sinn gang: kannski hefði unga kynslóðin gaman af þjóðféiagslegum vandamálum og ljóðum. Ef svo væri, þá þyrfti Bonniers auðvitaö að ná mark- aðnum. Fyrirtækið setti af stað undirbúning að nýju blaði: ,,Vi kvinnor”. En það er ekki bara að veifa hendi og gefa svo út blað. Fyrst þarf að kanna rækilega að fólk vilji svona blað, hvaða fólk vilji það og siðan nákvæmlega hvernig þetta fólk vilji helst að blaðið liti út. Um það bil ár er siðan farið var af stað með áætlanir um ,,Vi kvinnor” og enn er það ekki komiö a markaðinn. Blaðamenn hafa starfað allt árið og útbúið til- raunaeintök, sem siðan voru eöa þá viss þróun til vinstri borin undir álit fóks af mis- munandi „tegundum”. Bonniersfólkið vill ekki rasa um ráð fram. Þetta á þegar til kemur að vera litprentað blað með mörgum greinum og mikilli blaðamannahjörð. Fulltrúar fyrirtækisins segja blaðið þurfa að seljast i 100 þúsund eintökum til að tryggja nauðsynlegan ágóða. Meðal efnisflokka sem fjallað var um i tilrauna- blöðunum eru kjarnorkuver og 6- stunda vinnudagur, hvort tveggja deilumál stjórnmálamanna i vetur. Sænsk dömublöð Eitt þeirra blaða sem best blómstra i Sviþjóð er „Svensk Damtidning”. Það hefur tekið upp þá stefnu að vera sjálfu sér nógt um efni, þeas. þýða ekki. Auk þess hafa þeir vikið frá stutt- um klausum til stærri greina. Nú um þessar mundir eru að sögn yfir tuttugu viðtöl og frétta- greinar i hverju tölublaði. I sjónvarpsþætti einum á dögunum var ritstýra Sænska dömublaðs- ins spurð hvers konar efni blaðið vildi flytja. Þvi var fljótsvarað: - „við viljum segja frá kóngafólki og öðru frægu fólki.” Kona þessi var einnig spurð, i tilefhi Feminu- málsins, hvernig sambandið væri milli eigenda blaðsins og rit- stjórnarinnar. Hún kvað það hið besta. Þegar viðtalið var tekið var trúlofun kóngsins nýlega um garð gengin, og byrjað var af kappi að undirbúa vinnu við hina opinberu heimsókn sama stór- mennis til Bandarikjanna. Þar átti raunar að slá tvær flugur i einu höggi og ná lika viðtali við lögregluhetjuna Kojak. Ýmsum hefur verið áhyggju- efni, að sala vikublaða hefur heldur farið minnkandi hér i Svi- þjóð undanfarin misseri. Sænskt dömublað brást við þvi eins og áður er sagt með meira frum- sömdu efni og gaf það góða raun. Aðrar leiðir hafa lika verið reyndar. Áhlén & Ákerlunds Förlag byrjaði nýlega útgáfu vikuritsins „NU! ” Þetta blað á að vera svokallað „annað blað” þe. blaðið er svo ódýrt, að maður getur með góðri samvisku keypt það auk sins venjulega vikublaðs. Fáir blaðamenn vinna allt sitt efni á ritstjórninni. Mest er tekið af greinum og myndum annars staðar frá og litið eitt er fengið með hjálp simans. Blaðið er auk þ. ekki litprentað. „Nú” er 3svar sinnum ódýrara en venjuleg viku- blöð og kostar 75 krónur islenskar. Blaðið sker sig ekki úr hvað efnisval snertir; 1 eintaki þvi sem ég fékk mér til fróðleiks er ma. fjallað um; Tennis- leikarann Björn Borg og kærustu hans,- hundinn, sem Silvia gaf kónginum; frægur útvarpsmaður leysir frá skjóðunni; þessvegna er ég hjátrúarfullur; fræga fólkið gefur upplýsingar um eftirlætis náttúrulækningamatinn sinn; sagt er frá Anitu Ekberg karlmanns- og atvinnulausri; kynnt börn frægra leikara, sem fetað hafa i fótspor foreldranna? Gösta ferðast hnattferð áður en hann verður blindur; um fólk með gervihjörtu; fráskilin kona nær sér á strik; þjálfið minnið!; þegar drottningarmaðurinn af Hollandi hélt framhjá; danskur milljónir sem kann hvorki að lesa né skrifa; léttklæddar stúlkur á karneval i Rió; og að lokum um eineggja tvibura, sem hugsa alveg eins. Fib-Kulturfront Eina vikublaðið sem hefur út- EXTRA 14 underbara BILDSIDOR KUNGEN - SILVIA FÖRSTfl VECKAN SOM FflST-FOLK Följ de nyförlovade pé första fisketuren, törsta ofticiella mlddagen, första shopplngan Himmi hot tru Attrl mttor Evert Taubot dódi DET KflNNS Sfl SVflRT ATT BðRJA IGEN... Vér nya aarla HÁMT-TOPPEN: FLAMINGO- siLJES KVINTETTEN rsdan I dag pá ii i ■■ ii .————» de tleata platser HÁHT lottar ut Ingamar Stmnmark* NYA SKIVA! ................ Fjórtán dásamlegar ntyndasiður af kónginum og Silviu. Fyrsta vikan sem trúlofað fólk ....011 vikublöðin settu sölumet með trúlofuninni, upp- lögin stækkuðu um 100 þúsund eintök eða meir á hverju blaði. KUNGEN&SlinA KUKáRUXSSMM! Stort reportage med massor av unika bilder frán deras fyra 8r tillsammans. KARIN MUX BfRATT^ROM SITTLIVEFrÐtAKES DOD: — Mina vánnet hjálpte mig över den svára tiden! RRKHTTE BARD0TS UVBILDIR! Hon blir várldens sexigaste pensionarl P •Nytt: Korsord och Krypto — vinn penningtotterl •Svensk rmljonár levde som luffare! •Ny forlossningsmetod: Bestam sjálv nár du vill föda! •Bara vánnerna kan hjálpa Ingmar Bergman! Sveriges biHigaste! cm Heilaþvottur hjá öryggislögreglunni, sjokk- myndir af herófnneytendum..Án glæfralegrar uppsetningar tekur enginn eftir efninú. „Nu!” er biaða ódýrast: markaðurinn er þaul- kannaður áður en lagt er af stað.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.