Þjóðviljinn - 04.04.1976, Side 13
12 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Sunnudagur 4. aprfl 1976.
Sunnudagur 4. april 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 12
Þessar loftmyndir sýna vel afstöðu eyjanna; Akurey, Engey, Viöey og Þerney. Og eins og sést veröur ekki mikiö verk aöfylla upp eiöiö milli Akureyjar og lands.
Sagt er að innsiglingin til Reykja
vikur sé einhver sú fegursta sem
farmenn þekkja. og skal það ekki
dregið i efa. Það skal hinsvegar
fullyrt, að eyjarnar Akurey.
Engey og Viðey eiga þar ekki
litinn þátt i. Þær Engey og Viðey.
eiga sér lang'a og merkilega sögu
að baki. En um langt árabil hefur
þar litið sem ekkert verið aðhafst
um eitt eða neitt. utan það hvað
Viðeyjarstofa hefur verið i
uppbyggingu eftir áralanga
niðurlægingu. Eyjarnar þrjár
hafa ekki fyrr en nú nýverið fallið
undir lögsögu Reykjavikur. Þær
hafa verið i iögsögu Seltjarnar-
neshrepps. þar til fyrir skömmu
eins og áður segir að lögsögu-
skipti urðu á landi á mörkum
Reykjavikur og Seltjarnarnes-
hrepps og eyjanna þriggja. Þess
vegna vaknar nú sú spurning
hver verður framtið eyjanna.
hvaða hugmyndir eru uppi um
notkun þeirra i framtiðinni. Og
til þess að fræðast um það fórum
við á fund Hilmars ólafssonar
forstöðumanns Þróunarstofnunar
Reykjavikur.
Hilmar sagði að engin áætlun
væri enn til um hvað gert yrði við
þessar þrjár eyjar i framtiðinni,
enda væru þær alveg nýkomnar
undirlögsögu Reykjavikurborgar
þótt borgin hefði um langan tima
átt Akurey Engey og iitinn hluta i
Viðey.
-Hinu er ekki að leyna, sagði
Hilmar, að margar og fjöl-
breyttar hugmyndir hafa komið
fram. bæði hjá okkur og öörum
um framtið eyjanna. Ef við
byrjum á Akurey þá hefur komið
fram sú hugmynd að gera upp-
fyllingu miili hennar og örfirs-
eyjar og nýta hana og þann
granda sem þar myndaðist undir
hafnaraðstöðu. Milli þessara eyja
er rif eða grynningar, þannig að
ekki verður erfitt að gera þar
uppfyllingu og við það myndaðist
hin ákjósanlegasta höfn og
hafnaraðstaða. En þetta er aðeins
hugmynd. Það þarf nefnilega að
taka tillit til nokkurra hluta og
þar vegur þyngst á metum að
fuglalif er mjög mikið og nokkuð
fjölskrúðugt i Akurey. Á að eyði-
leggja það með þvi að gera þarna
höfn? Það er spurning sem menn
verða aö svara og menn verða að
velja, undan þvi verður ekki
komist.
-Þá hefur þeirri hugmynd
einnig skotið upp að taka Engey
einnig undir hafnarsvæðið meö
þvi að fylla upp milli Akureyjar
og Engeyjar. Það yrði þó mun
meira verk en að gera upp-
fyllingu úti Akurey, þar sem
sjávardýpi er þar mun meira og
straumur harðari, þetta er þó
framkvæmanlegt og með lang-
timaáætlun i huga er þessi
hugmynd ekki fráleit. Menn hafa
einnig látið sér detta i hug aö nýta
Engey sem útivistarsvæði eða
eitthvað i þeim dúr en borið
saman við Viðey kemur það vart
til greina. Það vegur þyngst, að
nær útilokað er að gera göngubrú
úti eyjuna, sem aftur á móti er
mjög auðvelt úti Viðey.
Og þá er komið að perlunni
Viðey. Hilmar Ólafsson sagði, að
mjög margar hugmyndir hefðu
komið fram um framtið Viðeyjar,
enda gefur hún ótal marga
nýtingarmöguleika. Einn hængur
er þó á um framtiðarskipulag
eyjarinnar, eigendur hennar eru
þrir, Reykjavikurborg, rikið og
Stephensenarnir og eiga þeir
siðasttöldu lang stærstan hluta
eyjarinnar. Viðey er 151,
Spjallað við Hilmar Ólafsson
hjá Þróunarstofnun
Reykjavíkurborgar um hugmyndir
sem upp hafa komið
hektarar að flatarmáli, þar af á
Reykjavikurborg 21 hektara,
rikið 11.5 hektara og einkaaðilar
120 hektara.
Að minum dómi verður að halda
Viðey frá allri hugsanlegri
keyrsluumferð, sagði Hilmar
Ólafsson. 1 hæsta lagi að
göngubrú verði byggð þangað út.
Sem dæmi um nýtingu eyjarinnar
tframtiðinni má nefna hugmynd
um að þar verði byggð ein-
býlishús. henni hefur skotið upp,
en hefur veriö misjafnlega tekið,
sem kannski er ekki óeðlilegt. Þá
hefur verið stungið uppá að þarna
verði reist útivistarsvæði fyrir al-
menning. að byggt verði mennta-
setur i Viðey. menntaskóli og há-
skóli, að komið verði þar upp
safni eða söfnum. svo sem minja-
safni i einhverri mynd, sjómin ja-
safni eða einhverju þvi um liku.
Eyjan býður, eins og ég sagði
áðan uppá svo ótal marga
nýtingarmöguleika.
— Við hjá Þróunarstofnun
Reykjavikurborgar höfum alltaf
tengt Viðey Olfarsfellssvæðinu og
Korpúlfsstaðalandi, en þar verða
útbúnar byggingalóðir i fram-
tiðinni og telja má vist að hugsan-
leg göngubrú úti Viðey, verði
þaðan, til að mynda úr Geldinga-
nesi. En ég tel vist að þegar
gengið verði frá skipulagi Úlfars-
fellssvæðisins veröi um leið -
gengið frá Iramtiðarskipulagi
Viðeyjar. Þá má nefna eina
hugmynd enn sem sett hefur
verið Iram um framtið Viðey jar,
en það er að byggja þar hótel og
gera eyjuna að lerðamannastað.
Vist er að allar hugmyndir sem
komið hafa Iram um nýtingu
Viðeyjar verða kannaðar og
skoðaðar niður i kjölinn. en hver
þeirra verður ofaná er útilokað að
segja nokkuð til um á þessu stigi.
sagði Ililmar.
Fjórða eyjan er svo úti á
sundunum, en það er Þerney inni
Frá tfmum „Miljónafélagsins” I Viðey; saltfiskbreiösla á stakkstæði.
Þessi mynd er einnig frá tfmum „Miljónafélagsins”, þá bjuggu uin 160 manns f Viðey, þarna hefur
sjálfsagt verið einhver samkoina.
á Kollafirði. Hún er i eigu
Reykjavikurborgar en tilheyrir
lögsögu Kjalarness og þvi kemur
hún með öðrum hætti inni þetta
mál og hefur sú hugmynd frekast
komið fram um framtið hennar,
að tengja hana hafnarsvæði
hugsanlegu. enda er aðdýpi við
hana mikið.
Að íengnum þessum upp-
lýsingum hjá Hilmari Ólafssyni
er Ijóst að það er fyrst og fremst
Viðey sem hugmyndir manna
hafa snúist um, enda gefur hún
margfalt fleiri nýtingarmögu-
leika en hinar evjarnar og manni
virðist nokkuð ljóst að Akurey og
jafnvel Engey fari undir hafnar-
svæði. En þá er það Viðey.
Mörgum hefur fundist sú
hugmynd fáránleg að reisa þar
einbýlishúsahverfi, en sjálfsagt
er þrýst fast á að leyfa slikt á ein-
hverjum hluta eyjarinnar, enda
myndu lóðir þar sjálfsagt gefa
eigendum landsins mikið i aðra
hönd. En þar sem það er sam-
dóma álit ráðamanna að verja
eyjuna fvrir allri keyrsluumferð
kemur það vart til greina að reisa
þar einbýlishús og er það vel.
Mjög sennilegt er, að hugmvndin
um að gera Viðey að almennu úti-
vistarsvæði og að koma þar upp
safni eða söfnum verði ofan á.
enda virðist sú hugmynd eiga
l'lesta fylgjendur og vera
skynsamlegust. Hugmyndin um
að reisa þar menntasetur, hvort
heldur er menntaskóla eða
háskóla virðist ekki raunhæf,
enda myndi l'ylgja slikum skólum
heimavist, sem þýðir fleiri og
fleiri hyggingar sem ba'ði mvndu
þrengjá að útivistarsvæðínu á
eyjunni og skemma útsýni
þangað mikið. En hver sem
niðurstaðan verður er ljóst, að
það styttist óðum i að endanleg
ákvörðun verði tekin um fram-
tiðarskipulag Viðeyjar og þá er
sjálfsagt hinna evjanna á
sundunum bláu einnig. S.dór
Viðeyjarstofa og kirkjan.
ENGEY
VIÐEY
Káðar eyjarnar, Engcy og
Viðey, eiga sér langa og merka
sögu. Engey var liér fyrr á öldum
niikii verstöð, þar bjuggu frægir
sjósóknarar og þar voru smiðuð
fræg fiskiskip, með Engeyjar-
laginu og þóttu þau mjög góð og
voru eftirsótt. Bvggð var i Engey
fram á miðja þessa öld en hefur
verið i eyði siðan. Ljóst er að
bvggð hefur verið i Engey allar
götur frá 14. öld, þvi að þar var
um aldir kirkja og er fyrst gctið
um kirkju i Engey 1379, en kirkjE
var lögð niður 1765.
Nafn sitt er talið að eyja dragi
af engi all góðu sem þar er og eins
er talið að akuryrkja hafi verið
stunduð i Engev að fornu.
Skúli fljótlega frá Bessastöðum
og út i Viðey. þar sem hann
hafðist við i tjöldum meðan á
byggingu hússins stóð. Bygging
Viðeyjarstofu og kirkjunnar hófst
1752 og það tók þrjú ár að ljúka
framkvæmdum. Húsið var 36
álnir að lengd. 18 álnir að breidri
og 6 álnir undir þak. Og þess má
geta. að nú stendur yfir upp-
bvgging og endurreisn Viðeyjar-
stofu eftir að húsið var komið i fá-
dæma niðurniðslu. Eftir Skúla
bjuggu mörg " stórmenni..
landsins i Viðev. stiftamtmenn og
dómsstjórar. svo dæmi séu nefnd.
Kirkjan i Viðev er nú eign þjóð-
kirkjunnar og það er einmitt
bletturinn í kringum liana og
Viðevjarstofu sem rikið á i Viðey
Hjátrúin lét ekki Viðeyjarkirkju i
friði frekar en svo margt annað á
Islandi. Það var trú manna að
aldrei mætti læsa kirkiudvrunum
;i Viðey, þá myndi verða sjóslys á
,Viðeyjarsundi. Eitt sinn var
prentsmiðja starfrækt k Viðey.
Viðeyjarprentsmiðja og enn bér
prentsmiðja i Reykjavik nafn
eyjarinnar.
1 byrjun þessarar aldar. árið
1907 tók frægt felag sér bólfestu i
Viðey. Miljónafélagið sem svo
var kallað. Var það eign Thors
Jensens og Péturs Thorsteinsson
frá Bildudal. auk nokkurra
danskra manna. Þetta var út-
gerðarfélag. sem reisti fisk-
verkunarhús i eynni og gerði
þaðan út skip Fékk það nafn sitt
af þvi að ráð var fvrir gert að
hlutafé þess yrði ein miljón. sem
þótti óskaplegt fé i þá daga. og
sem dæmi má nefna að tekjur
landssjóðs voru þá ekki nema um
miljón á ári. Þetta útgerðarfélag
starfaði i 7 ár. áður en það fór á
hausinn. Það reisti mikil mann-
virki á austurenda Viðevjar. m.a.
tvær bryggjur, hafskipabryggjur.
á sama tima og ekki voru til
bryggjur i Reykjavik.
Viðey á sér öllu merkilegri sögu
en Engey. Þar var stofnað
klaustur 1226, sem jafnframt var
menntasetur. Með árunum varð
þetta klaustur mjög auðugt, og
eignaðist fyrr en varði allan
þorra jarða á Suðurnesjum. Þetta
klaustur var talið eitt stærsta og
merkasta klaustur landsins allt
til siðaskipta. Siðasti ábóti þar er
lalið að verið hafi Ogmundur
Pálsson siðar Skálholtsbiskup.
Arið 1539 gerði ribbaldi
nokkur útlendur, Diðrik
af Mynden aðför að munkuriúm T
Viðey, rændi þar og rupplaði og
rak munkana þaðan burtu. Jón
biskup Arason gerði ásamt
sonum sinum aðför að dönum
sem i eyjunni bjuggu og rak þá
þaðan burt. vigöi kirkjuna og
Klaustrið og kom á sömu skipan
óg þar hafði áður verið.
Svo furðulegt sem það er. þá
varð Viðey fyrst kunn fyrir
óhemju mikinn músagang og þaö
svo að korn og akrar spilltust og
varð að fá Þorlák biskup helga til
að ganga i málið og koma áf
músaganginum.
En svo var það um miðja 18.
öld, eða árið 1749, að Skúli
Magnússon fékk landfógeta-
embættið fyrstur islendinga. Var
búist við að Skúli myndi. eins og
lörverar hans danskir. setjast að
á Bessastöðum. og búa þar ásamt
amtmanni. Skúli varð hinsvegar
ósáttur við Pingel amtmann fljót-
leua eftir embættisveitinguna og
bað leyfis að mega byggja og
setjast að i Viðey, en þar hafði þá
um nokkurn tima verið aðsetur
sjúklinga og sveitarlima.
Þetta leyfi var veitt. og fluttist
Siðan Miljónafélagið leið hefur
litið verið um að vera i Viðey Og
það er ekki fyrr en nú siðari arin
sem farið hefur verið aö tala um
framtið eyjarinnar. Stutt er siðan
endurreisn Viðeyjarstofu hofst og
er það verk komið nokkuð á veg
Undanfarin sumur hafa manna-
lerðir til eyjarinnar aukist
nokkuð. enda hefur verið haldið
uppi bátsferðum milli eýjar og
lands. -S.dór