Þjóðviljinn - 04.04.1976, Page 14
14 SÍÐA — ÞJÓOVILJINN Sunnudagur 4. april 1976.
Umsjón:
Magnús
Rafnsson og
Þröstur
Haraldsson
OLGA GÚÐRUN
Ný plata í
uppsiglingu
Olga Guftrún iiofur nú sungiö
sig rækilega inn í hjörtu tands-
m a n n a, a m k. y n g r i h 1 u ta
þeirra, meft plötu sinni Eniga
meniga. Klásúlur heyrðu það
utan af sér að Olga væri i þeim
hugleiðingum að gefa út aðra
plötu og þvi þótti tilvalið að
heyra i henni hljóðið.
Þegar Klásúlur náðu tali af
Olgu i vikunni var hún i þann
veginn að leggja upp i ferðalag
til Norðurlands þar sem hún
ætlaði að koma fram á þremur
dansleikjum með hljóm-
sveitinni Cabarett. Átti hún að
troða upp sem skemmtiatriði og
syngja lög af plötunni Eniga
meniga við undirleik Cabaret.
Ekki kvaðst hún þó ætla að
leggja þetta fyrir sig en ef sér
litist vel á gæti verið að hún
gerði eitthvað meira af þessu.
En það er vist meiningin að
segja frá væntanlegri plötu.
Olga kvaðst vera með tilbúið
efni á heila plötu, allt eftir Ólaf
Hauk Simonarson. Að þessu
sinni er þó ekki höfðað til barna
lyrst og fremst heldur verður
hér poppplata á fer^ðinni. — En
vonandi hlusta börnin lika á
hana, sagði Olga.
Hún sagði að efni plötunnar
yrði sambland af Ijóðrænum
textum og lögum annars vegar
og svo pólitiskum textum i anda
Ólafs Hauks. Menn gætu samt
ekki átt von á krepptum hnefa
þvi slikt væri ekki hans aðferð.
Gunnar Þórðarson verður
eins og á Eniga meniga bak-
hjarl Olgu. Hann mun útsetja
lögin og annast töluvert af
undirleiknum. Einnig verða
fengnir til „sessjón” hljóðfæra-
leikara og er ætlunin að nota
hljóðfæri sem ekki er algengt
að popparar beiti, svo sem selló
og ýmis blásturshljóðfæri.
Til stóð að taka plötuna upp i
London en nýlega gerðist það
að Gunnar hóf samstarf við eig-
endur Hljóðrita hf. i Hafnarfirði
Varð þvi að ráði að taka
plötuna upp þar en beðið verður
með það fram i júni þegar 24
rása rækin eiga vera komin.
Platan kemur sennilega á
markað með haustinu. -þh
Djammaö í Sesari
Siðastliðinn sunnudag tók
veitingahúsið Sesar upp á þeirri
nvbreytni að halda djammkvöld
þar sem hljóðfæraleikarar geta
komið saman og reynt með sér
hæfileikana og áheyrendur geta
mætt og notiö gæðanna. Hefur
Kæru Klásúlur.
Um daginn var ég i rútuferða-
lagi. Undir tónlist Rikisútvarps-
ins i rútubilahátalara stundi
einn félagi minn: — Ekkert er
minna spennandi en sænsk dæg-
urlagatónlist (reyndar sagði
hann ekki ..minna spennandi”
húsið i hyggju að gera slfk kvöld
að föstum lið i starfsemi sinni.
Er þetta lofsverð nýbreytni i
okkar fátæklega popplifi þar
sem brennivinstónlistin hefur
öll völd og allt virðist miðað við
það eitt að koma sem flestum
en ég ætla ekki að vera of per-
sónulegur ef þið skiljið hvað ég
er að fara).
Þá sagði rödd i næsta sæti fyr-
ir aftan (reyndar ekki rödd
heldur fullorðinn maður sem
hafði búið um árabil i Vestur-
Þýskalandi á sinum yngri ár-
um); — Jú, þýsk dægurlagatón-
list. (Ég segi nú eins og Steinar
Berg, ég veit að forstöðumenn
tónlistardeildar Rikisútvarps-
ins virða þetta ekki svars, en ég
hef þó altént gert skyldu mina).
Ykkar Gæi.
Gæi minn.
Viö sendum þér nokkrar plöt-
ur sem okkur hafa verið sendar
til að skrifa um. Þú mátt eiga
þær. Klásúlur.
drykkjum ofan i gestina á sem
skemmstum tima.
Hálfgerður byrjendabragur
var á pvi sem fram fór þetta
kvöld. Stundvisi islenskra tón-
listarmanna er alræmd og enn
sönnuðu þeir orðstir sinn á
þessusviði. Tilkynnt hafði verið
að djammið ætti að byrja
klukkan 10 en klukkan var orðin
11 er byrjað var. Á meðan nutu
menn plötusnúðshæfileika
Óttars Felix Haukssonar sem
virðist hafa betri smekk en
flestir hans starfsbræður.
Jakob Magnússon, Þórður
Árnason, Sigurður Karlsson,
Asgeir Oskarsson, Þorsteinn og
Halli i Eik hófu fyrstir leik.
Buðu þeir upp á djassrokktil-
brigði sem slikir öndvegismenn
geta hrist fram úr erminni án
minnstu erfiðleika og i lokin
brugðu þeir sér yfir i blús með
góðum tilþrifum. Þá höfðu þeir
leikið i rúmar tuttugu minútur
og voru búnir að hita sig vel
upp, en sjá, þá hættu þeir leik
og tilkynnt var að Birgir
Hrafnsson og félagar myndu
hefja samspil innan stundar.
Eftir hálfrar klukkustundar
stillingu hófu þeir leik. Var
þetta betri hluti djammsins.
Sérstaklega fór Birgir á kostum
á gitarnum og naut góðrar að-
stoðar Pálma Gunnarssonar,
Sigurðar Karlssonar og fleiri.
Þótt kvöld þetta hefði mátt
vera ánægjulegra ber að fagna
þessu frumkvæði forráðamanna
Sesars. Ýmislegt má lagfæra,
þá sérstaklega skiptingar þótt
hljóðfæraleikurum sé vorkunn
vegna þrengsla á hinu örlitla
sviði hússins. Og töluverður
áhugi virðist vera fyrir þessu ef
marka má aðsóknina þetta
kvöld. —Eó
LOKSINS
kom eitt
lesendabréf!
Þórbergur
á vinyl
i augum flestra sem eitthvað
umgangast hljómplötur eru þær
tónlistarmiðill. Það kæmi fáum
á óvart þótt 90% þcss efnis sem
þrykkt er i vinyl reyndist bundið
við áttundaskala i dúr og moll.
Þessi staðreynd verður varla
skýrö útfrá möguleikum hljóm-
plötunnar þvi á hana má
þrykkja flest það sem mannlegt
eyra greinir. Eitt af þvf er talað
mál. Það verður hinsvegar að
teljast til undantekninga að
einhver ráðist i að bera á borð
fyrir plötukaupendur annaö en
tónlist. Þó hefur borið við aö hér
á landi væri gefinn út upp-
lestur, einkum hafa þá verið
fengin skáld til að lesa úr eigin
verkum. Stundum virðist til-
viljun ráða þvi að til er slikur
upplestur.
Ég minnist ágætrar 45
snúninga plötu sem slæddist á
markað fyrir nokkrum árum og
hvarf þaðan fljótlega aftur. Þar
var um að ræöa hljóðritanir sem
höfðu fundist (!) i Rikisút-
varpinu með upplestri Steins
Steinarrs á eigin kvæðum. Það
getur vart talist eyðsla á plasti
að dreifa slikum heimildum.
Fyrir jólin gaf Demant út
plötu sem hefur mjög áþekkt
gildi. En i þetta sinn er ekki um
upplestur að ræða heldur viðtöl
Gylfa Gislasonar við þá bræður
Þórberg og Steinþór Þórðar-
syni. Ætlunin mun vera að hafa
þessar plötur fleiri, þessi ber
titilinn Æskuminningar og frá-
sögnin er i fjórum hlutum. Fyrst
segir af bernskuleikjum á Hala,
þá af Steini afa, af erlendum
sjómönnum og viðskiptum við
þá, og loks af kynnum af
elskunni i Bergshúsi. Inn i frá-
sagnir bræðranna hefur Gylfi
fellt upplestrarkafla sem
Baldvin Halldórsson, Karl
Guðmundsson og Guðrún
Alfreðsdóttir, flytja.
Gildi plötu sem þessar liggur
fyrst og fremst i þvi að
Þórbergur Þórðarson er ekki
minni listamaður hvað varðar
meðferð talaðs máls en ritaðs,
og það er ekki minni ástæða til
að varðveita dæmi þess en hins.
Þessi plata er heiðarlega unnin
og i rauninni er það einasta
krafan sem hægt er að gera til
þess sem spyr og gengur frá
efninu. Um frásagnarlist
Þórbergs er óþarfi að fjölyrða
en mér þykir vænt um að geta
nú brugðið Sósuvisunum á
fóninn og sannfærst enn betur
um að Þórbergur átti erindi á
fleiri útgáfuform en hið
prentaða. Það er engin ástæða
til að hafa hljótt um þessa plötu,
hún stendur fyrir sinu. Og það
er full ástæða til að benda
mönnum á að það efni er
margþætt sem mætti varðveita
á þennan hátt. Ég þakka guði
fyrir að þessi viðtöl liggja ekki
og rykfalla niðri útvarpi sem
notað efni. M.RÚ
Sjónvarpið sýnir
Sextónlistar-
þætti eftir
páskana
Það hefur ekki beinlinis verið
ástæöa til að hrósa islenska
sjónvarpinu fyrir gott atlæti við
áhugamenn um popptónlist að
undanförnu. Frá og með öðrum
degi páska mega menn þó eiga
von á röð sex sjónvarpsþátta
með popptónlist og djassi.
Egill Eðvarðsson skýrði Þjóð-
viljanum svo frá að á 2. i
páskum myndi sjónvarpið sýna
fyrsta þáttinn og verður hann
meö hljómsveitinni Diaboleus in
Musica og Bergþóru Arnad-ur
söngkonu. Siðan verða þættirnir
sýndir vikulega, ekki þó
endilega alltaf sömu kvöld
vikunnar.
Aðrir þættir sem búið er að
taka upp eru með nokkrum
gömlum jöxlum úr djassinum,
ma. þeim Guðmundi Stein-
grimssyni, Arna Scheving og
Karli Möller, og svo söngsveit-
inni Þokkabót. Ákveðið hefur
verið að taka upp þátt með
söngkonunni Janis Carol sem
syngja mun við undirleik hljóm-
sveitar sem i verða Vignir
Bergmann, Rúnar Georgsson
ofl. Sennilega verður einnig
gerður þáttur með hljóm-
sveitinni Mexikó og Einari
Vilberg en einum þætti er
óráðstafað.
Samheiti þáttanna verður i
kjallaranum en það nafn kemur
til af sviðsbúnaöi sem komið var
upp i sjónvarpssal og verður
notaður i öllum Jiáttunum með
ýmsum tilbrigðum þó.
-ÞH