Þjóðviljinn - 04.04.1976, Side 16

Þjóðviljinn - 04.04.1976, Side 16
16 S1ÐA _ þJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. aprfl 1976. ÞORSTEINN JONSSON SKRIFAR UM KVIKMYNDIR Næturvöröurinn: öfgafullur söguþráður Úr The Conversation Klute KLUTE heitir kvikmynd, sem verið er að endursýna i Austur- bæjarbiói. Þar er verið að leita að manni, sem horfið hefur spor- laust. Hann finnst ekki og ekkert kemurframum hvarfhans. Hins vegar kemur i ljós, að dularfullt atferli, sem sett hefur verið i samband við hann, er stundað af yfirmanni einkalögreglufyrir- tækisins, sem tekur að sér leitina. Hvað þetta á að segja áhorf- andanum er mér ekki ljóst, en hitt er vi'st að leitin sjálf og persónur, semkoma við sögu, eru aðalatriði verksins. Myndin er nokkurs- konar æfing fyrir tvo leikara og kvikmyndastjóra. Spennaer búin til og slakað á henni án þess að á- horfandinn sé nokkru nær. Maðurinn var geðveikur, er engin lausn. Næturvörðurinn 1 Hafnarbiói er verið að sýna kvikmynd, sem heitir NÆTURVÖRÐURINN. Fyrrver- andi SS-foringi hittir fyrrverandi fanga sinn. I fangelsinu hafði tekist með þeim kvalagleðisam- band, sem þau taka upp að nýju við endurfundi. Konan er eina eftirlifandi vitnið gegn SS for- ingjanum og félagar hans vilja þvi gjarnan koma i veg fyrir Þrjár kvikmyndir varidræði með þvi aö gera hana o- skaðlega. 1 eindrægni, sem kvalalostasérfræðing þarf til að skilja, loka þau sig inni i ibúð hans og eftir nokkurt hungur og ást yfirgefa þau ibúðina og gefa sig dauðanum á vald. Fyrir höfundinum virðist ekkert hafa vakað með þessum öfgafulla söguþræði annað en að búa til hentugan ramma fyrir kvalalostafullt kynlif. Þarna eru hvorki skapaðar eftirminnilegar persónur né birtný eða markverð tiðindi um fasisma. Myndin kemur fyrir sjónir eins og þynnt blanda af HINIR FORDÆMDU eftir Visconti og TANGO í PARÍS eftir Bertolucci. önnur þessara kvikmynda er æsikvikmynd, sem höfðar til lægstu hvata og veltir sér á ó- smekklegan hátt upp úr þeirri smán sem nasisminn var (og er). Hin er sálfræðileg glæpasaga, sem höfðar til kröfuharðari áhorfenda. Hún hefur sér til ágætis góða frammistöðu leikara og leikstjóra en lætur áhorf- andann ósnortinn af efninu. t báðum kvikmyndunum eru at- Jane Fonda I hlutverki Bree I mynd Alan Pakula, „KLUTE”. fróað við tvær mismunandi teg- undir af afþreyingu eina kvöld- stund. burðir notaðir til þess að vekja ákveðnar tilfinningar hjá á- horfendum og i rauninni skiptir efnið ekki höfuðmáli. Auðvelt er að hugsa sér aðra viðburði og . ■ annað ef ni, sem hefði m jög svipuð Cv0nV6rS3ll0n áhrif. Tveim mismunandi kröfu- hörðum hópum áhorfenda er CONVERSATION eftir Coppola uppfyllir samviskusamlega kröfuna um afþreyingargildi. Sem sálfræðileg æsikvikmynd stendur hún KLUTE slst að baki. Munurinn er hins vegar sá, að I CONVERSATION er spennan notuð til þess að fleyta hugsunum og efni til áhorfandans en er ekki takmark I sjálfu sér. Myndin fjallar um hlerunarsér- fræðinginn Harry (Gene Hack- man). 1 atvinnu sinni fæst hann við að koma upp um leyndarmál annarra með þvi að hlusta á sam- töl. Hann hefur tæki til að hlera allt, hvort sem það er i sima, innanhúss eða utanhúss. Þegar hávaði truflar siar hann samtölin úr. Aðalatriðið er að fá góða upp- töku. Efni samtalsins kemur honum ekki við. Hann hefur sjúk- legan áhuga á að halda einkalifi sinu leyndu. Á dyrum hans eru þrjár læsingar og hann lokar simann i kommóðuskúffu. Hann segir engum frá tilfinningum sinumog heldurfólkiifjarlægð. Þetta mótsagnakennda líf gengur prýðilega þangað til hann sér fram á að ein upptaka hans kunni að valda morði. Sem fag- manni kemur það honum náttúrulega ekkert við, en eftir að kollegar hans gera honum grikk með þvi að taka upp hans eigin eirikasamtal þótt i gamni sé, hættir honum að vera sama. Morðið er framið og Harry stenst ekki freistinguna að athuga vegsummerkin. Það er hringt til hans i leynisimann og hann er varaður við að segja frá vitneskju sinni, hann sé hleraður. Harry leggur einkaibúð sina i rúst i hamslausri leit að hljóðnema. Kvikmynd Coppola er rannsókn á tveimur hugtökum, friðhelgi einkalifs og blindri fagmennsku. Hún fjallar einnig um samvisku ogsektarkennd.oghún fjallar um tjáskipti. En hún er fyrst og fremst frábær persónulýsing á þessum lokaða, einmana leigu- sérfræðingi. (Samsvaranir eru viða, einnig i sama starfi og Coppola stundar). Vakin er virð- ing fyrir honum sem sérfræðingi og um leið fyrirlitning á starfi hans og hugarheimi. Skemmti- legt hliðarstef er hljóðfæraleikur- inn þar sem hann leikur einmana samleik með hljómplötu i Ibúð sinni. SKIPSTJORAR ÚTGERÐARMENN VIÐ FRAMLEIÐUM Á ÞORSKANET Teinatóg (PEP, staple fibre og filmukaðall) Færatóg (grænir PE - kaðlar) Kúluhankaefni (blár 5,5 mm filmukaðall) Steinahankaefni (blár 6,5 mm filmukaðall) Kynnið ykkur verð og gæði hjá dreifiaðilum okkar. ÞVÍ SKYLDUM VIÐ EKKI KAUPA ÍSLENZKU VÖRUNA ÞEGAR HÚN ER BETRI ? HAMPIÐJAN HF

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.