Þjóðviljinn - 04.04.1976, Page 24

Þjóðviljinn - 04.04.1976, Page 24
DJÚÐV/Um Sunnudagur 4. apríl 1976. Rætt viö Jón Helgason, formann Verkalýðs- félagsins Einingar, Akureyri Þaö hefur veriö ólíkt hugnanlegra að búa á mölinni á Akureyri í vetur heldur en mæla göturnar i Reykjavík. Þegar við Jón Helgason, formaöur Verkalýös- félagsins Einingar, setj- umst niður til þess að ræöa saman á skrifstofu verkalýösfélaganna aö Strandgötu 7 er því eðli- legt að veðrið berist í tal. Innfæddur akureyringur, sem fengið hefur meira en nóg af umhleypingun- um í Reykjavík í vetur og votviðrinu i fyrrasumar ræðir mikið og gjarnan um stillurnar og sólfarið nyrðra. En þegar veður- farið á Akureyri hefur verið blessað nægilega og þakkað-biðjum við Jón að segja okkur af stærð og skipulagi Einingar. — Ég held ég megi fullyrða að nú þegar Verkalýðsfélag Grýtu- bakkahrepps og Bilstjórafélag Akureyrar hafa verið tekin inni Einingu sé hún næststærsta verkalýðsfélag á landinu. Félagarnir eru eitthvað um 2300. Félagssvæðið nær yfir allar byggðir Eyjafjarðar. Akureyri. Dalvik, Hrisey, Ólafsvik og Grenivik. Byggðirn- ar utan Akureyrar hafa verið að ganga til liðs við Einingu smámsaman, fyrst Dalvik og Hrisey og siðar Ólafsfjörður, eftir að félagið þar hafi nánast legið niðri um hrið. Félagið starfar i einni heild, og hefur ekki sérstaka kvenna- deild, nema hvað konurnar hafa með sér samtök til þess að ræða einstök sérmál sin. Alit ófaglært verkafólk á félagssvæðinu er i Einingu, og starfsstúlkur á sjúkrahúsum og elliheimilum er innan okkar ráða. Allir sjóðir á félagssvæðinu eru sameigin- legir, nema hvað ólafsfirðingar kusu að vera sér. Þetta er gert til þess að hægt sé aö jafna greiðslur úr sjóðunum yfir allt svæðið. bar sem sjóðsmyndunin fór seint af stað i Ólafsfirði hefur t.d. ekki verið hægt að fylgja eftir dagpeningsgreiðslum eins og gert er annarsstaðar á svæð- inu. — En hvernig er þá atvinnu- ástandið meðál félagsmanna? — Það má segja að fyrir verkafólk gjörbreyttu skut- togarakaupin atvinnuástand- inu. Viðvarandi atvinnuleysi i Ólafsfirði er t.d. algjörlega horfið, en á Dalvik, þar sem að- eins er einn skuttogari sem stendur, er ekki samfelld vinna. Skuttogarinn hefur einnig fært hriseyingum fulla atvínnu. Svo er þess að gæta að mörg af þeim iðnfyrirtækjum, sem verið hafa i notkun á Akureyri eru nú orðin mjög föst i sessi og örugg. Ég vil til dæmis nefna i þessu sam- bandi Slippstöðina, Útgerðar- félag Akureyringa og Niður- suðuverksmiðju Kristjáns Jóns- sonar og Co. Jón Helgason, formaður Einingar, fyrir utan skrifstofur Verkalýðsfélaganna á Akureyri. EINING UM ALLAN EYJAFJÖRÐ — Einhver vandamál eigið þið þó við að glima? — Já ekki skortir þau. Fyrir utan allt það daglega amstur sem fylgir starfsemi stórs verkalýðsfélags er stærsta vandamálið hjá okkur að koma á betra skipulagi á vinnuna við höfnina. Þar er fyrst og fremst um að ræða að skapa þeim mönnum, sem eingöngu eiga af- komu sina undir hafnarvinnu, meira atvinnuöryggi. Ennþá er skipaafgreiðslan hér á hendi margra, og oft átök og svipting- ar um það hverjir eiga að fá vinnuna. Dæmi eru um það að skipaafgreiðslurnar sjái sér hag af því að kveðja út varalið i stað þess að nota fastaliðið við höfnina. Við höfum sett sem markmið eina sameiginlega skipaafgreiðslu sem hefði fast- ráðið starfslið. Ennþá hafa Kaupfélagið og Eimskip ekki talið grundvöll fyrir þessu, en við reynum að þoka málinu áfram. — Fjöldi af ykkar starfsfólki vinnur i frystihúsum á félags- svæðinu. Hver hefur ykkar rcynsla orðið af tilraunum með launakerfi? Við reyndum bónus kerfi áður fyrr. en hættum svo við það. Siðar var samþykkt með mjög naumum meirihluta að reyna endurbætt bónuskerfi aftur i vissan tima. Þegar reynslutiminn var liðinn i fyrra voru atkvæði greidd aftur i fé- laainu oí> sambvkkt að halda áfram að vinna i bónus með 116 atkvæöum gegn 21. A þessum hörmungartimum sem við lifum vill l'ólk ógjarnan sjá á eftirum- talsverðum kaupauka. Ýmsir kostir fylgja lika bónuskerfinu, nýtingarprósentan batnar og gefur fyrirtækjunum möguleika á að standa undir meiri greiðsl- um. Um leið fer meira hráefni i gegn og tækjanýting verður betri. ókostirnir eru fyrst og fremst þeir að bónusnum fylgir of mik- ið álag. Forsenda hans þyrfti að vera styttri vinnutimi. En þvi miður er of mikið um nætur- og helgidagavinnu. Þegar frá liður er þó vonandi að spennan minnki og fólk almennt fari að vinna skynsamlegar. Eitt helsta baráttumál Einingar er aðkoma bættu skipulagi og atvinnuöryggi á i hafnarvinnunni — bið i Einingu náðuð merki- legum árangri i sambandi við fræöslumálin hér heima i héraði i siðustu samningum, ekki satt? — Jú, það verður ekki annað sagt. Krafan um sérstakt fræðslusjóðsgjald náði ekki l'ram að ganga i almennu kjara- samningunum, en við náðum samkomulagi um það við bæjarfélagið og sjúkrahúsin að þessir aðilar greiddu sérstakt fræðslusjóðsgjald. Ég held að þarna sé kominn visir að merki- legum áfanga i sögu verkalýðs- hreyfingarinnar. Það er mjög brýnt að koma á fullkomnu fræðslustarfi á veg- um verkalýðssamtakanna. Samningamál eru orðin mjög flókin, sifellt eru að koma ný og breytt launakerfi og trúnaðar- störf i félögunum verða æ viða- meiri. Og siðast en ekki sist þarf markvissa fræðslu til þess að auka tengsl og samstöðu verka- fólks. Ég held einnig að útvarp og sjónvarp ættu að geta haft með höndum fræðslu fyrir verkafólk og að mörgu leyti myndi fólk eins og nú stendur á með vinnuálag geta notfært sér hana best i þvi formi. Annars er nauðsynlegt að fólk þurfi ekki að missa vinnutekjur ef það fer á námskeið eða reynir á annan hátt að bæta við sig menntun i starfi. Þetta er aðal- vandamálið fyrir okkur, i sam- bandi við að senda fólk suður á annirhjá Félagsmálaskólanum. Við höfum hug á þvi að efla fræðslustarf hjá deildunum hér heima við og koma á kvöld- og helgarnámskeiðum. Starfs- kraftur hefur dálitið aukist hjá okkur, i ölafsfirði og á Dalvik er starfsmaður i hálfu starfi, og vonandi gefst okkur tóm til þess að koma þessu i kring. — Hver eru viðbrögð félags- manna hjá þér við þeim hækkunum sem nú dynja yfir? — Ég tel þetta svivirðilega árás af hendi rikisvaldsins. Og ekki siður fordæmi ég þann áróður sem rikisstjórnin hefur i frammi. Það er reynt að læða þvi inn hjá fólkinu að kaup- hækkanirnar séu forystu ASl að kenna, og hún hafi rekið það út i óraunhæfa kröfupólitik sem það nú fái að súpa seyðið af. Þetta fær engan veginn staðist. 1 fyrsta lagi vegna þess að ASl hafði lagt fram tillögur um að leysa málin með ýmsum póli- tiskum aðgerðum, sem stjórnin hafnaði. og i öðru lagi vegna þess að einungis litið brot af verðhækkununum má rekja til kjarasamninganna. Rikisvaldið er núna að fara ofan i hverja smugu til þess að ná aftur sinu og vel það með þvi að hækka alla opinbera þjónustu. Með þvi fer hún langt út fyrir þann ramma sem gengið var út frá i kjarasamningunum, og þjóð- hagsspám. Bara sem litið dæmi má nefna að fólk sem fær lán úr Lifeyrissjóðnum hérna þarf nú að borga kr. 500 fyrir veðbókar- vottorð i stað kr. 50 áður og 23% meira fyrir þinglýsingu á láni, eða 1425 kr. á fimm hundruð þúsundum. Ég held að fólk al- mennt átti sig á svindlinu ef það ber saman spár um verðl.þró- un og hækkanirnar sem brenna á þvi sjálfu. Verkalýðshreyfingin og hin pólitisku öfl, sem styðja hana verða að sameinast um að hnekkja áróðri og árásum rikis- valdsins. — Þú talar þarna um sam- vinnu verkalýðshreyfingarinn- ar og pólitiskra afla. llvernig finnst þér að þau mál ættu að þróast? — Ég er ekki i nokkrum vafa um, að það er nauðsynlegt að vinstri menn hætti innbyrðis átökum og sameinist um að finna lausn á raunverulegum vandamálum. Aðeins á þann hátt er hægt að verja verkalýðs- hreyfinguna gegn siendurtekn- um árásum óvinveitts rikis- valds. Við látum þetta verða siðustu orð þessa viðtals og kveðjum Jón Hclgason fyrir utan dyrnar á Strandgötu 7 með þvi að taka mynd af honum við höfuð- stöðvarnar. Það er aldrei að vita nema hún heppnist þótt ljósmyndarinn tilheyri ,,Næst- um-i-fókus-félaginu” á bjóðvilj- anum. _ —ekh

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.