Þjóðviljinn - 14.04.1976, Side 8

Þjóðviljinn - 14.04.1976, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 14. april 1976. Utivistarferðir: U tiver a en ekki akstur Útivist hefur sent frá sér bæklinginn Útivistarferðir 1976, sem er önnur ferðaáætlun félags- ins, en það var stofnað i fyrra. 1 þessum bæklingi er úrval lengri og skemmri ferða og eins og segir ibæklingnum, „höfuðáherslan er lögð á útiveru fremur en enda- iausan akstur i bil. Göngufcrðirn- ar eru við allra hæfi og oftast er hægt að stytta gönguleiðina sé þess óskað eða sneiða framhjá fjalli. „Siðan kemur holl og góð áminning til þeirra sem ætla i ferðalag, en eru ragir við rikjandi veðurfar á hverjum tima: „Látið ekki veður aftra ykkur frá ferð, búið ykkur heldur i samræmi við þaö og komið.” I bæklingi Útivistar er skráð verð á ferðum, og gildir það fyrir utanfélagsmenn, en félagar greiða nokkru lægra verð. Hálft gjald er greitt fyrir börn á skyldunámsaldri til fermingar nema i einsdagsferðum, en þá er fritt fyrir börn i fylgd með full- orðnum. Enginn matur fylgir i verðinu. Farmiðasala i helgar- og lengri ferðir félagsins er á skrif- stofu þess, Lækjargötu 6, en sim- inn er 14606. Sumarleyfisferðir Skrá útivistar yfir Sumarleyfis- ferðir hljóðar svo: Ólafsfjörður — Héðinsfjörður — Siglufjörður, 3.-10. júli 8 dagar. Flogið til Akur- eyrar kl. 8. Siðan farið með áætlunarbil til Ólafsfjarðar og þaðan með báti i Héðinsfjörð þar sem dvalið verður nokkra daga og gengið um strendur og fjöll. Siðan haldið til Siglufjarðar og litastum i grenndinni. Flogiðsuð- ur frá Sauðárkróki eða farið suð- ur með áætlunarbilnum. Auðvelt er að tengja þessa ferð við Flat- eyjardalsferð nr. 2. Verð: 13.900 kr. Flateyjardalur. 9. -19. júli. 10 dagar. Flogið til Húsavikur kl. 9.30 og farið þaðan seinnihluta dags með báti i Flat- eyjardal, þar sem dvalið verður i tjöldum eða húsi. Gengið i Hval- vatnsfjörð og Þorgeirsfjörð og einnig um Hágöng, nyrsta hluta Kinnarfjalla og viðar. Farið með báti til Húsavikur með viðkomu i Flatey og Naustavik. Einnig dvalið á Húsavik og flogið suður á mánudegi Verð: 16.700 kr. öræfajökull — Skaftafell. 10. -18. júli, 9 dagar. Farið með áætlunarbilnum. kl. 8.30 og tjaldað i Sandfelli. Gengið þaðan á Hvannadalshnjúk, hæsta fjall íslands. Seinni hluta ferðarinnar dvalið að Skaftafelli og gengið um þjóðgarðinn eftir þvi sem vilji og geta leyfa. Heim með áætlunar- bilnum, en hægt er að tengja þessa ferð við ferð nr. 5 um Suðursveit og Hoffellsdal. Verð: 9.900 kr. Hornstrandir — Hornvik. 12. -21. júli, 10 dagar. Flogið til Isafjarðar kl. 10.50 og áður en farið verður með báti i Veiði- leysufjörð gefst timi til að skoða Isafjörð og kaupa vistir. Gengið i Hlöðuvik, Hornvik, Látravik og viðar. Fuglabjörgin miklu, Hæla- vikurbjarg og Hornbjarg, skoðuð. Heim með báti um Æðey til Bæja: og þaðan með áætlunarbilnum. Verð: 14.900 kr. Suðursveit — Hoffellsdalur 13. -22. júli 10 dagar. Farið með áætlunarbilnum kl. 8.30 og tjaldað nálægt Kálfafellsstað. Gengið um Kálfafellsdal og nærliggjandi fjöll mla. á Birnudalstind. Þá verða tjöldin flutt til Hoffellsdal og gengið þarum i nokkra daga m.a. á Goðaborg. Flogið heim frá Hornafirði, en einnig hægt að halda áfram i ferð nr. 9 um Álftafjarðaröræfi. Verð: 15.100 kr. Vopnafjörður — Langanes. 14. -28. júli 15 dagar. Farið með áætlunarbilnum til Akureyrar og Vopnaf jarðar. Dvalið þar i nokkra daga og skoðað það mark- verðasta i héraðinu. Siðan verður bækistöðin flutt út á Langanes og gengið þar um, eftir þvi sem timi vinnst til. Farið heim með áætlunarbilnum um Raufarhöfn og Akureyri. Verð: 19.400 kr. Látrabjarg 15. -21. júli, 7 dagar. Farið til Patreksfjarðar með áætlunar- bilnum kl. 8, og þaðan út á Látra- bjarg, þar sem dvalið verður i húsi eða tjöldum. Næstu dögum varið til fuglaskoðunar og göngu- ferða um Látrabjarg og nágrenni. Heim með áætlunarbilnum á miðvikudag. Verð: 11.500 kr. Hornstrandir — Aðalvík 20.-28. júli 9 dagar. Flogið til Isa- fjarðar kl. 10.50 og farið sam- dægurs með báti til Hesteyrar. Gengið þaðan yfir i Aðalvik og á Rit, Straumnesfjall, Hvestu og viðar. Með báti úr Aðalvik til Æð- eyjar og með áætlunarbilnum frá Bæjum. Verð: 13.800 kr. Alftafjarðaröræfi 22 -29. júli, 8 dagar. Flogið til Egilstaða kl. 10.20 og farið sam- dægurs með áætlunarbilnum tii Alftafjarðar, þar sem dvalið verður i tjöldum næstu daga og gengið um dali og fjöll vestur af m.a. á Jökulgilstind. Farið með áætlunarbilnum til Egilsstaða og flogið þaðan. Verð: 17.900 kr. Laki — Eldgjá — Hvannagil. 24.-29. júli, 6 dagar. Brottför kl. 8 að morgni og ekið i Varmárdal. Gengið umLakasvæðið. Siðan haldið um Eldgjá og Álftavatns- krók i Hvanngil á Fjallbaksvegi syðri. Á þessari leið er mjög margt að skoða. Gist i tjöldum Verð: 11.500 kr. Jeppaferð um ódáðahraun 4. -15. ágús't, 12 dagar. Ekið norður Sprengisand og Gæsavötn og siðan um ýmsar fáfarnar slóðir i Ódáðahrauni. Komið til byggða i Bárðardal eða við Mývatn. Kannaðar nýjar og litt reyndar slóðir. Ævintýraferð i eigin bilum en með öryggi i samfloti með öðrum. Tjöld. Þátttökugjald 3000 kr. Austurland út að sjó og inn til fjalla. 5. -15. ágúst, 11 dagar. Flogið til Egilsstaða kl. 10.20og farið þaðan með áætlunarbilnum til Borgar- fjarðar, þar sem dvalið verður til mánudags. Gengið um fjörur og fjöll. Siðan er bækistöðin flutt á vegarenda i Fljótsdal. Þar verður farið i lengri og skemmri göngur, hugað að hreindýrum, og gengið á Eyjabakka og Snæfell. Flogið heim frá Egilsstöðum á sunnu- dag. Tjöld. Verð: 18.500 kr. Vestfirsku alparnir 5.-18. ágúst 14 dagar. Farið með áætlunarbilnum til Þingeyrar og dvalið i húsi út með Dýrafirði. Gengið þaðan um strönd, fjöll og dali skagans hrikalega milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar. Hægt verður að velja um léttar eða strahgar gönguleiðir. Að ferðinni lokinni er hægt að halda áfram i ferð nr. 15 á Ingjalds- sand. Verð: 17.200 kr. Þeistareykir — Náttfaravikur 11.-20. ágúst 10 dagar. Flogið til Húsavikur kl. 9.30 og ekið til Þeistareykja seinnihluta dagsins. Dvalið þar i góðum skála og gengið um nágrennið, sem er stórfenglega fagurt en utan al- mennra ferðaleiða. Siðan haldið til Húsavikur og með báti i Naustavik, þar sem einnig er svefnpokapláss, og gengið um fjöll og strönd. Gott aðalbláberja- land og margbrotnir steinar i fjörunni. Verð: 19.900 kr. Ingjaldssandur — Fjallaskagi 19.-25. ágúst 7 dagar. Farið með áætlunarbil til Dýrafjarðar og þaðan með bil á Ingjaldssand, þar sem gist verður inni og gengið um strönd og fjöll. Gott aðalbláberja- land. Verð: 11.800 kr. Þórsmerkurferðir Þórsmerkurferðir verða á föstudagskvöldum kl. 20 frá 2. júli til 13. ágúst og verður dvalið i tjöldum i Básum eða Stórenda. Hægt verður að dvelja viku á milli ferða. Komið heim á sunnu- dagskvöldum nema um verslunarmannahelgi. Vatnajökulsferðir 15. júli, 4 dagar, 21. júli, 5 dagar 5. ágúst 4 dagar, 11. ágúst 5 dagar, 18. ágúst, 5 dagar. Á framangreindum dögum verður farið i Gæsavötn, brottf. kl. 8 að morgni. Einn eða fleiri dagar verða'Valdir til Vatnajökulsferðar með Kisa eða Bangsa Jöklaferða. Hina dagana verður farið i Vonarskarð og á Trölldyngju með viðkomu i sundlauginni á Mar- teinsflæðu. Skálagisting möguleg. Verð4dagar7600kr.,5dagar 9500 kr., skálagisting og jökulferðin ekki innifalin. Útivist er umboðsaðili Jökla- ferða á Akureyri og veitir nánari upplýsingar. Styttri ferðir I áætlun félagsins eru einar 136 ’siðdegis- og helgarferðir á árinu og auk þess 14 kvöldferðir, en hin fyrsta þeirra er farin 5. mai. Ef við birtum listann frá páskum, þá hljóðar hann svo: 15. april Snæfellsnes 5 dagar (gist inni) 15. — Húsfell 16. — Ásfjall — Grimsnes 17. — Arnarþúfur- Rjúpnadalir 18. — Hafravatn — Langavatn 19. — Æsustaðafjall 22. — Fjöruganga i Hvalfirði 24. — Alftanesfjörur 25. — Móskarðshnúkar — Trana 1. mai Þráinsskjöldur — Meradalir 1 — Selatangar 2. — Garðskagi — Básendar (fuglask.) 2. — Vogastapi 8. — Hólmshraun 9. — Fagradalsfjall 9. — Hafnaberg — Reykjanes (fuglask.) 15 — Kistufell i Esju 16. — Strönd Flóans 16. — Skálafell á Hellisheiði 22. — Seljadalur 23. — Dyngnahraun 23. — Keilir 27. — Esja 29. —Snókalönd — óbrynnishólar 30. — Hengill H vitasunnuferðir: 4. júni Húsafell, 4 dagar 5. — Geldinganes 6. — Rauðhólar — Hólmsá 7. — Vifilsfell 11. — Skarðsheiði — Andakill, 3 dagar 12. — Dauðudalahellar 13. — Hvalfell — Glymur 16. — Skagi — Drangey 5 dagar 17. — Þjófakrikahellar 19. — úlfarsfell 20. — Selvogsgata 20. — Krisuvikurberg (fuglaskoðun) 25. — Tindfjallajökull, 3 dagar 26. — Heiðmerkurganga 27. — Dyravegur 27. — Grafningur 2. júli Eiriksjökull 3 dagar 3. — Kringum Elliðavatn 4. — Helgafell — Valahnúkar 10. — Straumssel 11. —- Akrafjall (með Akraborg) 17. — Geldinganes 18. — Fjöruganga við Hvalfjörð 24. — Húsfellsbruni 25. — Marardalur Verslunarmannahelgi: 30. — Einhyrningsflatir — Tindafjöll 4 d. 30. — Hitardalur, 4 dagar 30. — Gæsavötn — Vatnajökull 4 dagar 30. — Þðrsmerkurferð 4 dagar 31. — Reykjaborg — Hafravatn I. ág. Hvaleyrarvatn — Ástjörn 2. — Smyrlabúð 6. — Laxárgljúfur 3 dagar 7. — Gjásel 8. — Grimmansfell 13. — Hvanngil — Hattfell, 3 dag- ar 14. — Lyklafell \ 15. — Reynivailaháls eða fjöruganga 20. — Hvitárvatn — Karlsdráttur, 3 dagar 21. — Húsfell 22. — Blákollur 7 Leiti 27. — Dalir- Klofningur, 3 dagar. 28. — Lækjarbotnar — Hólms- hraun 29. — Brennisteinsfjöll 29 Hliðarendahellar — Selvogur 3. sept. Hlöðuvellir — Brúarárskörð 3 d. 4. — Með Þerneyjarsundi 5. — Skálafell — Svinaskarð 10. — Ogmundur — Kerlingar- gljúfur 3 d. II. — Bláfjallahellar 12. — Krísuvikurberg 17. — Snæfellsnes, 3 dagar 18. — Dauðudalahellar 19. — Fuglaskoðun á Garðskaga 19. — Hólmsberg 24. — Haustferð i Húsafell 3 dagar 25. — Þjófakrikahellar 26. — Grindaskörð (hellaskoðun) 2. okt. Selatangar 3. — Keilisnes — Staðarborg 9. — Dauðudalahellar. 10. — Þverárdalur — Esja 16. — Vifilsstaðir — Elliðavatn 17. — Vifilsfell — Jósepsdalur 23. — Miðdalsheiði 24. — Fjöruganga á Kjalarnesi 30. — Seljadalsbrúnir — Búrfell 31. — Bláfjöll 6. nóv. Hellaskoðun i Helgadal 7. — Stóri-Meitill 13. — Geldinganesfjörur 14. — Um Álftanes 20. — Norðurströnd Seltjarn- arness 21. — Kapelluhraun — Hvaleyri 27. — Gufunes — Grafarvogur 28. — Hólmsá — Rauðhólar 5. des Rjúpnahæð og viðar 12. — Lækjarbotnar — Geitháls 19. — Með Viðeyjarsundi 26. —Skammdegisferð til Grinda- vikur 31. — Áramótaferð 3 dagar Kvöldferðir 5. mai Esjuhliðar 12. — Bláfjallahellar — Kóngsfell 19. — Með Hólmsá 26. — Úlfarsfell 2. júni Með Elliðaánum 9. — Mosfell 16. — Bláf jallahellar — Þrihnúkar 21. — Sólstöðuferð i Viðey 23. — Jónsmessunæturganga 30. — Hjallar 7. júli Grótta — Seltjarnarnes 14. — Austan Afstapahrauns 21. — Rauðuhnúkar 28. — Búrfellsgjár —hm Sovéskar bækur og tímarit (á ensku), hljómplötur og nótur. Opift frá kl. 10—12 og 14—18, föstudaga til kl. 19, laugardaga kl. 10—12. ERLEND TÍMARIT Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig 2. hæft

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.