Þjóðviljinn - 14.04.1976, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 14.04.1976, Blaðsíða 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 14. aprí! 1976. Fyrsti stórleikur ársins í knattspyrnu: U-landsleikurinn Ísland-Lúxembúrg fer fram í kvöld á Melavellinum — íslendingum dugar jafntefli til aö komast áfram i EB unglinga i kvöid kl. 20.00 hefst á Melavellinum i Reykjavík ung- lingalandsleikur í knattspyrnu milli íslendinga og lúxembúrgara og er þetta síðari leikur þjóðanna i undan- keppni Evrópukeppni unglinga í knattspyrnu, en úrslita- keppnin fer fram i Ungverjalandi í vor. Fyrri leikur þjóðanna fór fram sl. haust í Lúxembúrg og þann leik unnu íslendingar og dugar þeim því jafntefli í þessum leik til að komast áfram í lokakeppnina. Liðin eru skipuð leikmönnum 18 ára og yngri. Ef íslenska liðinu tekst að komast í lokakeppnina verður það í 3. sinn á 4 árum sem islenska u-landsliðið kemst í lokakeppni EB unglinga. Landslið íslands i kvöld verður þannig skipað: 1. Jón Þorbjörnsson, Þrótti 2 Guðmundur Kjartansson, Val 3 Börkur Ingvarsson KR 4 Agúst Karlsson, Fylki 5 Róbert Agnarsson, Vikingi 6 Haraldur Haraldsson Vík. 7 Albert Guðmundsson, Val 8 Valdemar Valdemarsson UBK 9 Halldór Arason, Þrótti 10 Pétur Ormslev, Fram 11 Þorvaldur Þorvaldss., Þrótti Varamenn: Halldór Pálsson KR Sigurður Björgvinsson IBK Pétur Pétursson ÍA Þorgils Arason, Vikingi Stefán Stefánsson Þrótti Liðið hefur æft reglulega sam- an siðan um áramót en þess ber einnig að geta að þetta er svo til sama lið og sigraði i Lúxembúrg sl. haust og þá hafði liðið æft sam- an allt sumarið, þannig að leik- menn eru orðnir óvenju vel sam- æfðir. Þjálfarar og stjórnendur liðsins eru Lárus Loftsson og Theódór Guðmundsson, en þeim til að- stoðar er landsliðsþjálfarinn Tony Knapp. Gunnar Guðmundsson júdómaður: Skilaði íslands- meistara bikarnum tel að Halldór eigi að fá bikarinn fyrst hann er talinn sá besti -Sá sem verður islands- meistari i einhverri grein iþrótta hefur um leið unnið sér sæmdarheitið besti iþrótta- maður landsins i viðkomandi grein, hafi allir sem til greina koma tekið þátt i keppninni. Ég vann þennan titil á isiandsmótinu um daginn, sigraði þá Halldór Guðbjömsson, sem varð í 3. sæti, en svo þegar landslið er valið telja forráðamenn júdó- sambandsins að Halldór sé sá besti og setja hann I 1. sæti i landsliði. Þess vegna skilaði ég islandsmeistarabikarnum, mér finnst rétt að Halldór fái hann fyrst hann er talinn sá besti, þann bikar á ekki annar að hafa en sá besti, sagði Gunnar Guðmundsson júdó- maður úr Keflavik, er við ræddum við hann i gær, en Gunnar hefur neitað að taka sæti númer 2 f landsliðinu og fer þvi ekki á NM f júdó sem háð verður um páskana. Okkur Ómari finnst sem gengið sé á rétt okkar með þvi að setja okkur f 2. og 3. sæti og getum þvi alls ekki tekið sæti i landsliðinu sagði Gunnar. Þeir hafa að minu viti dæmt mig frá sem islandsmeistara með þessuog þvi vil ég hvorki hafa bikarinn, né taka sæti i lands- liðinu. S.dór Gerpla svarar: Rangtúlkun stjórnar fimleikasambandsins Eins og áður hefur komið fram hætti Fim leikadcild Gerplu við þátttöku i íslands- móti Fimleikasambands ís- lands i kvennaflokki, meðal annars vegna þess að fyrir- sjáanlegt var að þátttakendum yrði mismunað vegna skorts á dómurum með réttindi til að dæma efri gráður fimleikastig- ans og sendi þvi ekki inn skrá yfir þátttakendur, enda er hverju félagi frjálst hvort það tekur þátt I opinberu móti eða ekki. Fimleikadeildin taldi ástæðu til að gera opinberlega grein fyrir afstöðu sinni eftir að ljóst var að F.S.I. fór með ósannnindi innan sinnar stjórnar. Birtist siðan svar stjórnar F.S.Í. Þar vill stjórn íimleikasambandsins draga sérstaklega eina stúlku inn i málið og sakfella hana um að með því að vera of áhugasöm við æfingar og af þeim völdum komin lengra i fimleikastigan- um heldur en isl. dómarar hafi rétt til að dæma. Hafi hún orðið þess valdandi að stöllur hennar Róbert Agnarsson, miðvörður u-iandsiiðsins gnæfir þarna uppúr á miðri mynd en hann var miðvörður Vikings sl. sumar .og er einn af okkar efnilegustu varnarieikmönnum um þessar mundir. „Dollara prinsinn” mættur til leiks Sem kunnugt er réði KSt Tony Knapp landsiiðsþjálfara fyrir það keppnistimabil sem nú fer i hönd og er þetta i fyrsta sinn sem sérstakur landsliðsþjálfari er ráðinn i fullt starf hjá KSt. Að sögn fróðra manna er þetta ævintýri KSÍ-stjórnarinnar mjög dýrt, Knapp mun kosta KSl hátt á Stu milijón króna þegar allt kemur til alls og nefna gárungar hann nú „dollaraprinsinn” enda hafa þjálfara aldrei verið greidd önnur eins laun hér á landi og Knapp nú. Fyrir utan að sjá um undir- búning A-landsliðsins fyrir þá fjóra leiki sem það leikur i sumar, sem þegar hafa verið ákveðnir en unnið er að þvi að fá fleiri leiki fyrir liðið, mun Knapp sjá um þjáifun u-lands- liös 18 ára og yngri ef það kemst áfram i lokakeppni EB og liðs 16 ára og yngri en Norðurlandamót pilta á þeim aldri fer fram hér i sumar. Þá mun Knapp verða einskonar scndikennari á veguns KSÍ og geta félög fengið hann til að leiðbeina um þjálfun og til að koma á rabbfundi i sumar. hafi neyðst til að hætta við þátt- töku i tslandsmeistaramótinu eftir að stjórn fimleikadeildar Gerplu hafi tekið afstöðu með henni. Gerir stjórn F.S.Í. sér ekki grcin fyrir að þar cr hún að vega að þeim félagsþroska sem skap- ast hefur innan félagsins sem ungmennafélagshreyfingin hef- ur lagt svo rika áherslu á og ætti að vera auðskilið hvcrjum manni? Form. F.S.Í. Asgeir Guð- mundsson hringdi og óskaði eft- ir að stjórn Fimleikadeildar Gerplu kæmi til fundar við hluta af stjórn F.S.Í. (hverjir hinir út- völdu voru úr F.S.l. er ekki vitað). Reyndist ógerlegt að halda fund það sama kvöld og hafði form. ekki samband við mig eftir það. Tony Knapp Ekki er að efa að félög útá landi geta haft af þessu nokkuð gagn svo og öll félög i sambandi við tilsögn þjáifara þeirra sem sjá um þjáifun yngri flokka félaganna. Samt er það svo að mörgum finnst KSÍ hafa ráðist í full mikið að ráða þjálfara fyrir þessa háu upphæð og segja sem svo að hægt hefði verið að fá innlenda þjáifara i sendikennarastarfið fyrir margfalt lægri upphæð, en samt hefði það komið að svipuðu gagni. -S.dór Við viljum benda Ásgeiri Guðmundssyni á að einn aðal- maður tækninefndar Margrét Jónsdóttir og fleiri aðilar töldu það mjög æskilegt fyrir kepp- endur dómara og þjálfara að fenginn yrði erl. dómari til að vera yfirdómari á þessu móti eins og málin stóðu, ekki til að dæma þessa einu stúlku heldur allar og þá að sjálfsögðu þær stúlkur sem fimleikasambandið bendir réttilega á i grein sinni að hafi unnið sér rétt til að keppa i efri þrepunum. Einnig kemur fram i grein F.S.Í. að þeim hafi verið boðið að greiddur yrði kostnaður sem fylgdi þvi að fá erl. dómara og töldu þeir það einungis hláturs- efni. I grein stjórnar F.S.t kemur Framhald á bls. 18.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.