Þjóðviljinn - 14.04.1976, Blaðsíða 14
14 StOA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 14. apríl 1976.
Mikið um
að vera á
Húnavöku
Leikfélag Blönduóss sýnir „Þið
munið hann Jörund” á Húnavöku
á sérstæðan hátt. Hér eru Charlie
Brown og Stúdiósus leiknir af
Njáli Þórðarsyni og Sturlu
Þórðarsyni.
Húnavakan hefst á Blönduósi
annan dag páska 19. aprfl og
stendur i viku. Hefst vakan með
guðsþjónustu I Blönduóskirkju,
en önnur dagskráratriði Húna-
vökunnar fara fram í Félags-
heimilinu á Blönduósi. Þar verða
leikrit sýnd fimm sinnum, auk
þess, sem fjórum sinnum verða
fluttar dagskrár með blönduðu
efni. Þá verða einnig kvikmynda-
sýningar, og sex kvöld dunar
dansinn fram eftir nóttu og geta
ungir sem aldnir skemmt sér við
undirleik hljómsveitarinnar
Gauta frá Siglufirði.
,,Þið munið hann
Jörund" á Húnavöku
Það atriði sem trúlega vekur
mesta forvitni á Húnavökunni að
þessu sinni er sýning leikfélags
Blönduóss á leikriti Jónasar
Árnasonar ,,Þið munið hann
Jörund”.
Sýning þessi er sett upp á nokk-
uð sérstæðan hátt, þ.e.a.s. að ekki
er notað hið hefðbundna leiksvið,
heldur fer leikurinn fram á dans-
gólfi Félagsheimilisins á Blöndu-
ósi. Áhorfendur sitja allt i kring-
um leikendurna og verða þannig i
náinni snertingu. Til að auka
stemmninguna verður áhorfend-
um veitt öl að vild og er þess
vænst að þeir taki hraustlega
undir viðlögin i hinum bráð-
skemmtilegu lögum Jónasar
Arnasonar.
Jónas Árnason hefur sagt að
þessi sýning sé einmitt sett upp á
þann hátt, sem hann hugsaði sér
þegar hann skrifaði leikritið. Er
þetta i fyrsta sinn, sem það er
gert. Vonast höfundur til að i
Félagsheimilinu á Blönduósi riki
likt andrúmsloft og i enskum
krám á timum Jörundar.
Mjög hefur verið vandað til alls
undirbúnings að þessari sýningu,
enda er mikið um dýrðir og stór-
afmæli framundan. Þar ber hæst
100 ára afmæli Blönduóss, sem
haldið verður upp á i byrjun júli i
sumar og þar verða fleiri sýn-
ingar á Jörundi, meðal annars
efnis.
Þá er Leikfélag Blönduóss að
halda upp á sitt eigið afmæli, þvi i
ár eru 50 ár siðan regluleg leik-
starfsemi hófst á Blönduósi.
Með aðalhlutverk i Jörundi fara
þeir Sigmar Jónsson. sem leikur
kaptein Jörund, Njáll Þórðarson,
sem leikur Charlie Brown og
Sturla Þórðarson, sem leikur
Stúdiósus.
Leikstjóri er Magnús Axelsson,
Reykjavik,en leikmynd gerði Jón
Þórisson, Reykjavik. Formaður
Leikfélags Blönduóss er Skúli
Pálsson simaverkstjóri.
Leikritið Þið munið hann
Jörund verður frumsýnt á
Blönduósi laugardaginn 17. april,
en á Húnavöku verður leikritið
sýnt kl. 16.00 á annan dag páska,
kl. 20.00 föstudaginn 23. april og
kl. 17.00 bæði á laugardag og
sunnudag.
Leikklúbbur Skaga-
strandar
sýnirTobacco Road
á Húnavöku
Leikklúbbur Skagastrandar
sýnir leikritið Tobacco Road á
Húnavöku laugardagskvöldið 24.
april. Leikritið er eftir Jack Krik-
land, en Jökull Jakobsson sneri
þvi á islensku. Leikstjórn annað-
ist Kristján Jónsson hjá Leik-
klúbbnum.
Alls eru ellefu hlutverk i leikn-
um en með helstu hlutverk fara:
Hallbjörn Hjartarson, Guðný
Sigurðardóttir, Elin Jónsd.,
Hjörtur Guðbjartsson og Birna
Blöndal.
Tobacco Road hefur verið sýnt
viða um land og. hvarvetna við
mjög góðar undirtektir
áhorfenda. Má fullvist telja að
sýning Leikklúbbsins á Skaga-
strönd svikur engan á laugar-
dagskvöld Húnavöku.
Kempan úr Selárdal,
Hannibal Valdimarsson
ávarpar Húnavökugesti.
Fastur liður á Húnavöku um
margra ára skeið hefur verið svo-
nefnd Húsbændavaka. Hefur hún
jafnan verið mjög fjölsótt. Meðal
efnis sem nú verður á Húsbænda-
vöku má nefna að Hannibal
Valdimarsson sækir húnvetninga
heim og flytur ávarp. Þá kemur
þar eftirherman góðkunna Karl
Einarsson fram og hefur hann
sitthvað i pokahorninu.
Lúðrasveit Blönduóss leikur
nokkur létt lög á Húsbændavöku
en henni stjórnar örn óskarsson.
Einnig tekur söngflokkur, sem
kallar sig Albræður lagið.
Auk þessa verður fluttur á Hús-
bændavöku það sem kallað er
„Húnavökuhúmor”. Þar munu
þekktir og óþekktir listamenn úr
Húnaþingi bregða upp svipmynd-
um af húnvetnsku mannlifi.
Húsbændavakan verður kl.
20.00 á miðvikudag.
Söngur,grín og gaman
Hjálparsveit skáta á Blönduósi
tekur að venju saman reviu-
kabarett og flytur á Húnavöku.
Þar mun sem fyrr kenna margra
grasa og verða þar bæði leikþætt-
ir, söngur grin og gaman.
Reviukabarettinn verður frum-
fluttur á sumardaginn fyrsta kl.
20.00 en endurtekinn á sunnudag
kl. 14.00.
Barnaskólinn á Blönduósi
verður með skemmtun á sumar-
daginn fyrsta kl. 15.00.Þar verður
fjölbreytt dagskrá og þar munu
margir stiga sin fyrstu spor á
leiksviði.
Auk þess, sem hér hefur verið
talið sýnir Blönduósbió kvik-
myndir á Húnavöku. M.a. verður
þar sýnd kvikmyndin The Sting,
sem hlotið hefur sjö Óskarsverð-
laun og hvarvetna verið sýnd við
metaðsókn á Húnavöku á sunnu-
dagskvöld kl. 20.00.
Dnasinn dunar
fram á nótt
A Húnavökunni verður dansað
öll kvöld, nema á þriðjudags-
kvöld. Það er hljómsveitin
Gautar frá Siglufirði, sem leikur
fyrir dansi á Húnavöku, en hún
hefur oft áður skemmt þar.
Dansleikir hefjast öll kvöld kl.
22.00 nema á fimmtudagskvöld
Likan af félagsheimilinu og hótelinu á Selfossi, sem nú er hafin bygging á.
Arvaka Selfoss
með myndabrag
Arvaka Selfoss hefst i dag.
Þetta er i fjórða sinn frá 1972,
sem árvaka er haldin, og skipar
hún nú veglegan sess i
menningarlifi Selfoss, Árncs -
sýslu og jafnvel Suðurlands i
heild. Hvatinn að Árvökunni var
i upphafi ráðagerðir um
bvggingu félagsheimilis á
Selfossi, og rennur allur ágóði
hennar i bygginguna.
Árvakan hefst með kvöldvöku
i Selfossbiói i kvöld. Þar leikur
Lúðrasveit Selfoss, Óli Þ.
Guðbjartsson, oddviti Selfoss,
setur Arvökuna. Kirkjúkór
Selfoss syngur undir stjórn
Glúms Gylfasonar, Stúlknakór
Gagnfræðaskóla Selfoss syngur
undir stjórn Jóns I
Sigurmundssonar, Hallgrimur
Helgason stjórnar Samkór
Selfoss og Karlakór Selfoss
syngur undir stjórn Ásgeirs
Sigurðssonar. Þá leikur
Dixieland-sextett Lúðrasveitar
Selfoss undir stjórn Asgeirs
Sigurðssonar. Milli söngatriða
veröa stutt dansatriði. Þá leikur
Hljómsveit Gissurar Geirssonar
fyrir dansi til kl. 2. Barnagæsia
verður i Tryggvaskála milli kl.
20 og 23 á vegum Hjónaklúbbs
Selfoss.
Sjö sýningar opna alla dagana.
Á morgun, Skirdag, verða
opnaðar kl. 14 fimm sýningar á
Selfossi, auk þess sem Byggða-
safnið og Listasafn Árnessýslu
verða opin alla árvökudagana..
Það eru: sýning á verkum
Ásgrims Jónssonar, sýning á
verkum Pétur Behrens, Keldna-
koti, Stokkseyrarhreppi, i Safn-
húsinu. sýning Húsfriðunar-
nefndar i máli og myndum um
varðveislu gamalla húsa i Gagn-
fræðaskólanum, frimerkja-
sýning i Gagnfræðaskólanum á
vegum Frimerkjaklúbbs
Selfoss. Siðar um daginn verður
knattsþyrnukeppni og hópreið
Hestamannafélagsins Sleipnis
um götur Selfoss. Um kvöldið
kl. 20.15 sýnir Skagaleik-
flokkurinn „Gisl” eftir
Brendhan Behan i Selfossbiói.
Leikstjóri er Herdis
Þorvaldsdóttir.
„Elía" i Selfosskirkju.
og ,/Listaská Idin vondu."
Á föstudaginn langa teflir
Björgvin Viglundsson, skák-
maður úr Reykjavik, m.a.
kiukkufjöltefli við 15 valda
skákmenn úr Árnessýslu i
Selfossbiói. Um kvöldið flytur
Kór Söngskólans i Reykjavik
ásamt Sinfóniuhljómsveítinni i
Reykjavik óratóriuna ELtA
eftir MendelssohnStjórnandi er
Garðar Cortes. Þetta er 65
manna kór, 50 manna hljóm-
sveit ásamt átta einsöngvurum.
Á laugardaginn 17. april verður
helst til tiðinda á Arvökunni að
leikarar úr Leikfélagi Kópavogs
sýna „Rauðhettu” tvisvar.
sinnum og um kvöldið verður
popphátið i Selfossbiói. Nefnist
hún „Tónaregn” og koma þar
fram margar hljómsveitir. Kl.
23 hefst Páskavaka i Selfoss-
kirkju. Prestur er sr. Sigurður
Sigurðarson.
Á Páskadag eru fyrir utan
messu fjölbreytt iþróttamót, og
m.a. Viöavangshlaup Selfoss og
Badmintonmeistaramót Sel-
foss. Um kvöldið koma „Lista-
skáldin vondu” og efna til vöku I
Selfossbiói.
Annan i páskum eru
iþróttamót og unglingadans-
leikur i Selfossbiói, og Árvöku
verður slitið þar kl. 24 um
kvöldið.
Framhald á bls. 18.
Vorleikur
Það er um að gera að belgja sig út, þegar stlga skal I vænginn við veik-
ara kynið. EK tók þessa mynd af dúfnapari f góðviðrinu á
' sunnudaginn.