Þjóðviljinn - 14.04.1976, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 14.04.1976, Blaðsíða 20
E f/ÖMU/M 3 Miövikudagur 14. april IÍI7B. Samkomu- met á Horna- !»• x • tiroi þegar kynrit voru verk Jónasar Arnasonar „paö er stemning yfir þessari menningarviku hjá okkur.” sagöi borsteinn Þorsteinsson, fréttaritari Þjóöviljans á Höfn f gær. „Hér á sunnudagskvöldiö var svo mikil aösókn aö aldrei hefur annaö eins sést. Þá var Jónasarkvöld hjá okkur og kynnt verk eftir Jónas Arnason. Sindrabær rúmar ekki nema rúmlega 230 manns i sæti,en á samkomuna komu um 450 manns. Lesiö var og sungiö úr verkum Jónasar Arnasonar, Leikfélag Hornafjaröar flutti leikritiö „Táp og fjör” undir leikstjórn Sunnu Borg og höfundurinn sjálfur ávarpaði og skemmti gestum eftir aö hafa verib rækilega kynntur af Helga Seljan, alþingismanni. Þetta var afskaplega ánægjulegt kvöld”, sagði borsteinn. „Þaö eru fleiri góðir gestir sem koma hingaö á menningar- vikuna. í kvöld eru „Listaskáld- in vondu” hér á ferö, og á morgun kemur kór Menntaskól- ans i Hamrahlið i heimsókn ásamt rektor skólans, Guð- mundi Arnlaugssyni. Á skirdag er guðsþjónusta og barnasam- koma, þar sem m.a. verður endurfluttur hluti af dagskrá kynningarinnar á verkum Jónasar. Á skirdagskvöld er kvöldvaka, þar sem m.a. kirkjukórinn og Lúðrasveitin koma fram. Þar syngur einnig Sigurveig Hjaltested, óperu- söngkona. Heimamenn leggja einnig drjúgan skerf til menn- ingarvikunnar með upplestri, söng og erindum. Eldra fólk hér um slóðir talar mjög um að þessi menningarvika minni það á menningarmótin svokölluðu sem hér voru árlegur viðburður i eina tið.” Miljón á 59446 Þriöjudagínn 13. april var dregið i 4. flokki Happdrætbs Há- skóla Islands. Dregnir voru 9.000 vinningar að fjárhæð 118.350.000 krónur. Hæsti vinningurinn kr. ein mil- jón kom á miða nr. 59446. Tromp- miðinn og tveir aðrir voru seldir i umboðinu i KEFLAVIK, einn var seldur i umboðinu MIÐBÆ, Háa- leitisbraut, og einn á HÓLMAVIK. 500.000 króna vinn- ingur kom á miða nr. 23.420. Trompmiðinn og þrir aðrir voru seldir I umboðinu KEFLAVIK, en einn miðinn i umboðinu BAKKA- GEEÐI, Borgarfirði eystri. ítalskir stjórnmálaflokkar þáðu breskar mútur HAAG 13/4 — Brésk-hollenski oliuhringurinn Shell upplýsti i dag að dótturfyrirtæki hans á italiu, Shell Italiana, hefði greitt itölskum stjórnmáiaflokkum of fjár á árunum 1969-73. Segir i yfirlýsingunni frá hringnum ali greiðslurnar hafi gengið tii ýmissa flokka, þó hvorki til öfga- flokka lengst til hægri né róttæk- ustu vinstriflokkanna. IMun hér að ræða hliðstæðar mútugreiðslur og Lockheed og fieiri bandariskir auðhringar hafa undanfarið orðið uppvisir að, inntar af höndum i þvi skyni greiða fyrir viðskiptum hring- vera um Finnland: YFIR 40 FARAST I SPRENGINGU HELSINKI 13/4 NTB-FNB — Að minnsta kosti 43 menn, flestir konur á fertugsaldri, fórust er ein deild skotfæraverksmiðju finnska rikisins i Lappo sprakk i loft upp i morgun. L'm sjötiu að minnsta kosti i viðbót slösuöust. Ilúsið. sem sprengingin varð i, splundraöist gersa m Iega. Löngu eftir að fyrsta og mesta sprengingin varð héldu skot- liylki áfram að springa i logandi rústunum og gerði það aö verk- um að hjörgunarstarfið varð erfitt og hættulegt. Mörg hús i nágrenni vð verk- smiðjuna eyðilögðust og hefur Rauði krœsinn gert ráðstafanir til þess að útvega þeim, sem af þeim sökum urðu heimilislaus- ir, samastað til bráðabirgða, og einnig til hjálpar smábörnum, sem misstu mæður sinar i sprengingunni, en þau eru ail- mörg. Rikisstjórnin hefur skip- að rannsóknarnefnd til að komast fyrir um ástæðuna til slyssins. Skotfæraverksmiðjan er i miðjum Lappo, sem er 15.000 manna bær i sunnanverðum Austurbotni. Þar vinna um 500 verkamenn og er verksmiðjan stærsta iðnfyrirtæki héraðsins. Þar hafa verið framleidd skot- hylki siðan 1925. Siðustu árin hefur um 70% framleiðslunnar verið flutt út. Malmiðnaðarmannasamband Finnlands, sem verkamennirnir i skotfæraverksmiðjunni eru i, segir i yfirlýsingu að sprenging- in sé alvarleg áminning um það. hve hættulegt það sé að gæta ekki fyllstu varkárni hvað snertir öryggisráðstafanir á vinnustöðum. Sambandið hafði þegar fyrir nokkru haldið þvi fram að varúðarráðstafanirnar i þeirri deild verksmiðjunnar, þar sem sprengingin varð, væru ófullnægjandi. Lundúnablaðið Sunday Times hélt þvi fram nýlega að nokkrir stærstu oliuhringanna, þar á meðal Shell, BP og Esso, hefðu borið fé á italska stjórnmála- menn. Það fylgir með að fram- lögin frá Shell hafi numið um 500.000 sterlingspundum. Þessar upplýsingar eru næsta óþægileg- ar fyrir bresku stjórnina, sem ræður yfir um 70% hlutabréfanna i BP. Sir Frank McFadzean, einn af ráðamönnum Shell, reyndi i dag að bera sakir af fyrirtæki sinu og hélt þvi fram að önnur fyrirtæki en oliuhringarnir væru engu siður sek hvað slikar mútu- greiðslur snerti. Nokkrir þingmenn sósialdemó- kratiskra flokka i Vestur-Evrópu hafa krafist þess að Efnahags- bandalag Evrópu láti rannsaka hvað hæft sé i þvi að oliufélög hafi mútað itölskum stjórnmála- mönnum. Þessar ásakanir hafa einnig komið við viðkvæmar taugar á ttaliu og kallaði Giu- seppe Saragat, fyrrum ttaliufor- seti, upplýsingar Sunday Times og Shell móðgun við italska borg- ara og sagði að ekki væri siður ástæða til að rannsaka hvernig „hin sovétsinnaði armur breska Verkamannafloksins” væri fjár- magnaður. Ekki mun hafa komið iram hvaða aðila i Verkamanna- flokknum Saragat á hér við. Sósíalistaflokkur Italíu Reiðubúinn til stjórnar- samvinnu við kommúnista RoM 13/4 NTB-Reuter- UPI — Sósíalistaf lokkur ítaliu hefur lýst sig reiðu- búinn til þess að mynda al- þýðuf ylkingarstjórn með kommúnistum ef vinstri- flokkarnir fá þingmeiri- hluta í næstu kosningum og Bikarkeppnin: r FH og Armann meistarar ekki reynist fært að koma á st jórnarsamvinnu á breiðari grundvelli og með þátttöku kristilegra demó- krata. Var það aðalritari Sósíc istaflokksins, Fran- cescode Martino, sem lýsti þessu yfir í viðtali, sem birt var í Róm í dag. t viðtalinu er einnig talinn hafa komið fram ótti við að valdarán hægrimanna ef kommúnistar yrðu áhrifamiklir i rikisstjórn. Almennt er nú talið að þing- kosningar verði á Italiu i júni og ganga flestar spár út á það að vinstriflokkarnir fái þá meiri- hluta á þingi. Minnihlutastjórn kristilegra demókrata hefur reynst ófær um að ráða bót á efnahagskreppunni, sem hrjáir landið, og liran heldur ,stöðugt áfram að siga gagnvart dollarnum. Urslitaleikir i bikar- keppni HSi fóru fram i Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Keppt var til úrslita bæði i karla- og kvennaflokkum og fóru leikar þannig i karla- flokki að FH vann Val með 19-17. i kvennaflokki sigraði Ármann Fram með 17 mörkum gegn 15, eftir framlengdan leik og vitakeppni. Óvinnufœrt hjá veiðiþjófunum Bresku veiðiþjófunum vegnar ekki vel á Vestfjarðamiðum þessa dagana. Litill afli hefur verið hjá þeirn þá daga, sem þeir hafa getað veriðað.og nú er kom- inn hörku bræla á miðunum þar sem þeir hafa stundaö iðju sfna siðustu dægrin. 27 veiðiþjófar voru á miðunum útafVestfjörðum ígær frá Vikur- ál að Hala. Hafa togararnir jafn- an híft aö skipan herskipanna þegar varðskip hafa nálgast. Siðdegis i gær voru komin 7 vind- stig á þessum slóðum og ekki hægt að vera við. Allir togararnir eru nú farnir af Austfjarðamiöum, og héldu þeir ýmisst heim eða á Vestfjaðamið. Væru bretar hér ekki að veiði- þjófnaði, sem þeir eru nú, héldu þeir sig að öllum likindum fyrir Suðurlandi, en þar hafa þeir verið á þessum árstlma undanfarið. En það eru herskip NATOflotans, sem ráða þvi hvar bretarnir spreyta sig við veiðarnar að þessusinni. —úþ Þrjá fyrstu mánuði ársins lönduðu togararnir rúmlega 4 þúsund lestum í erlendum höfnum tslensku togararnir lönduðu rúmlega 4 þúsund lestum af fiski erlendis þrjá fyrstu mánuði ársins og er það nærri fjórföldun miðað við það, sem var þrjá fyrstu mánuöi síðasta árs, en þá seldu þeir samtals tæplcga 1100 tonn erlendis. Séu sölur báta teknar með hafa samtals verið seldar um 4600 lestir erlendis þrjá fyrstu mánuði ársins, en 1450 lestir sömu mánuði siöasta árs. Gerist þetta á sama tima og ekki hefur tekist að halda uppi jafnri og stöðugri vinnu I fisk- vinnslustöövum viða um land vegna hráefnisskorts! Tölur þær, sem að ofan eru nefndar eru fengnar úr skýrsl- um Fiskifélags Islands. Þar kemur jafnframt fram, a,ð heildarafli landsmanna hefur minnkaö um 112 þúsund lestir á sama tima og auknar togarasöl- ur fara fram erlendis. Þess má svo geta, að sá fiskur sem Is- lensku togararnir og bátarnir einnig selja I erlendum höfnum, er niðurgreiddur á fiskmörkuð- A sama tima er hráefnisskortur i landinu! um erlendis, þar sem sfðan is- lenskir fiskframleiðendur keppa við þennan niðurgreidda islandsfisk! Nú kynni einhver að velta þvi fyrir sér hvers lags hugsunar- háttur sé að baki þvilikum gerðum þegar slik samdráttar- einkenni eru með framleiðslu þjóðarinnar sem nú. Og er það ekki að ástæðulausu. Nýverið samþykkti borgar- stjóm Reykjavikur að beina þeim tilmælum til útgerðarráðs BOR að það sæi til þess, að tog- arar þess lönduðu heima, svo vinna mætti eins mikil verð- mæti úr aflanum innanlands, sem frekast væri kostur. Styttra er síöan borgarstjórn Rvikur samþykkti að kaupa togarann Freyju.sem nú hefur verið skýrður Hjörleifur. Var það gert, að þvi er sagt var, til þess að tryggja Fiskiðjuveri BÚR meira hráefni, en það hefur átt kost á hingað til. Styst er þó slðan einn af tog- urum BÚR, Þormóður Goði, tæplega 800 lesta skip, sigldi alla leið til V-Þýskalands með 100 tonn I lestinni og seldi þau þar! Þessi 100 tonn hefðu að sjálf- sögðu ekki gerbreytt atvinnullfi á þeim stöðum, sem atvinna hefur lamast á vegna afla- brests. En þau, og öll hin 4600 tonnin hefðu getað orðið marg- falt verðmætari hefði þeim ver- ið landað á einhverjum þessara staða, td. Húsavik eða Þórs- höfn.Auk þess hefðu togararnir og bátarnir, sem siglt hafa með afla, sparað eldsneyti og getað verið lengur að veiðum og aflað meira hráefnis, en raun hefur orðið á, og sannarlega er ekki vanþörf á, þó ekki væri til annars en að geta fullmettað Bandarikjamarkaðinn og er þá hætt á að við töpum honum. — úb

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.