Þjóðviljinn - 14.04.1976, Page 11

Þjóðviljinn - 14.04.1976, Page 11
10 StÐA — ÞJÖÐVILJINN Miövikudagur 14. apríl 1970. Söngsveitin Fliharmonia ásamt Sinfóniuhljómsveit tslands. Söngsveitin og sinfónían Tónleikar í háskólabiói S. april 1970. Sinfóniuhljómsveit islands og Söngsveitin Filharinonia. Söngstjóri: Jón Asgeirsson Stjórnandi: Karsten Andersen Kinsöngvarar: Krövdis Klausberg. Kuth L. Magnússon, Magnús Jónsson, Guömundur Jónsson. Kfnisskrá: Giuseppe \'erdi: Sálumessa. Giuseppe Verdi er án efa eitt þekktasta tónskáld itala. Aðal- lega er hann frægur fyrir óperur sinar sem urðu fjölmargar og margar hverjar ómetanleg listaverk. Einkum hefur Verdi sérstöðu i óperusmið fyrir það hve vel honum tókst að halda upprunalegum einkennum ítölsku óperunnar en samt að taka upp mjög jákvæðar breyt- ingar. En þó Verdi hafi aðallega fengist við óperusmið þá eru nokkur önnur verk hans sem hafa náð mikilli útbreiðslu og hylli, eitt þeirra er sálumessa hans sem flutt var á þessum tónleikum af Söngsveitinni Filharmóniu og Sinfóniuhljóm- sveitinni. Þessi sálumessa er risavaxið verk bæði fyrir kór- inn, hljómsveitina og sérstak- lega einsöngvarana. Söngkonurnar Kuth L. Magnússon og Fröydis Klaus- berg báru af, bæði i sólóarium og þegar þær sungu tvær saman dúettinn ..Recordare Jesu pie”, SIGURSVEINN MAGNÚSSON SKRIFAR UM TÓNLIST það var tolrandi augnablik og stjórnandinn hefði e.t.v. mátt gefa þeim enn meira frjálsræði. Guðmundur Jónsson var einnig stórgóður, og ekki er hægt ann- að en undrast hve mikið hann gefur þessu erfiða hlutverki ef miðað er við sönglagagutl sem hann er þekktur fyrir i Rikisút- varpinu. Magnús Jónsson var dálitið sér á báti, honum er ókleyft að mynda liriskan tón sem er svo nauðsynlegur fyrir samlögun einkum i sóló- kvartettunum en þar skar rödd hans sig óþægilega mikið út úr, að visu gerir Magnús tilraunir til að syngja i falsettu en það bætir litið úr skák þvi þá er tónninn alltaf lágur og hangir neðan i réttri tónhæð. bað fer ekki á milli mála að mikil mis- tök hafa verið gerð að velja Magnús i þetta hlutverk sem hann þvi miður réði engan veg- inn við. bað hefði þeim sem völdu einsöngvarana átt að vera ljóst fyrirfram. Filharmóniu- kórinn var góður en virtist nokkuð rýrari en oft áður, það má þó vera vegna þess hve mjúkum höndum stjórnandinn tók á verkinu. Hljómsveitin var áberandi mjög góð, sérstaklega vil ég nefna baksviðstrompet- kallið sem oft fer i handaskolum en tókst ágætlega og eins fór með hina geysi erfiðu opnun Sellósveitarinnar á þætti nr. 3 Domine Jesu. Eins og áður sagði fór stjórnandinn óvenju mjúkum höndum um verkið og óneitan- lega hefði meiri harðneskja einstöku sinnum mátt rikja en mest er um vert hve flutningur- inn var heillegur og samvinna allra aðila var góð, flytjendur mega svo sannarlega vel við una. Lokið þriðjudaginn 13. april. Sigursveinn Magnússon. Hætta Vængir starfsemi? Fregnir berast nú af stjórnarfundi, sem hald- inn var í stjórn Flug- félagsins Vængja hf. í fyrrakvöld, þess efnis, að félagið hyggist selja allar vélar félagsins fyrir lok þessa mánaðar og hætta starfsemi. Ástæðan fyrir þessu er deila stjórnarinna.r við flugmenn, en stjórnarmenn geta ekki sætt sig við að flugmenn félagsins séu i stéttarfélagi og njóti þeirra réttinda, sem slikt veitir. Deila þessi er nú komin til rikissáttasemjara, Torfa Hjartarsonar. Sagði hann blaðamanni i gærkvöld, að hann hefði ekki enn ákveðið með hvaða hönskum hann ætlaði að taka á málinu, né heldur hvenær hann hyggist boða menn til sáttafundar. _úþ Milli 8 og 9 þúsund danir í þýska hernum KAUPMANNAHÖFN 12/4 NTB- RB — Á milli átta og niu þúsund danskir rikisborgarar gengu i þvska lierinn sem sjálfboöaliðar i heimsstyrjöldinni siöari og vai um fimmtungur þeirra af þvska þjóöernisminnihlutanum á Suður-Jótlandi. Voru þessir vigfúsu striðsmenn allir sendir á austurvigstöðvarnar, þarsem um helmingur þcirra, eða um 4200, lét lifið. betta kemur fram i bók, sem háskólaforlagiö i Odense hefur gefið út, og er höfundurinn majór nokkur að nafni O. Krabbe, sem sjálfur var meðal sjálfboðaliðanna. í bókinni, sem fjallar um framgöngu dönsku sjálfboða- liðanna i herjum þriðja rikisins, fer majór Krabbe i enga laun- kofa með samúð sina með nasistum og hernaði þeirra. Hefur þvi vakið mikla athygli og hneykslun að háskólaforlagið skyldi gefa út bók hans, en það mun gert með þvi fororði að bókin hafi mikið heimildagildi. Krabbe skrifar að algengasta ástæðan sem knúði unga dani til að fara i strið með nasistum, hafi verið samúð þeirra með nasismanum, en aðrir gengu i þýska herinr. vegna þess að þeir voru kommúnistahatarar eða ihaldsmenn. Flestir þeirra munu hafa þjónað i Waffen-SS. Majórinn heldur þvi fram að þjóðverjar hafi verið þvi sem næst blásaklausir af öllum striðsglæpum og að mestallt svoleiðis hafi verið banda- mönnum að kenna. Margrét Margeirsdóttir skrifar: UIFTON Lestin mjakaðist af stað, hægt og silalega, frá járnbrautarstöð- inni i Bristol. Þetta var árla morguns á mildum haustdegi i októbermánuði sl. Ferðinni var fyrst heitið til þorpsins Yeowil, sem er um 60 kilómetra fyrir sunnan Bristol i héraðinu Somer- set, en skammt utan við Yeowil er skóli, sem ætlunin var að heimsækja og fræðast um. Ferðin gekk fremur seint, þetta var greinilega innansveitarlest, sem fór sér ekki óðslega og var varla fyrr komin af stað, þegar hún þurfti að hægja ferðina aftur, annaðhvort til að hleypa stóru hraðlestunum inn á teinana, ell- egar nema staöar til að taka far- þega, sem biðu rólegir á hverri viðkomustöð. Kannske voru sum- ir þeirra bara að skreppa á milli bæja, en aðrir til þorpsins eða ef til vill alla leið til borgarinnar. Ég kom mér þægilega fyrir og notaði tækifærið til að virða fyrir mér hiö fagra landslag, svo langt sem augað eygði. Skógivaxnar hliðar teigöu sig til lofts, en við rætur þeirra voru hin mydarleg- ustu bændabýli. Rauð tigulsteins- húsin og bleikgulir akrarnir mynduðu órofa heild, sem gaf umhverfinu hlýlegan svip. Skógurinn skartaði ennþá hin- um græna sumarlit, haustið hafði ekki náð að setja svip sinn á trén nema eitt og eitt, sem glóði á þegar sólin varpaði skini sinu á gulbrúnan lit þeirra. Um það bil miðja vegu milli Bristol og Yeowil er borgin Bath, sem m.a. er fræg fyrir fagrar byggingar og húsagerðarlist. Þar er einnig að finna heitar upp- sprettur, og heilsuhæli, sem draga að mikinn fjölda ferða- manna ár hvert. Ekki gafst tæki- færi til að skoða þessa frægu boig, einungislita hana augum úr fjarska þar sem hún blasti við i allri sinni dýrð. Eftir tveggja stunda ferð kom- um við til Yeowil. Ég var varla stiginn út á brautarpallinn, þegar ungur maður og stúlka gengu til min og kváðust vera komin til aö taka á móti mér. A leiðinni til skólans fékk ég að vita að hann var aðstoðarforstöðumaður en hún skrifstofustúlka. Skólastjór- inn Hr. Cartar tók á móti okkur og bauðtilskrifstofusinnar, þar sem hann greindi frá aðdraganada að stofnun skólans og helstu starf- semi hans. Lufton Manor skólinn var sett- ur á stofn sfðla árs áriö 1968 i þeim tilgangi að veita vangefnu fólki þjálfun og kennslu i land- búnaðar- og garðyrkjustörfum. Það var Landsamband styrktar- félaga vangefinna i Bretlandi (The National Society for Mentally Handicapped.) sem beitti sér fyrir stofnun skólans og land- búnaöar- og garö- yrkju- skóli fyrir vangefna keypti þennan stað, sem var gamalt óðalsetur, i einu besta landbúnaðarhéraði i suður-Englandi. Gert er ráð fyrir að hið opin- bera taki við starfrækslu skólans i framtlðinni þar eð Landsam- bandið hefur ekki á stefnuskrá sinni að vera rekstraraöili stofnana.Hér er um að ræða verk- efni, sem hafið var i tilrauna- skyni, án þess að fordæmi fyndist annarsstaðar. Skólinn er sá fyrsti sinnar tegundar i Bretlandi, þar sem vangefnir fá þjálfun i land- búnaðarstörfum, sem gerir þeim kleift að vinna á almennum vinnumarkaði i vélvæddu tækni- þjóðfélagi. „Vangefnir verða að læra rétt vinnubrögð, það er ekki nóg að þeir alist upp i sveit og „venjis.t við störf” þeir þarfnast kennslu, sem er byggð upp á kerfisbundinn hátt og ekki er á færi annarra en sérmenntaðs starfsfólks,” sagði skólastjórinn. Nemendur skólanseru um 50 að sölu, á aldrinum 16—26 ára af báðum kynjum. Greindarvisitala þeirra er á bilinu 40—75 og koma þvi hvaðanæva að úr landinu, bæöi af stofnunum og úr heima- húsum. Miðað er viðað nemendur séu 2 ár í skólanum, en vikið er frá þessari reglu ef sýnt þykir að annað henti betur. Fyrstu 3 mán- uðirnir eru nokkurskonar reynslutimi, sem sker úr um það hvort nemandinn heldur áfram eða ekki. Tekið er tillit til áhuga og hæfni til að inna störfin af hendi likt og gerist hjá venjuleg- um nemendum. Á þessum tima fer fram m jög nákvæm athugun á nemandanum, er sérfræðingar skólans vinna að. Nemendur verða aö greiða skólagjöld sem eru nokkuð há, en viökomandi sveitarfélag veitir styrki ef Miövikudagur 14. aprii 1976. ÞJÓDVILJINN — SÍDA 11 foreldrar eða forráöamenn eru ekki færir um að standa straum af kostnaðinum. Auk kennara, starfa þarna ýmsir sérfræðingar, læknar sál- fræðingar o.fl., sumir að hluta til, aðrir i fullu starfi. Nemendur búa i litlum húsum, 6—8 i hverju, sem hafa verið reist á undanförnum árum, en allt ann- að fer fram sameiginlega i einni aðalbyggingu. Kennslan byggist aðallega á verklegri þjálfun og er framúrskarandi vel skipulögð, enda er skólinn aðlagaður þörfum nemenda en ekki hið gagnstæða. Garðyrkja er mjög mikil bæði i gróðurhúsum og utan þeirra. Allskyns tegundir grænmetis og blómjurtir eru ræktaðar I stórum stil og er framleiðslan seld á mörkuðum i nágrannaþorpunum. Nemendur sjá um þetta allt sjáK- ir undir handleiöslu kennara sinna. Annar þáttur skólans er hiröing og meöferö húsdýra. Kúabú er rekið þarna af miklum myndar- brag enda kýrnar af hinu fræga „Jerseykyni”, einnig er þarna bæði nýtiskulegt svinabú og stórt hæsna bú og er framleiðslan not- uð I þágu skólans en það sem verður umfram er selt þorpsbú- um I grenndinni. Nemendur eru einnig þjálfaðir i að fara með vél- art.d. traktora og önnur landbún- aðartæki, sem þykja ómissandi i nútimabúskap. Auk þess, sem nú hefur verið nefnt er félagsleg þjálfun eða samfélagsfræðsla rik- ur þáttur I náminu. Segja má að sú þjálfun gerist ávallt samhliða ári eftir útskrift hefur um 65% nemenda unnið á almennum vinnumarkaði við störf, sem þeir höfðu undirbúið sig fyrir i skólan- um. Aðrir hafa unnið á vernduð- um vinnustöðum eða hálfvernd- uðum. Við gengum út i sólina að afloknum hádegisverði. Félags- fræðingur frá Gahna, sem var þarna gestkomandi var i fylgd meö okkur. Sá var búinn að vera þarna I 2 daga til að fylgjast með öllu sem best. Hann kvaðst vera sendur af stjórn lands sihs til að kynna sér fræðslu og félagslega þjónustu I þágu vangefinna. Hann var ákveðinn i aö beita sér fyrir stofnun svipaðs skóla þegar hann sneri aftur til heimalands sins. Ég fullvissaði hann um að það væru skynsamleg áform. Við vor- um komin inn i eitt gróöurhúsið. Blómstrandi „fusicas” stóðu þarna i tugatali ásamt öörum tegundum, sem ég kunni engin skil á. Hópur af piltum var önnum kafinn I byggingarvinnu skammt frá. „Það er verið að reisa gróðurhús, það fjórða i röðinni”, mælti fylgdarmaður minn. Við gengum frá einum staönum til annars og allsstaðar voru nemendur að starfi úti og inni. Að lokinni skoðunarferð var boðið til tedrykkju og skrafaö saman. Það var álit þeirra, sem þarna áttu hlut aö máli, að árangur hefði orðið betri með þessa nemendur en flestir hefðu gert sér vonir um. Mér var sagt frá stúlku, sem var ein af fyrstu PÍíÍfft i Myndirnar eru allar úr Garðyrkjuskólanum. ööru námi allan skólatimann. Sem dæmi má nefna, að þekkja gildi peninga og gera nauðsynleg innkaup varðandi persónulegar þarfir t.d. fatnað og þ.h. Annað dæmi má nefna: að geta ferðast, þekkja samgöngutæki og vita hvernig á að nota þau. Hvað merkir timinn, i sambandi við al- menningsfarartæki, eöa i sam- bandi við vinnu. Hvað þýðir að vera stundvis. Heiisurækt og iþróttir eru stundaðar og nemendum er leiðbeint með hvemig þeir geta nýtt tómstundir sinar á þroskandi hátt. Hver dagur er vandlega skipu- lagður frá morgni til kvölds. Mikil áhersla er lögð á samhæf- ingu alls starfsfólks, sem annast þjálfun nemenda og er i þvi skyni mikið um hópfundi bæði meðal starfsfólks og nemenda sam- eiginlega, eða sitt i hvoru lagi. „Markmiðið með þessum sköla” sagði skólastjórinn er að gera nemendurna færa um að standa á eigin fótum i lifinu, geta séð sjálfum sér farborða og það getur enginn nema að hann kunni eitthvert starf. Ef vangefnir fá ekki þá þjálfun, sem þeir þarfnast, þá sviptum viö þá möguleikanum til að vinna og taka þátt i framleiðslunni og það þýöir að þeir öðlast aldrei neinn „status”. sem þjóðfélags- þegnar.” Ég spuröi um árangur þessa starfs hvernig nemendum vegn- aði eftir útskrift. Það er gert mik- ið af skólans hálfu til að fylgjast með ferli nemenda að lokinni skólavist. Haft er reglubundið samband við vinnuveitendur og foreldra mánuðum jafnvel árum saman. 1 liós hefur komið við tölulega attiugun að u.þ.b. hálfu nemendum þarna. Hún var rúm- lega tvitug þegar hún kom. Hafði alið mestallan aldur sinn á hæli fyrir vangefna við fremur léleg skilyrði. Hún mældist með rúm- lega 50 i greindarvisitölu. En sök- um þess hve natin hún var og hneigð fyrir dýr var unnt að þjálfa hana það mikið á tveimur árum að hún gat tekið að sér ein- föld störf á stórum búgarði og þannig unnið fyrir sér, en hún hafði unnið þar i rúm tvö ár og komið sér vel. Annaö dæmi var af pilti 16 ára gömlum, sem hafði alist upp i sveit,en foreldrunum gekk illa að kenna honum að vinna við bú- störfin og sendu hann á heimili fyrir vangefna, þar sem hann var látinn dútla við föndur i afþrey- ingarskyni. Þar var hann mjög óánægður ogundi sér illa. Honum var komið til reynslu i skólann. Þá kom i ljós að stráksi var þrek- mikill og duglegur að vinna llk- amlega vinnu. Hann var mjög hneigður fyrir fjósverk og kúa- hirðingu og tók það góðum fram- förum i þroska og þjálfun að foreldrarnir biðu með óþreyju eftir að fá hann heim i bústörfin. Og eftir það gekk allt vel. Mér var sagt frá nokkrum fleiri dæmum i svipuðum dúr og þessi, en lika voru önnur, sem miður hafði tek- ist með. Degi var tekið að halla og kom- inn timitil brottferðar. Ég kvaddi gestgjafa mina og hélt til Yeowil i veg fyrir lestina, til Bristol. Það var tekið að dimma og myrkrið huldi nú útsýnið. I fjarska liktist skógurinn dökkum vegg dulúðug- ur og eilitið ógnvekjandi. Ljósin I Bath blikuðu skært eins og stjörn- ur sem báru við húmaðan kvöldhimininn.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.