Þjóðviljinn - 28.04.1976, Síða 1

Þjóðviljinn - 28.04.1976, Síða 1
DJOÐVIIIINN Miðvikudagur 28. aprii 1976—41. árg. 91. tbl. Geir Hallgrimsson um vestur-þýsku samningana: ENGIN UPPSÖGN Beðið eftir greinargerð! Geir Hallgrimsson forsætisráö- herra lýsti þvl yfir í sjónvarps- fréttum aö rikisstjórnin ætli ekki, aö sinni, aö nota þann rétt sem gengiö er út frá I samningunum viö vestur-þjóöverja aö segja samningunum upp nú eftir 5 mánaða gildistlma. Er þetta I fyrsta sinn sem nokkuð kemur frá rikisstjórninni opinberlega um málið, en Einar Agústsson lýsti þvi yfir I blaða- viðtali I gær að ekkert hefði verið fjallað um mál þetta innan rikis- stjórnarinnar. Það eina sem rikisstjórnin hyggst gera er að biðja vestur- þjóðverja um greinargerð um það sem þeir kunna að hafa gert til þess að fá EBE til þess að fallast á niðurfellingu bókunar 6! Fréttamaður sjónvarpsins minnti forsætisráðherra á að mikið hefði verið gert úr þessum möguleika á uppsögn samnings- ins við þjóðverja og hvort hér væri ekki um undanhald að ræða. Forsætisráðherra sagði að ekkert lægi á að nýta sér heimildina! Hann var spurður hversu langan tima rikisstjórnin ætlaði að taka til þess að biða eftir greinargerð og gaf hann i skyn að þar gæti orðið um allmargar vikur að ræða. Varðskipaflotinn er allur úti á miðunum — en breskum togurum hefur aftur fækkað töluvert IÐNNEMA Um helgina efndu iðnnemar til ráðstefnu i Nes- kaupstað. Myndin er frá ráðstefnunni, en annars segir frá henni á 9. siðu. 1 gær klippti varðskipið Þór á annan togvlr breska togarans Ir- vana FD 141. Atti þetta sér staö 35 sjómilur frá Hvalbak. Dráttar- báturinnEuroman reyndi aö hindra klippinguna en fékk ekki að gert. öil islensku varöskipin eru úti á miöunum og svo viröist sem heldur sé aö færast aukin harka i átökin þessa slðustu daga. Varðskipið Ver kom að þremur breskum togurum sem fært höfðu sig vestur með suðurlandi og voru þar að veiðum. Rak varðskipið þá til baka austur fyrir land, en langt er siðan bretinn hefur flúið svona langt frá togarahópnum til veiða. Ægir kom að niu breskum togurum á Seyðisfjarðardjúpi i gærmorgun og hifðu þeir allir. Óðinn tvistraði átta bretum I gær þar sem þeir voru að veiðum á Hvalbaksmiðum og Baldur kom að fimm togurum á Langanes- svæðinu og hifðu þeir allir inn vörpur sinar samstundis. Bresku togurunum hefur fækkað mikið aftur og eru ekki fleiri en tuttugu um þessar mundir. Fjórar freigátur, fjórir dráttarbátar, birgðaskip og að- stoðarskip eru með togurunum og varðskipaflotinn er eins og áður sagði allur á miðunum. —gsp Hausar hirtir Nú er það sem betur fer ekki lengur til siðs i miklum verstöðvum að henda þorskhausum. Þeir eru þurrkaðir, hertir og sendir til Afrlku. Myndina atarna tók Einar Karlsson I fiskverkunarhúsi Saltvers suður I Njarövlkum I gær, en hlutverk þessarar stúlku þá stundina var að þræða þorskhausa á band. Siðar voru þeir hengdir I trönur og þurrkaöir; og verkandinn fær 150 krónur fyrir kilóið. Þannig eru, meö takmörkuöum veiðum, fyrrum ónýti orðiö að arövænlegri sölu- vöru. — úþ Aflaskipið Þorsteinn RE selt úr landi Aösögn Gylfa Þóröarsonar hjá sjávarútvegsráðuneytinu hefur ráöuneytið nýverið veitt leyfi fyrir þvi aö hiö kunna aflaskip Þorsteinn RE veröi selt úr landi, en ósk um slikt leyfi barst nýlega frá útgerðarmönnum skipsins, sem eru Jón Axel Pétursson fyrrum bankastjóri og Guðbjörn Þorsteinsson skipstjóri á skipinu. Þá hefur ráðuneytið einnig nýverið veitt leyfi fyrir þvi að selja Alftafell SU úr landi, en þess ber að geta að andvirði þess mun ganga upp i skuttogara, sem keyptur verður til Stöðvar- fjarðar. 1 haust er leið var sótt um leyfi fyrir þvi að selja aflaskipið Loft Baldvinsson úr landi og var það þá veitt. Siðan kom einhver aftur- kippur i þá sölu, en nú mun aftur komin hreyfing á málið og stendur það leyfi til sölunnar sem veitt var i haust. Þannig virðist ljóst að tvö af kunnustu aflaskipum okkar. Þorsteinn RE og Loftur Baldvinsson, verði seld úr landi. —S.dór 25 ára samfelld herseta Keflavíkurganga 15. maí Miðnefnd herstöðvaandstœðinga stefnir að stœrstu og öflugustu mótmœlagöngu, sem 1 fréttatilkynningu frá Miðnefnd herstöðvaandstæðinga segir svo um tilgang Keflavikurgöngu 1976: Miðnefnd telur, að fleiri islendingum en nokkru sinni áður megi vera það ljóst, að bandarisk herseta og aðild Islands að hernaðarbandalagi er islenskri þjóð sist til öryggis eða far- sældar, en býður þvert á móti heim margvislegum háska. Með Keflavikurgöngu er ætlunin að gefa fólki tækifæri til að mót- mæla hersetunni og aðild Islands að hernaðarbandalagi. Væntir miðnefnd þess, að andstæðingar hersetu og herstöðva f jölmenni i gönguna og geri hana að stærstu og öflugustu mótmælagöngu sem farin hefur verið gegn erlendri hersetu á Islandi. farin hefur verið gegn hersetu á íslandi Miðnefnd herstöðvaandstæðinga hefur ákveðið að efna til mótmælagöngu frá Keflavik til Reykjavikur laugardaginn 15. mai næstkomandi. Göngunni lýkur með útifundi i Reykjavik um kvöldið. Á þessu vori eru tuttugu og fimm ár liðin siðan bandariskur her tók sér bækistöð á Islandi öðru sinni. Með Keflavikurgöngunni er ætlunin að mótmæla hersetu óg her- stöðvum hér á landi, kref jast uppsagnar herstöðvasamnings- ins við Bandariki Norður-Ameriku og úrsagnar Islands úr Atlantshafsbandalaginu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.