Þjóðviljinn - 28.04.1976, Page 11

Þjóðviljinn - 28.04.1976, Page 11
IVliðvikudagur 28. aprii 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA II D^D^ðÖflD3 (2 Tony Knapp horfði á Hollendinga bursta Belgíu 5:0 „Besti fótbolti sem ég hef séð síðustu 10 árin” „Hlakka til að mæta besta landsliði heims næsta haust”, segir landsliðsþjálfari Tony Knapp, þjálfari islenska landsliðsins, skrapp utan um síðustu helgi og horfði á leik Hollands og Belgiu# sem fór fram í Rotterdam og lauk með fimm marka sigri hollendinga. Knapp horfði þarna á þau tvö lið, sem islendingar eiga að mæta á Laugardalsvelli í haust í undankeppni heimsmeistarakeppninn- ar, en leikurinn við belga er 5. september og síðar er hollendingum leikið gegn þann 8. —Þetta er besti fótbolti sem ég hef séð sl. tiu ár, sagði Tony Knapp i samtali við þjv. i gær. —Það leikur enginn vafi á þvi að Holland á sterkasta landslið heims um þessar mundir.og þótt þeir prýði sig ekki Heims- meistaratitlinum held ég að allir viðurkenni að þeir voru besta liðið i siðustu HM-keppni, þótt þeim tækist ekki að sigra þjóðverjana. —Svo þú ert ánægður með ferðina til Rotterdam? —Vissulega. Það er alltaf gagn- Johan Cruyff gerir 400 þús- punda samning við Barcelona í samtali við Tony Knapp í gær kom fram að altalað er í Hollandi um þessar mundir að Johan Cruyf f sé um það bil að undirrita nýjan samning við spánska liðið Barcelona og er hann upp á hvorki meira né minna en 400 þúsund pund. — Eftir að hafa horft á þennan leik er i minum huga enginn vafi á þvi að Cruyff er besti knatt- spyrnumaður heims. Þessi drengur er stórkostlegur knatt- spyrnumaður og enginn furðar sig á þvi, að hann skuli hafa komið f or rá ð a m ö n n u m Barcelona svona hátt upp, sagði Tony Knapp. —gsp legt og lærdómsrikt fyrir þjálfara að sjá væntanlega andstæðinga sina leika og auðvitað var heppi- legt aö slá þarna tvær flugur i einu höggi og horfa á bæði þessi lið i einum og sama leiknum. En þetta var stórleikur, og hollendingarnir spila geysilega góða knattspyrnu og mörkin hefðu getað orðið enn fleiri. Þeir hættu eftir f jórða markið og voru greinilega orðnir ánægðir með stöðuna. I seinni hálfleik áttu belgiumenn ekki eitt einasta skot á hollenska markiö og það segir sitt um styrkleikamuninn. —Og hvernig list þér á að mæta þessum liðum i haust? —Mér list vel á það. Það verður gaman að sjá islenska áhuga- menn berjast gegn besta landsliði heims og ég er viss um að leikurinn gegn hollendingum i haust er mesti knattspyrnuvið- burður sem nokkurn tima hefur verið boðið upp á hérlendis. Okkar menn munu að sjálf- sögðu fara inn á með þvi hugar- fari að nota allan þann kraft og getu sem þeir búa yfir.og jafnvel þótt það dugi e.t.v. skammt gegn svona liöi vil ég ekkert segja um hugsanleg úrslit. Islenska liðið hefur komið of oft á óvart til þess að það sé hægt. —Áttu ekki von á þvi að hollendingar mæti með sitt sterkasta lið hingað? —Jú, það er enginn vafi á þvi. Þeir eru staðráðnir i að vinna HM-bikarinn að þessu sinni og það verður öllu tjaldað sem til er. Hingað munu áreiðanlega allir þeirra bestu menn koma, Johan Cruyff og aðrar stjörnur. Það verður svo sannarlega gaman að mæta þeim i haust. — gsp Asgeir, Guögeir og Jóhannes allir með í sumar? Langt er siðan forráðamönnum liðanna þriggja, sem þeir Asgeir Sigurvinsson, Jöhannes Eðvaldsson og Guðgeir Leifsson eru á samningi hjá, var skrifað bréf þar sem beðið var um þessa leikmenn i landsleiki íslands i sumar. Lið Guðgeirs, Charleroi, hefur gefið fremur jákvæð svör. Standard Liege, lið Ásgeirs, hefur gefið grænt ljós á leikina gegn norðmönnum, belgum og hollendingum en hins vegar hafnað beiðni um leikina gegn finnum og færeyingum. Celtic heftir hins vegar ennþá ekki svarað neinu þrátt fyrir itrekaða beiðni. —gsp Samningaviðræður um landsleiki næsta sumar Heimsmeistararnir á leið til Islands? Landsliðsnefnd KSi, sem skipuð er þeim Tony Knapp, Árna Þor- grímssyni og Jens Sumarliðasyni, vinnur af kappi við útvegun lands- Verða útlendingar útilokaðir í körfu- knattleiknum? Búist við tillögu um það á þingi KKÍ Þjóöviljinn hefur haft af þvi spurnir að nokkrir aðilar innan körfuknattleiks- sambands tslands muni bcra fram tillögu á þingi sam- bandsins, sem fyrir dyrum stendur, þess efnis að KKl setji bann við þvi að út- lendingar leiki með islenskum liðum eins og var I vetur. Það inyndi þýöa að einungis islenskir r ik isb or ga r ar mættu Ieika i þeim mótum sem KKÍ stendur fyrir, en út- lendingar scm annars væru búsettir hér á landi fengju ekki að vera með, hvað þá þeir sem bcinlinis koma til isiands til að leika eins og Jiminy Rogers og „Trukkurinn” gerðu sl. vetur. Sjálfsagt verður andstaða gegn þessari tillögu á þinginu, einkum frá þcim félögum sein ætla sér að uá i bandariska körfuknattleiksmenn til sin næsta vetur, en heyrst hefur að þeim félögum fjölgi sem hafi slfkt i huga. AUa vega veröur fróðlegt að fylgjast með framgangi þessa máls; það snertir ekki aðeins körfu- knattleikinn; ákvörðun sam- bandsins gæti orðið stejnu- markandi fyrir önnur sér- sambönd í þessu máli. Það er ekkert leyndarmál að bæði knattspyrnuféiög og handknattleiksfélög hafa verið að velta þvi fyrir sér að fá útlenda leikmenn hingað til lands sem þjálfara og leik- menn eins og gert var I körf- unni sl. vetur. Ef svo færi að allar boltagreinar okkar færu út i þetta og að það yrði alls ráðandi hér á landi væri illa komið okkar málum I þessum iþróttagreinum. — S.dór. leikja í sumar og raunar næsta sumar líka. Ekki verður annað sagt en að margt sé á döfinni, hollendingar koma hingað í haust og líkur eru á því að næsta sumar komi heims- meistarar v-þjóðverja hingað í heimsókn. Enn er það mál þó að samninga- stigi,en ekki yrði dónalegur fengur að fá Beckenhauer heims- ineistaranua i knattspyrnu Ivfta sigurverðlaununum. og félaga hingað á Laugardalsvöllinn. t sumar litur landsleikjadag- skrá þannig út: 19. mai: Noregur — ísland (vin- áttuleikur) 16. júni: Færeyjar — tsland (vin- áttuleikur) 14. júli: Finnland — Island (vináttuleikur) 5. september: Island — Belgia (HM-keppni) 8. september: Island — Holland (HM-keppni) Landsliðsnefnd er aö kanna möguleika á fleiri leikjum hér heima, enda er skv. þessari dag- skrá enginn landsleikur hér heima fyrr en næsta haust. Danir hafa afþakkað landsleik i sumar og sömuleiðis pólverjar, en sovét- menn hafa ekki gefið ákveðið svar við beiðni islendinga um landsleik i sumar. Sagði Arni Þorgrimsson að landsliðsnefnd legði áherslu á að fá sterkt lið hingað til keppni fyrir HM-leikina næsta haust en ennþá er sem sagt ekkert ákveðið. Vafalaust verður siðan a.m.k. einn pressuleikur háður i sumar en leikdagur fyrir hann er ekki ákveðinn enn sem komið er. Auk belga og hollendinga er Norður-lrland i HM-riðlinum með Islandi. Næsta sumar, þ.e. árið 1977, hefst með leik hér heima gegn N-lrlandi i júni og leikurinn gegn þeim ytra fer fram seinna á sumrinu, trúlega á svipuðum tima og leikirnir ytra gegn hollendingum og belgum. Norðurlandasamskiptin halda einnig áfram.og verða það að öll- um likindum danir sem koma hingað og leika einn landsleik. —gsp 600manns hafa tekiö þáttí „Trimm- göngunni” Undanfarnar helgar hefur staðiö yfir skiða-„trimm- ganga” á skiöastöðum i ná- grenni Reykjavikur.og hafa nú þcgar um 600 manns tekið þátt i göngunni. Uin næstu helgi verður gengið i Bláfjöllum, og er skoraö á almenning að taka þátt i þessari göngu. Eins og áður hefur veriö skýrt frá i Þjóðviljanum efnir iþróttakennarafélag tslands til myndgerðarsamkeppni skólabarna i tilefni ölympiu- leikanna i Montreal 1976. Börn á aldrinum 9—15 ára geta tekið þátt i þessari sam keppni, en skilafrestur inynd anna rennur út á laugardaginn 1. mai. Veitt verða þrenn verðlaun, flugferð til Færeyja, Elan- skiði og bókaverðlaun. Mynd- un.uin skal skila til íþrótta- kennarafélags tslands að Klapparstig 16, Reykjavik.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.