Þjóðviljinn - 20.05.1976, Side 3
Fimmtudagur 20. mai 1976 l>JOÐVILJINN — StÐA :{
Friðrik féll á tíma
Atti auðunnið tafl gegn Browne —
Timman og Karpof sömdu um jafntefli
Hérsést Friðrik, i uppliafi Euue-inótsins, draga um keppnisi öðina.
Ejósm. — gsp.
Hr. Max Kuwe heldur ræðu i upphafi afmælisskákmótsins i
Amsterdam. Mynd GSP.
Af mæliss j óður
dr. Max Euwe
Skáksamband Islands fœrir Euwe
islenskan gabbróstein um helgina
Amsterdam, miðvikudaginn
19. mai. Frá Gunnari Steini
Pálssyni:
Eftir æsispennandi darraðar-
dans á lokaminútunum i skák
Friðriks og Brownes i 5. umferð
afmælismótsins hér i Hollandi
féll Friðrik á tima og missti um
leið af möguleikanum á þvi að
taka forystu i mótinu þvi hann
átti að flestra áliti öruggan
vinning i lokastöðunni. Karpof
gerði hins vegar jafntefli við
Timman og er þvi einn i efsta
sæti með hálfum vinningi meira
en Friðrik.
Það var svo sannarlega mikil
spenna i þessari umferð i dag,
hart barist á öllum vigstöðvum
og meiri sviptingar en i flestum
þeim skákum öðrum sem hér
hafa verið tefldar.
— Ég skil bara alls ekki
hvernig þetta gat gerst, sagði
Friðrik eftir skákina i dag. —
Mér fannst ég eiga miklu betri
tima en Browne og vissi sjálfur
af þvi þegar ég átti eftir 4
minútur en hann aðeins þrjár.
Eftir það fylgdist ég sæmilega
vel með klukkunni en skynjaði
bara stöðu hennar ekki betur en
raun varð á.
— Jú, auðvitað kallar þetta á
einhver átök á föstudaginn. Ég
get húgsanlega sætt mig við
annað sætið með þvi að ná jafn-
tefli við Karpof en vissulega
væri gaman að vinna i siðustu
umferðinni ef þess er kostur svo
ég reikna með að maður reyni
það. Það er þó undir ýmsu kom-
ið eins og venjulega, hvort ég
verð vel upplagður eða ekki og
ekki siður þvi hvað Karpof ætlar
sér. Ef hann teflir til vinnings er
ekki um neitt annað að ræða en
að svara i sömu mynt.
Hvað um lokastöðuna i dag?
— Hún er að minu áliti alveg
gjörtöpuð fyrir svartan. Með
ýtrustu nákvæmni á hann
kannski ofurlitinn möguleika á
að ná jafntefli en hann er fjar-
lægur. Mér fannst ég oftast hafa
betri stöðu i þessari skák og
auðvitað var það þess vegna
svekkjandi að falla á tima. Hitt
er svo annað að það er engum
um að kenna nema mér sjálf-
um.
— Þú hefur ekki viljað jafn-
tefli gegn Browne eftir að þú
sást stöðuna hjá Timman og
Karpof?
— Ég bauð jú jafntefli eftir
u.þ.b. 20 leiki en Browne vildi
tefla áfram sem kannski er eðli-
legt þegar litiö er á vinnings-
hlutfall hans. Fljótlega eftir að
ég bauð jafnteflið svo að minu
áliti mun verri stöðu og eftir það
var maður ekkert á þeim bux-
unum að semja, sagði Friðrik
um leið og hann kvaddi blaða-
mannaherbergið og hélt heim á
hótel.
Puntkar úr dagbók
Dagbókin eftir daginn i dag
litur þannig út:
Kl. 14.30 aö hollenskum tfma.
Búnir eru 11 leikir i skák þeirra
Friðriks og Brownes. Sama
staða er komin upp og i skák
þeirra Friðriks og Tal á Hoogo-
ven rtiótinu hér i Hollandi i janú-
ar sl. Eftir 11 leiki sömdu þeir
um jafntefli og þessa stundina
velta menn þvi fyrir sér hvort
Friðrik muni e.t.v. einnig sætta
sig við jfntefli i þessari skák.
Mörgum finnst það þó ótrúlegt
þvi ef hann stefnir að vinnings-
sæti i mótinu hér i Amsterdam
er ljóst að hann verður að leggja
Browne að velli i viðureign
þeirra i dag.
Hér i blaðamannaherbergi
Van Gogh safnsins er mikil
spenna og á öllum borðum eru
menn með stöðu þeirra Friðriks
og Brownes og biöa spenntir eft-
ir þvi að næsti leikur þeirra
verði sendur hingaö niður. Stór-
meistararnir tefla sjálfir i lok-
uðu herbergi uppi á 4. hæð.
Ekki er skák þeirra Timmans
og Karpofs siður spennandi.
Karpof valdi sér nimsó-ind-
verska vörn og hafa þeir lokið 11
leikjum. 11. leikur Karpofs
veldur Timman miklum heila-
brotum og þessi ungi hollend-
ingur hefur hugsað i heillangan
tima um 12. leik sinn þvi Karpof
brá út af hefðbundinni leið með
þvi að leika 11.... c4. ...og rétt i
þessu var verið að hringja niður
12. leik Timmans sem loksins
lék eftir meira en 20 minútna
umhugsun.
Ekki er óliklegt að skákirnar i
dag verði báðar mjög spennandi
og fullar baráttu. Slagurinn um
efsta sætið stendur milli
Karpofs og Friðriks og vafa-
laust stefna þeir báðir að vinn-
ingi i dag, búa sig siðan e.t.v.
undir stórmeistarajafntefli á
föstudaginn.
Er fimmta umferðin hófst kl.
13 að hérlendum tima mættu
þeir Browne og Karpof nokkuð
seint. Karpof kemur raunar
alltaf a.m.k. 10 minútum of
seint þvi ljósmyndurum er leyft
að taka myndir fyrstu 10 minút-
urnar á hverjum degi. Þegar
þær minútur eru liðnar gengur
Karpof yfirleitt i salinn, sest
niður, bendir dómaranum á
armbandsúr sitt og biður um að
ljósmyndararnir verði fjar-
lægðir tafarlaust.
Eðlilega eru fréttamenn ekk-
ert yfir sig hrinfir af þessu hátt-
erni heimsmeistarans og einn
ljósmyndaranna hér sem vinnur
fyrir 10 eða 15 dagblöð lýsti þvi
yfir i dag að ef Karpof reyndi
þetta einu sinni enn myndi hann
umsivfalaust slá hann niður.
1 áhorfendatjadinu hér á opna
svæðinu fyrir utan Van Gogh
safnið er stanslaus dagskrá frá
kl. 13 á daginn og langt fram yf-
ir miðnætti. Auk þess sem skák-
irnar eru skýröar út með hjálp
sjónvarpskerfis og stórra vegg-
taflborða er mikið teflt i tjald-
inu. 1 dag tefla t.d. þrir af bestu
skákmönnum Hollands fjöltefli
við áhorfendur, i fyrradag var
griðarmikið hraðskákmót með
þátttöku þeirra sem vildu og
þannig er alltaf nóg um að vera
og skipulagningin hreint frábær
á allan hátt.
A kvöldin er siðan dansað i
tjaldinu, inn á milli er skotið
skemmtiatriðum af öllum teg-
undum. Ekki er óalgengt að
keppendurnir á mótinu liti við i
tjaldinu á kvöldin nema heims-
meistarinn Karpof sem ekki
hefur enn sést á götum úti nema
á leið til eða frá keppnisstað.
Hann virðist einangra sig frá
öðru fólki og við blaðamenn sem
reyna aö fá viðtal við hann segir
hann ávallt þvert nei. Þó kemur
hann hingað niður i blaða-
mannaherbergi eftir hverja
skák til þess að fara yfir hana
með andstæðingum sinum, ræða
hugsanlega leiki aðra en þá sem
þeir völdu uppi á fjórðu hæðinni
o.s.frv.
Kl. 15.00. Enn heyrast engar
nýjar fréttir ofan frá. Báðar
skákirnar eru á viðkvæmu stigi
og keppendur gefa sér góðan
tima til að ihuga sinn gang.
Timman hefur gefið Karpof eitt
peð fyrir betri stöðu og á góðan
möguleika á að ná peðinu aftur
eftir nokkra leiki.
Kl. 16.00. Ekki hefur bæst við
mikið af leikjum hjá Friðriki og
Browne. Þeir hafa lé'ikið 13
leiki, þ.e.a.s. aðeins tvo leiki
hvor á siðasta klukkutimanum.
Friðrik hefur notað 1 klukku-
stund og 15 minútur, Browne
fimm minútum minna en fyrir
fyrstu 40 leikina hefur hvor
keppandi tvær og hálfa klukku-
stund.
Timman hefur náð peði sinu
aftur og menn eru ekki frá þvi
að hann hafi aðeins rýmri stöðu
og meiri möguleika á róttækum
aðgerðum. Timman hefur notað
öllu meiri tima en Karpof fyrir
þá 16 leiki sem núna eru komnir.
Hefur hann eytt u.þ.b. 100 min-
útum en Karpof rúmlega 60.
Eftir að Timman náði sér á
strik núna i siðustu leikjum
beinist öll athyglin að skák
þeirra. Dr. Max Euwe er mætt-
ur hér i kjallarann til þess að
fylgjast með og taka þátt i um-
ræðum um stöðuna. Vinningur
gegn Karpof yrði -kærkominn
fyrir hollendinga og aftur og
aftur raða menn upp stöðunni i
skák hans og tefla svo úr henni
aftur i endatafl.
En þótt miklir spámenn séu
hér að ihuga skákina eru þeir þó
ekki getspakari en svo að i hvert
sinn sem nýr leikur berst hingað
niður reka þeir upp undrunaróp
og hafa átt von á allt öðrum leik.
Kl. 17.00. Það er heldur betur
farið að færast fjör i skák
Timmans og Karpofs. Timman
er hægt og sigandi að ná undir-
tökunum en hann hefur notað
mun meiri tima eða rúmlega
tvær klukkustundir á móti rúm-
lega einni og hálfri. Hann er þvi
að komast i timaþröng en getur
að öllum likindum boðið jafn-
tefli þegar honum sýnist timinn
orðinn iskyggilega naumur.
Likur eru á þvi að hann muni
á næstunni ná peði af Karpof en
þeir hafa núna lokið 15 leikjum.
Allt er hins vegar i ró og spekt
i viðureign Friðriks og
Brownes. Þar eru búnir 18 leik-
ir. Friðrik á eftir hálfa klukku-
stund en Browne næstum þvi
heila. Vafalaust fylgist Friðrik
með skák Timmans og Karpofs
og nái hollendingurinn miklum
yfirburðum á næstunni er frem-
ur óliklegt að Friðrik leiki stift
til vinnings ef hann lendir i mik-
illi timaþröng eins og allt útlit er
fyrir að hann geri.
Kl. 17.53. Friðrik er kominn i
gifurlegt timahrak i skák sinni,
hefur aðeins 5 minútur fyrir sið-
ustu 15 leikina áður en hann nær
40 leikja lágmarkinu. Vinnings-
likur eru i stöðunni fyrir hvitan
en báðir aðilar verða að tefla
ansi hratt á endasprettinum.
Karpof er að ná betri tökum á
stöðunni gegn timman og heldur
enn peðinu sem hollendingurinn
sóttist svo stift eftir áðan. Stað-
an eftir 45 leiki er fremur jafn-
teflisleg.
....rétt i þessu birtust þeir hér
i blaðamannaherberginu
Timman og Karpof og um leið
var hringt niður og tilkynnt að
samið hefði verið um jafntefli i
skák þeirra. Baráttumaðurinn
Timman hefur reynt mikið i dag
eins og venjulega, hann barðist
fyrir vinningi af mikilli hörku en
Karpof stóð allt saman af sér og
ekki var um annað að ræða en
að semja um jafntefli i þeirri
stöðu sem upp var komin.
Kl. 18.45. Timahrakið hjá
Friðriki og Browne varð ofboðs-
legt eins og sjá mátti og þegar
12 leikir voru eftir hafði Friðrik
fjórar minútur til afnota en
Browne aðeins þrjár.Engu að
siður varð það Friðrik er féll á
tima eftir mikinn darraðardans
undir lokin. í kvöld verður hann
þvi að taka erfiða ákvörðun,
nefnilega þá hvort hann ætlar að
ná vinningi með svörtu mönn-
unum gegn Karpof og ná þannig
efsta sætinu eða hvort hann vill
sætta sig við annað sætið og
tefla upp á jafntefli á föstudag-
inn. Tapi Friðrik hins vegar
fyrir Karpof hafnar hann i
þriðja sæti og sættir sig trúlega
illa við það eftir að hafa leitt
mótið ásamt Karpof frá þvi i
fyrstu umferð.
Litum þá á skák Friðriks frá
þvi i dag. Svartur valdi sér
drottningarindverska vörn gegn
1. leik Friðriks og skákin gekk
fyrir sig eins og i áðurnefndri
skák. Ekkert varð úr jafnteflinu
sem menn áttu von á, þeir héldu
áfram að leika og lentu i mjög
erfiðu miðtafli þar sem Browne
Framhald á bls. io.
i dag er Pr. Max Euwe, for-
seti Alþjóða skáksambandsins
og fyrrum heimsmeistari, sjötiu
og fimm ára i lok afmælismóts-
ins sent nú fer fram i Amster-
dam verða hátiðahöld i tilefni
afmælisins og hefur fulltrúum
hinna ýmsu skáksambanda
heims verið boðið til þeirra.
Einar S. Einarsson, forseti
Skáksambands tslands, mætir
þar fyrir tslands hönd, og mun
afhenda dr. Euwe islenskan
gabbróstein, 5 kg. að þyngd.
undan Vatnajökli. Hann er nátt-
úrusmið að öðru leyti en þvi að
greiptir hafa verið i hann 2
minnispeningar Friðriks Olafs-
sonar. úr silfri og bronsi, og á
steininn grafið nafn dr. Max
Euwe og afnæliskveðja frá
Skáksambank tslands.
t tilefni 75 ára afmælisins hafa
öll aðildarlönd FIDE ákveðið að
heiðra doktor Euwe með þvi að
stofna sjóð samnefndan honum.
I Hlutverk sjóðsins verður að
vinna að útbreiðslu skáklistar-
innar og að aukinni skákmennt i
þeim löndum eða heimshlutum.
þar sem skákiðkun er skemmst
á veg komin. Dr. Euwe mun sið-
ar sjálfur setja sjóðnum nánari
reglugerð.
Tilkynnt verður formlega um
stofnun sjóðsins við hátiðahöld
þau, sem fram fara i Amster-
dam á vegum hollenska skák-
sambandsins um næstu helgi. i
tilefni afmælisins. Öskað hefur
verið eftir þvi við öll skáksam-
bönd innan FIDE að þau fari
þess á leit við félagsmenn sina
og aðra skákunnendur, að þeir
leggi fram að minnsta kosti
andviröi 1 svissnesks franka.
þ.e. 73 isl. króna á núverandi
gengi. til stofnunar sjóðsins.
Skáksamband islands hefur
að þessu tilefni opnað sérstakan
giró-reikning i Samvinnubank-
anum. nr. 81000 fvrir þá. sem
leggja vilja eitthvað að mörk-
um. en söfnunin mun standa i
1 ár. eða til 20. mai 1977.