Þjóðviljinn - 20.05.1976, Síða 10
1« SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. mai 1976
SÍÐUSTU DAGAR ÞINGSINS
/
Geir Gunnarsson við afgreiðslu vegaáætlunar
Niðurskurður vega-
framkvæmda á ^ *
tveimur árum er
40
50%
Söluskattstekjur
ríkissjóös af
bifreiöum og"
bensíni álíka
háar og allt
nýbyggingafé
til vegamála
Á fundi sameinaðs þings i fyrra-
kvöld fór fram lokaumræða um
vegaáætlun, en áætlunin var svo
afgreidd i gær á siðasta fundi
þingsins. Við umræðuna flutti
Geir Gunnarsson þá ræðu, sem
hér birtist. Var ræðan i megin-
atriðum samhljóða nefndaráliti
minnihluta fjárveitinganefndar.
GEIR SAGÐI:
I tillögu til þingsályktunar
um vegáætlun fyrir árin
1976-1979 er gert ráð fyrir 25%
niðurskurði framkvæmda á
þessu ári miðað við áætlaðar
framkvæmdir samkv. núgild-
andi vegáætlun. Þessi niður-
skurður kemur til viðbótar jafn-
miklum niðurskurði á árinu
1975. Framkvæmdir í ár eru þvi
samkv. þingsályktunartillög-
unni einungis um 56% af fram-
kvæmdamagni á vegáætlun
1974.
1 þáltill. um vegáætlun var
þessi niðurstaða um óbreytta
krónutölu framkvæmdafjár tU
nýrra hraðbrauta, þjóðbrauta
og um niðurskurð vegafram-
kvæmdaum fjórðung fengin með
þvi að auka lántökur um 52% á
árinu 1976, eða Ur 1050 millj. kr.
i 1600 millj. kr. 1 þáltUl. er gert
ráð fyrir að 75% allra fram-
kvæmda við nýja þjóðvegi
byggist á lántökum, þar á
meðal á bráðabirgðalánum til
einseða tveggja ára, en greiðsla
þeirra lána kemur til frádráttar
framkvæmdafé þegar á árunum
1977 og 1978.
Hinn 16. mai 1975 voru sam-
þykkt á Alþingi lög, sem gerðu
skylt að tekið yrði 2000millj. kr.
lán til framkvæmda við Norður-
og Austurveg á næstu 4 árum,
eöa 500 miUj. kr. til jafnaðar á
ári, i fyrsta sinn 1976. Var þvi
slegiö föstu, að fjárhæðir þessar
kæmu til viðbótar almennu
framkvæmdafé á þessum árum.
Þrátt fyrir samþykkt þessara
laga um sérstakar fram-
kvæmdir viö Norður- og Austur-
veg var i þingsályktunar-
tillögunni um vegafram-
kvæmdir á árunum 1976-1979
gert ráð fyrir að þessi fjáröflun,
sem innifalin var i tekjuhlið
áætlunarinnar, rynni til al-
mennra vegaframkvæmda.
Einungis með þessum hætti
hefði rikisstjórnarflokkunum
tekist að halda óbreyttri krónu-
tölu framkvæmdafjár til nýrra
þjóðvega, en það jafngildir i
reynd 25% niðurskurði.
Eins og að fóðra hund
með bita af eigin rófu
Eftir að þingmenn gerðu sér
grein fyrir að hverju var stefnt
meö þessari uppbyggingu
vegáætlunar, varð ljóst, að
rlkisstjórninni var ókleift að
afgreiða vegáætlun með venju-
legum og lögboðnum hætti.
Stjórnarflokkarnir hafa þvi
orðið að horfast i augu við þá
staðreynd, að þeir hafa komiö
málum Vegasjóðs i algert þrot á
tveggja ára stjómartima sinum
og eru ekki færir um að afgreiða
vegáætlun eins og lög standa til.
Hefur þvi verið gripið til þess
ráðs að áætla tekjur á
pappirnum 100 millj. kr. hærri
en gert var i þáltill., sem lögð
var fram fyrir 10 dögum. Á
þessari hækkun áætlaðra tekna
af innflutningsgjaldi og þunga-
skatti hafa engar skýringar
fengist eða frekari sundur-
liðanir. Jalnframt hefur verið
ákveðið að skera niður áætluð
framlög til verkfræðilegs undir
bUnings um 20 millj. kr., eða um
16%, og til vatnaskemmda og
ófyrirséðs kostnaðar um
30millj. kr., eða um 41%.
Tillögur þessar eru algerlega
óraunhæfar. Aukning fram-
kvæmdafjár með þessum hætti
er fullkomlega jafngildi þess að
fóðra hund með bita af eigin
rófu.
Með þessum hætti er lagt til
að Iramlög til nýrra þjóðvega
hækki um 150 millj. kr. og á að
verja þeirri hækkun til fram-
kvæmda við Norður- og Austur-
veg, en framlög til annarra
framkvæmda verða óbreytt og
skerðast að raungildi um fjórð-
ung frá árinu 1975.
Enn skortir þá 350 millj. kr. til
þess aö staðið sé við lagaákvæð-
ið um að 500 millj. kr. láns-
fjáröflun til Norður- og
Austurvegar á þessu ári verði
raunverulega varið til þessara
vega. Þess i stað er nU við það
miðað, að obreytt fjárveiting að
krónutölu til almennra vega-
Iramkvæmda sé m.a. byggð á
350millj. kr. láni frá Norður- og
Austurvegi og eigi að endur-
greiðastá næsta ári eða árum,
þannig aö alme'nnar fram-
kvæmdir skerðist þá sem þvi
nemur frá þvi sem ella yrði til
þeirra varið.
Þegar þessi óskapnaður allur
lá fyrir varðandi vegáætlun
fyrir árið 1976 og algert getu-
leysi blasti við varðandi næstu
þrjU ár, sem skylt er að gera
áætlun um samkv. vegalögum,
var uppgjöfin staðfest með
flutningi frumvarps rikisstjórn-
arinnar um breytingu á vega-
lögum, þess efnis, að engin
végáætlun verði afgreidd eins
og gildandi lög gera ráð fyrir,
heldur verði tekjur og gjöld
Vegasjóðs á þessu ári einungis
samykkt með bráðabirgða-
vegáætlun.
Alþingi hefur einungis haft
þingsályktunartillöguna um
vegáætlun til meðleröar i rUma
viku, samtimis þvi að rikt hafa
á Alþingi meiri annir vegna
fyrirhugaðra þingslita en áður
hefur þekkst. Er þvi ljóst, aö
ekkert svigrúm er til að ráða
Iram Ur vandamálum Vega-
sjóðs á þessum fáu dögum.
Afgreiðsla vegáætlunar er eitt
hinna mikilverðustu mála
þingsins. Verður þvi mjög að
átelja hvernig hæstv. rikisstj.
hefur staðið að afgreiðslu þessa
máls eftir að stefna hennar i
efnahagsmálum hefur komið
Vegasjóði i algert þrot.
Eftir tveggja ára for-
ystu Sjálfstæöisflokks-
ins
Eftir tveggja ára stjórnarsetu
hægri stjórnar undir forustu
Sjálfstæðisflokksins blasir við i
vegamálum æði ólík mynd
þeirri, sem Sjálfstæðisflokkur-
inn gaf fyrirheit um. áður en
hann tók við stjórnarforustunni.
Þá tiSdu forustumenn flokksins
sjálfsagt að stórauka framlag
rikissjóðs til vegamála af þeim
tekjum, sem hann hefur af um-
ferðinni i landinu. Slik úrræð' til
að efla hag Vegasjóðs heyrast
ekki úr þeim herbUöum nú, enda
hafa stjórnarflokkarnir ekki
' siður komið rikissjóði i þrot en
Vegasjóði, þrátt fyrir síhækk-
andi tekjur rikissjóðs af um-
ferðinni.
Þess má geta, að samtimis
Geir Gunnarsson
þvi að ríkissjóður greiöir 1556
millj. kr. á árinu 1976 i afborg-
anir, vexti og beint framlag
vegna Vegasjóðs, nema tekjur i
rikissjóö af tollum og söluskatti
af bifreiðum og bensini 4200
millj. kr.
Söluskattstekjur rikissjóðs af
bensini og bifreiðum eru
áætlaðar 1900 millj. kr. i ár og
nema nærri jafnhárri upphæð
og variö er til allra nýrra vega-
lramkvæmda. Hafa söluskatts-
tekjur ri"kissjóðs af af bensini og
bifreiöum þá hækkað um nær
500 millj. kr. frá árinu 1975 á
sama tima og raungildi vega-
framkvæmda lækkar um fjórð-
ung.
Eftir tveggja ára forustu
Sjálfstæðisflokksins i rikisfjár-
málum er hag rikissjóðs hins-
vegar svo komið, þrátt fyrir si-
aukna skattheimtu, að þaöan er
engrar aðstoðar að vænta fyrir
Vegasjóð. Má i þvi sambandi
geta þess, að samkv. nýjustu
opinberum upplýsingum um
skuldir rikusjóðs og rikisstofn-
ana við Seðlabankann hafa þær
enn aukist i mars sl. um 1218
millj. kr.
Vegna þess hvernig hæstv.
rikisstjórn hefur leikið Vegasjóð
og rikissjóð verður ekki á svo
örskömmu tima sem gefinn er
til afgreiðslu vegáætlunar
spomað við þvi, að stjórnar-
flokkarnir afgreiði málefni
Vegasjóðs með þeim einstæða
hætti sem þeir stefna að.
Til þessa hefur jafnan við af-
greiðslu vegáætlunar tekist að
ná samstöðu þingmanna
stjórnar og stjórnarandstöðu
um heildarafgreiðslu málsins.
Minni hl. fjvn. telur hins vegar,
aö vegna þess, hversu seint
þingsályktunartillagan um
vegáætlun er lögð fram að þessu
sinni og hvernig að undirbúningi
og afgreiðslu hefur verið staðið,
sé honum ókleift að afgreiða
vegáætlun á þann hátt sem
meiri hl. fjvn. hefur nú á-
kveðiö.
Friðrik féll á
Framhald af bls. 3.
hafði peð á c5 og d5 sem ollu
báðum erfiðleikum. Peðin gátu
hugsanlega verið sterk fyrir
svartan en einnig veik þvi i
rauninni gat Browne leikið
hvorugu peðinu fram án þess að
missa annað. Báöir keppendur
notuðu mikinn tima i miðtafið
sem siðan varð Friðriki að falli.
Staða hans var talin áberandi
betri eftir 25 leiki en siðustu 10
leikina léku þeir á tæplega einni
minútu þvi hvor um sig hafði
aðeins hálfa minútu til umráða.
Allt getur gerst i sliku kapp-
hlaupi en engum dylst þó að
lokastaðan var mjög vænleg til
sigurs fyrir Friðrik.
Friðrik sagðist hafa verið óá-
nægður með 25. leik sinn, Hb3,
en eftir að honum tókst að leika
e4 i 26. leik sagðist hann hafa
fengið betri stööu á ný og haldið
henni „fram i rauðan dauðann”
ef svo má segja. Með þeim leik
má segja að timahrakið hafi
byrjað og eftir það er erfitt að
dæma um góða leiki eða slæma,
það eina sem gilti var að leika
einhverju án þess að gera herfi-
leg mistök.
Ilvitt: F'riörik
Svart: Browne
1. d4 — Rf6. 2. c4 — e6. 3. Rf3
— b6. 4. a4 — Bb7 5. Rc3 — d5. 6.
cxd5 — exdS. 7. Bg5 — Be7. 8. e3
— 0-0. 9. Be2 — Rbd7. 10. 0-0 —
Re4. 11. Bxe7 — Dxe7. 12. Hcl —
Hfd8. 13. Da4 — c5. 14. Hfdl
—a6. 15. dxc5 — Rxc3. 16. Hxc3
— Bxc5. 17. Bfl —Rf6. 18. Dh4 —
h6. 19. h3 — a5. 20. Rh2 — Dd6.
21. Hb3 — Bc6. 22. Hbd3 — Hab8.
23. Hd2 — Hb6. 24. Rg4 — Rxg4.
25. Dxg4 — Df6. 26. e4 — d4. 27.
Hcl — De7. 28. Df5 — Bxe4. 29.
Dxc5 — Df6. 30. Dxa5 — Hbd6.
31. Hel — Df4. 32. Hde2 — f5. 33.
Dd2 — Dh4. 34. f3 — d3. 35. He3
tíma
— Hc6. 36. fxe4 — Hc2 og hvitur
er fallinn á tima.
1 skák Timmans og Karpofs
var ekki siður barist. Karpof lék
nimsóindverska vörn, Timman
svaraði með leikjaröð sem hann
notar mjög oft og er hrifinn af.
Karpof brá siðan út af venjunni
meö 11.... c4 sem er nýr og áður
óþekktur leikur sem hann hefur
vafalaust verið búinn að hugsa
upp fyrirfram. Eftir það lék
Timman að miklu öryggi og ná-
kvæmni, með beittri ógnun og
skemmtilegri hugsun, sem
leiddi af sér leiki sem fæstir áttu
von á. Afleiðíngin varð sú að i
miðtaflinu átti hann betri stöðu
og vinningslikur voru jafnvel
taldar fyrir hvftan. Með 35. leik
— d5 — nær Timman að skapa
mjög skemmtilegt endatafl með
hrók og riddara gegn hrók og
biskup hjá Karpof. Hvitur gat
teflt til vinnings ef hann vildi en
svartur varð að tefla upp á jafn-
tefli eingöngu að draga alla sina
menn i vörn. t þessari stööu
tefldi Karpof og ómældu öryggi
eins og við mátti búast og undir
lokin var ekki um neitt annað að
ræða fyrir Timman en að hætta
baráttunni og semja um jafn-
tefli við heimsmeistarann.
Skák Timmans og Karpofs
gekk þannig fyrir sig:
Ilvitt: Timman
Svart: Karpof
1. d4 — Rf6. 2. C4 — e6. 3. Rc3
— Bb4. 4. Bg5 — c5. 5. d5 — d6. 6.
e3 — exd5. 7. cxd5 — Rbd7. 8.
Bd3 — Da5. 9. Rge2 — Rxd5. 10.
0-0 — Bxc3. 11. Bxc3 — C4. 12.
Bf5 — f6. 13. Rd4 — Re7. 14.
Bxd7! — Bxd7. 15. Bf4 — 0-0. 16.
Bxd6 — Hf8. 17. Hbl — b6. 18.
Bxe7 — Hxe7. 19. Rb5 — Hc8. 20.
Rd6 — Hc7. 21. Hb4 — Be6. 22.
Df3 — Dd5. 23. Dxd5 — Bxd5. 24.
Hdl — Be6. 25. Hd4 — Hed7. 26.
f3 — Kf8. 27. Rb5 — Hc5. 28. a4 —
a6. 29. Ra3 — Hxd4. 30. exd4 —
Hc6. 31. Rc2 — a5. 32. Hb2 —
Ke7. 33. d5 — Bxd5. 34. Rd4 —
Hc5. 35. Hxb6 — h5. 36. Kf2 —
Kd7. 37. h4 — Kc7. 38. He6 —
Kd7. 39. Hb6 — Kc7. 40. He6 —
Kd7. 41. Ha6 — Bb7. 42. Hb6 —
Kc7. 43. He6 — Kg7. 44. Hb6 —
Kc7. 45. He6 jafntefli.
Á morgun er fri vegna þess að
engar skákir hafa far-
ið i bið i siðustu umferðum en
lokaumferðin verður tefld á
föstudaginn.
FÍA
ekki
ASÍ
Litt skiljanlegur ruglingur
komstinn ifréttáforsiðu blaðsins
i gær, þar sem sagði frá Vængja-
málinu, en þar var frá þvi skýrt,
að ASÍ hefði boðað til verkfalls.
Eins og gefur auga leið var það
ekki ASl, sem til verkfallsins boð-
aði heldur FIA.
ASÍ hefur hins vegar samþykkt
að styðja aðgerðir þær, sem til
verður gripið.
Skipuð hefur verið samstarfs-
nefnd um aðgerðir. Verkfallsboð-
un FÍA kemur til framkvæmda
26. mai. —úþ