Þjóðviljinn - 20.05.1976, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 20.05.1976, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. mai 1976 ÍITBOÐ Tilboö óskast i straumspenna fyrir kWh mæla fyrir Raf- magnsveitu Reykjavikur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuveg 3 Tilboðin verða opnuð á sama stað, föstudaginn 18. júni 1976, kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN R£YKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 —j Sími 25800 Aðvörun um stöðvun atvinnurekstrar vegna vanskila á söluskatti Samkvæmt kröfu tollstjórans i Reykjavik og heimild i lögum nr. 10,22. marz 1960, verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja hér i umdæminu, sem enn skulda sölu- skatt fyrir janúar, febrúar og marz 1976, og nýálagðan söluskatt frá fyrri tima, stöðvaður, þar til þau hafa gert full skil á hinum vangreiddu gjöldum, ásamt áfölln- uní dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir sem vilja komast hjá stöðvun, verða að gera full skil nú þegar til tollstjóraskrifstofunn- ar við Tryggvagötu. Lögreglustjórinn i Reykjavik, 17. mai 1976. Sigurjón Sigurðsson. Fulltrúastaða í utanrí kisþ j ónustunni Staða fulltrúa i utanrikisþjónustunni er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-' un og fyrri störf sendist utanrikisráðu- neytinu Hverfisgötu 115, Reykjavik, fyrir 9. júni 1976. Staðan verður veitt frá og með 1. júli 1976. Utanrikisráðuneytið Reykjavik, 17. mai 1976. -------------- -----------------------^ Sovéskar bækur og tímarit (á ensku), hljómplötur og nótur. Opið frá kl. 10—12 og 14—18 föstudaga til kl. 19, laugardaga kl. 10—12. ERLEND HMARIT Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig 2. hæð. ^ff^Blómabúðin MÍRA Suðurveri við Stigahiið 45—47, simi 82430 Miðbæ við Háaleitisbraut simi 83590 Blóm og gjafavörur i úrvali Auglýsingasiminn er 17-500 r WÐVIUINN Edduhóteliö á Skógum undir Eyjafjöllum Tíu Edduhótel á níu stöðum í sumar Nýtt hótel starfrœkt i heimavist * Menntaskólans á Isafirði Um hvítasunnuhelgina tekur fyrsta Eddu-hótelið til starfa, þ.e. hóteliðað Kirkiubæiarklaustri, en síðan opna þau eitt af öðru um og upp úr miðjum júnímánuði og starfa síðan þar til í lok ágúst. Tíu Eddu-hótel verða starfrækt i sumar og bætist eitt nú við í heimavist Menntaskólans á Isafirði. Verður það opið til 25. ágúst. Þegar er búið að taka við pöntunum á verulegum hluta þess hótelrýmis, sem fyrir hendi er og þvier nauðsynlegt fyrir innlenda ferðamenn að fara að hugsa fyrir sumar- leyfisferðum sínum um landið, ef þeir ætla að færa sér i nyt þjónustu Eddu-hótelanna. Sértilboð HÓTEL EDDU sumarið 1976 Siðastliðið sumar tóku EDDU- hötelin upp þá nybreytni að veita afslátt þeim, er pöntuðu og greiddu fyrirfram fyrir 7 nátta gistingu, og varð þetta mjög vinsælt. Nokkur hundruð manns notfærðu sér þetta tilboð, vel- flestir til að fara hringinn kring- um landið. Nú i sumar vilja EDDU-hótelin fremur stuðla að þvi, að menn skoði betur einstaka landshluta, og auglýsa því nýtt sértilboð HÖTEL EDDU fyrir sumarið 1976: — Veittur er 30% afsláttur af gist- ingu og morgunverði, þeim er dvelja samfleytt i 3 nætur eða lengur á sama hóteli, og þeir hinir sömu fá þá einnig 15% afslátt af öllum mat i veitinga- sölum, meðan þeir dveljast á hótelunum. Kostar þá gisting i 3 næstur l tveggja manna her bergi ásamt morgunverði kr. 4.500 á mann, en t.d. i 7 nætur kr. 10.500 á mann. Gisting i Hús- mæðraskólanum að Laugar- vatni er nokkru dýrari, enda öll herbergi þar með sérsnyrtingu og steypubaði. Börn fá afslátt af þessu sér- verði eftir sömu reglum og gilda um barna-afslátt af almennu verðlagi á EDDU-hótelum. Til þess að geta notiö þessara kjara verða menn að panta og greiða fyrirfram fyrir gistingu og morgunverð. Móttaka pant- ana hefst 10. mai, en sértilboð þetta stendur til 10. júni eða meðan hótelrými er fyrir hendi. Allar nánari upplýsingar eru veittar i afgreiðslu Ferðaskrif- stofu rikisins að Reykjanes- braut 6 eða i simum skrifstof- unnar. Almennt um EDDU-hótel Á EDDU-hótelunum munu i sumar eins og endranær fást allar algengar veitingar, að undanskildum hótelunum að Reykjum og á Akureyri, en þar er aðeins veittur morgunverður og kvö'ldkaffi. Herbergi eru alls- staðar björt og vistleg, setustof- ur (oft búnar sjónvarpi) eru til afnota fyrir hótelgesti og sund- laugar ýmist á staðnum eða i næsta nágrenni. 1 Húsmæðra- skólanum að Laugarvatni fylgir bað hverju herbergi auk þess sem sauna er i húsinu, en ann- arsstaðar er handlaug með heitu og köldu vatni i hverju herbergi. Verð á gistingu er allsstaðar hið sama, eða kr. 3.200 á nóttu fyrir tveggja manna herbergi, en kr. 2.450 fyrir eins manns herbergi án baðs. Morgunverður kostar kr. 550. Þó kostar gisting i Hús- mæðraskölanum á Laugarvatni kr. 5.500 fyrir tveggja manna herbergi og kr. 4.200 fyrir eins manns herbergi með baði. Nýtt EDDU-HÓTEL Nýtt hötel bætist i sumar i flokk EDDU-hötela, en þann 16. júni n.k. tekur til starfa EDDU-hbtel í heimsvist Menntaskólans á Isafirði og verður opið til 25. ágtist. Með þvi er stórbætt aðstaða ferðafólks til að kynnast hinni stórbrotnu náttUrufegurð Vestfjarðanna, en oft á tiöum hefur veriö erfitt, að sumarlagi, að fá inni á þeim fáu hótelum, sem starfrækt eru á Vestfjarðakjálkanum. EDDU-hótelin eru þá samtals orðin 10 talsins á 9 stööum á landinu og fara hér eftir helstu upplýsingar um hvert þeirra: Hótel EDDA, Reykholti i Borgarfiröi — opið 13. jUni — 25. ágUst. Simí um Reykholt (02). Hótelstjóri verð- ur Vilhjalmur Einarsson. I hótelinu eru 64herbergi með 128 rUmum ennfremur svefhpoka- pláss i skólastofum fyrir 30—40 manns. Hótel EDDA Isafirði — opið 16. jUni — 25. ágUst. Simi: 94-3876. Hótelstjóri verður Sóley Ingólfsdóttir. I hótelinu eru 38 herbergi með 70 rUmum. Svefnpokapláss er ekk- ert fyrir hendi. Hótel EDDA, Reykjum i Hrútafirði — opið 25. júni — 25. ágúst. Simi um Brú (95-1111). Hótelstjóri verður Aðalbjörg ólafsdóttir. I hótelinu eru 34 herbergi með 68 rúmum, auk þess svefnpokapláss fyrir 40—50 manns i skólastofum og herbergjum án handlauga. Aðeins framreiddur morgun- verður og kvöldkaffi. Hótel EDDA, Húnavöllum við Reykjabraut (Svinadal) — opið 18. júni — 25. ágúst. Simi: 95-4370. Hótelstjóri verður Helga Helgadóttir. í hótelinu eru 23 herbergi með 46 rúmum, ennfremur svefnpoka- pláss i skólastofu fyrir 40—50 manns. Hótel EDDA, Akureyri — opið 18. júni — 31. ágúst. Simi: 96-11055. Hótel- stjóri verður Rafn Kjartansson. i hótelinu eru 48 herbergi með 95 rúmum. Aðeins framreiddur morgunverður og kvöldkaffi. Hótel EDDA, Eiðum i Hjaltastaðaþinghá — opið 22. júni — 25.ágúst. Simi um Eiða (02). Hótelstjóri verður Jón Grétar Kjartansson. í hótel- inu eru 47 herbergi með 105 rúmum og að auki svefnpoka- pláss i skólastofum fyrir 30—40 manns. Hótel EDDA, Kirkjubæjarklaustri — opið 5. júni — 31. ágúst. Simi: 99-7026. Hótelstjóri verður Margrét isleifsdóttir. i hótelinu eru 18 herbergi með 34 rúmum, enn- fremur svefnpokapláss i skóla- stofum fyrir 30—40 manns. Hótel EDDA, Skógum undir Eyjafjöllum — opið 13. júni — 25. ágúst. Simi um Skarðshlið (02) og um Hvolsvöll (99-5111). Hótelstjóri verður Áslaug Alfreðsdóttir. i hótelinu eru 32 herbergi með 69 rúmum, og að auki svefnpoka- pláss i skólastofum. Hótel EDDA, Laugarvatni (Menntaskólan- um) — opið 17. júni — 31. ágúst. Simi: 99-6118. Hótelstjóri verður Erna Þórarinsdóttir. 1 hótelinu eru 88herbergi með 138 rúmum, en að auki er svefnpokapláss i skólastofum. Hótel EDDA, Laugarvatn (Húsmæðraskólan- um) —opið 15. júni — 31. ágúst. Simi: 99-6154. Hótelstjóri verður Huld H. Goethe. í hótelinu eru 27 herbergi með 54 rúmum. Svefn- pokapláss er ekkert. Bað fylgir hverju herbergi og i hótelinu er einnig sauna-bað fyrir hótel- gesti.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.