Þjóðviljinn - 25.05.1976, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 25.05.1976, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 25. mal 1976. Hringbrautin veröur færö Ekki var einhugur um það i borgarstjórn að færa til Hring- brautina og setja hana niður I Vatnsmýri. Sjálfstæðismenn samþykktu þann tilflutning, sósialistar og framsóknarmenn vildu láta hana vera þar sem hún nú er komin. Mun þvl að þvi koma að Hringbrautin verði færð úr stað og mun hún liggja um hlaöið á Umferðam iðstöðinni. Með þessu stækkar byggingarsvæði Landsspitalans verulega, og eins og sést af myndinni sem —eik tók af likani fyrirhugaðra bygginga á lóðinni verða þær engin smásmíði. Stefnt er að þvl, að fram- kvæmdum ljúki á árunum 1979 og 1980. Brotalinan á myndinni sýnir Hringbrautina eins og hún er nú og sést vel, að byggingar Land- spltalans munu standa sitt hvoru megin við það svæði, sem hún liggur um. —úþ Síídveiðarnar fyrir Suðurlandi: Nú verður aflinn gerður upptækur Veiði skipin meira en kvóti þeirra leyfir — 16 bátar voru kœrðir i fyrra og eru mál þeirra fyrir dómi Eins og menn eflaust muna voru nokkur brögð að þvi að sum þeirra skipa sem leyfi fengu til sildveiða fyrir Suðurlandi sl. haust veiddu meira en kvóti sá er þeim var úthlutaður leyfði. Að sögn Þórðar Ásgeirssonar skrif- stofustjóra i sjávarútvegsráðu- neytinu voru alls 16 skip kærð i fyrrá og eru mál þeirra nú fyrir dómi, en hann sagðist ekki vita til að neinu þeirra væri enn lokið. Næsta haust, þegar búist er við að leyft verði að veiða 15 þúsund lestir af sild fyrir Suðurlandi, i stað 12 þúsund lesta i fyrra verða viöurlög við brotum sem þessum mun harðari. Samkvæmt lögum sem alþingi samþykkti nýlega um ólöglegan afla og fleira, er gert ráð fyrir þvi, að ólöglegur afli verði gerður upptækur. Sagði Þórður Asgeirsson að .þessum nýju lögum yrði beitt að fullu i haust þegar sildveiðarnar hefjast, fari eitthvert skipið yfir þann kvóta sem þvi verður út- hlutaö. Ráðuneytið hefur enn ekki á- kveðið hve mikið magn verður leyft að veiða i haust, talan 15 þúsund lestir er tillaga Hafrann- sóknarstofnunarinnar og þvi hef- ur heldur ekki verið ákveðið hve mörg skip fá leyfi til veiðanna að sögn Þórðar. —S.dór Breytingar á lífeyris- greiðslu á næsta leiti í kjarasamningum ASl og vinnuveitenda i vetur er leið var samið um ákveðnar breytingar I sambandi viö greiðslur til líf- eyrisþega, en þar sem lagabreyt- ingu þurfti til fór máliö til alþing- is þar sem lagabreyting þessu viðkomandi var samþykkt og sagði Karl Benediktsson, hjá lif- eyrissjóði Dagsbrúnar og Fram- sóknar að hann byggist við að þetta nýja fyrirkomulag tæki gildi alveg næstu daga. Aðal-breytingin er fólgin i þvi að i stað þess að miða laun lif- eyrisþega við meðaltal launa sið- ustu 5 árin verður miðað viö laun 1. og 7. hvers mánaðar árlega. Þar með á að vera tryggt að þess- ar greiðslur haldi i viö verðbólg- una. Sagði Karl að hjá lifeyrissjóði Dagsbrúnar, svo dæmi væri tekiö, hefði verið fariö þannig að að 2. taxti félagsins hefði verið notaður og laun siöustu 60 mánaða tekin og deilt i með 60 og þannig heföi verið fundið út hvaða viðmunar- tölu ætti að nota en lifeyrisþegar fá ákveðna prósentutölu af þessu meðaltalskaupi. Nú verður hins- vegar miðað vib hve hátt kaup var greitt samkvæmt 2. taxta Dagsbrúnar 1. jan. sl. og greitt eftir þvi fram til 1. júli en þá fer fram endurskoöun, hafi laun hækkað á timabilinu og greitt samkvæmt þvi til 1. jan. 1977. —S.dór LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 - Sími 81960

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.