Þjóðviljinn - 05.06.1976, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. júnl 1976.
DWDVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Ctgefandi: Ctgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Ilaraldsson
lUmsjón meö sunnudagsblaöi:
Atni Bergmann
Ritstjórn, afgreiösia, auglýsingar:
Skólavöröust. 19. Simi 17500 (5 linur)
Prentun: Blaöaprent h.f.
HVAR VANNST SA SIGUR?
Enn eru samningarnir við breta um
landhelgismálið helsta umræðuefnið
manna á milli og i skrifum dagblaðanna.
Talsmenn stjórnarflokkanna leggja allt
kapp á, að sannfæra fólk um, að i Osló hafi
náðst sá árangur, að bretar viðurkenni nú
200 milna landhelgi okkar, og þar með sé
fullur sigur unninn, sem þakka beri ráð-
herrunum i rikisstjórn Islands.
Það rétta er hins vegar, að i samkomu-
laginu við breta er hvergi að finna neina
skýlausa yfirlýsingu af þeirra hálfu um
viðurkenningu á 200 milna fiskveiðiland-
helgi við íslandsstrendur, bretar áskilja
sér allan rétt til að láta Efnahagsbanda-
lagið beita okkur harðvitugum efnahags-
þvingunum fái breskir togarar ekki að
veiða hér áfram eftir 1. des. n.k.
Þarna fylgir þvi sá böggull skammrifi,
sem auðvitað samrýmist engan veginn
skýlausri viðurkenningu, enda ekki um
hana að ræða.
Hitt er rétt, að bretar gátu ekki komist
hjá þvi að viðurkenna að nokkru þær stað-
reyndir, sem fyrir lágu, annars vegar um
alþjóðlega þróun hafréttarmála, og hins
vegar um árangur islensku varðskipanna,
en vanmátt breska flotans við að tryggja
árangursrikar fiskveiðar breta hér án
samninga.
Sú takmarkaða og skilyrta viðurkenn-
ing, sem bretar láta i té, er aðeins viður-
kenning á þessum bláköldu staðreyndum,
sem eldci var i valdi bresku rikisstjórnar-
innar að breyta. Það er þvi á miðunum við
tsland og á hafréttarráðstefnunni, sem
okkar sigrar hafa unnist en ekki úti i Osló.
Þrátt fyrir margvislegar úrtölur og
undanhald einstakra stjórnmálamanna og
flokka á liðnum árum hefur okkur samt
fyrir þrautseiga baráttu islenskrar alþýðu
og hetjulega framgöngu varðskipsmanna
tekist að eiga drjúgan hlut að þvi að reisa
þá „óstöðvandi alheimshreyfingu” fyrir
óskertum rétti strandrikja til 200 milna
auðlindalögsögu, sem Anthony Crosland,
utanrikisráðherra breta talar nú um.
Breska rikisstjórnin veit vel, að á fundi
hafréttarráðstefnunnar nú i sumar, er
þess að vænta, að samþykkt verði með at-
kvæðagreiðslu alþjóðalög, sem tryggi
strandrikjum skýlausan einhliða rétt til
alls forræðis innan 200 milna markanna.
Breska rikisstjórnin veit lika að sjálf hef-
ur hún, vegna eigin hagsmuna, ákveðið að
greiða atkvæði á sama hátt og fulltrúar ís-
lands um þetta mál.
Þannig er þess að vænta, að siðsumars
liggi fyrir alþjóðleg og endanleg viður-
kenning á 200 milna auðlindalögsögu, ekki
bara Islands, heldur strandrikjanna al-
mennt. Sú takmarkaða og skilyrta viður-
kenning, sem bretar létu i té i Osló i þess-
um efnum er þvi ekki þakkarverð.
En breska rikisstjórnin vissi ekki að-
eins, að nú siðsumars yrði hún væntanlega
knúin til að viðurkenna 200 milna lögsögu
við ísland, vegna hinnar „óstöðvandi al-
heimshreyfingar”, sem þegar hefur sýnt
sig á ótviræðan hátt á hafréttarráðstefn-
unni, og bretar hafa sjálfir gerst þar aðil-
ar að, — heldur vissi rikisstjórn Stóra-
Bretlands einnig, að fiskveiðar við ísland
verða ekki stundaðar með árangri undir
herskipavernd, sé varðskipum íslendinga
beitt. Opinberar veiðitölur breta sýndu að
aflinn var hér fullum þriðjungi minni á
veiðidag hvers togara nú undanfarna
mánuði, heldur en verið hafði á siðasta
ári, þegar togararnir fengu að veiða i
friði. Það er tæp 5,5 tonn nú á móti 8,2
tonnum sömu mánuði i fyrra.
Af þessum tveimur ástæðum vildu bret-
ar umfram allt semja nú. Þeir vissu sem
var, að herskipum gætu þeir undir engum
kringumstæðum beitt hér, þegar niður-
stöður hafréttarráðstefnunnar liggja end-
anlega fyrir um 200 milna auðlindalög-
sögu og rétt strandrikja, en það verður
væntanlega i haust.
Þeir vissu lika, að varðandi áframhald
fiskveiða hér næsta vetur ættu þeir þvi allt
undir annars vegar hugsanlegum velvilja
islenskra stjórnvalda, og hins vegar
mögulegum efnahagsþvingunum Efna-
hagsbandalagsins gegn okkur.
Striðið var tapað fyrir breta. Við höfð-
um unnið það áður en ráðherrarnir fóru til
Osló. Það er mergurinn málsins. Að
nokkru kemur þetta fram i samningunum
i Osló, en þó er meginniðurstaða þeirra sú,
að fullum sigri er slegið á frest að óþörfu,
og bretum tryggðir betri kostir en þeir
áttu skilið, og betri kostir en þeir höfðu
nokkra stöðu til að knýja fram, ef engan
bilbug hefði verið á islensku ráðherrunum
að finna.
Að loknum fundi hafréttarráðstefnunn-
ar i sumar verður það væntanlega alfarið
á valdi islenskra stjórnvalda einna, hvort
bretar veiða hér áfram eftir 1. des. Þar
breytir samkomulagið i Osló engu til eða
frá.
Það versta er hins vegar, að þrátt fyrir
hótanir breta um efnahagsþvinganir, þá
fylgir samkomulaginu alls engin yfirlýs-
ing frá islensku rikisstjórninni um að þann
1. des. n.k., þegar samkomulagið rennur
út, ljúki veiðum breta hér endanlega.
Þvert á móti gefa ráðherr-
arnir islensku i sinum yfir-
lýsingum bretum undir fót-
inn um „gagnkvæm veiðirétt-
indi” að samningstima liðn-
um. Margt bendir til að bretar telji sig
nú þegar örugga um slika framlengingu,
ef sama rikisstjórn fer með völd á íslandi.
Við erum þvi enn ekki búin að bita úr nál-
inni, — en láti stjórnvöld undir höfuð
leggjast að stöðva veiðar breta þann 1.
des., þá er þar um hreinar matgjafir að
ræða, annað ekki.
□ Finnur Torfi Stefánsson, )
Prófsteinn
Finnur Torfi krefst löglegs þingfundar.
Auöunn varar viö vaxandi
forréttindum útlendinga.
Foréttindi
útlendinga
Rætt var viö Auöun Auðuns-
son skipstjóra á togaranum
Hvalbak i DB i fyrradag og var
hann aö vanda ekki myrkur I
máli vegna landhelgismálsins.
Auöunn sagöi:
„Ég fæ ekki séö I nokkrum
samningum aö útlendingar sem
fá aö veiöa á Islandsmiðum
þurfi aö fara eftir islenskum
reglum um möskvastærö um
leið og veriö er aö heröa aö okk-
ur sjálfum hvað þaö varöar.”
Auöunn benti á aö „útlendingar
væru með 120 mm möskva skv.
samþykkt NA-Atlantshafsfisk-
veiðinefndarinnar, islensku
togararnir væru nú meö stærri
möskva i netum sinum eöa 135
mm og yröu þeir aö líkindum
stækkaöir upp i 150—155 mm i
haust, þannig aö munurinn væri
30 til 35 mm.” ...„þeir islensku
mættu ekki koma meö fisk aö
landi undir 50 cm um leiö og t.d.
i Færeyjum fengjust röskar 30
kr. fyrir fisk af stæröinni 32—42
cm.”
Um Oslóarsamningana haföi
Auöunn þetta aö segja: „Ljótt
er til þess aö vita að nú er veriö
aö semja viö útlendinga um
áframhald þessara veiöa hér 70
til 80 þúsund tonn á árinu yröi
samanlagður afli þeirra og
annarra útlendinga hér, sjálf-
sagt ekki undir svona 150 þús-
und tonnum, en þaö þýddi aö
leggja yröi islenskan sjávarút-
veg niöur eftir hálft áriö.”
„Þá miöar Auöunn viö þær
hámarkstölur sem talað er um
i svörtu skýrslunni og að ekki
yrði skefjaláus rányrkja stund-
uö hér á miöunum það sem eftir
væri árs,” bætir DB viö.
Þaö er svart útlitiö eftir
samnihgana aö dómi þessa
reynda skipstjóra. Hann óttast
afleiöingar samkomulagsins viö
útlendinga fyrir Islenskan
sjávarútveg, sem gæti lagst
niöur eftir hálft áriö, en jafn-
framt mætti spyrja hvort þessir
frægu „sigurherrar samninga-
borösins” hafi alveg gleymt aö
nefna möskvastæröir. Eitt er
vlst að Matthias man eftir þeim
þegar sjávarútvegsráöuneytiö
skipar vestfirskum sjómönnum
fyrir, en útlendingar hafa for-
réttindi aö dómi ráöherrans.
Spjallfundir
góðborgara!
Finnur Torfi Stefánsson lög-
fræöingur skrifar grein I Al-
þýöublaöiö á fimmtudag er
hann nefnir Prófsteinn alþingis.
Þar vikur hann aö þeirri
ákvöröun rikisstjórnarinnar aö
sniöganga alþingi og láta sam-
komulagiö i Osló taka gildi án
þess aö kalla alþingi saman.
Telur Finnur samþykktir þíng-
flokka ekki rétthærri en spjall-
fundi góöborgara. Finnur Torfi
segir:
„Þvi hefur verið haldiö fram
aö þingmenn stjórnarflokkanna
hafi veitt rikisstjórninni umboð
til þess aö gera samkomulagiö.
Mun þar vera átt viö þingflokks-
fundiþá, sem haldnir voru til aö
kynna þingmönnum niöurstööur
Osló umræönanna fyrri. Þaö
var tekiö skýrt fram þá, að
hvorugur stjórnarflokkanna
heföi gert neina samþykkt um
máliö, heldur heföi þaö einungis
veriökynnt og rætt. Ekki veröur
ráöherrum veitt umboö til
samninga viö erlendar þjóöir
meö þeim hætti. Hvar fékkst þá
umboðið? 1 persónulegum viö-
tölurn ráöherra viö þingmenn?
Eöa var ef til vill ekki um neitt
umboö aö ræöa?
Ennfremur má taka fram aö
þingflokksfundum eru engar
heimildir veittar i stjórnlögum
landsins til ákvarðana i málefn-
um þjóöarinnar. 1 þessum
skilnipgi eru þeir ekki rétthærri
en spjallfundur góöborgara á
kaffihúsi. Einungis löglegur
þingfundur á Alþingi hefur þetta
vald, þar sem m.a. þvi grund-
vallarskilyröi er fullnægt aö
umræöur fara fram fyrir opnum
tjöldum.
Alþingi á nú leikinn, eti þjóöin
blöur og vonar.” —óre