Þjóðviljinn - 05.06.1976, Page 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. júnl 1976.
VERÐLAUNAKROSSGÁTA ÞJÓÐVILJANS
Leiöbeiningar
Stafirnir mynda islensk
orð eða mjög kunnugleg
erlend heiti, hvort sem
lesið er lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt
númer og galdurinn við
lausn gátunnar er sá aö
finna staflykilinn. Eitt
orð er gefið og á það aö
vera næg hjálp, þvi að
meö þvi eru gefnir stafir I
allmörgum öðrum orö-
um. Það eru þvi eðlileg-
ustu vinnubrögðin að
setja þessa stafi hvern i
sinn reit eftir þvi sem töl-
urnar segja til um. Einnig
er rétt að taka fram, að i
þessari krossgátu er
gerður skýr greinarmun-
ur á grönnum séíhljóða
og breiöunri, t.d. getur a
aidrei komið i stað á og
öfugt.
Fótspor
fiskimannsins
MORRIS L.VMÍST
/ Z 3 ¥• S' 2? 8 V 8 10 3 // 2? ? 12
/3 W /<T /6 /? ie V *o 18 18 2D b V 9 2o ? 2 R?
2/ /r V 8 /r 2 8 20 (o 2? 22 23 9 2 3 9
2* w 26' 2V- 2¥ 23 (p y 2!o Zz (o 2? 2 1/ 22 V 8
1/ (o /2 1/ 28 23 2V V 2? 21 2? v t (e> 29 at 2*
/f 2Sr V (o r 2(e V é Z 1/ 26 1/ /6 2</ 2/ y
20 22 // V (p 20 2j(p 5 II 2? 20 2? 10 II 8 II (o 23
28 ll 20 2* ? 2 2L> 2S (o II 23 2? 28
22 v 2b 2%. 2¥ V /s U /8 ? 3 2V 1 23 28
1/ 2¥ I/ <5? 10 3 tj <? (p II $8 2(s> Zf 31 3 2/ 7
22 2 22 /r $ a 23 (p V (o 30 28 ll 2 30 M // 28
SkákRi«({<i t<Ríf ÍMifiMvf iwikartrmar
Wnhel*lumími
Setjiö rétta stafi i reitina neð-
an við krossgátuna. Þá kemur
fram nafn á forsætisráðherra i
Evrópu. Sendið þetta nafn sem
lausn á krossgátunni til af-
greiðslu Þjóðviljans, Skóla-
24- 23> 22 n 22 31 u 28 15'
Ólafssonar. útgefandi er Prent-
smiöja Jóns Helgasonar. Aður
hafa verið þýddar á islensku
tvær af sögum Morris West,
Babelsturninn og Málsvari
myrkvahöfðingjans.
vörðustig 19 Rvk. merkt „Verð-
launakrossgáta nr. 33”. Skila-
frestur er þrjár vikur.
Verðlaun eru skáldsagan Fót-
spor fiskimannsins eftir Morris
West i þýðingu Magnúsar Torfa
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 29
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 29 hlaut Lóa Friðriks-
dóttir, Grund Vopnafirði.
Verðlaunin eru skáldsagan Brosið eftir Kristmann
Guðmundsson.
Að leita langt yfir skammt.,,
Fjórar ódýrar Færeyja-
ferðir hafa gleymst í
öllum ferðaæsingnum!
Fleiri uppsagnir
hjá sjónvarpinu?
Sjónvarpsmenn styðja yfirvinnu
bannið
I fréttatilkynn. frá Norræna fél-
aginu kemur fram að svo undar-
lega bregði við aö þegar nær upp-
selt sé I hverja einustu norður-
landaferð félagsins i sumar verði
ekki betur séð en að hinar ódýru
Færeyjaferðir virðist gjörsam-
lega hafa gleymst. Feröahugur-
inn er mikill i mönnum og ein-
hverra hluta vegna hafa frændur
okkar í Færeyjum lent utan gátta.
Þangað eru skipuiagðar fjórar
feröir i sumar og kostar fargjald-
iö fram og tilbaka aðeins rúmar
sextán þúsund krónur. Boðið er
upp á allt að hálfsmánaðarferðir
og geta þátttakendur notið góðs af
kynnisferðum um eyjarnar. Út-
veguð er gisting á farfuglaheimil-
um og öllum séð fyrir tveimur
máltiðum á dag.
Lagt verður af stað i ferðirnar
fjórar dagana 27. júni, 11. og 25
júli og siðan 8. ágúst. t fréttatil-
kynningunni segir m.a.:
„Feröirnar innan eyjanna
verða þannig að farið verður i bil-
um um Straumey og Austurey,
siglt til Klakksvikur og gist þar
eina nótt, siðan verður farið það-
an til Viðareyjar um jarögöng
sem samtals eru á fjórða km
löng. Þá verður heilsdagsferð til
Sandeyjar, siglt þangaö en ekið i
bilum um eyjuna og loks verður
farið i siglingu til Nolseyjar.
Þátttakendur þurfa að hafa
með sér svefnpoka eða annan út-
búnað tii að sofa við.
Þeir sem hafa huga á að taka
þátt i ferðinni 27. júni þurfa að
bregða skjótt við og panta far
strax^aðrir hafa aðeins meiri um-
hugsunarfrest. Islendingar ættu
að kynnast næstu nágrönnum sin-
um betur en þeir gera og hér er
tækifæri til að kynnast frændum
vorum færeyingum og lifskjörum
þeirra fyrir sérstaklega hag-
kvæmt verö.”
— gsp
Seint i gærkvöldi barst eftir-
farandi fréttatilkynning frá
Starfsmannafélagi sjónvarpsins:
„Vegna blaðaskrifa að undan-
förnu um uppsagnir sjónvarps-
starfsmanna vill stjórn og
samninganefnd sjónvarps að
fram komi að margt bendi nú til
þess að enn fleiri sjónvarps-
starfsmenn hætti störfum á næstu
mánuðum vegna algerlega óvið-
unandi launakjara sem eru
langtum lakari en gengur og
gerist á frjálsum vinnumarkaði.
Stjórn og samninganefnd lýsir
stuðningi við þær aðgerðir, sem
starfsmenn útvarpsins hafa beitt
sér fyrir til að freista þess að
knýja fram kjarabætur og itrekar
að ekki verður annað séð en að
eina leiðin til þess að fá fulltrúa
rikisvaldsins til að ræða um
kjarabætur á raunhæfum grund-
velli sé sú að starfsmenn taki til
sinna ráða.”
35 skæru-
liðar
felldir
SALISBURY NTB-Reuter 4/6 —
Siöustu vikuna hafa hermenn
Ródesiustjórnar fellt 35 blakka
skæruliða, að þvi er talsmenn
stjórnarinnar halda fram.
Kenneth Kaunda Sambiuforseti
sagði i fyrri viku að skæruliðar
baráttusamtaka blökkumanna i
Ródesiu stunduðu æfingar i
Sambiu og yrði þeim leyft að gera
þaðan árásir inn i Ródesiu.
Talsmenn Ródesiustjórnar
segjast ekki hafa mikla trú á þvi
aö innrásir skæruiiða frá Sambiu
hefjist á næstunni.
Ökeypis
námskeið í
skyndihjálp
REYKJAVIKURDEILD
Rauða kross Islands gengst á
næstunni fyrir námskeiði i
lifgunartilraunum með blást-
ursaðferð og nokkrum öðrum
meginatriðum skyndihjálpar.
Námskeiðið verður þrjú kvöld
(9 kennslustundir) og er þátt-
takendum að kostnaðarlausu.
Námskeiðið hefst á þriðjudag.
Leiðrétting
um
Tónabœ
Þau mistök urðu I fimmtu-
dagsblaöi Þjv. að ein setning
féll niður á viðkvæmum staö i
fréttum starfsemi Tónabæjar.
Sagt var frá þvi aö velta fyrir-
tækisins hefði á sl. ári verið
um 25 miljónir en framlag
borgarinnar var aö sjálfsögðu
ekki svo mikið heldur aöeins
sem nam halia á rekstrinum,
sem var áætlaöur um sjö milj-
ónir en reyndist aðeins rúmar
fjórar mújdnir er upp var
staðið. Þykir fjárhagsafkoma
Tónabæjar þvi með ágætasta
móti.
— gsp