Þjóðviljinn - 05.06.1976, Side 20
Hirtu verðmætin..
en skildu allt draslið eftir i skrautlegum blómagarði
Það er ekki ofsögum sagt af
snilli sumra stofnana Reykja-
víkurborgar og er hreinsunar-
deildin ein sú skrautlegasta.
Nýjasta dæmið af furðulegum
vinnubrögðum þessarar deildar
áttu sér stað i fyrradag.
Haraldur Guðbergsson teiknari,
býr vestur á Brekkustig 7 og þar
á hann á lóð sinni listilegan
blóma og jurtagarð, i orðsins
fyllstu merkingu. Eins og alls-
staðar þar sem blóma og jurta-
rækt er stunduð vill nokkuð
verða um rusl meðan á vorönn-
um i görðunum stendur. Þannig
var það hjá Haraldi og hringdi
hann þvi til hreinsunardeildar
borgarinnar og spurði hvort hún
vildi flytja fyrir sig ruslið á
haugana. Það var ekkert þvi til
fyrirstöðu en það kostaði bara
mörg þúsund krónur, þannig að
Haraldur afþakkaði það og
sagðist myndi sjá um flutning-
ana sjálfur.
Það gerði hann lika, en á
meöan hann var að fara næst
siðustu ferðina á haugana á
litlum sendiferðabil sem hann á,
milli kl. 8 og 9 i fyrramorgun,
kemur allt i einu bifreið frá
hreinsunardeild og með henni 3
menn. Þeir tóku þar fiest sem
laust var i garðinum, nema
ruslahrúgu nokkra^hana skildu
þeir eftir. Og flest af þvi sem
þeir hirtu voru mikil verðmæti,
meðal annars sæsorfnar spýtur
sem Haraldur notar til skrauts i
garði sinum og hefur viðað að
sér i vetur með þvi að ganga
fjörur, og auk þess fúavarða
lista, sem hann notar og ýmis-
legt fleira, svo sem glugga með
sérstökum loftventli sem hann
notar við blómarækt i kjallara
sinum. En ruslahrúguna skildu
þeir eftir.
Þegar Haraldur hafði
samband við hreinsunardeiid
var fátt um svör, nema hortug-
heit. Þeir viðurkenndu að visu
að hafa farið i garð hans, sendu
vörubilstjóra og unglingspilt,
sem var i sjálfsvald sett hvað
þeir hir,tu. Forsvarsmaður
hreinsunardeildar sagði að lóð
og garður Haraldar hefði um
árabil verið á svörtum lista hjá
þeim ’1 svo furðulegt sem það
er, þvi garðurinn er listafagur,
en þess ber að geta að Haraldur
notar ýmislegt óvenjulegt til
skrauts sem ekki fæst i búðum,
en greinilegt er að það eitt sem i
verslunum fæst telst til verð-
mæta i augum snillinganna hjá
hreinsunardeildinni.
Sjálfsagt fær Haraldur tjón
sitt ekki bætt en sjálfsagt er að
vara fólk við hreinsunardeild-
inni meðan svona vinnubrögð
tiðkaðist hjá henni.
—S.dór.
Furðuleg vinnubrögð hreinsunardeildar
Haraldur Guðbergsson teiknari í garði slnum. Og þessi fallegi blómagarður hefur að sögn hreinsunar-
deildar Reykjavikurborgar verið á svörtum lista árum saman!!! Viðurinn sem Haraldur notar I grind-
verkið sem er fyrir framan hann á myndinni er að visu ekki keyptur I timburverslun, heldur er um að
ræða sæsorfinn við sem hann hefur tínt saman á fjörum i kringum borgina. — Ljósm. S.dór.
DJOÐV/Um
Laugardagur 5. júni 1976.
Samtök frjálslyndra álykta:
,Bein uppgjöf í
landhelgismálinu’
Samtök frjálslyndra og vinstri-
manna hafa á sameiginlegum
fundi þingflokks og fram-
kvæmdastjórnar samþykkt harð-
orða ályktun um landhelgismálið.
Alyktunin er löng og hefur margt
i henni komið áður fram I yfirlýs-
ingum stjórnarandstöðunnar
sameiginlega. En I niðurlagi
ályktunarinnar segir:
„Samkomulag þetta við breta
er stórhættulegt og mun hafa í för
með sér háskalegar afleiðingar
fyrir þjóðina og er nánast bein
uppgjöf i landhelgismálinu.
Að öllu þessu athuguðu og þeg-
ar höfð er i huga sú þróun i haf-
réttarmálum, sem átt hefur sér
stað og bendir til að innan mjög
skamms tima megi vænta viöur-
Framhald á 18. siðu.
íslandsmótið i bridge:
Urslitakeppnin verður um helgina
C'rslitakeppni Islandsmótsins i
bridge fer fram um þessa helgi og
hófst keppnin raunar i gær, föstu-
dag. Það eru 8 sveitir sem þátt
taka i úrslitakeppninni og i l. um-
ferð, sem fram fór i gær urðu úr-
slit þessi:
Sveit Jóns Baldurssonar 3, sveit
Stefáns Guðjohnsen 17.
Sveit Ólafs H. 18, sveit Ólafs G. 2.
Sveit Böðvars G. 15, sveit Hjalta
5.
Sveit Boggu Steins 17, sveit Jó-
hannes Þ. 3.
Úrslit i 2. umferð urðu þessi:
Sveit Ólafs H. 6, sveit Jóhanns Þ.
14.
Sveit Hjalta 17, sveit Ólafs G. 3.
Sveit Stefáns 12, sveit Boggu
Steins 8.
Sveit Jóns 16, sveit Böðvars 4.
Áríðandi
tilkynning
frá Olíufélaginu Skeljungi h.f.
Olíuféiagið Skeljungur h.f. hef-
ur um langt skeið selt steinolfu i
tveggja litra brúsum. Rökstuddur
grunur hefur komið fram urn að i
maímánuði hafi farið i dreifingu
til útsöluaðila félagsins nokkurt
magn brúsa með bensinmengaðri
steinoliu.
Tekist hefur að innkalla megin
hluta þessa magns nú þegar, en
þar sem ekki er enn fullsannað
hvort einhverjir brúsar með sliku
bensinmenguðu innihaldi hafi
verið seldir og komist þannig i
umferð, vill félagið, að höfðu
samráði við Brunamálastofnun
rikisins, koma þeirri áriðandi að-
vörun á framfæri við alla þá, sem
hafa undir höndum steinoliubrúsa
merkta félaginu að skila þeim á
næsta útsölustað félagsins.
Tekið skal fram, að leiki
minnsti vafi á um innihald brúsa
eru aðilar eindregið hvattir til aö
skila þeim inn en treysta ekki á að
lyktarskyn skeri úr um innihald
þeirra.
Vegaþjónusta FÍB
F.I.B. 1.
Verður staðsett við Valhöll og
mun fara út frá þeim stað eftir
þörfum, en skilaboðum er hægt að
koma til bilsins um söluskálann i
Valhöll.
F.Í.B. 4.
Verður staðsettur við Botns-
skálann i Hvalfirði og er hægt að
koma boðum til bilsins um Botns-
skálann.
F.Í.B. 11.
Verður staðsettur við Þrastar-
lund og er hægt að koma boðum
til bilsins um Þrastarlund.
Framhald á 18. siðu.
STEFNT AÐ
JARÐSTÖÐ
í frétt frá samgönguráðuneyt-
inu kcmur fram að ráðuneytið
hefur skipað nefnd til að taka upp
viðræður við Mikla norræna -
ritsimafélagið um framkvæmd
gildandi samnings félagsins við
islenska ríkið. t nefndina voru
skipaðir: Gaukur Jörundsson
prófessor, sem er formaðuij
Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytis-
stjóri, Gamaliel Sveinsson við-
skiptafræðingur, Jón Skúlason
póst- og simamálastjóri og Þor-
varður Jónsson yfirverkfræðing-
ur.
Nefndin á m.a. að miða afstöðu
sina við að núgildandi samningur
verði ekki framlengdur, að það er
ákveðin stefna islenskra stjórn-
valda að koma upp jarðstöð sem
fyrst og eigi siðar en samningur-
inn við Mikla norræna rennur út.
Nefndin á i viðræðunum að reyna
að fá félagið til að fallast á stytt-
ingu samningstimans. Nefndin á
að ljúka störfum fyrir september
n.k.
Sverrir og Tómas
áfram forstjórar
A fundi stjórnar Framkvænda-
stofnunar rikisins i gær var sam-
þykkt að gera þá tillögu til rikis-
stjórnarinnar að Sverrir Her-
mannsson og Tómas Amason
yrðu skipaðir forstjórar Fram-
kvæmdastofnunar rikisins. Enn-
fremur var samþykkt tillaga um
að Guðmundur B. ólafsson for-
stöðumaður lánadeildar yrði
skipaður framkvændastjóri lána-
deildar og Bjarni Bragi Jónsson
forstöðumaður áætlanadeildar
yrði settur framkvæmdastjóri
áætlanadeildar til 1. sept. n.k.
Samkvæmt lögum frá 18. mai
s.l. skal rikisstjórnin skipa for-
stjóra Framkvæmdastofnunar-
innar og framkvæmdastjóra
deilda stofnunarinnar samkvæmt
tillögum stjórnar Framkvæmda-
stofnunar rikisins.
Dráttarvéla
hjólbaröar
Kynnið ykkur hin hagstæðu verð.
TÉKKNESKA B/FRE/ÐAUMBOÐ/Ð
Á ÍSLAND/ H/F
AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOGI SÍMI 42606