Þjóðviljinn - 09.06.1976, Síða 3
Miðvikudagur 9. jún! 1976 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 3
LIBANON
Allt í hers höndum
Harðir bardagar viða um land — Beirut sambands-
laus við umheiminn, vatnslaus og rafmagnslaus
— Arababandalagið boðar til skyndifundar
Beirut, Damaskus 8/6 reuter ntb
— Hörð átök stóðu yfir i allan dag
milli iibanskra vinstrisinna og
palestinumanna annars vegar og
sýrlenska hersins hins vegar. Var
barist i Beirut, hafnarborginni
Sidon og hér og þar i f jalllendinu
austan við Beirut.
Barist var með skriðdrekum og
stórskotaliði. Vinstrisinnar og
liðsmenn PLO vörðust framsókn
sýrlendinga allt hvað af tók og
sagði talsmaður þeirra að þeim
hefði tekist að granda 7 sýr-
lenskum skriðdrékum og taka
fjóra hernámi. Sýrlendingar
gerðu skriðdrekaárásir á Sidon
frá tveim hliðum og héldu uppi
látlausri stórskotahrið á Sidon og
borgina Zahrani þar sem er mikil
oliuhreinsunarstöð. Sveitir Ur
palestinsku herdeildinni Saiqa
sem er hliðholl sýrlendingum hélt
einnig upp skothrið á hverfi
múhameðstrúarmanna i Beirut
frá aðalbækistöðvum sinum á
alþióðaílugvelli borgarinnar sem
lokaðist i dag.
Mikið vandræðaástand og
ringulreið rikti i Beirut i dag.
Vatn var af skornum skammti i
mörgum hverfum. Rafmagns-
framleiðslan var aðeins 15% af
ivi sem hún er vanalega og var
irri orku svo til allri beitt til að
dæla vatni inn i borgina. Sima-
samband er allt úr skorðum og
um tima i dag var borgin svo til
algjörlega einangruð frá um-
heiminum.
Palestinumenn og vinstrisinnar
reyndu að brjóta niður siðferði-
þrek sýrlensku hermannanna
með þvi að útvarpa stöðugt
áskorunum um að þeir hættu að
berjast gegn öðrum aröbum en
sneru þess i stað til Gólanhæða
þar sem israelar biða. Talsmenn
palestinumanna sögðu að margir
landar þeirra sem lutu stjórn sýr-
lendinga hefðu gerst liðhlaupar.
Hægriöflin i Libanon sem áttu
undir högg að sækja fyrir innrás
sýrlendinga hafa aukiö hernað
sinn gegn vinstrimönnum. Gæti
það reynst þeim siðarnefndu
skeinuhætt að þurfa að berjast á
tveim vigstöðvum i einu.
Sýrlendingar stöðvuðu fram-
sókn sina milli bæjanna Sofar og
Bhamdoun i dag en þeir eru i uþb.
17 km fjarlægð frá Beirut. Tals-
maður vinstrimanna sagði að
gert hefði verið vopnahlé i
landinu og hefði það tekið gildi á
miðnætti aðfaranótt þriðjudags.
Þá skýrði útvarpið i Damaskus
frá þvi að vopnahlé hefði einnig
%4,;. Wj
Aigeng götumynd frá Beirut um þessar mundir. Vinstrimenn á varö-
bergi við höfnina.
verið gert milli Saiqa og A1
Fatah. Ekki varð þess vart I dag
að þessi vopnahlé hefðu nein áhrif
á bardagana.
Boöað var til skyndifundar með
utanrikisráðherrum Araba-
bandalagsins i Kairó og átti hann
að hefjast i kvöld. Yfirvöld 1
Damaskus kváðust myndu
Framhald á 14. siðu.
Nýfasisti
sviptur
þinghelgi
Róm 8/6 reuter — ítalska þingið
samþykkti I dag með öllum
þorra atkvæða gegn einu að
svipta einn þingmann nýfasista
þinghelgi og gefa heimild til
handtöku hans og rannsóknar á
aðild hans að morði á ungum
kommúnista fyrir 12 dögum.
Þingmenn mættu vel til at-
kvæðagreiðslunnar I dag sem
liklega er sú siðasta á þessu
þingi. Aðeins einn flokksbróöir
nýfasistans greiddi atkvæði
gegn tillögunni, en aðrir þing-
menn nýfasistaflokksins MSI
sátu hjá.
Þingmaðurinn, Sandro
Saccucci, hóf skothrið á kosn-
ingafundi kommúnista fyrir 12
dögum. Hann var fallhlifarher-
maður á sinum yngri árum og
sat um skeið i fangelsi I eitt ár
vegna ákæru um aðild að til-
raun til valdaráns.
Almennt er ekki vitað hvar
Saccucci heldur sig.en lögreglan
stöðvaði hann fyrir nokkru á
landamærum Sviss er hann
ætlaði að lauma sér úr landi.
RÓDESÍA:
Ættarhöfðingja rænt
Salisbury 8/6 reuter — Ródesiskir
skæruliðar rændu i dag einum
áhrifamesta ættbálkahöfðingja
landsins,en hann hefur verið mjög
handgenginn stjórn Ian Smiths og
fordæmt baráttu skærúliða fyrir
meirihlutastjórn blökkumanna i
Ródesiu.
Höfðinginn, Makiba, var frá
suðausturhluta landsins og var
honum rænt á sinum heima-
slóðum i héraðinu Bikita. Makiba
átti sæti I öldungadeild þingsins,
einn af tiu ættafhöfðingjum sem
þar sitja.
Tilkynnt var I aðalstöðvum
öryggissveita landsins að reynt
hefði verið að sprengja i loft upp
tvær litlar einkaflugvélar i hlið-
unum meðfram Karibavatni en
það er á landamærum Sambiu og
Ródesiu. Þessi frétt olli ótta
meðal hvitra ibúa landsins við að
Kaunda forseti Sambiu hefði
staðið við fyrirheit sin um að opna
landamæri Sambiu fyrir innrás
skæruliða. Hingað til hafa skæru-
liðar ekki haft sig i frammi
ródesiumeginn vatnsins.
Stjórnarhersveitir leita nú
skæruliða sem komu fyrir jarð-
sprengju nærri landamærum
Mósambik en hún varð konu og
tveim dætrum hennar að bana er
bill þeirra ók yfir sprengjuna.
Maður konunnar og önnur börn
þeirra komust af litt slösuð.
Tiu óbreyttir borgarar hvitir á
hörund hafa fallið siðan striðs-
átökin tóku að magnast i landinu i
janúar sl.
URUGUAY
Segir Borda-
berry af sér?
Montevideo 8/6 reuter — Juan
Maria Bordaberry, forseti Uru-
guay, virðist I dag reiðubúinn að
segja af sér siðar i þessari viku
vegna ágreinings við yfjrvöld
hersins i landinu sem ræður öllum
málum bak við tjöldin.
Kunnugir herma að ágrein-
ingurinn snúist um þá kröfu
Bordaberrys að hann verði skip-
aður forseti til lifstiðar og fái völd
til að stjórna með tilskipunum.
Herinn er sagður vilja hverfa
aftur til þingræðishátta og
tveggja flokka kerfis fyrir 1984.
Bordaberry vill hins vegar við-
halda rikjandi banni á allri
starfsemi stjórnmálaflokka og
verkalýðsfélaga.
Bordaberry var kjörinn forseti
EBE:
Hafnar landhelgiskröfu breta
Brilssel 8/6 ntb — Fastanefnd
Efnahagsbandalags Evrópu vis-
aði i dag á bug kröfu breta um
yfirráð yfir hafsvæðinu milli 12 og
50mllna frá ströndum Bretlands.
Nefndin hefur lagt til að innan
200 milna efnahagslögsögu verði
12 milna fiskveiðilögsaga hvers
lands sem öðrum löndum EBE
verði óheimilt að veiða I. Bretar
hafa hins veear krafist þess að
fiskveiðilögsagan verði 50 milur.
í skýrslu fastanefndarinnar um
þetta mál kemur fram að bretar
skuli fá bætur fyrir hugsanlegt
tjón sem þeir verða fyrir með
auknum veiðikvótum innan
hinnar sameiginlegu 200 milna
lögsögu. A ráðherranefnd EBE að
ákvarða kvótana.
Allar þjóðir EBE nema irar
hafa hafnað kröfu breta.
Bordaberry forseti Uruguay
Uruguay i nóvember 1971 og á
kjörtimabili hans að ljúka i
febrúar á næsta ári. Formaður
Rikisráðsins, sem sett var á
laggirnar i stað þingsins sem
leyst var upp er Bordaberry tók
sér alræðisvald 1 skjóli hersins
árið 1973, hefur lagt hart að her-
foringjunum að setja fram mála-
rniblun sem geri Bordaberry
kleift að ljúka kjörtimabili sinu
með sæmd.
Litlar likur eru taldar á þvi ab
samkomulag takist og ráðsliðar
töldu sýnt að Bordaberry segi af
sér að eigin frumkvæði einhvern
næstu daga.
6. flokkur:
9 á 1.000.000 kr. 9.000.000 kr.
9 - 500.000 — 4.500.000 —
9 - 200.000 — 1.800.000 —
342 - 50.000 — 17.100.000 —
9.063 - 10.000 — 90.630.000 —
9.432 123.030.000 kr.
Aukavinningar:
10 á 50.000 kr. 900.000 —
9.450 123.930.000.00