Þjóðviljinn - 09.06.1976, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 09.06.1976, Qupperneq 7
lYIiðvikudagur 9. júni 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Rætt við fulltrúa á aðalfundi Sambandsins Félög fólksins Blaðamanni frá Þjóðviljanum gafst færi á að Hta sem snöggv- ast inn á aðalfund SIS í Bifröst i fyrradag. 1 fundarhléi fékk hann færi á að taka fáeina fund- armenn tali. Þeirra á meðal var Sigurður Brynjólfsson i Kefla- vik og fer hér á eftir það, sem hann hafði að segja i örstuttu viðtaii. — Hvað er þér rikast i huga i sambandi við samvinnuhreyí- inguna á fslandi i dag, Sigurð- ur? — Ja«, ég veit nú ekki hversu auðvelt mér reynist að skýra frá þvi i stuttu máli. Það má margt um sam vinnuhreyfinguna segja, eins og hún er nú og sem betur fer margt gott, en sumt aftur á móti kannski ekki alveg eins gott. Og eins og það er nayösynlegt aðgleyma ekki þvi, sem vel er gert, er einnig þörf á að muna það, sem miður fer þvi að af mistökunum eigum viö að læra. Samvinnuhreyfingin var mjög sterk félagslega á fyrri ár- um. Frumherjarnir voru bjart- sýnir eldhugar, sem sópuðu að sér hugsjónamönnum. í dag finnst mér fólkið ekki nógu virkt i félagsstarfinu. Það er engu lik- ara en vaxandi hagsæld al- mennings hafi sljógvað skilning hans á eðli og hlutverki sam- vinnufélagsskaparins. Fólk vill gleyma þvi, til hvers samvinnu- félögin voru stofnuð. Það hugsar ekki út i hvað samvinnu- hreyfingin á að vera. Hlutverk kaupfélaganna er nákvæmlega það sama i dag, i öllum megin- atriðum a.m.k. og það var i önd- verðu og þýðing þeirra fyrir fólkið engu minni. En það rfkir almenn féiagsleg . deyfð i land- inu og auðvitað bitnar hún á kaupfélögunum eins og annari félagsstarfsemi. Stundum er kvartað yfir of háu verðlagi hjá kaupfélögun- um, og e.t.v. er það stundum réttmætt. En ég held, að þau séu samt sem áður hemill á versl- unarálagninguna, þegar á heildina er litið, enda eiga þau að vera grundvöllur góðrar og hagkvæmrar verslunar. Og þó að fyrir komi, að dýrari vara finnist i kaupfélagi en einka- verslun þá er það lélegur sam- vinnumaður, sem lætur verð á einni sultukrukku plata sig. Hitt finnst mér nú ekki eins gott né skynsamlegt, að það er eins og enginn komist til neinna áhrifa og valda i sumum kaup- félögum nema hann sé fram- sóknarmaður. Nú, þetta var kannski eðlilegt á sinum tima þvi það voru framsóknarmenn, sem fyrst og fremst stóðu i sókn og vörn fyrir kaupfélögin gegn árásum ihaldsins. En það á ekki við lengur. Velunnara kaup- félaganna og skelegga baráttu- menn fyrir þau er vissulega að finna viðar en innan Framsókn- arflokksins, sem betur fer.. Ymis afstaða SIS i dag er stundum gagnrýnd og umdeild i sambandi við vinnudeilur o.fl. Ég tel, að sú gagnrýni eigi oft rétt á sér. En séum við óánægð þá eigum við að siðbæta sam- vinnuhreyfinguna en ekki leggja hana niður. Það er hættu- legt, er samvinnuhreyfingin reynir ekki að halda frið við Verður framsóknarþingmaður að vera endurskoðandi SÍS? Halldór var kjörinn með 38 gegn 37 Á aöalfundi StS I Bifröst fyrir helgina baðst Tómas Árnason alþm. sem veriö hefur endurskoö- andi reikninga Sambandsins um nokkurt skeiö, undan endurkjöri. Mælt er, aö hann hafi bent á Hall- dór Ásgrímsson, alþm., sem arf- taka sinn og mun einhver hluti stjórnar StS hafa stutt þá uppástungu. Nú hefur Eirikur Pálsson, lög- fræðingur i Hafnarfirði, verið varaendurskoðandi og sýndist þvi ekki óeðlilegt, að hann yrði eftir- maður Tómasar. Skiptust fundar- menn lika mjög i tvo hópa um af- stöðu til þeirra Halldórs og Eiriks og varð kosningin harðsótt. Svo fóru þó leikar, að Halldór var kos- inn með eins atkv. mun, hlut 38 atkv. en Eirikur 37. Hér skal engum getum að þvi leitt, að Halldór hafi sóst eftir M.R. stúdentar 1976 Stúdentagleði verður i Snorrabúð (áður Silfurtungl) föstudaginn 11. júni. Húsið verður opnað kl. 9. Á boðstólum verður miðnætursnarl. Hafið samband við Ásgeir — simi 24394, Hildi — simi 73241 eða Þóru — simi 16372. Sigurður ólafsson verkalyðshreyfinguna. Hún má ekki brjóta af sér þann fjölda sem hún er stofnuð fyrir. Samvinnuhreyfingin hefur verið burðarás athafna og verslunar vitt um land. Hún fæst ekki einungis við verslun heldur og margháttaðan iðnað, útgerð, fiskvinnslu og margt fleira. Einkaframtakið unir sér ekki nema þar, sem verulegs hagnaðar er von. Þá koma kaupfélögin til bjargar. Sums- staðar er tæplega grundvöllur til þess að reka verslun með hagnaði. Kaupfélöginstarfa þar samt. Af hverju? Af þvf að þau eru stofnuð fyrir fólkið. Aðalhættan, sem að sam- vinnuhreyfingunni steðjar kem- ur innan frá. Hún liggur i þvi, að hreyfingin þróist frá fólkinu. Það má aldrei gleymast, að fólkið á þessa hreyfingu. Við megum ekki gleyma hversu mikið öryggi er i þvi fólgið fyrir hvert byggðarlag að þar starfi samvinnufélag. Það flytst ekki burtu þótt á móti blási, það verður kyrrt heima. Aðalatriðið fyrir samvinnuhreyfinguna i heild og á hverjum stað er, að hver félagsmaður skilji, að þetta er hans félag, að hann sýni þvi þá rækt og umhyggju, sem nauðsynleg er til þess að tryggja, að það lendi ekki i trölla höndum þvi þá eru dagar hreyfingarinnar taldir. Þvi er það ljótur leikur að rægja sam- an bændur og verkamenn og þar að auki stór hættulegt þessum stéttum báðum. Það má aldrei gleymast, að samvinnuhreyfingin var i önd- verðu stofnuð fyrir hina mörgu og smáu, þá, sem sátu og sitja forsælumegin i þessu „velferð- ar”- þjóðfélagi okkar. Á þeim grundvelli verður hún að starfa, ella hefur hún tapað þeim átt- um, sem nauðsynlegt er að halda. — mhg Mun mitt Einn af fuiltrúunum á aðalfundi SlSvar Hörður Zophaniasson/ skólastjóri í Hafnarfirði og for- maður Kaupfélags Hafn- firðinga. Hörður var nú kosinn í aðalstjórn Sam- bandsins í stað ólafs Þ. Kristjánssonar# fyrrv. skólastj., sem setið hefur í stjórn SIS um hrið, en mæltist nú undan endur- kjöri. Blaðamaður Þjóðviljans átti stutt samtal við Hörð eftir fund- inn og spurði hann hvaða mál hann teldi að einkum hefðu sett svip sinn á umræðurnar. — Ég hef nú ekki áður setið sambandsfund, sagði Hörður, — og hef þvi ekki aðra slika til samanburðar. En ég er ánægður með fundinn I. heild, gera besta mér fannst hann bæði fróðlegur og skemmtilegur. Að sjálfsögðu bar margt á góma, en veiga- mikill þáttur i umræðunum voru hugsjóna- og féiagsmál sam- vinnuhreyfingarinnar, og er það vel. Fundarmönnum var greini- lega ljós þörfin á þvi, að efla félagsstarfið og skerpa skilning almennings á hugsjónagrund- velli samvinnuhreyfingarinnar 0g markmiðum. Þá voru fjárhagsmálin mjög til umræðu og þeir erfiðleikar, sem sivaxandi dýrtið veldur samvinnufélögunum. Birtast þeir m.a. i stórfelldum rekstrarfjárskorti, bæði Sam- bandsins og einstakra kaup- félaga. Kom fram i ræðum margra kaupfélagsstjóra, að af- urðalán til landbúnaðarins t.d. færu hlutfallslega stöðugt minnkandi og vandséð væri, hvernig kaupfélögin færu að leysa það mál, þegar sjálfsögð opinber aðstoð brygðist. Hörður Zophaniasson — Nú varst þú kosinn i stjórn Sambandsins, Hörður, hvernig segir þér hugur um það starf? — Ég vil nú fyrst og fremst þakka fundarmönnum fyrir það traust sem þeir sýndu mér með þessari kosningu. Ég geri mér grein fyrir þvi, að þetta er þýðingarmikið starf, sem miklu skiptir fyrir samvinnumenn hvernig er rækt. Sjálfsagt fylgja þvi einhverjar áhyggjur eins og öðrum ábyrgðarstörfum, en einnig efalaust ánægja. Ég mun reyna að gera mitt besta. —mhg þessu starfi, þótt varla hafi hann verið tilnefndur til þess án vit- undar hans og vilja. Sjálfsagt er Halldór hæfur til starfsins en það er Eirikur einnig, enda hefði hann vart verið kosinn varaendurskoð- andiásinum timaaðöðrumkosti. Lagalegur réttur eins um fram annan er auðvitað ekki til i þess- um efnum, en hitt munu allir sanngjarnir menn mæla, að hinn siðferðilegi réttur hefi allur verið Eiriks megin. Hér er þvi um lúa- lega framkomu að ræða, sem ekki er sæmandi samvinnumönnum. Nú er Eirikur Pálsson fram- sóknarmaður, kannski stundum óþægilega s jálf stæður i skoðunum að sumum finnst, svo flokkurinn misstieinskis I við kosningu hans. Eða á það kannski að verða regla, aö þingmaður frá Framsóknarfl. þurfi að vera endurskoðandi reikninga SIS? Þó að einhverjum framsóknar- mftinum i SIS hafi nú tekist að vinna þennan „frækilega” sigur á framsóknarmanninum Eiriki Pálssyni þá mættu úrslit þess- arar kosningar samt sem áður vera þeim nokkur visbending um þróunina. Einlæga fylgismenn samvinnuhreyfingarinnar er si- fellt fleiri að finna utan raða framsóknarmanna. Því ættu framsóknarmenn að fagna, þvi þess viðar sem hreyfingin eign- ast liðsmenn, þess öflugri verður hún og áhrifameiri. Pólitisk yfir- ráð eins flokks yfir samvinnu- hreyfingunnieru áfallanda faeti.A þvi þurfa framsóknarmenn aö átta sig. Það er bæði mikilsvert fyrir þá sjálfa og samvinnu- hreyfinguna i heild. Aðalfundur Laugarnessafnaðar verður haldinn i Laugarneskirkju sunnudaginn 13. júni kl. 3 siðdegis að lokinni guðsþjónustu. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf önnur mál. Sóknarnefndin. Aðalfundur Prentsmiðju Þjóðviljans hf vegna áranna 1972 til 1975 verður haldinn að Grettisgötu 3 mánudaginn 14. júni næstkomandi kl. 8.30 siðdegis. Dagskró: 1) Venjuleg aðalfundarstörf skv. sam- þykktum félagsins. 2) Framtið hlutafélagsins. STJÓRNIN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.