Þjóðviljinn - 09.06.1976, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 09.06.1976, Qupperneq 13
Miðvikudagur 9. júni 1976 ÞJÓDVILJINN — StÐA 13 Dagskrá listahátíöar í dag og á morgun t kvöld gerist það i Norræna húsinu að Michala-trlóið frá Danmörku heldur aðra tónieika sina. En list þeirrar fjölskyldu þykir svo þokkafull að hún er að kikna undan nýjum tónverkum sem flautuglöð tónskáld senda henni til flutnings. Átján og fimm Að Kjarvalsstöðum má kl. 20.30 heyra kammertónleika. Flutt verða fimm verk, þar af tvö islensk. Það er m.a. i sam- bandi við þessa tónleika að skýrt kemur fram vilji islenskra listamanna að listahátið sé ekki frestað; þeir átján islenskir tón- listarmenn sem fram koma á tónleikunum gefa allir vinnu sina. Verkin sem flutt eru: Klari- nett-kvintett i h-moll op. 115 eft- ir Johannes Brahms. Tzigane (fyrir fiðlu og pianó) eftir Maurice Ravel og Oktett fyrir blásara eftir Igor Stravinski. ts- lensku verkin eru bæði út- setningar á þjóðlögum. Jón As- geirsson: tslensk þjóðlög fyrir pianókvintett — þau voru útsett fyrir Þýskalandsferð Reykja- vikur Ensemble sumarið 1975 og skiptast i þrjá þætti: Basse- dans, Raunarollu og Krumma- visur. tslensk þjóðlög eftir Haf- liða Hallgrimsson — þjóðlaga- útsetningar þessar gerði Hafliði fyrir tónleikaferð nokkurra is- lenskra tónlistarmanna um Svi- þjóð og Noreg; eru þær fluttar af söngrödd (Sigriður E. Magnúsdóttir) og kvartett. Tónlistarmennirnir sem fram koma eru: Kristinn Gestsson (pianó), Guðný Guðmundsdóttir og Kolbrún Hjaltadóttir (fiðla). Helga Þórarinsdóttir (vióla), Debarah Davis (selló). Sigriður E. Magnúsdóttir (mezzo- sópran), Jón H. Sigurbjörnsson (flauta), Gunnar Egilson (klarinett), Pétur Þorvaldsson (selló), Halldór Haraldsson (pianó), Sigurður Markússon og Hafsteinn Guðmundsson (fagott), Lárus Sveinsson og Jón Sigurðsson (trompet) Ole Kristian Hansen og Björn R. Einarsson (básúna). Ein af fjórum grafiskum mynd- um Kjarvals frá 1919 sem eru á sýningunni á Kjarvalsstöðum. Grænlensk hátíð A morgun, fimmtudagskvöld, gerast siðan þau merku tiðindi á Kjarvalsstöðum, að græn- lendingar koma i fyrsta sinn fram á Listahátið. Þar fer söng- og dansflokkurinn MIK, en i honum eru 12 manns. MIK-flokkurinn var stofnaöur 1962, eftir að nokkrir ungir grænlendingar höfðu tekið þátt i tónlistarhátið i San Remo. I flokknum eru grænlendingar sem búa i Danmörku hverju sinni, flestir vegna náms, og uppbygging flokksins hefur þvi verið mjög breytileg þau 13 ár sem hann hefur starfað. MIK- flokkurinn hefur m.a. farið söngferðir til Bandarikjanna, Frakklands, ttaliu og að sjálf- sögðu um Norðurlönd. Orðið MIK þýðir hátið, og efnisskráin endurspeglar hátfðahald græn- lendinga. Sungnir eru bæði fjör- ugir og angurværir söngvar. Margir textanna fjalla um sér- kennilega og seiöandi náttúru- fegurö Grænlands, dansaðir eru gamlir hvalfangaradansar, sem bárust til Grænlands á 18. öld meö hvalveiðimönnum. Einnig eru hefðbundnir grænlenskir trumbudansar sýndir. I Iönó er þriðja sýning á Sögunni af dátanum eftir Stravinski, sem um er fjallað annarsstaðar hér á opnunni. Gleymum ekki sýningunum: Dunganonsýningunni i Bogasal, sem Hundertwasser ku ætla að draga með sér i heimsfrægðar- flakk, stórskem m tilegri sýningu arkitekta á skýjaborg- um, eða þá hinni vönduðu og fjölbreyttu sýningu á islenskri grafik á Kjarvalsstöðum, sem vel á minnst er einnig sölu- sýning. Hjalti Umræöukvöld um atvinnulýðræði Fundur verður haldinn aö Grettisgötu 3, fimmtudags kvöid 10. júni kl. 20.30,og veröur þar rætt um ýmsar hliöar atvinnulýöræðis. Fundurinn er liður i stefnumótun flokks- ins og er hugsaöur til undirbúnings siöari ráðstefnu um 'þetta mál. Fundurinn er opinn öllum flokksmönnum. Að loknum inngangsorðum formanns flokksins, Ragnars Arnalds, verða flutt fjögur 10—12 minútna er- indi: Hjalti Kristgeirsson ræðir um hugmyndir i nágranna- Böðvar I löndum um atvinnulýöræöi og eignaraðild starfsmanna að fyrirtækjum. Stefán Bergmann ræöir um atvinnulýöræöi I sósialisk- um rlkjum. Böðvar Péturssonsegir frá umræðum i samvinnuhreyf- ingunni um atvinnulýðræði. Ásmundur Stefánssonræðir um atvinnulýöræði I ljósi is- lenskra aðstæðna og um hlutverk verkalýöshreyíingar- innar I því sambandi. Siöan verða almennar umræður. Alþýðubandaíagið útvarp 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Einar Björgvin heldur áfram sögu sinni „Palla, Ingu og krökkunum i Vik” (6). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli atriða. Kirkju- tónlist kl. 10.25: Kammer- kór tónlistarskólans i Veil- ved i Noregi syngur lög eftir Britten, Schiits og Bach/ Johan Varn Ugland leikur á orgel Prelúdiu og fúgu i h- moll eftir Bach. Morguntón- leikar kl. 11: Filharmoniu- sveit Vinarborgar leikur Sinfóniu nr. 3 i d-moll eftir Anton Bruckner; Carl Schuricht stjórnar. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Mynd- in af Dorian Gray” eftir Oscar Wilde. Valdimar Lárusson les þýðingu Sig- urðar Einarssonar (10). 15.00 Miðdegistónleikar.Rena Kyriakou leikur á pianó Menúettog Skerzó-vals eftir Emmanuel Chabrier. Haná- cek kvartettinn leikur Strengjakvartett nr. 2 eftir Leos Janácek. Werner Haas og óperuhljómsveitin i Monte Carlo leikur Andante og Finale op. 79 eftir Pjotr Tsjaikovský; Eliahu Inbal ■ stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veöurfregnir). 16.20 Tónleikar. 17.00 Lagið mitt. Anne-Marie Markan kynnir óskalög barna innan tólf ára aldurs. 17.30 „Eitthvað til að lifa fyr- ir” eftir Victor E. Frank. Hólmfriður Gunnarsdóttir les þýöingu sina á bók eftir austurriskan geðlækni (3). 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. .20.00 Einsöngur I útvarpssal: Hreinn Lindal syngur lög eftir Sigvalda Kaldalóns, Pál Isólfsson, Emil Thor- oddsen og Karl O. Runölfs- son. Ólafur Vignir Alberts- son leikur á pianó. 20.20 Sumarvaka. a. t Laug- arvatnsskóla veturinn 1930. Agúst Vigfússon kennari segir frá. b. Störin syngur. Herdis Þorvaldsdóttir leik- kona les ljóö eftir Guömund Frimann. c. Tveir á ferð um Tungu og Hlið.Halldór Pét- ursson flytur frásöguþátt, fyrri hluta. d. Kórsöngur. Kammerkórinn syngur. Söngstjóri: Rut L. Magnús- son. 21.30 (Jtvarpssagan: „Siöasta freistingin” eftir Nikos Kaz- antzakis.Sigurður A. Magn- ússon les þýðingu Kristins Björnssonar (37). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Hækkandi stjarna” eftir Jón Trausta. Sigriður Schiöth les (2). 22.45 Djassþáttur Jóns Múla Arnasonar. 23.30 Frét'ir. Dagskrárlok. i^sjónvarp 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Bilaleigan Þýskur myndaflokkur. Tilræöi við ástargyðjuna Þýðandi Briet Héðinsdóttir. 21.05 Karlakórinn Svanir Karlakórinn Svanir frá Akranesi syngur undir stjórn Hauks Guölaugsson- ar. Undirleikari Friöa Lárusdóttir. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 21.25 Læknisaðgerð án upp- skurðar Þýsk fræðslumynd um nútimatækni viö læknis- aðgerðir. Þýðandi Auður Gestsdóttir. Þulur Ingi Karl Jóhannesson. 22.10 Spilverk þjóðanna Félagarnir Valgeir Guðjónsson, Egill Ólafsson og Sigurður Bjóla fremja eigin tónsmið með aðstoð ýmissa vina og vanda- manna. Tónlist þessa kalla þeir háfjallatónlist. Stjórn upptöku Egill Eðvarðsson. Aður á dagskrá 6. septem- ber 1975. 22.30 Dagskrárlok Verkstjóri óskast Raufarhafnarhreppur óskar aö ráða verkstjóra um lengri eða skemmri tima, til að stjórna vatnsveitu- og gatna- gerðarframkvæmdum. Æskilegast er að viðkomandi hafi starfsreynslu og geti annast viðhald vinnuvéla. Allar nánari upplýsingar veitir undirritaöur I simum 96- 51151 Og 96-51251. Sveitarstjóri Raufarhafnarhrepps. fP Til sölu Notuö áhöld, tæki, innréttingar og ýmislegt fleira úr rekstri ýmissa borgarstofnana. Selt verður m.a. kvikmyndasýningavélar (f. samk. staöi) rit- og reiknivélar, oliukyndiofnar, kolakatlar, rafmagns- handverkfæri, hefilbekkir, hjólsagir, garðsláttuvélar, barna-og unglingarúm, skápar, borð, hurðir o.fl. I ýmsum stærðum og gerðum. Dúkar teppi og flisar. Matarhita- vagnar f. sjúkrahús, ljósritar, stálvaskar (ýmsar gerðir), W.C. handlaugar, eldavélar. timburafgangar og ýmislegt fleira. Selt á tækifærisverði gegn staðgreiðslu. Til sýnis i Skúlatúni 1, kjallara (kringlan) inngangur und- ir inngangi i Vinnumiölun Reykjavikurborgar, föstudag- inn 11. júni n.k. kl. 8-10 f.h. Selt á sama stað á sama degi frá kl. lOf.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.