Þjóðviljinn - 11.06.1976, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. júni 1976.
Forsetahjónin í
brúðkaup Svía-
konungs
Forseti Islands, dr. Kristján
Eldjárn og kona hans hafa
þegið boð Carls XVI Gustafs
Sviakonungs um að vera við-
stödd brúðkaup hans og ung-
frú Silviu Sommerlath i Stokk-
hólmi laugardaginn 19. júni
n.k.
Forsetahjónin munu halda
flugleiðis til Stokkhólms 18.
júni.
t fylgd með þeim verða
Birgir Möller forsetaritari og
kona hans.
Skarphéðinsfé-
lagar og fleiri
til Danmerkur
Á hvitasunnudag 6. júni s.l. hélt
38manna hópur frjálsiþróttafólks
til æfinga ogkeppni i Danmörku á
vegum HSK.
í hópnum eru 28 Skarphéðins-
félagar sem æft hafa af miklu
kappi i allan vetur, og hefur
undirbúningur þessarar feröar
staðið yfir frá þvi i september s.l.
haust. Skarphéðinn hefur boðiö 10
frjálsiþróttamönnum frá öðrum
félögum aö taka þátt i feröinni, 7
frá HSÞ. Héraðssambandi Suð-
ur-Þing., 1 frá HSH. Héraðssam-
bandi Snæfellsn. og Hnappa-
dalss., 1 frá Akureyri og 1 frá
I.R..
Frjálsi'þróttafólkið mun veröa
við æfingar ogdvelja iFuglsösen-
tret i nágrenni Arósa i hinni
glæsilegu iþrótta- og félagsmið-
stöð D.D.G.U. dönsku ungmenna-
félaganna.
Þjálfari liðsins veröur einn
þekktasti frjálsiþróttaþjálfari
A.A.G. i' Arósum Ole Schöler, en
hann hefur s.l. tvö sumur haft
meö þjálfun frjálsiþróttafólks
HSK aö gera.
Dagana 23. til 27. júni n.k. mun
frjálsiþróttafólkið taka þátt i
landsmóti dönsku ungmenna-
félaganna sem haldið verður i Es-
bjerg.oghlutihópsinskeppa þari
úrvalsliði UMFl, sem þangað
hefur verið boðið til keppni.
Af marggefnu tilefni
vekur heilbrigðismálaráð athygli á þvi, að
samkvæmt ákvæðum 39. 2. gr. heilbrigðis-
reglugerðar er bannað að hleypa hundum,
köttum eða öðrum dýrum inn i matvöru-
verslanir, veitingastofur eða önnur fyrir-
tæki, þar sem framleiðsla eða dreifing
matvæla fer fram.
Leyfishafar ofangreindra fyrirtækja bera
ábyrgð á að fyrirmælum þessum sé fram-
fyigt.
Reykjavik, 10. júni 1976,
Heilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar.
LAUSSTAÐA
Laus er til umsóknar staða heilbrigðis-
ráðunauts við Heilbrigðiseftirlit rikisins.
Umsækjendur þurfa að vera dýralæknar,
helst með nokkra sérþekkingu i heil-
brigðiseftirliti, eða matvælasérfræðingar.
Staðan veitist frá 1. ágúst 1976.
Umsóknir sendist heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu fyrir 10. júli
1976.
Heilbrigðis- og t ryggingamálaráðuneytið
^’Blómabúðin MÍRA
Suðurveri við Stigahlið 45—47, simi 82430
Miðbæ við Háaleitisbraut simi 83590
Blóm og gjafavörur i úrvali
i Mikley á Winnipegvatni stunduðu islendingarnir aðallega fiskvciöar, en flestir áttu túnskika á strönd-
inni, þar sem skóginum hafði veriö rutt úr vegi. Þessi mynd frá Mikley á aö minna á, að annar hluti
myndaflokks sjónvarpsins um islendinga i Kanada er á dagskrá I kvöld.
íslendingar í
Kanada
Enn hefur islenska sjónvarp-
ið unnið merklegt afrek. Nú er
það hvorki meira né minna en
heimsmet:þeir hafa kvikmynd-
að efni i sjö kvikmyndir á u.þ.b.
mánuði. Þetta hlýtur að verða
til að stórauka ferðamanna-
strauminn til landsins, a.m.k. ef
þetta fréttist útfyrir landstein-
ana. Utlendingar hljóta að
flykkjast hingað unnvörpum til
að kynnast þessu merka fyrir-
tæki, þessu þjóðþrifafyrirtæki,
islenska sjónvarpinu.
Hvernig farið þið að þessu? —
hljóta þeir aðspyrja, fullir lotn-
ingar. Og svariö verður auðvit-
að: vinnugleði og sparsemi eru
islendingum i blóð bornar. A
þessu landi elds og isa verðum
við,bókaþjóðin, aðspara hverja
krónu, hverja hraðfallandi
krónu...
Blaðamönnum var boðið inni
sjónvarp á föstudaginn var til
að sjá tvær fyrstu myndirnar i
syrpunni islendingar f Kanada
og til að sjá með eigin augum þá
Ölaf Ragnarsson og Emil
Björnsson. Við sáum myndirnar
i litum, en vert er að geta þess
að aðrir landsmenn eru heppn-
ari en við: þeir fá að sjá syrp-
una svart-hvfta á skermunum
sinum. Ef marka má litina i
myndunum hafa landar vorir
vestra allir múrsteinsrauð nef,
og Sólin i Kanada virðist vera
gulari en gengur og gerist með
sólir. En þetta var nú smávægi-
legur tæknilegur útúrdúr.
Ólafur Ragnarsson kvað til-
gang sinn með gerð þessara
mynda hafa verið þann, að
breyta hugmyndum fólks hér
heima um landana vestan hafs,
sem hann sagði marga vera,
„sannari islendinga” en okkur.
Að þvi er ólafur sagði, stafar
þetta af þvi að við hér heima er-
um alltaf að kvarta undan skött-
unum, en vestra bitnar slikur
barlómur á kanadisku stjórn-
inni og islendingarnir þar geta
hladið föðurlandsástinni
ómengaðri, þurfa ekki að
blanda.henni saman við ómerki-
legan hversdagsleikann. Sem er
auðvitað skoðun útaf fyrir sig.
Ég efa ekki að margir munu
hafa ánægju af þessum mynd-
um. t þeim er að finna dágóðan
fróðleik um lif landa okkar i
Kanada. Þeta gildir vafalaust
um allar fimm myndirnar i
syrpunni, en einsog fyrr segir
hef ég aðeins séð tvær þær
fyrstu og f jalla þvi um þær einar
hér.
Fyrsta myndin, Vestur I
bláinn (47.30 mi) greinir frá
hallærum á Islandi og vestur-
förunum, aðbúnaði á leiðinni og
við komuna til fyrirheitna
landsins. Rætt er við nokkra af-
komendur fyrstu innflytjend-
anna, osfrv. Þessi mynd var
sýnd á annan i hvitasunnu.
Næsta mynd nefndist Mikley -
eyja islendinganna (37.35 mín)
og synír fortið og nútíð Mikl-
eyjár, sem eitt sinn var byggö
islendingum en er nú að breyt-
ast I þjóðgarö og skemmtistað
fyrir kanadamenn af öllum
þjóðernum. Þar er m.a. fjallað
um fiskveiðar á Winnipeg-vatni
að fornu og nýju.
Hinar myndirnar heita:
Landar i borgum (29,07 min),
íslenskar byggðir(34,28 min) og
Hið dýrmæta erfðafé (42,14).
En ég sagði að myndirnar
væru sjö, og það.er alveg rétt,
þvi að i sama leiðangri sjón-
varpsmanna til Kanada tóku
þeir tvær aðrar myndir, sem
þegar hafa verið sýndar og telj-
ast ekki til syrpu þessarar.
Er þá ekki allt i sómanum?
Hellingur af hundódýrum
myndum, sem öllum þykir
gaman að? Betur að svo væri.
En i raun og veru eru þetta ekki
kvikmyndir, heldur mynd-
skreyttur texti. Og ekki einu
sinni skemmtilegur texti, þvi að
hann er i fyrsta lagi flatneskju-
legur og i öðru lagi er þarna
vaðið úr einu i annað án þess að
veita raunverulegar upplýsing-
ar um eitt eða neitt. Dæmi:
hvers erum við visari um sam-
skipti islendinga við indiána á
frumbýlisárunum? Við vitum
aö indiánarnir voru „fjarska
næs” og að islendingum gekk
betur að umgangast þá en öðr-
i myndinni „Mikley-teyja is‘
lendinganna” ræðir ólafur
Ragnarsson við ýmsa þeirra
landa okkar sem alið hafa aldur
sinn I Kanada. Einn mikleying-
anna er Helgi Jónsson, eða
Helgi Jones, eins og hann er
gjarnan kallaður á þessum slóð-
um. Helgi er skipstjóri og hefur
stundað veiðar á Winnipegvatni
um árabil.
um þjóðarbrotum, sem voru i
sömu aðstöðu. Við viljum vita
meira! Við hefðum viljað að
Ólafur Ragnarsson leitaði að
öllu tiltæku efni um þessa hlið
landnámsins vestra og gerði um
það stutta kvikmynd. Hann
heföi alveg mátt leita til ein-
hvers sagnfræðings, þeir eru
margir sem kunna skil á öllu
þessu máli og hefðu getað að-
stoðað hann. Þetta er aðeins eitt
litið dæmium vinnubrögð. 1 stað
þess að fara svona að, gera
sjónvarpsmenn sjö myndir um
allt og ekkert, þar sem tæpt er á
stórfróðlegum málum án þess
að gera þeim nokkur skil.
En ef þetta er ekki kvik-
myndalist, hvað er þá kvik-
myndalist? — spyr kannski ein-
hver. Þvi er fljótsvarað og þarf
ekki langt að fara: á hvita-
sunnudag sýndi sjónvarpið aðra
nýja islenska kvikmynd, Fáka
eftir Þránd Thoroddsen. Þar gat
að lita falleg vinnubrögð. Svona
eiga myndir að vera! Góð kvik-
myndataka, skemmtilegur
texti, húmor, og eitthvað
ósegjanlega manneskjulegt sem
sveif yfir öllusaman og geröi að
verkum að jafnvel mig var farið
að langa á hesbak. Þetta getur
sjónvarpið, þegar það vill svo
viö hafa. Betur að oftar væri.
Ingibjörg Haraldsdóttir.
Norrœnir
músíkdagar
í Reykjavík
Nokkrir úr kanadlska tónlistarflokknum New Music Ensamble, sem
kemur fram á Norrænum músíkdögum aö þessu sinni.
Norrænir músikdagar verða
haldnir i Reykjavík dagana 18.-
24. júni n.k. Er hér um aö ræöa
samnorræna tónlistarhátið, sem
haldin er á tveggja ára fresti i
höfuöborgum Norðurlanda. Sú
hátíð, sem nú stendur fyrir
dyrum, er hin 24 i röðinni og sú
þriöja, sem haldin er i Reykjavik.
A Norrænum músikdögum i
þetta sinn verða flutt um fimmtiu
tónverk frá Norðurlöndum, þar af
ellefu islensk, og auk þess verður
gestur á hátiöinni tuttugu manna
hópur frá New Music Ensamble i
Toronto i Kanada, undir stjórn
flautusnillingsins Roberts Aitkin,
sem islendingum er að góðu
kunnur. Tónlistarhátið þessi er
haldin á vegum Norræna tón-
skáldaráðsins, en formaður þess
er nú Atli Heimir Sveinsson. —
Nánar verður fjallað um þennan
merka listaviðburð i blaðinu sið-
ar. —dþ