Þjóðviljinn - 11.06.1976, Síða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. júní 1976.
Aðalfundur S.H. ályktar um sókn í fiskstofna
„200 mílurnar fyrir
íslendinga
Dagana 2r-3. júnl var haldinn
I Rvik. aðalfundur Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna.
Margar ályktanir voru gerðar á
fundinum, m.a. ýtarleg ályktun
um stjórnun fiskveiða. t niður
lagi ályktunarinnar segir:
„Fundurinn bendir á eftirfar-
andi leiðir til takmörkunar
veiða þeirra fiskstofna sem nú
eru ofveiddir.
a. Strangt eftirlit sé haft með
þeim erlendu veiðiskipum
sem leyfi hafa til veiða hér við
land.
b. Aukið verði eftirlit með
veiðum okkar eigin fiski-
skipaflota að þvi er varðar
veiðisvæði, gerð og búnað
veiðarfæra, stærðarmörk
fisks sem veiddur er, og
framfylgt verði þeim reglum,
sem gilt hafa um hámarks-
fjölda neta á vetrarvertiö.
c. 'Allar veiðar verði bannaðar i
viku um náska.
* *)*)
eina
d. Á timabilinu 15. júni til 15.
september ber hverju fiski-
skipi að stöðva veiðar eigi
skemur en 15 daga samfleytt
Hvenær á þessu tlmabili
stöðvað er fer eftir þvi hvað
henta þykir á hverjum stað.
e. A timabilinu 1. desember til
31. janúar verði öllum fiski
skipum lagt I 15 daga með
sama hætti og segir i lið d.
Fundurinn telur aö með
framangreindum aðgerðum
ásamt þeim ákvæðum sem sett
eru I nýlega samþykktum lög
um um veiðar i
fiskveiðilandhelgi Islands, sé
nægilega aðgert I bili og er því
andvigur frekari hömlun veiða
að svo stöddu. Fundurinn telur
rétt að láta koma I ljós um eins
árs bil hvaða áhrif þessar
aðgerðir hafa á aflann og
sóknina i fiskistofnana.
Fundurinn Ieggur áherslu á
að samdráttaraögerðir i fisk-
veiðum eru hrein neyðarráð-
stöfun. Þvi ber aö leggja höfuð-
áherslu á að fiskimiðin innan
200 milna séu til afnota fyrir Is-
lendinga eina.”
®ÞJÓf!LEIKHÚSIB
LITLI PRINSINN
frumsýning laugardag kl. 20.
2. sýn. sunnudag kl. 15.
Siðasta sinn.
INúKá aðalsviðinu
föstud. 18. júni kl. 20.
laugard. 19. júni kl. 20.
Aðeins þessar tvær syningar.
Miðasala 13.15—20.
Simi 1-1200
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR ”
SAGAN AF DATANUM
i kvöld kl. 20,30.
Blá kort gilda.
Sunnudag kl. 20,30.
Gul kort gilda.
Næst siðasta sinn.
SKJALDHAMRAR
laugardag. — Uppselt.
Miðasalan i Iðnó opin kl. 14 til
20.30. — Simi 1-66-20.
Ríkisstjórnin ábyrgist
getu Verðjöfnunarsjóðs:
V iðmiðunarver ð
karfaafurða hækkað
Fram hefur komið I fréttum, að
Verðlagsráð sjávarútvegsins
ákvaö á fundi sinum i gær nýtt
lágmarksverð á karfa 500 gr. og
Rofar til
Framhald af bls. 1
verða að hætta námi vegna lé-
legra eða engra sumartekna.
Gylfi Kristinsson, starfsmaður
atvinnumiðlunar stúdenta sagði
ástandið þar þolanlegt og raunar
mun betra en búist hefði verið við
eftir fyrstu viðbrögðum i vor að
dæma. Atvinnumiðlun þeirra tók
til starfa um miðjan mai og er
reiknað með aö hún starfi til loka
júnimánaðar að minnsta kosti.
— Það var heldúr tregt um
vinnu framan af en þetta hefur
lagast núna upp úr mánaða -
mótunum. Um 90 manns voru
komnir á skrá i lok mai og það er
nokkuð svipaður fjöldi og i fyrra.
Þetta skiptist nokkuð jafnt hjá
okkur i karla og konur; stúlkun-
um gengur jafnvel öllu betur að
útvega sér vinnu á köflum, sagði
Gylfi.
114 nöfn hafa komiö á skrá hjá
miöluninni á þessu vori. 26 hafa
fengiðörugga vinnu, 17 hafa feng-
ið tilvisun á atvinnurekendur og
siðan hafa 37 útvegað sér vinnu
sjálfir.þannig að núna eru 34 á at-
vinnuleysisskrá.
Enn eiga nokkrir háskólamenn
prófum ólokið á þessu vori, og
verður væntanlega nokkuð erfitt
fyrir þá að fá vinnu þegar orðið er
svona áliðið. — gsp.
stærri. Samkvæmt þvi verður
verðið á timabilinu 8. júni til 31.
desember 1976 36 kr. fyrir hvert
kg. og er hér um 46% hækkun að
ræða.
Vegna þessá vill ráðuneytið
upplýsa, að til þess að beina sókn
togskipa frá þorskveiðum að
karfaveiðum og til þess að
styrkja rekstrarstöðu togaraút-
gerðarinnar og auka atvinnu og
framleiðsluverðmæti i frysti-
húsum, þá beitti sjávarútvegs-
ráðherra sér fyrir þvi, með sam-
þykki risisstjórnarinnar, að
stjórn Verðjöfnunarsjóðs fisk-
iðnaðarins samþykkti að hækka
viðmiðunarverð karfaafurða frá
8. júni s.l. að telja til n.k. ára-
móta. A þessum grundvelli sam-
þykkti Verðlagsráð sjávarút-
vegsins fyrrgreinda hækkun á
karfaverðinu.
Sjávarútvegsráðuneytið leggur
mikla áherslu á, I sambandi við
þessar ákvarðanir, að veiðiferðir
togveiðiskipa á karfaveiðum
standi eigi I lengri tima en 13
daga til þess að tryggt verði gott
hráefni i framleiðslu karfaflaka
fyrir Bandarikjamarkað, sem
skila á miklum verðmætisauka.
I ljósi alls þessa samþykkti
rikistjórnin að ábyrgjast getu
Verðjöfnunarsjóðs til þess að risa
undir greiðslum úr sjóðnum, sem
kunna að leiða af hækkun við-
miðunarverðsins á sömu forsend-
um og gert var um ábyrgð rikis-
sjóðs til Verðjöfnunarsjóðsins á
s.l. ári.
Sjópróf
Sjópróf fóru fram I Sjó- og
verslunardómi Reykjavikur s.l.
þriðjudag vegna ásiglingar
bresku freigátunnar Eastbourne
F-76 á v/s Baldur,22. mai, s.l., en
hér var um að ræða seinustu
ásiglingu bresks herskips á v/s
Balduri nýafstöðnu þorskastriði.
Höskuldur Skarphéðinsson,
skipherra, lagði fram skýrslu
sina fyrir dóminn, svo og vett-
vangsteikningu, er sýndi aðdrag-
anda ásiglingarinnar, sem skip-
herrann hafði teiknað. Að auki
komu 3 stýrimenn varðskipsins
fyrir dóminn.
Er sjóprófinu var lokið kölluðu
dómsformaður Bjarni K. Bjarna-
son, borgardómari, og meðdóm-
endur, skipstjórarnir Halldór
Sigurþórsson ög Jón Björnsson,
skipherrann á v/s Baldri Höskuld
Skarphéðinsson og 1. stýrimann,
Hálfdán Henrýsson, inn i réttar-
salinn að nýju og lýstu yfir
ánægju réttarins með mjög
greinargóða skýrslu og gögn frá
skipstjórnarmönnum v/s
Baldurs.
Litli prinsinn
Framhald af bls. 5.
barnasýningum hafa flestar verið
frumsamin sænsk verk en einnig
verk eins og Galdrakarlinn í Os,
Bangsimon og Litli prinsinn.
Leikflokkur Meschkeshefur farið
i leikferðir svo til árlega frá
upphafi. Hingað til lands kom
flokkurinn á listahátið 1970 og
sýndi þá Bubba kóng eftir Alfred
Jarry. Auk þess sem Mariónettu-
leikhúsið hefúrhaldið uppi öflugri
leikstarfsemi hefúr farið fram á
vegum þess kennsla i leikbrúðu-
gerð og brúðuleik undir stjórn
Meschkes. Um siðustu áramót
urðu timamót i sögu leikhússins,
er öll starfsemi þess var sam-
einuð undir heitinu Sænska leik-
brúðustofnunin. Fékk flokkurinn
þá aukið húsnæði, þannig að
sýningarnar einskorðast ekki við
gamla Mariónettuleikhúsið;
komið hefur verið upp leikbrúðu-
safni og veitt er menntun i leik-
brúðugerð og -leik, bæði styttri
námskeiðog þriggja ára menntun
við stofnunina.
Hingað kemur flokkurinn frá
Mariónettuleikhúsinu frá brúðu-
leikhúsþingi i Moskvu, þar sem
þau sýndu leikrit eftir Pablo
Neruda: Afrek og andlát erki-
bófans Murieta. itrekað skal að
sýningin á Litla prinsinum er fiutt
á islensku og er ætluð bæði
börnum og fullorðnum.
___^
ISKIÞAUTtiCRÐ RIKISINS
M/s Hekla
fer frá Reykjavik fimmtudag-
inn 17. þ.m. austur um land i
hringferð. Vörumóttaka:
föstudag, mánudag og til há-
degis á þriðjudag til Aust-
fjarðahafna, Þórshafnar,
Raufarhafnar, Húsavikur og
Akureyrar.
V
Útför eiginmanns mins,
Björns Guðmundssonar
taikennara frá Næfranesi,
verður gerð frá Fossvogskirkju laugardaginn 12. júni kl.
10.30. Þeir sem vildu minnast hans eru vinsamlega beðnir
að láta styrktarsjóði þroskaheftra barna njóta þess. Fyrir
hönd barna okkar, og systkina hins látna,
Vrr Bertelsdóttir.
Þökkum hlýhug og samúðarkveðjur vegna fráfalls og út-
farar
Odds Magnússonar,
Borgarbraut 29, Borgarnesi.
Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki Hf-
læknisdeildar Sjúkrahúss Akraness.
Soffia I. Eiriksdóttir
Þorgerður Oddsdóttir
Ragnheiður Oddsdóttir
Eirikur R. Oddsson
og barnabörn.
Sigþrúður Magnúsdóttir
Siguröur Ásmundsson
Páll Kjartansson
Guðrún Helgadóttir
Liðsmannafundur
herstöðvaandstœðinga
verður í Glœsibœ á
laugardaginn kl. 10-18
með matarhléi
DAGSKRÁ:
kl. 10-12 Um starfið undanfarið, Andri
Isaksson. Um lög og skipulag, Pétur
Tyrfingsson. Um sumarstarfið, Gils
Guðmundsson. Almennar umræður.
kl. 13.30-14.30 Umræður i hópum um
sumarstarfið og lagatillögur, hug-
myndum safnað.
kl. 14.30-17 Almennar umræður um hug-
myndir að stefnugrundvelli her-
stöðvaandstæðinga (3-4 framsögu-
menn).
kl. 16-17 Frekari umræður um lög og
sumarstarf.
kl. 17-18 Ályktanir bomar upp, fundarslit
o s. frv.
Miðnefnd leggur áherslu á, að fundurinn
er opinn öllum herstöðvaandstæðingum.
Þótt fólk sjái sér e.t.v. ekki fært að sitja
allan fundinn, er æskilegt að það láti sjá
sig.
Miðnefnd.
Alþýðuhandalagið
Vestur-Barðastrandarsýslu
Almennur stjórnmálafundur I
félagsheimilinu á Patreksfirði
föstudaginn 18. júni n.k. kl. 21.
Málshef jendur:
Lúðvik Jósepsson.alþingismaður
og Kjartan ólafsson, ritstjóri
Frjálsar umræður
Alþýðubandalagið i Vestur-
Barðastrandarsýslu
Styrktarmenn Alþýðubandalagsins
eru áminntir um að greiða framlag sitt fyrir árið 1976. Giróseðlar hafa
verið sendir út, en nýir styrktarmenn eru beðnir um að senda framlag
sitt inn á hlaupareikning nr. 47901 Alþýðubankanum eða greiða það til
skrifstofu flokksins að Grettisgötu 3.
Alþýöubandaiagiö