Þjóðviljinn - 12.06.1976, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 12.06.1976, Blaðsíða 2
2 SÍÖA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 12. júni 1976. SKAMMTUR AF UMFJÖLLUN Það hefur mjög farið í vöxt á síðari árum, að efnt væri til ráðstefnuhalds útaf því sem á vondu máli hefur verið kallað ,,aðskiljan- legustu hlutir" Islendingar hafa í nokkuð ríkum mæli notið góðs af þessari auknu tilhneigingu til ráð- stefnuhalds, þar sem landið liggur í þjóðbraut, ef svo mætti segja, en eins og kunnugt er er Is- land eyland, sem liggur milli tveggja megin- landa, og ætti þar með að vera fengin viðhlít- andi skýring á ágæti landsins til ráðstefnu- halds, enda hefur ekki ómerkari maður en Gisli á Elliheimilinu gert það að tillögu sinni að föðurland vort verði tekið til slíks brúks. Er það sannarlega athyglisverð hugmynd og' viturs manns ráð sem hefur af þeim sökum ekki verið gefinn neinn teljandi gaumur af landsfeðrum og yfirvöldum. Hér er mikilll skortur á húsrými til ráð- stefnuhalds, og er þá einkum átt við þök yfir höf uðin á þeim sem ráðstefnur sitja, það er að segja, eftir að þeir eru gengnir til náða. Er þetta skýringin á því, að oft vill brenna við að ráðstefnugestir hérlendis vaki á nóttinni oft við hin verstu skilyrði, og er hér raunar komin skýringiri á þeirri staðreynd, að einatt virðist meginþorri ráðstefnugesta sofa á sjálfum þingunum, því eins og allir vita, þarf mikil karl- og kvenmenni til að vaka bæði nætur og daga. Á ráðstefnum er f jallað um allt milli himins og jarðar, og fjölgar stöðugt þeim greinum sem teknar eru til umf jöllunar. Áður voru ráðstefnur helst kirkjuþing þar sem dispúterað var um það vikum mánuðum eða jafnvel árum saman, hvað margir englar gætu dansað á einum nálaroddi, eða þá hvort guð almáttugur gæti hannað svo stóran stein að hann lof taði honum ekki. Þá var það ósjald- an, að komið var saman til að f jalla um það sem nefnt hefur verið vísindi. Nú á síðari árum hef ur það hins vegar færst mjög í vöxt, að ýmsar aðrar greinar þess sem mestu máli skipta í tilverunni og samtíðinni séu teknar f yrir svosem uppeldisvandamál og alls kyns terapíur, að ekki sé nú talað um hinar ýmsu greinar sjálfrar listarinnar, listarinnar vegna (l'art pour l'art). Nýafstaðin er ein slík ráðstefna, sem upphaflega átti að há hérlendis en vegna. framangreinds húsnæðisleysis og rysjótts’ veðurfars, þótti rétt að freista þess ekki, og var því brugðið á það ráð að halda hana á Lófóten, sem hefur að ýmsu leyti samstöðu með íslandi. Ráðstefna þessi var list- ræn réttara sagt f jallaði um eina grein listar- innar, nefnilega Ijóðlist (poesi) eða svo titilll ráðstefnunnar sé réttilega tilgreindur: ,,Gildi Ijóðlistar fyrir samfélagslega innviði hugar- fars í þéttbýliskjörnum smáþjóða". Ekki þarf að efa hvílik lyftistöng slik ráð- stefna hlýtur að vera öllum þeim, sem fást við Ijóðlist, sem sagt eru skáld enda voru á ráð- stefnunni mættir átta fullgildir fulltrúar frá íslandi og þrír áheyrnarfulltrúar, sem ekki höfðu atkvæðisrétt ásamt eiginkonum sínum. Við náðum tali af einum fulltrúa Islands, Grímkeli Sveinssyni, strax og hann sté útúr f lugvélinni í fyrradag. Grímkell er löngu þjóð- kunnur f yrir I jóðabækur sínar, sem eru orðnar allmargar og lítið lesnar. Við inntum Grímkel eftir því hver árang- ur hefði náðst með þessu ráðstefnuhaldi. ,,Árangurinn var gífurlegur", sagði Grím- kell. „Það getur enginn, nema sá sem á hef ur tekið, gert sér í hugarlund hvilíkt næringar- gildi ráðstefnur um list hafa fyrir listina sjálfa sem slíka. Persónulega veit ég f jölmörg dæmi þess, að menn sem áður voru miðlungs- skáld hafi orðið góðskáld eða jafnvel þjóð- skáld við að sækja þó ekki væri nema eina slíka. Það er bæði gagnlegt, fróðlegt og inn- spírandi að fá að tjá sig í ræðustóli og hlýða á aðra tjá sig um list yf irleitt, því það Ijóðskáld er blint, sem yrkir áður en það hefur öðlast f ullnáðarvitneskju um hina einu og sönnu list, listina að kynnast rétta fólkinu. Nú, sjálf ráðstefnan hófst á því, að skipuð var skipulagsnefnd til að skipuleggja sjálft starfið sem slíkt, en skipulagsnefnd skipaði síðan i starfsnefndir, sem kusu sér síðan menn úr hópi fulltrúa til samstarfs, eða sam- starf snef ndir. Þegar síðan samstarfs- nefndirnar höfðu lokið störfum, lögðu þær niðurstöður sínar fyrir starfsnefndirnar, sem tóku til umfjöllunar þær niðurstöður, sem fyrir lágu og lögðu þær fyrir skipulags- nefndina. Skipulagsnefndin sendi síðan þær niðurstöður til valinkunnra sérfræðinga til umsagnar, svo hægt væri að leggja fyrir endanlegar niðurstöður frá sjálfu aðalráðinu, eða Listráðinu, og taka þær síðan fyrir í starfshópum, skoða þær og skilgreina. Þar sem tími var naumur á listastefnunni í Lófóten var sjálft málið sem til umf jöllunar var, sem sagt „Gildi Ijóðlistar fyrir sam- félagslega innviði hugarfars i þéttbylis- kjörnum smáþjóða," ekki nema rétt á byrjunarstigi jáegar slíta varð ráðstefnunni vegna anna skáldanna sem hana sóttu, en eigi að síður er árangurinn ómetanlegur, enda komust fundarmenn að einni sameiginlegri niðurstöðu, en hún er þessi: Ætlir þú að eiga sjens á akri mennta og lista, komdu þér á konferens og komdu þér hið fyrsta." FLOSI l'ra þennan verAlaunagrip veröur keppt i FIB-rally I dag er „rally”- dagur Félags isl. bifreiftaeigcnda. Keppnis- leiftin nú er 250 km. en var 150 i fvrra. Keppnin hefst kl. 13 að Hótel Loftleiöum og veröur ýmislegt gert til þess aö áhorfendur geti sem best fylgst meö þvi hvernig keppendum vegnar. Um kvöldið lýkur svo keppninni aö Hótel Loftleiöum, og úrslit verða þá til- kynnt og verölaun veitt. Sigurvegari fær 80.000 kr. ásamt bikar sem verslunin Sport- val hefur gefiö sérstaklega til þessarar keppni, og verðlauna- pening sem Bárður Jóhannesson hefur gert. ökurríenn i 2. sæti fá 45.000 kr. ásamt peningi. ökumenn i 3. sæti fá 25.000 kr. ásamt peningi. Allir keppendur sem komast i endamark fá veifu, sem vottar að þeir hafi lokið keppni með heiðri. Á ,,rally”-daginn sýna bilaáhuga- menn að bifreiðaíþróttir eru vin- sælt sport. Saumastofa LR í leikför Hópur frá Leikféiagi Reykja- víkur er nú aft leggja upp i leik- ferft um landift meö Sauma- stofuna. Feröin mun standa tæpan mánuft og vcrður leikift á um 20 stöftum. Fyrsta sýningin verftur á Akranesi mánudaginn 21. júni. Saumastofan hefur notið mik- illa vinsælda i Iðnó i vetur. Hún var frumsýnd þar i haust og hefur nú verið leikin 55 sinnum, oftast fyrir fullu húsi. Leikurinn var sumpart tengdur kvennaári. Hann fjallar á frjálslegan hátt um gleði og mæðu alþýðufólks, fólks, sem vinnur saman á litilli sauma- stofu. Höfundurinn er Kjartan Ragnarsson, leikari. Hann er jafnframt leikstjóri og hefur 'hlotið mikið lof fyrir þetta verk, sérilagi söngvana, sem auka mjög á gáska leiksins og hafa ekki sist skapað honum vinsældir. Leikendur eru niu, þau Sigriður Hagalin, Karl Guðmundsson, As- dis Skúladóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Ragnheiður Stein- dórsdóttir, Hrönn Steingrlms- dóttir, Harald G. Haraldsson, Soffia Jakobsdóttir og Sigurður Karlsson, en Magnús Pétursson sér um pianóundirleik. Leikmynd við sýninguna geröi Jón Þórisson. önnur sýningin veröur á Lyng- brekku, Mýrum 22. júni. Siðan verða sýningar I Logalandi, á Hellissandi, Búðardal, Patreks- firöi, Bildudal, Þingeyri, tsafiröi, Hrönn Steingrfmsdóttir og Ragnheiftur Steindórsdóttir í Atómstöðinni. Bolungarvik, Sævangi á Strönd- um, Hvammstanga, Skaga- strönd, Blönduósi, Sauðárkróki, Siglufirði, Ólafsfiröi og á Akur- eyri verður leikhópurinn- um miðjan júli, en siðan áætlar hann að halda eitthvað áfram austur á bóginn. ,y4hugi ing Bandalags ísl. leikfélaga hefst í dag .Aöalmálið á þinginu er starfiö sta leikár, samræming þess og pulagning, svo og umræfta um mskeift, verkefnaval og aft- iftu hinna mismunandi ieikfél- asagfti Helga Hjörvar, mkvæmdastjóri Bandalags isl. kfélaga I gær, en i dag hefst ig þeirra i Félagsheimilinu á Itjarnarnesi. t Bandalaginu eru 66 félög og hefur þeim fjölgaft um tiu frá þvf ’74. Rúmlega sextiu fulltrúar af öllu landinu koma til þings. „Þaft er mikil gróska f leik- starfinu eins og öllum má vera Ijóst. Greinilega hefur einnig orftift breyting á verkefnavali félaganna og er áhuginn nú lang- mestur fyrir islenskum vcrkum. Tvö félaganna frumfluttu I vctur verk eftir fsl. höfunda og Leik- félag Þorlákshafnar hefur þegar ákveftift að frumsýna nýtt fsl. verk i haust” f kvöld sýna Leikfélög Hvera- gerðis og Selfoss Atómstöðina i Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi, i leikstjórn Steinunnar Jóhannes. dóttur og leikmynd Gylfa Gisla- sonar. Sýningin er I tengslum við bingið og verða umræður um hana I lokin, en hún er öllum opin. 1 vetur hafa aðildarfélögin sett á svið 52 leiksýningar og að meðaltali má gera ráð fyrir að hvert leikrit sé sýnt 8-10 sinnum þar af 4-5 sinnum i leikferðum. Haldin hafa verið 12 námskeiö i leikrænni tjáningu, leiktækni og látbragðsleik hjá hinum einstöku félögum. Samstarf atvinnuleikhúsanna og bandalagsfélaganna hefur aukist mikið á árinu og hafa rúm- lega 30 meðlimir félags islenskra leikara og félags leikstjóra á ts- landi unnið með félögunum. Þar af hafa 3 fastráðnir leikarar Þjóð- Framhald á 14. siðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.