Þjóðviljinn - 12.06.1976, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 12.06.1976, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 12. júnl 1976. Nýtt kynferðishneyksli á Bandarikjaþingi: Þingmaður frá Texas sakaður um hjákonuhald Washington 11/6 Reuter — Skriöa af hneykslum varðandi kyn- feröismái stjórnmáiamanna viröist vera komin af staö I Bandarikjunum. I dag fuilyrti þrltug kona, fyrrverandi ritari Johns Young, demókrataþing- manns frá Texas, aö hún heföi hvaö eftir annaö fengiö iauna- hækkanir fyrir aö láta þingmann- inum bliöu slna I té. Young, sem er 59 ára aö aldri, kvæntur og fimm barna faöir, hefur neitaö ásökununum. Ritarinn fyrrverandi heitir Colleen Gardner. ,,Það heföi ekki verið svo slæmt að hátta hjá hon- um ef hann hefði látið mig hafa eitthvað að gera, en það vildi hann ekki,” segir Gardner. Segir hún að þaö hafi stafað af þvi að þingmaöurinn hafi viljað hafa hana til taks hvenær sem hann kynni að fá löngun til hennar. Annar þingmaður, Wayne Hays, sem samkvæmt fullyrðing- um ritara sins. Elisabeth Ray, hafði hana fyrir leikfang og greiddi henni riflega fyrir það af opinberu fé, er nú á sjúkrahúsi eftir að hafa tekið inn stóran skammt af svefntöflum. Þúsundasti traktorinn var afgreiddur i fyrradag Zetor dráttarvélin sækir í sig veðrið Islensk-tékkneska verslunar- félagið hefur núna flutt inn tékk- nesku Zetor-dráttarvélarnar i sjö ár og verður vart annað sagt en að vel hafi gengið. 1 fyrradag var þúsundasta dráttarvélin afhent formlega, en hún var seld undir lok sl. árs. Viðstaddir afhending- una voru tveir fulltrúar fyrir- tækisins Motokov, sem sér um út- flutning vélanna frá Tékkóslóvakiu. Siðustu sjö árin hefur Zetor verið mest selda dráttarvélin hér á landi, ef fjöldinn er lagöur saman. Það var Tómas Gislason bóndi að Undirhrauni II i Leiðvalla hreppi V-Skaftafellssýslu sem reyndist vera kaupandi dráttar- vélar með ábyrgðarskirteini númer eitt þúsund og afhenti Arni Gestsson forstjóri Istékk honum vélina. Á myndipni hér að ofan sjást þeir takast i hendur og með þeim eru tékknesku fulltrúarnir, þeir A. Imlauf og F. Motal. —gsp Alþýðubandalagið i Kópavogi Alþýðubandalag Kópavogs: Félagsfundur verður i Þinghól MIÐVIKUDAGINN 16. júni, kl. 8.30. Rætt um sumarferðalagið. Þið, sem eigið litskuggamyndir úr siðustu ferð, vinsamlegast komiö með þær. Kaffiveitingar. Stjórnin. Alþýðubandalagið Vestur-Barðastrandarsýslu Almennur stjórnmálafundur i félagsheimilinu á Patreksfiröi föstudaginn 18. júni n.k. kl. 21. Málshefjendur: Lúövik Jósepsson, alþingismaður og Kjartan ólafsson, ritstjóri Frjálsar umræður Alþýöubandalagiö Baröastrandarsýslu Vestur- Styrktarmenn Alþýðubandalagsins eru áminntir um að greiða framlag sitt fyrir árið 1976. Giróseölar hafa verið sendir út, en nýir styrktarmenn eru beönir um að senda framlag sitt inn á hlaupareikning nr. 4790 i Alþýðubankanum eða greiöa það til skrifstofu flokksins að Grettisgötu 3. Alþýöubandalagiö 390 milj. i Borgar- fjarðarbrúna A þessu ári er gert ráð fyrir að vinna við brúarsmiði á landinu fyrir um 700 miljónir króna. Rúmlega helmingur þess fjár fer i Borgarfjarðarbrúna, eða 390 miljónir króna. Að sögn Helga Hallgrinssonar verkfræðings hjá Vegagerð rikis- ins, eru stærstu verkefnin fyrir utan Borgarf jaröarbrúna, þ.e.a.s. þær brýr sem áætlað er að ljúka við i sumar, brú yfir Héraösvötn i Skagafirði, Laugar- dalsá I Djúpi, Bjargardalsá á Vesturlandsvegi. —S.dór Biðlistar Framhald af 1 gerir það i stórum hópum eins og mennvita. Hinsvegar sagði Guð- mundur, að vinnutimi fólks hefði styst mjög, aukavinna væri litil sem engin. Hann sagði að mörg ár væru siðan atvinnuástandið hefði verið svona dauft. Þá benti Guðmundur á, að atvinnuleysi skólafólks rýrði að sjálfsögðu mjög rauntekjur heimilanna. Benedikt Daviösson, formaður Sambands byggingamanna,sagði að i vetur og vor hefðu margir byggingamenn verið atvinnu- lausir.en núsem stæöi vissi hann ekki til að neinn þeirra væri á at- vinnuleysisskrá, enda stæði nú yfir hávertið hjá bygginga- mönnum. Hinsvegar sagði hann að hér á stór-Reykjavikur- svæðinu væri mun minna um byggingar en undanfarin ár og þvi sagðist hann kviða komandi hausti og vétri mjög. —S.dór. Þing B.Í.L. Framhald af bls. 2. leikhússins leikið sem gestaleik- arar. 1 fyrra hófst samstarf við Þjóö- leikhúsið um námskeið I tækni leikhúss og nú eru haldin 3 námskeiö þ.e. i förðun, ljósabeit- inug og leikmyndagerð. Þátttak- endur eru 24 viðsvegar að af land- inu og komust færri að en vildu. Þá eru nú væntanlegir hingað um 40 manns frá norðurlöndum til að taka þátt i leikbrúðunám- skeiði sem haldið verður i Reyk- holti dagana 20.-27. júni. En is- lenskir þátttakendur verða 10. Kennarar á námskeiöinu eru frá Austurriki, Danmörku og Islandi. Þá var einnig haldið námskeið i leikstjórn á siðastliðnu ári og verða þau nú tvö i sumar og verða haldin að Hallormsstað. Atómstöðin eftir Laxness verö- ur sýnd i kvöld i Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi. Minna um Þór Framhald af 16. siöu. sem dæmi nefna viðgeröir á Viði- mýrarkirkju, Burstafelli i Vopna- firði, þar sem sett veröur sérstök loftræsting i torfbæinn, en slikt hefur reynst vel til að halda torf- bæjum þurrum, en raki fer einna verst með þá. Viðgerð verður framkvæmd á bænum að Keldum og á gamla bænum i Laufási. Þór sagði að þessar viðgerðir væru bæði kostnaðarsamar og timafrekar auk þess sem mjög fáir menn hér á landi kunna leng- ur torfhleðslu og gtjothleðslu, sem er stór þáttur i þessum við- gerðum —S.dór :ífiÞJÓfiLEIKHÚSIfi LITLI PRINSINN 2. sýning i dag kl. 15. Slðasta sinn. GISELA MAY i kvöld kl. 20. INUK á aðalsviðinu föstudag 18. júni kl. 20. Laugardag 19. júni kl. 20. Aðeins þessar tvær sýningar. Litla sviðið: SIZWE BANSI AR DÖD i kvöld kl. 20,30. Uppselt. Miðasala 13,15-20. Simi 1-1200. LEIKFÉLAG 2tX REYKIAVlKUR " T SKJALDHAMRAR i kvöld. — Uppselt. Listahátíð í Reykjavík: SAGAN AF DATANUM sunnudag kl. 20.30. FRANSKI LATBRAGÐS- LEIKARINN Yves Lebreton mánudag kl. 20.30 þriðjudag kl. 20.30. Leikfélag Akureyrar sýnir GLERDÝRIN miðvikud. kl. 20.30. Miðasalan i Iðnó er opin kl. 14- 20.30. Simi 1-66-20. A uglýsingasíminn er 17500 Þjóðviljinn Sumarferð Alþýðu- bandalagsins á Vest- fjörðum um Strandir Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Vest- fjörðum efnir til sumarferðar dagana 25.-27. júní n.k. Hér gefur að lita Drangaskörð. Ef vel viðrar blasa þau við frá Munaðarnesi. Farið verður frá Isafirði og Patreksfirði föstu- dagskvöld þann 25. júní og ekið í Reykhólasveit skemmstu leið frá hvor- um stað. — Gist i Reyk- hólasveit. Að morgni laugardags þann 26. júni hefst sameiginleg ferð frá Bjarkarlundi. — Farið verður um Tröllatunguheiði, Stein- grimsfjörð, Bjarnarfjörð og norður i Arneshrepp A laugardagskvöld sjá Stranda- menn um sitthvað til skemmtunar i Trékyllisvik. Siðan verður ekið að Klúkuskóla i Bjarnárfiröi og gist þar. A sunnudag verður Steingrims- fjörður og nágrenni hans kannað nánar og siðan ekið i Bjarkar- lund, þar sem leiðir skilja. Allir þátttakendur i ferðinni verða að hafa með sér nesti til tveggja daga og viöleguút- búnað. Kostur er á svefnpoka- plássi báðar nætur, en æskilegt að sem flestir heföu með sér tjöld. Þátttökugjald veröur um kr. 5000,- Nánari upplýsingar gefa A tsafiröi Jónas Eliasson simi 3852, Elin Magnfreðsdóttir simi 3938, Aage Steinsson simi 3680 1 Bolungarvik Guðmundur Ketill Guðfinnsson, slmi 7211 I Súðaviklngibjörg Björnsdóttir simi 6957 1 Súgandafiröi Gestur Kristins- son, simi 6143 A FlateyriGuðvarður Kjartans- son, slmi 7653 A Þingeyri Davlð Kristjánsson simi 8117 A Bildudal Jörundur Garðars- son, simi 2112 I Táknafirði Höskuldur Daviðs- son, simi 2561 A Patreksfirði Hrafn Guð- mundsson, simi 1384 Á Barðaströnd Unnar Þór Böðvarsson, Tungumúla 1 Reykhólasveit Jón Snæbjörns- son, Mýrartungu I Strandasýsiu Guðbjörg Haraldsdóttir, Borðeyri og Sveinn Kristinsson Klúkuskóla I Inn-Djúpi Astþór Agústsson, Múla Nauteyrarhreppi

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.