Þjóðviljinn - 12.06.1976, Side 5
Laugardagur 12, júní 1976. ÞJÓDVILJINN — StÐA 5
Syrían Army
relieves tðwns
under attack i
Qubeíflt(
í K A R
rR E G I O N
Leftists ctash
with Syrian
commandos
fi Syrian Army
breaks leftist
siege
DAMASCUS
Mount
Hermon
/U.N.
ZONE
IGOLAN
t HEtGHTS
MILES
LÍBANON:
Innrás sýrlendinga í Libanon.
Meginherinn sóttí i tveimur fylk-
ingum inn i landið sunnanvert,
önnur til Beirút meðfram aðal-
veginum þangað frá Damaskus,
hin tíl hinnar fornfrægu hafnar-
borgar Sidon til að fyrirbyggja
undanhald palestinsku hersveit-
anna suður á bóginn. 1 þriðja lagi
réðust sýrlenskar hersveitir inn i
Akkar-héraðið nyrst I landinu til
að stöðva þar átök vinstri- og
hægrimanna. Libanskir vinstri-
menn segja að árásir hafi verið
gerðar á kristin þorp i því héraði
að undirlagi sýrlendinga til að
gefa þeim átyllu_ til inn-
rásarinnar.
Af landamærarikjum
Palestinu hefur Sýrland
til þessa verið eindregn-
ast i stuðningi sinum við
málstað arabiskra
palestinumanna, að
minnsta kosti á yfir-
borðinu. Jórdaníu-
konungur braut á bak
Innrás sýrlendinga
aftur starfsemi baráttu-
samtaka palestinu-
manna i riki sinu i
blóðugum bardögum,
egyptar hafa lengi verið
nokkuð svo loðnir í
afstöðu sinni en þar á
móti virtust palestinu-
menn ætið geta reitt sig
á eindreginn stuðning
Sýrlands við málstað
sinn. Meðal annars var
talið að baráttusamtök
palestinumanna hefðu
fyrir löngu verið gerð
útlæg úr Libanon likt og
Jórdaniu, ef sýrlend-
ingar hefðu ekki haldið
verndarhendi yfir þeim.
Nú bregður hinsvegar svo við
að sýrlenskur her hefur ráðist inn
iLibanonogá þar i bardögum við
palestinumenn og libanska
vinstrisinna. Arafat, leiðtogi
palestinumanna, sakar sýr-
lendinga um að hafa ráðist á
flóttamannabúðir palestinu-
manna i Libanon með skrið-
drekum og flugvélum og drepið
þar og limlest fleira fólk en dæmi
séu til um úr nokkurri af hinum
óteljandi árásum israelsmanna á
flóttamannabúðirnar. Og það er
ekki nóg með það að sýrlendingar
vegi nú að skjólstæðingum sinum,
palestinumönnum, heldur berjast
palestínumenn sjálfir innbyrðis i
Libanon. PLO, aðalbaráttu-
samtök palestinumanna, er
bandalag sem mörg samtök eiga
aðild að. Eitt þessara samtaka,
Saika, hefur alla tið verið mjög
háð sýrlendingum og berst nú
með þeim gegn löndum sinum.
ísraelar láta sér
fátt um finnast
Og það eru ekki palestinumenn
einir, sem nú segja um sýrlend-
inga að höggvi sá er hlifa skyldi.
Allt frá þvi að Sýrland og Libanon
sluppu undan yfirráðum frakka
og urðu sjálfstæð riki hefur verið
gengið út frá þvi sem visu að hið
múhameðska Sýrland væri bak-
hjarl múhameðskra libana. Ennú
ráðast sýrlendingar einmitt inn i
Libanon til að taka i lurginn á
þessum skjólstæðingum sinum.
Aður hafði verið gengið út frá
þvi sem visu að israelsmenn
myndu ráðast inn i Libanon ef
sýrlendingar, hörðustu óvinir
þeirra af arabisku grann-
rikjunum, sendu þangað her. En
nú láta iraelskir ráðamenn sér
fátt um finnast og segja eitthvað
svipað og Mörður Valgarðsson i
Njálu, að þeir einir eigist við i
Libanon sem israelar hirði aldrei
þó að drepist. Þessi stilling isra-
elsmanna stafar trúlega að ein-
hverju leyti af bandariskum
áhrifum, en Bandarikjastjórn er
allánægð með ihlutun sýrlend-
inga. Fram til þessa hefur
Bandarikjastjórn þó ekki verið
ýkja hress yfir sýrlensku stjórn-
inni, sem hefur vinsamlegt sam-
band við Sovétrikin, en vera kann
að bandariskir ráðamenn kjósi af
tvennu illu fremur sýrlenskt her-
nám i Libanon en fullan sigur
vinstrimanna i borgarastyrj-
öldinni.
Palestínumenn ,,seldir”
fyrir Golanhæðir?
Vitað er að Sýrland sendi her
sinn inn i Libanon þvert gegn
vilja Sovétrikjanna, sem það
hefur lengi staðið i allnánu og
vinsamlegu sambandi við, og
bætti gráu ofan á svart með þvi að
hefja innrásina einmitt þegar
Kosýgin forsætisráðherra sovét-
manna var i opinberri heimsókn i
Damaskus. Kannski bendir þetta
til þess að sýrlendingar hyggist
söðla um, likt og egyptar áður, og
færa sig nær Vesturveldunum.
Kannski hefur þegar á bak við
tjöldin verið samið um að
Sýrlandsstjórn fái fyrir það
viðvik rikulegan fjárstuðning frá
Bandarikjunum og oliuauðugum
og afturhaldssömum Araba-
rikjum, sem auðvitað vilja allt
frekar en að vinstrimenn nái
völdum i Libanon.
Þess hefur lika verið getið til,
að visu af andstæðingum Assads
Sýrlandsforseta, að hann hafi
einnig samið við fsrael á bak við
tjöldin. Að Israelsstjórn hafi lofað
að skila aftur Golan-hæðum sem
israelsmenn tóku af sýrlend-
ingum i sexdagastriðinu 1967,
gegn þvi að sýrlendingar kæmu i
veg fyrir árásir palestinskra
skæruliða i Libanon á Israel. Með
tilliti til þessa sé ekki að undra,
þótt israelskir ráðamenn taki
innrás sýrlendinga með stillingu.
Sýrlendingar þykjast
standa einir
Vist er um það að afstaða
Sýrlands gagnvart Israel heftir
upp á siðkastið orðið ivið vægari.
Skýringin á þvi er trúlega sú, að
eftir siðasta samkomulag Israels
og Egyptalands um Sinaí er erfitt
að imynda sér að egyptar verði á
næstunni fúsir til átaka við tsrael.
Sýrlendingar þykjast þvi standa
þvi sem næst einir uppi sem
virkir andstæðingar ísraels, og
sjálfum er þeim jafnljóst og
öðrum að sýrlenski herinn hefði
ekkert að gera i þann israelska ef
þeir ættust einir við. Það væri þvi
ekki nema trúlegt að Sýrlands-
stjórn stefndi nú að hliðstæðu
samkomulagi viö tsrael og
Egyptaland hefur þegar gert.
Egyptar hafa fordæmt sýrlensku
innrásina allra harðast og má
heita að i bráðina sé fullur fjand-
skapur með þeim og sýr-
lendingum út af þvi máli. En
kannski svara ráðamenn i
Damaskus egyptum sem svo: Þér
ferst Flekkur að gelta.
Fleiri Arabariki hafa nú
blandað sér i málið, en þegar
þetta er ritað er enn of snemmt að
spá nokkru um, hve mikið býr á
bak við þau afskipti og hvaða
afleiðingar þau kunna að hafa.
—dþ
ísland D.D.R.
Æskulýðsbúðir í D.D.R.
Félagið ísland — D.D.R. skipuleggur ferð
unglinga til 3ja vikna dvalar i æskulýðs-
búðum i þýska Alþýðuveldinu. Dvalið
verður i Prorov við Eystrasaltið á tima
bilinu frá 7. til 30. júli. Börn félagsmanna
ganga fyrir.
Frekari upplýsingar gefur örn Erlends-
son, simi 11470 eða 36717.
Lausar stöður
Kennarastöður við Fjölbrautaskólann i Breiðholti I
Reykjavik eru lausar til umsóknar. Um er að ræða bók-
legar og verklegar greinar i eftirfarandi kennsludeildum
skólans:
íslenskudeild, deild erlendra mála, stærðfræðideild, eðlis
og efnafræðideild, náttúrufræðideild, samfélags- og upp-
eldisfræðideild, viðskiptadeild, hússtjórnardeild, mynd-
og handmenntadeild, heilsugæsludeild, snyrtigreinadeild,
málmiðnadeild.tréiðnadeild og iþróttadeild.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil og störf skulu
hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavik, fyrir 9. júli n.k. Umsóknareyðublöð fást i ráðu-
neytinu og i fræðsluskrifstofu Reykjavikur.
Menntamálaráðuneytið,
9. júni 1976
Auglýsing
Starf bæjarstjóra á Akureyri er laust til
umsóknar og veitist frá 1. ágúst 1976.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist undirrituðum
fyrir 15. júli næstkomandi.
Akureyri 8. júni 1976,
Bjarni Einarsson
Blikkiðjan Garðahreppi
Önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð.
SÍMI 53468
AÐALFUNDUR
Aðalfundur félags landeigenda i Selási
verður haldinn að Freyjugötu 27 laugar-
daginn 12. júni 1976 kl. 14.00
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. önnur mál.
Stjórnin.
Mikið úrval bóka
Marx, Engels, Lenin, tækni, visindabæk-
ur, skáldsögur, listaverkabækur, einnig
nótur og hljómplötur frá Sovétrikjunum,
Tékkóslóvakiu, Póllandi og Ungverja-
landi.
.ERLEND TÍMARIT
Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig, 2. hæð. Simi
28035.