Þjóðviljinn - 12.06.1976, Page 11
Laugardagur 12. júni 1976. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Stefán Jónsson, alþingismaður:
Bœndur skulu eiga jarðir
til landbúnaðarnytja
Svar til Ásmundar Stefánssonar hagfræðings
Asmundur Stefánsson hag-
fræðingur Alþýðusambands-
stjórnar skrifar myndarlega
rammagrein um afstöðu mina
til þingsályktunartillagna Al-
þýðuflokksins um eignarhald á
landi i Þjóöviljann þann 10.
júni. Hann viðurkennir að hafa
ekki kynnt sér þessar þings-
ályktunartillögur nægilega vel
til þess að geta fjallað um þær.
Við fljótalestur á grein As-
mundar virðistmér hann heldur
ekki hafa kynnt sér sem skyldi
afstöðu mina til þeirra.
Ásmundur talsmaður
krata
Ef ekki væru nokkrar máls-
greinar tilfærðar innan gæsa-
lappa hefði ég efast um að As-
mundur hefði séð greinar-
kornið, sem hann skrifar um,
heldur e.t.v. látið sér nægja
endursögn næsta krata svo að
við nefnum ekki nöfn.
Ég timi ekki að lesa i sima
langa svargrein norðan úr landi
við útúrsnúningum hins unga og
gáfaða hagfræðings, læt nægja
að vitna i nýlega stefnuskrá Al-
þýðubandalagsins varðandi
eignarhald á landinu. Ég er
stefnuskránni samþykkur þótt
ég *æki ekki nema tiltölulega lit-
inn þátt i samningu hennar:
1 stefnuskránni segir á blað-
siðu 90:
,,A auðlindir landsins og
sjávar ber að lita sem sameign
þjóðarinnar sem hver kynslóð
nýtur og skilar hinni næstu,
helst i betra ástandi en við var
tekið. Æskilegt er að stuðla að
sem viðtækastri almannaeign á
landi og landgæðum og tryggja
afnotarétt i stað einkaeignar.
Bændur skulu eiga jaröir til
landbúnaðarnytja,ef þeir kjósa,
en nauðsynlegt er að hindra allt
brask með jarðnæði til sveita og
með lóðir og lendur i þéttbýli og
grennd.”
Og á blaðsiðu 115 i sömu
stefnuskrá segir: „Eðlilegt er
að landbúnaður sé áfram rekinn
af sjálfstæðum bændum og á
fjölskyldugrundvelli eins og nú
er. Þar sem upp kemur nauðsyn
á stórrekstri i landbúnaði, t.d.
vlrækt, er rétt að hvetja til sam-
vinnusniðs i rekstri, ella setja
hann á annan hátt undir al-
mannaforráð.”
Um pólitisk vinnubrögð
og sálufélög:
Það er skoðun min, án tillits
til meiri eða minni þekkingar-
skorts Asmundar Stefánssonar
á málefnum yfirleitt að æskilegt
sé að skipa þjóðnýtingarverk-
efnum i þá röö sem þau kalla að
vegna þjóðarheillar og mætti
t.d. ætla að þjóðnýting inn-
flutnings- og útflutnings-
verslunar yrði ofarlega á
skránni, þar næst ýmiskonar
stórfyrirtækja svo sem
tryggingarfélaga. Verkefnin
yrðu sennilega býsna mörg áður
en komið yrði að bújörðum
bænda. Ekki óliklegt að þjóðar-
hagur krefjist fyrr þjóðnýtingar
á ibúðarhúsnæði i bæjum en
jarðnæði til búskapar.
Svo veröur jafnan að viö hljót
um að skipa pólitiskum verk-
efnum i röð eftir þvi sem þörfin
kallar að. Af hyggindum er ekki
kveðið fyrirfram á um röðina i
stefnuskrá heldur er pólitisk*
skynsemi ætlað það hlutverk,
en hún er til margra hluta nyt-
samleg sé henni á annaö borð til
að dreifa.
Svo ég klykki út með tilvitnun
i niðurlagsorð eigin þingræðu
um þetta eignarhaldsmál þá
mun ég ekki er þar aö kemur
velja mér að föruneyti á þjóð-
nýtingarbrautinni þá menn sem
af mestu blygðunarleysi hafa
áratugum saman þjónað undir
Stefán Jónsson
ihaldið, krjúpandi, standandi i
ræðustólum Alþingis, sitjandi á
þingbekkjum, útaf liggjandi,
upp i loft og á grúfu.
Þessari siðustu sneið er alls
ekki beint til Asmundar
Stefánssonar.
Gert á Akureyri fimmtudaginn
10. júni 1976.
Stefán Jónsson
r _
Dýrariki Islands eftir Benedikt Gröndal:
r
Obrotgjarn minnisvarði
um sérstæðan listamann
Þess hefur áður laus-
lega verið getið hér i
blaðinu að sl. fimmtu-
dag hefði örlygur Hálf-
dánarson bókaútgefandi
kynnt blaðamönnum út-
gáfu á Dýrariki íslands,
eftir Benedikt Gröndal,
skáld og náttúrufræðing,
en bókaútgáfan örn og
örlygur stendur fyrir
útgáfu þeirrar bókar,
með mikilsverðri aðstoð
Steindórs Steindórsson-
ar frá Hlöðum, fyrrver-
andi skólameistara á
Akureyri. Hér mun nú
reynt að gera útgáfu
þessa stórmerka og sér-
stæða verks ofurlitið
fyllri skil en unnt var á
fimmtudaginn.
Eins og kunnugt er þá var
Benedikt Gröndal einn af stofn-
endum Hins islenska náttúru-
fræðifélags og formaður þess frá
upphafi, 1889—1900, jafnframt
þvi sem hann var umsjónarnaður
Náttúrugripasafnsins. Má með
réttu segja, að hann hafi verið
megin-höfundur safnsins, þvi að i
höndum hans óx það úr engu til
verulegs þroska, sem þá þegar
vakti athygli og aðdáun.
A blaðamannafundinum gat
örlygur Hálfdánarson þess, að
útgáfa Dýrarikis Islands væri
stærsti viðburðurinn i 10 ára sögu
útgáfufyrirtækisins. Útgáfa
bókarinnar nú er i engu sambandi
við Listahátiðina þvi ætlunin var
að hún kæmi út i fyrra, en tækni-
legir örugleikar hindruöu og þvi
fellur þessi listviðburður saman
við Listahátið.
Steindór Steindórsson benti
örlygi á þetta verkefni, og þeir
hófu samstarf um útgáfuna.
Steindórkom til Reykjavikur, leit
á myndir Gröndals, fór i gegnum
almanök hans, sem báru með sér,
hvernig bókin hafði smátt og
smátt skapast á 30 árum. Eigin-
lega er Dýrariki Islands eins
konar Vesturgötubók. Hún er
teiknuð á Vesturgötu 16, heimili
Gröndals, fjaran norðan Vestur-
götu var megin-náma hans við
dýrasöfnunina, — og nú er bókin
gefin út i húsi nr. 42 við Vestur-
götu.
Þegar endanlega hefur verið
gengið frá prentun bókarinnar,
verða filmurnar innsiglaðar og
afhentar Landsbóksafni með þvi
skilyrði, að bókin verði ekki gefin
út á ný fyrr en á 200 ára afmæli
Gröndals og þá þvi aöeins, að
fram sé tekið, að um aðra útgáfu
sé að ræða.
A annað þúsund myndir eru i
bókinni, að sjálfsögðu prentaðar i
litum. Eintakið kostar kr. 60 þús.,
en af þvi fær rikið dágóöa hýru. í
eftirmála, sem stráður er nokkr-
um teikningum Gröndals, fjallar
Steindór Steindórsson um hann
sem náttúrufræðing og framlag
hans til isl. náttúruvisinda.
Útgáfan kostaði griöar vinnu og
nákvæmni, og útlendingar, sem
séð hafa bókina, undrast að svo
vandaða vinnu viö bókagerð skuli
unnt að framkvæma á Islandi.
Steindór Steindórsson gat þess,
að Gröndal myndi upphaflega
hafa ætlað að nota bókina við
kennslu. Af þvi varð þó ekki, þvi
Gröndal varð að hverfa frá
kennslu. Hann hóf að teikna bók-
ina 1874—5 og lauk þvi 1905. Fékk
hann nokkurn styrk frá Alþingi til
verksins. Bókin ber þess ljósan
vott, hvað Gröndal var mikill
náttúrufræðingur, þótt hann
skrifaði ekki mikið um þau efni.
Þó varð hann fyrstur manna til að
skrifa isl. kennslubækur i steina-
dýra- efna- og landafræði, og i
sambandi við dýrafræðina bjó
hann til dýrafræðiheiti, sem siðan
hefur verið byggt á. Mest er i bók-
inni um teikningar af sjávardýr-
um og fuglum, enda voru þaö
uppáhaldsdýr Gröndals. Bókin er
óljúgfróður vottur um stórhug
Gröndals, þekkingu hans á is-
lensku dýralifi, og bæði
teikningar og skrift sýna hand-
bragð ósvikins listamanns.
Verkið er unnið af alúð og ástúð,
og óefað hefur ekkert starf annað
fært Gröndal fleiri sólskins-
stundir.
Sem fyrr segir er bókin gefin út
i 1500 árituðum og tölusettum ein-
tökum, og afhenti sonur örlygs,
sem reyndar á sama afmælisdag
og gamli Gröndal, dóttursyni
listamannsins, Benedikt Gröndal
forstj., 1500-asta eintakið að gjöf.
„Fellur i gleymsku það orð,
sem er lifandi núna’*. Þótt menn
hætti e.t.v. að lesa bækur
Gröndals: Dægradvöl, Heljar-
slóðarorrustu, Þórðarsögu Geir-
mundarsonar, sem þó er. ein-
stæðar að allri gerð, þá láta menn
sennilega ekki af þvi, að horfa á
það sem fyrir augu ber. Þvi er
þess að vænta, að þessi fagra bók
verði óbrotgjarn minnisvarði um
þennan mikla og sérstæða lista-
mann, seo fyrir 80-100 árum var
svo tiðförult um fjöruna fram-
undan Vesturgötunni. —mhg
Angóla:
Réttarhöld
yfir
málaliðum
LUANDA 10/6 NTB — A morgun
hefjast i Luanda, höfuðborg
Angólu, réttarhöld yfir þrettán
málaliðum, sem her Alþýðu-
hreyfingarinnar til frelsunar
Angólu (MPLA) tók til fanga i
borgarastriðinu þar. Niu mála-
liða þessara eru bretar, tveir
bandarikjamenn, einn iri og einn
argentinumaður. Bandariskur
lögfræðingur, Robert Cesner.
hefur verið fenginn til að verja
bandarisku málaliðana tvo en
hinir hafa angólska verjendur.
Reynt mun hafa verið að fá
breska verjendur fyrir bresku
málaliðana. en enginn breskur
lögfræðingur hefur viljað gefa sig
i það.
Baldvin, Ilcrdis og Bessi i lmynd unarveikinni.
„Argan ímyndunarveiki”
á Fáskrúðsfirði i kvöld
í dag fá Fáskrúösfirðingar leik-
flokk frá Þjóöleikhúsinu i heim-
sókn meö imy ndunarveiki
Molieéres I lcikstjórn Sveins
Einarssonar. A morgun veröur
sýnt á Egilsstöðum og á mánu-
daginn á Neskaupsstaö. Siöan
veröur haldið noröur um og sýnt á
Kaufarhöfn, Húsavik, Akureyri,
ólafsfiröi, Sauðárkróki og
Blönduósi.
Imyndunarveikin var frum-
sýnd 20. mai s.l. og hefur verið
sýnd við ágæta aðsókn og mjög
góðar undirtektir. Leikstjóri er
Sveinn Einafsson, leikmynd gerði
Alistair Powell, tónlist er eftir
Jón Þórarinsson. Aðalhlutverkin,
Argan hinn imyndunarveika og
Toinette vinnukonu hans leika
þau Bessi Bjarnason og Herdis
Þorvaldsdóttir. Aðrir helstu leik-
arar eru Arni Tryggvason,
Baldvin Halldórsson, Sigriður
Þorvaldsdóttir, Anna Kristin
Arngrimsdóttir, Randver Þor-
láksson, Jón Gunnarsson, Sigurð-
ur Skúlason, Rúrik Haraldsson og
Bjarni Steingrimsson.