Þjóðviljinn - 19.06.1976, Page 5
Laugardagur 19. júní 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Kúbanskir byggingaverkamenn að störfum á Jamalku.
Jama-
íka:
Blikur á lofti
Eyjar þær, sem einu nafni eru
kallaðar Vestur-Indiur, eru
sérstæður heimur um margt.
Meginstofn Ibúanna eru afkom-
endur spánverja og blökku-
manna, en þó bregður út af
þessu, þar eð eyjarnar voru
Íengi undir yfirráðum margra
nýlenduvelda og eru það sumar
enn. Þessvegna er spænska ekki
rikjandi tungumál nema á
sumum eyjanna, en annars-
staðar enska og franska. Auk
blökkumanna fluttu nýlendu-
herrarnirinn indverja, kúiverja
og fóik af enn fleiri þjóðum. Allt
hefur þetta gert að verkum að
hver eyja hefur mjög ákveðin
sérkenni eða blöndu af sérkenn-
um, þótt náttúrufar sé vlðast
svipað.
Jamalka er sú þriðja stærsta
af Vestur-Indíum næst Kúbu og
Hispanlolu, en þó ekki nema
brot af stærö Islands, ibúar
eitthvað nálægt tveimur miljón-
um. Þorri þeirra er blökkumenn
og kynblendingar þeirra og
annarra kynþátta, en einnig eru
á eynni minnihlutar hvitra
manna, indverja og ktaverja.
Um miöja seytjándu
öld á timum Cromwells,
tóku englendingar Jamaiku af
spánverjum, komu þar á fót
arövænlegum plantekrurekstri
og höföu eyna þar aö auki sem
bækistöö fyrir sjóræningja, sem
herjuöu ótæpilega á spænsku
nýlendurnar á meginlandinu.
Afleiöing bresku yfirráöanna
varö sú að jamaikumenn hafa
ensku fyrir móöurmál og heyra
flestir til anglikönsku kirkjunni,
en eru ekki kaþólikkar sem
flestir amerikumenn sunnan
Bandarikjanna.
íhaldssamur „verka-
mannaflokkur” —
þjóðlegir kratar
1962 lauk breskum yfirráöum
á Jamaiku og eyjan varö sjálf-
stætt riki. I framkvæmd þýddi
þaö aö yfirráöin færöust frá
Bretlandi til Bandarikjanna.
Bandariskt fjármagn náði al-
gerlega yfirhendinni I efnahags-
lifinu, svo sem I túrismanum,
sem ásamt báxit-námi er helsta
tekjulind eyjarinnar. Má svo aö
oröi kveöa aö Kingston, höfuö-
borg Jamaiku, hafi tekið viö af
Habana sem „stærsta hóruhús i
heimi” fyrir bandariska túrista,
eins og höfuðborg Kúbu var
kölluö fyrir byltinguna.
Fyrstu tiu ár sjálfstæðisins
var viö völd á Jamaiku stjórn-
málaflokkur, sem kallar sig
Verkamannaflokk Jamaiku
(Jamaica Labor Party, skamm-
stafaö JLP). En er þrátt fyrir
nafniö ihaldssamur og mjög
hallur undir innlenda efiiastétt
og erlenda auðhringa. Þarf
varla að taka fram að sá flokkur
og hans stjórn var mjög að
skapi húsbænda i Hvita húsinu.
En 1972 kom til valda annar
aöalstjórnmálaflokkurinn á
eynni, Þjóðarflokkur alþýöu
(People’s National Party,
skammstafaö PNP) Sá flokkur
getur frekast talist sósialdemó-
kratiskur og raunar hafa mörk-
in milli aðalfiokkanna tveggja
verið heldur óljós, en vinstra-
megin i þjóðarflokki alþýöu eru
þó allróttækir hópar. Leiötogi
flokksins er Michael Manley,
sem siöan 1972 hefur verið for-
sætisráðherralandsins.
Hræðslan við Castro
Meö stjórnarskiptunum hefur
nokkuö annaö svipur komist á
jamaisk stjórnmál, þótt sú
breyting sé heldur yfirborös-
kennd enn sem komið er. A
valdaárum ihaldsins var
Jamaika eitthvert þjálasta
lepprlki Bandarikjanna og
Bretlands á alþjóbavettvangi,
en flokkur Manleys tók þar upp
sjálfstæða stefnu, sem orðið
hefur til þess aö landib nýtur nú
verulegrar viröingar meðal
þriðjaheimsrikja. Jamaika tók
upp stjórnmálasamband við
Klna og Sovétrikin og stofnaði
þar á ofan til náinna og vinsam-
legra samskipta viö Kúbu,
bandariskum ráöamönnum til
mikiliar hrellingar.
Móðursýkiskennd hræðsia viö
Castro og kúbani hefur verið
snar þáttur i hugarfari banda-
riskra stjórnmálamanna og
auömanna siðustu seytján árin.
Kúbanir mega varla sjást
erlendis sem túristar svo aö
bandariskir fjölmiölar rjúki
ekki upp til handa og fóta með
fréttir um aö þar séu castroliðar
komnir meö her af njósnurum
og hernaðarráðgjöfum. Þetta
ofboð fékk byr undir báða vængi
þegar Kúba studdi MPLA i
borgarastriöinu i Angólu.
Bandariskir valdhafar hafa að
visu getaö huggað sig við þaö að
byltingin á Kúbu hefur ekki
breiöst út til annarra Ameriku-
landa, en nú hefur ótti þeirra viö
þaö endurnýjast. Stafar það
einna helst af vináttu Kúbu
annarsvegar og Gvæönu og
Jamalku hinsvegar. Gvæana
leyfði herflutningaflugvélum
Kúbu aö millilenda hjá sér með-
an barist var I Angólu, og á
Jamaiku eru starfandi nokkrir
kúbanskir sérfræöingar, sem
hjálpa landsmönnum aö byggja
skóla, vatnsveitustiflur, góð
en ódýr ibúöarhús, og aö koma
sér upp nýtisku sjávarútvegi, en
á þvi sviði eru kúbanir nú i
fremstu röö meðal Ameriku-
rikja.
Friðarsveitir kúbana
Bandariskir valdhafar eru á
nálum um aö þessar „friöar-
sveitir Castros”, sem þeir kalla
svo (eftir „friðarsveitum”
Kennedys sáluga forseta), muni
fá þvi áorkaö sem Guevara mis-
tókst, aö kollvarpa auðvalds-
skipulagi og bandariskum
áhrifum i fleiri löndum Róm-
önsku-Amerlku. Bandarísk blöð
segja frá þvi skelfingu lostin aö
jamaikumenn séu fullir a.ödáun-
ar yfir þvi hversu duglegir og
afkastamikiir verkmenn kúban-
irnir séuog hversu margt af þvi,
sem þeir kenna jamaikumönn-
um, gefist vel. Og aö sjálfsögöu
eru bandariskir embættismenn i
engum vafa um aö sumir
kúbönsku byggingaverkfræð-
inganna séu ekkert nema njósn-
arar; starfsmenn kúbanska
sendiráösins I Kingston eru
skuggalega margir aö dómi
kanans en skelfilegast af öllu
finnst þó bandarlkjamönnum aö
allmargir jamaiskir bygginga-
verkamenn hafi fariö til Kúbu I
starfsþjálfun. Telja bandarikja-
menn auðvitaö sjálfgefiö aö þeir
komi allir til baka sem sann-
færðir kommúnistar og liklega
þjáifaðir skæruliðar.
Kúba — nærtæk fyrir-
mynd
Jamaika hefur vissulega ærn-
ar ástæöur til náins samstarfs
viö Kúbu. Kúba er næsta grann-
land Jamaiku, og þar hafa
jamaikumenn fyrir augum eina
rflúð á vesturhveli jarðar, þar
sem verulegur lifskjarajöfnuö-
ur rikir og eina rikiö I Róm-
önsku-Ameriku, þar sem neyö
og skorti hefur veriö útrýmt og
velferðarrlki komiö á fót. Sjálf
er Jamaika, likt og flest önnur
rómansk-amerisk riki, hrjáö af
mikilli misskiptingu auös, og
heilbrigðis- og skólamál eru i
ólestri. Manley forsætisráö-
herra sagöi nýlega i viötali viö
bandariskt blað aö landar hans
gætu mikiö lært af kúbönum,
sem þrátt fyrir tiltölulega litlar
auölindir heföu getaö bætt lifs-
kjör þegna sinna og komið efna-
hagsinum á.traustan grundvöll.
í efnahagsmálum lita jamiku-
menn lika til kúbana meö aödá-
un, þvi aö auk þess sem efna-
hagur Jamaiku er sárlega háö-
ur erlendu auðmagni eiga
landsmenn nú I miklum erfiö-
leikum vegna veröfalls á báxiti
á heimsmarkaðnum og sam-
dráttar i túrismanum.
Hryðjuverkaalda
Mikilvæg ástæöa til hins sið-
arnefnda er. taliö vera aö.þaö
sem af er þessu ári hefur vérib
mikið um hryðjuverk og óeirðir
i Kingston. Hefur ofbeldisalda
þessi kostaö um 70 manns llfið.
Stjórnmálaflokkarnir kenna
hvor öörum um aö standa á bak
viö þetta. Verkamannaflokkur
Jamaiku segir aö stjórnarflokk-
urinn sé hér að verki, og ætli
hann aö nota hryðjuverkaöld-
una sem átyflu til að lýsa yfir
herlögum og fresta þingkosn-
ingum, sem eiga að fara fram i
siðasta lagi i febrúar 1977.
Mörgum þykir sú skýring ótrú-
leg, þvi að flokkur Manleys er
talinn hafa góöa sigurmögu-
leika i kosningunum. Þjóöar-
flokkur alþýöu er hinsvegar
þeirrar skobunar aö hinn ihalds-
sami andstööuflokkur sé ekki
saklaus af hryðjuverkunum og
njóti við þau stuðnings erlendra
útsendara. Engum blandast
hugur um aö þessir erlendu út-
sendarar, ef um þá er aö ræða,
séu á vegum Bandarikjanna.
Tilgangurinn meö hryðjuverk-
unum mundi þá vera aö skapa
vantraust á stjórn Manleys, i
von um að meö þvi takist aö
hrekja hana frá völdum. Þvi aö
þótt Þjóöflokkur alþýöu teljist
aðeins sósialdemókratiskur frá
evrópsku sjónarmiöi, þá hefur
sjálfstæð stefna hans i utanrik-
ismálum og væg tekjujöfnunar
stefna i innanlandsm álum
áreiðanlega dugað til aö sann
færa bæöi innlent og bandariskt
auðvald um aö Manley sé varg
ur I véum Vesturálfu, eins og
rábamenn Bandarikjanna og
einræöisrikja Rómönsku -
Ameriku vilja hafa þann heims-
hluta.
^lþ.
Lögtaksúrskurður
N j ar ðvíkurbær
Samkvæmt beiðni bæjarstjóra Njarðvikur
úrskurðast hér með að lögtök geta farið
fram vegna gjaldfallinnar, en ógreiddrar
fyrirframgreiðslu útsvara og aðstöðu-
gjalda 1976, svo og fyrir ógreiddum fast-
eignagjöldum 1976 allt ásamt drattar-
vöxtum og kostnaði.
Lögtök geta farið fram að liðnum átta
dögum frá birtingu úrskurðar þessa, ef
ekki verða gerð skil fyrir þann tima.
Keflavik, 9. júni 1976.
Bæjarfógetinn i Njarðvik,
Jón Eysteinsson (sign).
Helgarferð í
Skaftafell
Sumarferð Iðju, félags verksmiðjufólks
verður farin daganna 2.- 4. júli n.k. og
verður farið i Skaftafell. Farið verður frá
Skólavörðustig 16 föstudaginn 2. júli kl. 6
siðdegis.
Gist verður á Kirkjubæjarklaustri báðar
næturnar og er svefnpokaplass fyrir um 80
manns og einnig eru þarna góð tjaldstæði.
Verð farmiðans er kr. 6.000.00, og er
morgunmatur báða daganna innifalinn i
verðinu.
Væntanlegir þátttakendur verða að hafa
tryggt sér farmiða eigi siðar en 1. júli.
Stjórnin.
Múrarameistarar
Áfengis- og tóbaksverslun rikisins óskar
að ráða múrarameistara til að annast
múrviðgerðir á húsinu Borgartún 6.
Þeir, sem áhuga hafa á verkinu, hafi sam-
band við Verkfræðistofu Guðmundar G.
Þórarinssonar Skipholti 1, Reykjavik,
fyrir 25. júni 1976, er veitir nánari upp-
lýsingar um verkið.
Afengis- og tóbaksverslun ríkisins
Mikið úrval bóka
Marx, Engels, Lenin, tækni, visindabæk-
ur, skáldsögur, listaverkabækur, einnig
nótur og hljómplötur frá Sovétrikjunum,
Tékkóslóvakiu, Póllandi og Ungverja-
landi.
ERLEND TÍMARIT
Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig, 2. hæð. Simi
28035.