Þjóðviljinn - 19.06.1976, Page 11
Laugardagur 19. júnf 1976 ÞJÓDVILJINN — SIDA 11
„Hef synt upp
í sjötíu kíló-
metra á vikiT
segir Sigurður
Ólafsson og vonast
til þess að þurfa
ekki að fara
einsamall á
Olympiu leikana
Einn sundmaður hefur þeg-
ar tryggt sér farseðilinn á
Olympiuleikana i Montreal, en
það er Sigurður ólafsson úr
Ægi. Á 17. júnimótinu var
hann spurður um hvort árang-
urinn hefði ekki kallað á
margar og strangar æfingar.
— Jú, þetta hafðist nú ekki
öðruvisi, sagði Sigurður. — Ég
hef æft tvisvar á dag sex daga
vikunnar alveg frá áramótum
og komist hæst i að synda
svona 70 kilómetra á viku. Að
meðaltali syndi ég þó „ekki
meira” en svona 45-50 kiló-
metra. Við Axel höfum verið
saman á morgnana frá þvi i
mars og þá höfum við vaknað
um eða fyrir klukkan sex og
byrjað að æfa. Guðmundur
Harðarson er lika ræstur
svona snemma og siðan hitt-
umst við aftur að loknum
vinnudegi og æfum þá aftur
undir stjórn Guðmundar.
Þetta hefur þvi verið nokkuð
mikið puð, það hefst ekkert
öðruvisi.
— Og nú er takmarkinu náð,
hefurðu ekkert breytt um æf-
ingakerfi?
— Jú, þetta er allt öðru visi
þegar maður getur einblint á
OL-leikana. Ég ætla að synda
þar i 100,200 og 400 metra
skriðsundi og er alveg hættur
Sigurður ólafsson — upp
klukkan sex á morgnana.
að æfa með þessi mót hérna
heima fyrir augum. Ég náði
lágmarkinu i 200 metrunum og
hin eru þar með orðin auka-
atriði, ég sleppi ekki æfingum
nema i kannski einn dag fyrir
mótin eftir að ég náði lág-
markinu. Ég á þvi ekkert von
á þvi að gera stóra hluti hér
heima á næstu sundmótum,
það væri hins vegar vonandi
að betur tækist til þegar á
hólminn er komið i Montreal.
— Heldurðu að þú farir einn
islenskra sundmanna?
— Nei, það hugsa ég varla.
Stelpurnar eru alveg að ná
þessu og maður hefur ekkert
heyrt frá Danmörku ennþá en
þar æfir hann nafni minn úr
Hafnarfirði af miklum krafti
og á ágæta möguleika á
Olympiulágmörkum lika. Ég
vona bara að lágmörkin náist
sem fyrst svo menn geti íarið
að einbeita sér að þvi að æfa
fyrir Olympiuleikana sjálfa.
— gsp
HSÍ-þingið
hófst í gcer
Þing Handknattleikssambands
íslands hófst i gærkveldi i félags-
heimilinu á Seltjarnarnesi.
Þingið heldur svo áfram i dag og
er fyrirhugað að þvi ljúki i kvöld.
Búist er við að tillaga verði lögð
fram á þinginu um breytingar á
fyrirkomulagi Islandsmótsins i
handknattleik. Meðal þess sem
búist er við að gert verði er að
breyta úrslitakeppni mótsins
þannig að fjögur efstu liðin i 1.
deild þegar hin eiginlega 1.
deildarkeppni er búin, leiki til
úrslita um tslandsmeistaratit-
ilinn, ekki ósvipað þvi sem er I
Sviþjóð. Þá er einnig mögulegt að
lagt verði til að liðiö sem veröur i
2. sæti i 2. deild, fái að leika við
liðið sem verður i næst neðsta
sæti i 1. deild um hvort þeirra
leikur i 1. deild.
Einnig verða lagðar fram
ýmsar lagabreytingar aðrar og er
búist við að þetta þing geti orðið
hiö merkasta. —S.dór
Of kalt í veðri á 17.
júní-mótinu í sundi
Þeim Vilborgu Sverris-
dóttur og Þórunni Alfreðs-
dóttur mistókst báðum i
tilraunum sínum við
olympiúlágmörkin á 17.
júnímótinu i sundi í fyrra-
dag. Hins vegar setti Þór-
unn nýtt islandsmet i sinni
tilraun, er hún synti 100 m.
flugsundið á 1.09.8 sekúnd-
um, en eldra metið átti hún
sjálf. Næst eiga þær stöllur
tækifæri á íslandsmeist-
aramótinu sem fer fram
um helgina og ef veður-
guðir verða spakir er vart
við öðru að búast en að
dæmið gangi upp, það
vantar ekki nema hárs-
breiddina í lágmörkin.
Annars finnst mörgum að nú
þegar ætti að stöðva stúlkurnar i
þessari þrúgandi baráttu fyrir
farseðlinum til Montreal. Ekki
vantar t.d. hjá Vilborgu nema
fjögur sekúndubrot i lágmarkið i
200 m. skriðsundi og telja má full-
vist að hún nái þeim i tæka tiö. Á
meðan sú barátta stendur yfir
getur hún hins vegar ekkert æft
með hliðsjón af sjálfum OL-leik-
unum. Allt miðast við lágmarkið
og baráttuna fyrir þvi, en þegar á
leikana er komið getur siðan ver-
ið erfitt að hagnýta sér undirbún-
inginn og allar æfingarnar, sem
ekki voru byggðar upp fyrir ann-
að en litlu mótin hér heima. Þvi
finnst mörgum réttast að gefa
græna ljósið strax, lofa þeim
ferðinni til Montreal og hefja sið-
an undirbúninginn af fullum
krafti, það er ekki svo mikill timi
til stefnu að rétt sé að kasta hon-
um á glæ.
Snúum okkur að 17. júnimótinu.
Það hófst á 100 m. flugsundi karla
og þar synti Axel Alfreðsson
glæsilegt sund sem færði honum
fyrsta „almennilega” flugsunds-
vinninginn sinn. Hann fékk tim-
ann 1.05.2 min. en i öðru sæti var
Arni Eyþórsson á 1.06.2. Axel
synti af öryggi og er greinilega að
uppskera árangur mikilla æfinga
nú seinni hluta vetrar, en hann
hefur ásamt Sigurði Ölafssyni
sprottið framúr klukkan 6 á
hverjum morgni og byrjað æfing-
ar i Laugardalslauginni undir
stjórn Guðmundar Harðar-
sonar sundþjálfara. Siðan er aft-
ur æft að vinnudegi loknum og
árangurinn lætur að þvi er virðist
ekki standa á sér.
Næsta grein var 100 m. flug-
sund kvenna, tilraun Þórunnar
við OL-lágmarkið. Hún fékk tim-
ann 1.09.8 min, sem er nýtt
islandsmet., en i öðru sæti var
Bára ólafsdóttir á 1.11.8 min.
Olympiulágmarkið er 1.09.0 min.
t 50 m. baksundi telpna sigr-
aði Sonja Hreiðarsdóttir úr IBK á
timanum 38.1 sek. og Guðný Guð-
jónsdóttir Ármanni varð önnur á
39.5 sek. 1 50 m. bringusundi
sveina sigraði Rúnar Emilson KR
á 39.4 sek. og bróðir hans Guðni
varð annar á 43.9 sek.
Þá var komið að 100 m. skrið-
sundi karla. Sigurður Ölafsson
sigraði á 57.2 en Axel Alfreðsson
Vilborg Sverrisdóttir — aðeins
„handarbreiddinni” frá Ol-lág-
markinu.
varð annar á 59.1 sek.
t 100 m. skriðsundi kvenna
reyndi Vilborg Sverrisdóttir við
lágmarkið en tókst ekki. Hún
sigraði á timanum 1.03.6 og Bára
Ölafsdóttir var önnur á 1.05.4
min.
Siðasta greinin var 4x100 m.
skriðsund karla. Þar sigraði sveit
Ægis á 4.01.1 en Ármann varð i
öðru sæti á 4.13.9 min. B-sveit
Ægis varð i þriðja sæti.
Heldur var kalt i veðri á 17. júni
og háir það sundfólkinu ævinlega
nokkuð. —gsp
Islandsmótið í sundi
heldur áfram í dag
Þrir leikir i 1. deild um helgina:
Hörkuleikur á Skaganum
*
er IA og Yikingur mætast
Þrir leikir fara fram I 1.
deildarkcppninni um helgina og
siðan sá fjórði á mánudags-
kvöld. A Akranesi mætast 1 dag
lið heimamanna og Vikings og
verður það væntanlega sá leik-
ur, sem mesta athyglin beinist
að. Viðureignin hefst klukkan
14.30 og má búast við henni fjör-
legri, því Vikingur hefur nælt
sér f mörg stigin i sumar á
baráttugleði sinni og þótt alltaf
sé erfitt að sækja skagamenn
lieim eru engar likur á þvi að
ekki verði reynt að halda áfram
stigasöfnuninni.
A Laugardalsvelli leika i dag
klukkan 14.00 KR og IBK en á
morgun klukkan 20.00 mætast i
Kaplakrika lið FH og Breiða-
bliks.
A mánudagskvöld ieika siðan
saman efsta og neðsta liöið, þ.e.
Valur og Þróttur. Sá lcikur hefst
klukkan 20.00 á Laugardalsvelli.
Allt getur gerst i slikum leik,
fyrirfram mætti búast við
tveggja stafa markatölu Vals-
mönnum i vil en i svona leik
getur bókstaflega allt gerst.
Hver veit nema Þróttur nái
þarna sinu fyrsta stigi.
—gsp
íslandsmótið í sundi,
sem hófst að kvöldi 16.
júní, heldur áfram í dag og
á morgun í sundlaugunum í
Laugardal. Keppt verður í
eftirtöldum greinum:
2.dagur: Laugardagurinn 19. júni
kl. 15.
4. grein: 100 metra flugsund
kvenna
5. grein: 200 metra baksund karla
6. grein: 400 metra skriðsund
kvenna
7. grein: 200 metra bringusund
karla
8. grein: 100 metra bringusund
kvenna
9. grein 100 metra skriðsund karla
10. grein: 100 metra baksund
kvenna
11. grein: 200 metra flugsund
karla
12. grein: 200 metra fjórsund
kvenna
Hlé i 10 minútur
13. grein: 4x100 metra fjórsund
karla
14. grein: 4x100 metra skriðsund
kvenna
3. dagur: Sunnudagurinn 20. júni
kl. 15.
15. grein: 100 metra flugsund
karla
16. grein: 200 metra baksund
kvenna
17. grein: 400 metra skriðsund
karla
18. grein: 200 metra bringusund
kvenna
19. grein: 100 metra bringusund
karla
20. grein: 100 metra skriðsund
kvenna
21. grein: 100 metra baksund
karla
22. grein: 200 metra flugsund
kvenna
23. grein: 200 metra fjórsund
karla